Þjóðviljinn - 18.12.1986, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 18.12.1986, Qupperneq 14
BÆKUR ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Æskulýðsfylkingin í Reykjavík Jólafagnaöur Félagar. Æskulýösfylkingin í Reykjavík mun halda jólafagnað laugardaginn 20. desember kl. 9 til ? Krossið á dagatalið. Dagskrá auglýst síðar. Stjórn ÆFR. Dregið hefur verið í happdrætti ÆFAB. Vinningsnúmerin hafa verið innsigluo til 20. des. n.k. Ykkur gefst því enn kostur á að eignast ritsafn Lcixness og sitthvað fleira, með því að greiða heimsenda gíróseðla. Framkvæmdaráð ÆFAB Ferðabókin I LANDI REAGANS eftir Halldór Halldórsson útvegsfræðing. FERÐAMINNINGAR MANNS SEM HEFUR FLAKK- AÐ SVO MÁNUÐUM SKIPTIR UM ÞVER OG ENDI- LÖNG BANDARÍKIN ( BÍL, FLUGVÉL OG LEST. MEÐAL KAFLA: BILTMORE HOUSE, - STÆRSTA EINBÝLISHÚS VERALDAR • VALDIMAR BJÖRNSSON í MINNES- OTA • FILMSTJÖRNUR í HOLLYWOOD • í YELL- OWSTONE ÞJÓÐGARÐINUM • ( ÍSLENDINGA- BYGGÐUM í BANDARÍKJUNUM OG KANADA • VEGAKERFIÐ í BANDARÍKJUNUM • BOYSTOWN í OMAHA í NEBRASKA • í RENO OG LAS VEGAS • HÚS PRESLEYS í MEMPHIS í TENNESSEE • ÞÚ VERÐUR „SKOTINN" í DODGE CITY • VIÐ GRÖF BILLY THE KID • RISAFLUGBÁTUR HOWARD HUGHES OG QUEEN MARY • ORRUSTUSKIP TIL SÝNIS • Á SKEMMTUN HJÁ BOB HOPE • FJÖRUGT MANNLÍF Á FISHERMAN'S WHARF í SAN FRANCISCO • EYJA RÍKA FÓLKSINS • BÍ- LASÖFN • DRAUGAHÚS FRÚ WINCHESTER • MARMARI, KOPAR, GLER, - ÞAR ER ROCKEFELL- ERCENTER • í UNIVERSAL KVIKMYNDAVERINU í HOLLYWOOD • GEYSER í CALIFORNIU • LÖG- REGLAN í BANDARÍKJUNUM • Á RODEO í CODY í WYOMINGRÍKI • STYTTUR OG MINNISMERKI TENGT ÍSLANDI • Þetta er bókin um þjóðina sem lesendur Þjóðviljans hafa svo mikinn áhuga á. Útgefandi. Eyrtin á 'veggfttnom eftir verðlauna- höfundinn — bráðskemmtUeg barnabók Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Einkunnir haustannar verða afhentar í dag. Nem- endur dagskóla sækja einkunnir kl. 13, skoöa prófúrlausnir kl. 13.30-15 og ganga frá vali vegna stundaskrár á vorönn 1987 (staðfesta fyrra val eða breyta því) kl. 15-16. Mikilvægt er að allir nemendur gangi frá vali á þessum tíma, þar sem stundatöflur vorannar verða aðeins gefnar út eftir staðfestum valblöðum. Nemendur öldungadeildar sækja einkunnir og skoða úrlausnir kl. 18-20. Þá fer einnig fram val fyrir vorönn gegn greiðslu staðfestingargjalds kr. 500, en 3600 kr. skólagjald verður innheimt í upphafi vorannar. Brautskráning stúdenta verður laugardaginn 20. desember kl. 14. Rektor SETIÐÁ nHil Snjólaug með spennusögu Út er komin hjá Erni og Örlygi skáldsagan SETIÐ Á SVIK- RÁÐUM eftir Snjólaugu Braga- dóttur frá Skáldalæk og er þetta tólfta bók hennar. Þetta er spennusaga sem gerist að mestu á Suður-Englandi. Aðal- sögupersónan er íslensk stúlka í sumarfríi en jafnframt er hún í leit að hálfbróður sínum sem hefur horfið sporlaust ásamt eigjnkonu sinni sem er frá Norður-írlandi. (slenska stúlkan finnur fljótlega að mikillar varkárni er þörf, því norður-írskir hryðjuverkamenn eru líka í leit að mágkonu hennar. Þá hefur