Þjóðviljinn - 18.12.1986, Side 6

Þjóðviljinn - 18.12.1986, Side 6
BvEKUR Ljóð Gloría á lystisnekkju Ljóð á snældu frá Gramminu Lystisnekkjan Gloría heitir Ijóð- aútgáfa frá Gramminu: snælda þarsem sjö skáld lesa Ijóð sín, og fylgir með bæklingur Ijóðadæma og höfundarupplýsinga. Skáldin sem hér lesa eru Anton Helgi Jónsson, Björk Guð- mundsdóttir, Sjón, Einar Már Guðmundsson, Geirlaugur Magnússon, Steinþór Stefánsson og Þór Eldon, og hefur hver sitt iag á lestrinum, með tónlistar- undir- eða millileik ýmsum eða engum. Lystisnekkjan á sér forvera í Fellibylnum Gloríu sem Grammið gaf út í fyrra, og mynda Gloríumar tvær eina útgáfuheild. Á fyrri snældunni lásu skáldin Bragi Ólafsson, Dagur, Gyrðir Elíasson, Jóhamar, Linda Vil- hjálmsdóttir og Þorri Jóhanns- son. Það er ekki markmið að gefa með snældunum neinskonar heildarmynd af nútíma ljóðagerð á íslandi, segja útgefendur í kynningu, en snældurnar „ættu að gefa vísbendingu um þá grósku og fjölbreytni sem þar ræður ríkjum og kynna hana fyrir nýjum lesenda- og hlustenda- hópi.“ lambarás setrið 4 Flambardsbálkur K. M. Peytons Út er komin hjá Máli og menn- ingu bókin Sundrung á Flamb- ards, fjórða og síðasta bindið í bókaflokknum um fólkið á Flamb- ardssetrinu eftir breska rithöf- undinn K.M. Peyton. Fyrri bæk- urnar heita Flambardssetrið, Flugið heillar og Sumar á Flamb- ards. Þýðandi er Silja Aðal- steinsdóttir. Þessi mikla sögulega skáldsaga er skrifuð handa unglingum og lýsir vel aðstæðum á Englandi í upphafi aldarinnar, atvinnuhátt- um og aldarfari. Minnisstæðastar verða þó persónur bókarinnar, ekki síst söguhetjan Kristína, munaðarlausa stúlkan sem verð- ur óðalsbóndi. Höfundur hefur fengið margháttaða viðurkenn- ingu fyrir verkið, m.a. Guardian verðlaunin bresku, og það hefur verið kvikmyndað fyrir sjónvarp. Alec Guinnes. Sjálfsævisaga Alec Guinnes „Lán í óláni“ heitir sjálfsævi- saga hins kunna enska leikara Sir Alec Guinnes, sem nú er komin út í íslenskri þýðingu. Þetta er sérstæð og óvenjulega skrifuð sjálfsævisaga, sem kom fyrst út í Englandi í fyrra. Tákn gefur út. Undirtitill bókarinnar, frá fá- tækt til frægðar, varpar ljósi á stormasama ævi þessa viður- kennda leikara. Hann fæddist inn í ringulreið og lifði og hrærðist í henni um árabil. Með kænsku og dugnaði komst Alec Guinnes til metorða og átti þess kost að hitta ýmis mikil- menni samtímans bæði í röðum lista- og stjórnmálamanna. í ævisögunni greinir hann frá ýms- um þessara samskipta á einkar skemmtilegan og óvenjulegan hátt. Jólasveina- bækur og snældur Föndurskólinn Vesturbergi 73, Reykjavík, hefurgefið út barnalit- myndabók eftir Selmu Júlíusdótt- ur. Myndskreytingu gerði Marilyn Herdís Mellk. Þetta er fyrsta bókarverk Mar- ilyn Herdísar Mellk, en Selma Júlíusdóttir hefur áður gefið út tvær jólasveinabækur, „Stúfur stelur skíðum" og „Bjúgnakræk- ir“ myndskreyttar af Jóni Júlíus- syni. Þær hafa einnig verið gefnar út á snældu. Föndurskólinn hefur jafnframt látið útbúa föndur- stafaspil sem hönnuð eru af Selmu Júlíusdóttur. Síðasta bók Agötu Christie Bókaútgáfan Breiðablik er búin að senda frá sér bókina Þriðja stúlkan eftir Agöthu Christie. Þriðja stúlkan er síðasta verk Agöthu Christie og kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku í frábærri þýðingu Elíasar Marar rithöfundar. Um innihald bókar- innar: Ung stúlka, grunuð um morð, leitar til leynilögreglumannsins I