Þjóðviljinn - 18.12.1986, Síða 7
Flmmtudagur 18. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Nicaragúa þarf stuðning
Ragnar Stefánsson rœðir við Uriel Perez
Uriel Perez starfar við sendi-
ráð Nicaragua í Stokkhólmi, en
þar er reyndar sendiráð sem
sinniröllum Norðurlöndunum,
líka íslandi. Uriel var hér ný-
lega í boði El Salvador-
nefndarinnar og nokkurra ann-
arra samtaka og flokka.
Pví miður gat Uriel bara staðið
hér við í tvo daga, enda allt of fátt
fólk í sendiráðinu, sagði hann, og
því hefði hann ekki getað verið
lengur í burtu. Smástund gafst til
að hafa við hann viðtal, og af því
Uriel sinnir fyrst og fremst tengs-
lum við samstöðuhreyfingarnar
spurði ég hann nánast eingöngu
um stuðning Norðurlandanna við
Nicaragua.
Stuðningur Svía
Uriel finnst að það yrði mikil
langloka að fara að telja upp all-
an þann stuðning sem Norður-
löndin veita Nicaragua. Tökum
Svíþjóð sem dæmi. Stuðningur
kemur bæði frá ríkinu og fjöl-
mörgum öðrum aðilum. Opinber
aðstoð er um 125 miljónir
sænskra króna. Nú stendur til að
auka hana upp í 160 miljónir, eða
u.þ.b. miljarð íslenskra króna.
Aðstoðin er veitt með ýmsum
hætti, stundum til stórverkefna,
sem Svíar vinna með okkur í Nic-
aragua, í öðrum tilvikum renna
fjármunirnir sem launagreiðslur
til tæknimanna sem fara þangað.
Eitt mikilvægasta verkefni Svía
i Nicaragua er endurbætur á
gullnámum og vinnslu úr þeim.
Annað verkefni sem þeir taka
mikinn þátt í er endurreisn timb-
uriðnaðar, og undirbúningur
þess að skógarhögg og timbur-
framleiðsla verði aftur mikilvirk-
ur þáttur í atvinnulífi landsins. f
hitabeltisskóginum eru nytjar
dreifðari en mest þekkist á norð-
Iægum slóðum. Timburiðnaður
hafði mjög drabbast niður fyrir
byltinguna, enda gengið hættu-
lega á nytjatré með rányrkju. Þá
hafa Svíar aðstoðað við skipu-
lagningu smárra og meðalstórra
raforkuvera á svæðum sem
dreifikerfi „landsvirkjunar“ Nic-
aragua nær ekki til.
Sænska SÍS
Sænska samvinnuhreyfingin
hefur mjög stutt við samvinnu-
hreyfinguna í Nicaragua, en Uri-
el telur að skipulag samvinnu-
hreyfingarinnar í Nicaragua, er
Uriel telur að skipulag samvinnu-
hreyfingarinnar í Nicaragua sé
svipuð og hér á Norðurlöndun-
um. Þeir láta í té alls konar land-
búnaðartæki, skógarvinnslutæki
og áhöld.
SIDA, sænska þróunarstofn-
unin, er sá farvegur sem mikið af
hjálpinni til Nicaragua fer um.
Þá kemur mikil hjálp frá
kirkjusamtökum. Algengt er að
þau safni og láti í té notaða hluti,
tæki, skólavörur alls konar, fatn-
að ofl. Meira að segja skrifstofu-
tæki, sem eru talin úrelt, en koma
okkur að geysimiklum notum.
Kirkjan borgar sjálf flutnings-
kostnað.
Nú, sænskir un'gkratar aðstoða
æskulýðssamtök Sandinista að
byggja menntasetur fyrir
æskufólk í Nicaragua. Svo get ég
nefnt dæmi um einstaklings-
framtak þar sem eru þeir Mikael
Wiehe og Björn Afzelius, sem
hafa haldið marga rokktónleika
til stuðnings menningarstarfsemi
í Nicaragua.
Rádda barnen, sem er eins
konar barnahjálp Svíþjóðar er
með ýmis verkefni í Nicaragua.
Margt er auðvitað ótalið m.a.
það sem kannski er grunnurinn
að þessu öllu, en það er beint og
óbeint hjálparstarf samstöðu-
hreyfinga og nefnda.
100 m. n.kr. - 100 m $
Opinber aðstoð Noregs er um
65 miljónir n.kr. núna og er að
hækka. Þriðjungur fer í beinan
efnislegan stuðning, annar þriðj-
ungur fer um hendur alþjóða-
stofnana, og afgangurinn fer til
samtaka í Nicaragua, sem vinna
að friði, stöðugleika og betri að-
stæðum fyrir fólkið.
Þeir aðstoða í sambandi við fisk-
iðnað og pappírsframleiðslu og
hafa sent tilbúinn áburð og áhöld
handa smábændum.
Samstöðuhreyfingin í Noregi,
„Nicaragua verður að lifa“ hefur
sett sér það markmið að safna 100
miljónum noskra króna, til að
vega eitthvað á móti þeim 100
miljónum dollara sem Bandaríkj-
aþing samþykkti nýverið að láta
Contra-málaliðunum í té.