Hercule Poirot. Hún missir kjarkinn í miðju samtali og rýkur út. Poirot ákveður að komast til botns í máli hennar, heimsækir Restaricks fólkið og kemst að raun um að þar er ekki allt með felldu. Hvert var leyndarmál blóðuga fjaðurhnífsins? Eitraði Norma fyrir stjúpu sína, eða var hún aðeins leiksoppur annarra?; Allt um Elliðaárnar ísafoldarprentsmiðja h.f. hefur sent frá sér bókina Elliðaárnar, eftir Ásgeir Ingólfsson. Þar er rakin saga Elliðaáranna að fornu og nýju og veiðistöðum við árnar lýst. Á annað hundrað litmynda eru í bókinni, m.a. litmynd af hverj- um veiðistað, auk margra svart- hvítra mynda. Bókinni fylgir kort af Elliðaárdalnum sem sýnir nöfn allra hylja og kennileita við árn- ar. Höfundurinn miðlar hér m.a. þekkingu afa síns og langafa sem stunduðu veiðar í ánum með breskum veiðimönnum fyrr á öldinni. Bókin er 204 bls. Laxness og Sovétríkin „Eina jörð veit ég eystra“ heitir ítarleg ritgerð um Halldór Laxness og viðhorf hans til So- vétríkjanna á tímabilinu 1930 og fram yfir 1960 og hvernig þetta viðhorf breytist. Höfundurinn Sig- urður Hróarsson, er ungur bókmennta- og ískenskufræð- ingur. Á þessu tímabili - frá rússnesku byltingunni og fram að stríði, löðuðust margir rithöfund- ar bæði í Evrópu og Ameríku að kommúnisma. Þeir töldu hann veita svör við flestum aðkallandi spumingum samtímans og fram- kvæmd hans í Sovétríkjunum væri lausn veraldarvandans. í þessum hópi var Halldór Lax- ness. Þessi þáttur í sögu Laxness er saga um óvenjulegt hrifnæmi „saga glæstustu vona og sárustu vonbrigða" eins og ritgerðarhöf- undur kemst að orði. Bókin er 202 bls. að stærð, gef- in út sem kilja hjá AB. Lausar stöður Lausar eru til umsóknar eftirtaldar hlutastöður (37%) í læknadeild Háskóla íslands. Dósentsstaða í almennri handlæknisfræði dósentsstaða í barnasjúkdómafræði dósentsstaða í brjóstholsskurðlækningum tvær dósentsstöður í klíniskri handlæknisfræði dósentsstaða í líffærameinafræði lektorsstaða í félagslæknisfræði lektorsstaða í heilbrigðisfræði lektorsstaða í heimilislækningum. Gert er ráð fyrir að stöður þessar verði veittar til fimm ára frá 1. júlí 1987 að telja og skulu þær tengjast sérfræðingsstöð- um á sjúkrahúsum, sbr. 3. mgr. 10. gr. laga nr. 77/1979 um Háskóla íslands. Að því er varðar dósentsstöðurnar í klín- iskri handlæknisfræði er gert ráð fyrir að önnur tengist sér- fræðingsstöðu við handlæknisdeild Landspítalans en hin sérfræðingsstöðu við handlæknisdeild Landakotsspítala. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rann- sóknir og ritsmíðar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 15. janúar n.k. Menntamálaráðuneytið 15. desember 1986 mömuiNN Höfuðmálgagn stjómarandstöðunnar Áskriftarsími (91)68 13 33 P Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd hreinsunardeildar Reykjavíkurborgar eftir tilboð- um í kaup á 5000 sorpílátum úr plasti, 240 lítra að rúmtaki með áföstum hjólabúnaði og loki. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3 Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 3. febrúar 1987 kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fiiknkjuvcgi 3 Simi 25800 MINNING Stefán H. Guðmundsson frá Fáskrúðsfirði Fœddur 29. nóv. 1916. Dáinn 10. des. 1986. Sigð dauðans hefur lostið góð- an vin svo óvænt og skyndilega. Hugur minn hvarflar til baka um rúm 30 ár austur til ættarslóða Stefáns á Fáskrúðsfirði, þar sem hann þá bjó með fjölskyldu sinni. Þar eystra bar fundum okkar fyrst saman. Á heimili hans átti ég margar ánægjulegar stundir, þar sem alúð og höfðingslund húsráðenda beggja réði ríkjum. Þar. myndaðist sú vinátta sem haldist hefur æ síðan. Stefán var einlægt prúðmenni, sannur drengskaparmaður, er hafði að vegarnesti í lífi sínu heita og staðfasta trúarsannfæringu, sem veitti honum lífsfyllingu, en hann naut einnig hamingju í sínu einkalífi og var gæfumaður, sem gekk þannig um meðal samferða- fólks, að hann ávann sér vináttu og traust allra er honum fengu að kynnast. Hann var hins vegar dulur maður og flíkaði lítt sínum tilfinningum, en hann var vinur vina sinna, hlýtt og traust var handtakið, sem lýsti skaphöfn hans vél. Hann var maður ærinn- ar alvöru, en átti létt með að slá á gleðinnar strengi, ekki síst þegar hann gaf sig söngnum á vald, en hann var hinn ágætasti söngmað- ur, hafði hreimfagra og sterka rödd, sem hann kunni að beita af ærnu listfengi. Stefán var starfsins maður alla tíð, ungur fór hann að stunda sjó- mennsku, fór í verið vetur eftir vetur svo sem títt var um Austfirðinga á þeim árum, en hér syðra annaðist hann lengst af hús- vörzlu af stakri samvizkusemi og trúmennsku þess, sem í engu vildi vamm sitt vita. En hann var líka maður heimilisins, þar undi hann bezt í faðmi fjölskyldu sinnar, sannur veitandi umhyggju og al- úðar. Stefán var greindur maður og gott við hann að ræða, hann fylgdist með öllum þjóðmálum og var einlægur sósíalisti að lífs- skoðun alla tíð. Lítilmagninn átti hug hans, samúð hans var með hinum kúguðu og undirokuðu, hann þekkti kreppuna í austfirzku sjávarþorpi, þar sem fátæktin blasti hvarvetna viðl í þeim eldi verkalýðsbaráttu þeirra ára skírðist hugsjón hans og mót- aði lífsviðhorf hans og allt fór þetta ágæta vel saman við ákveðna trúarskoðun, sem hon- um var heilög. Stefán var ævinlega sjálfum sér samkvæmur, heill og óskiptur í hverju því sem hugur eða hönd vann að. Stefán var fæddur 29. nóv. 1916 á Fáskrúðsfirði og var því nýorðinn sjötíu ára, er hann lézt. í góðra vina hópi hélt fjölskyldan afmæli hans hátíðlegt og engan óraði þá fyrir slíkum umskiptum. Feginn hefði ég viljað vera þar til að sajmfagna honum með árin liðnu. Foreldrar Stefáns voru hjónin Björg Pétursdótir og Guðmund- ur Erlendsson er bjuggu á Fá- skrúðsfirði. Árið 1937 gengu þau í hjónaband Aldís Kristjánsdóttir og Stefán og þar fólst lífsgæfa hans mest að eiga þessa glað- beittu og geislandi hlýju konu að lífsförunaut. Dætur þeirra urðu tvær Elsa og Fjóla, báðar búsett- ar hér í borg. Þær voru nemendur mínir vetrarlangt á Fáskrúðsfirði og urðu mér einkar kærar. Bamabömin eru orðin 9 og barnabarnabörnin 6. Þar er stór hópur sem sárlega saknar í dag. Farsælum lífsferli er lokið og komið að kveðjustund. Veitula vináttu og kær kynni um langan'veg hlýt ég að þakka heilum huga. Órofatryggð við sameiginlegan málstað má ég til með' að þakka sérstaklega. Um leið og ég sendi Aldísi, Elsu og Fjólu og öðrum ástvinum ein- lægar samúðarkveðjur veit ég að minning um sannan dreng mun milda tregann og varpa birtu fram á veginn í gegnum myrkur- móðu þessara desemberdaga. Sú mæta minning sem vammlausan hal og góðan vin er blessuð í dag. Megi Stefáni verða vistin góð á þeim ódáinsakri eilífðarinnar, sem hann trúði á af svo mikilli einlægni og vissu. Helgi Seljan 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.