Norðmenn hafa sent skip og
fólk til starfa í Nicaragua. Skipin
eru hugsuð sem fyrirmynd fyrir
skip sem byggð verða í landinu
sjálfu.
VS lifir enn
Mest af opinberu hjálpinni frá
Danmörku fer gegnum alþjóð-
astofnanir svo sem UNISEF og
UNESCO. Þingmenn Vinstri
sósíalista þar í landi ákváðu að
gefa launahækkun sem þeir fengu
í september alfarið til Nicaragua,
en það voru 250 þúsund danskar
krónur á ári hjá þeim. Skora þeir
á aðra þingmenn að gera slíkt hið
sama.
Stuðningur Finna fer vaxandi,
og er opinber aðstoð þeirra nú
um 27 miljónir marka á ári. Þeir
senda alls kyns vélar, tæki til
mjólkurframleiðslu og tæki til
flugvallarreksturs á svæðum á
Atlantshafsströndinni, svo
eitthvað sé nefnt. Verkalýðsfé-
lögin hafa látið mikið af hendi
rakna. Málmiðnaðarmenn sendu
t.d. nokkra sjúkrabíla o.s.frv.
Er hin erlenda aðstoð vaxandi?
spyr ég. Jú hún er vaxandi. Hann
nefndi áður vaxandi aðstoð frá
Svíþjóð og Noregi og vegna góðs
álits sem þeir nytu í heiminum ur er við heilagan Þorlák vinabær
nytu þeir almennt vaxandi stuðn- fiskiþorpsins, sem kennt er við
ings, Uriel tók það fram að Nor- heilagan Jóhann fyrir sunnan, í
egur veitti geysi mikilvæga opin- Nicaragua.
bera aðstoð, líka þegar hægri
stjórnin var þar við völd.
En La Prensa
Dró ekkert úr stuðningi viriNic-
aragua, þegar dagblaðið La
Prensa var stoppað? Ekki held ég
það, segir Uriel. Það var auðvit-
að heilmikil gagnrýni. En við
erum í stríði. Eg held að fólk
skilji að stjórn okkar átti ekki
annars úrkosta. Engin ríkisstjórn
mundi leyfa stórblaði á borð við
La Prensa að styðja þúsund
manna innrásar- og hryðjuverka-
sveitir, sem vaða um landið með
morðum og pyntingum. Eina
skilyrði þess að La Prensa geti
byrjað aftur er að það hætti að
styðja erlent stórveldi í árásum
sínum á landið okkar.
Alþingismenn til
Nicaragua í apríl?
Uriel segir að það sé almennt
vaxandi skilningur á því hvað það
sé nauðsynlegt að styðja Nicarag-
ua. Eitt dæmi um það er að Al-
þjóðasamtök þingmanna munu
halda fund í Managua dagana 27.
apríl - 2. maí n.k. Taldi hann
þetta mikinn stuðning við landið
og tilvist þess. Noregur, Finnland
og Svíþjóð hafa þegar tilkynnt
um þátttöku sína. Vonandi
sleppa einhverjir íslenskir þing-
menn heimdraganum þá líka,
segi ég feimnislega fyrir hönd ís-
lensku þjóðarinnar.
Þorlákshöfn og
San Yan del Sur
Hafið þið ekki vinabæjartensl
við borgir og bæi í Svíþjóð? Jú,
jú, hvað heldurðu. Lundur er
vinabær námubæjarins Libertad.
En er ekkert fiskiþorp þarna,
sem spennandi væri fyrir íslenskt
fiskiþorp að eignast sem vinabæ?
Jú, jú segir Uriel, t.d. San Juan
del Sur. Og mér dettur í hug að
kannski verði fiskibærinn á
suðurströnd íslands, sem kennd-
Hætta á innrás
ekki minnkað
Að lokum spurði ég Uriel,
hvort síðasta hneykslismálið í
Bandaríkjunum, leynileg vopna-
sala til írans og flutningur ágóð-
ans til Contra-málaliðanna,
styrkti ekki stöðu Nicaragua og
veikti Bandaríkin í árásarstefnu
sinni. Uriel kvað þetta að vfsu
rétt. En stjórnvöld í Nicaragua
hefðu reyndar ekki minni áhyggj-
ur af því að bandarísk stjórnvöld
mundu einmitt nú grípa til örþrif-
aráða gegn Nicaragua, til að
reyna að breiða yfir hneykslin
heima fyrir.
Ekki var gengið frá þessu við-
tali fyrr en eftir að fréttist af loft-
árás Bandaríkjanna og
Honduras-hers á þorp í Nicarag-
ua nú í vikunni, til að staðfesta á
óhugnanlegan hátt þessi síðustu
orð Uriels. R- St.
Saga ísafjarðar II
Saga ísafjardar er
fróðleg heimild um
aðdraganda og upphaf
Skúlamála og þau
átök. sem fylgdu í
kjölfar þeirra.
Nauðsynlegur lestur
fyrir sýningu
Uppreisnar á ísafirói.
,,Að minni hyggju er
öllum Vestfirðingum
mikill fengur í hinni
fögru og fróðlegu bók,
Saga ísafjarðar og
Eyrarhrepps hins
forna.“
Jóhann Hjaltason.
SOGUFELAG ISFIRÐINGA