forlagið endurútgefið fimmtu bók Snjólaugar Braga- dóttur frá Skáldalæk sem nefnist 'ENGINN VEIT HVER ANN- ARS KONU HLÝTUR. Bókin varð á sínum tíma metsölubók en hefur ekki fengist um nokkurt skeið. Ferðabók um Bandaríkin Út er komin bókin „í landi Re- agans" eftir Halldór Halldórsson útvegsfræðing sem jafnframt gefur bókina út. f bókinni eru yfir 50 kaflar og fjalla þeir um ferða- lög bókarhöfundar innan Banda- rikjanna. í bókinni eru um 100 myndir. í bókinni er komið víða við. Einn kafli er um hús Presleys í Memphis í Tennessee. Út af strönd Georgiaríkis er eyja sem heitir Yekyll Island. Skömmu fyrir síðustu aldamót keyptu nokkrir af ríkustu mönnum Bandaríkjanna og byggðu þar nokkur hús og lokuðu sig af fyrir almenningi. I bókinni segir frá heimsókn til eyjunnar. Þegar höfundur ferðaðist um í Californ- iu kom hann á bóndabæ sem heitir Geyser en innan marka jarðarinnar er goshver sem gýs á nokkurra mínútna millibili. Meðal sérkenna á bandarísku þjóðlífi er hvernig minning ým- issa ribbalda er haldið á lofti og er í því sambandi kafli um gröf Biliy the Kid sem er þekktur ferða- mannastaður í New Mexico. Tveir kaflar tengjast fslandi og er annar um íslendingabyggðir í Bandaríkjunum og Kanada, en hinn um styttur og minnismerki sem varða ísland. í bókinni er sagt frá hvernig Norðmenn stela Leifi heppna frá íslendingum og eru þeir ansi lúmskir við þjófnað- inn. Ný íslensk unglingasaga ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA H.F. hefur sent frá sér bókina VIL, VIL EKKI eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur. Þetta er unglingasaga og fjallar um menntaskólastúlkuna Elísu sem stendur á tímamótum í lífi sínu. Hún er í föstu sambandi við ungan mann á uppleið þegar at- burðir gerast sem vekja spurning- ar um hvort sú trygga framtíð sem við henni blasti sé það sem hún raunverulega vili. Kýs hún kann- ski óvissu og ævintýri frekar? Höfundurinn hlaut verðlaun í barnabókasamkeppni Ríkisút- gafa Námsbóka á barnaári. Bók- in er 215 bls., unnin að öllu leyti í ísafoldarprentsmiðju h.f. KKISTÍV I.LVI SUOIT1« . Mbt Kl)l H l-OKU J.1MO 22« GÓ1V1S4Í11R ávaxla og bt*rjaix‘1 tir HoJrft <it.i-.site«ra litiuynila «1 irUHUiim pnáa iiiiMoa uufc tu.irgia <i-ifcntHK.i KrlMiti f*i>tsdott)r it rinnln hiduudur irófcaun.i 22ií ftéwsariir Nþivarrellix n« 22« l|ulf.'n«lr famtMfcþrlM éttfr ___________'">tW lulfcltta itHsa-tda. Ávaxta- og berjaréttir Bókaútgáfan Örn og Örlygur hef- ur gefið út bókina 220 GÖMS- ÆTIR ÁVAXTA- OG BERJAR- ÉTTIR eftir Kristínu Gestsdóttur með fjölda teikninga eftir Sigurð Þorkelsson og litmynda sem Guðmundur Ingólfsson tók af réttunum. Kristín Gestsdóttir er höfundur bókanna 220 gómsætir sj ávarrétt- ir og 220 ljúffengir lambakjöts- réttir. í bókinni er lýst matreiðslu á ábætisréttum, kökum, drykkj- um, krapréttum, saft og sultu úr ávöxtum og berjum. Eflaust kemur það mörgum til góða að í bókinni er lýst matreiðslu allra hinna mörgu framandi ávaxta sem farið er að flytja til landsins. Má þar nefna kafki, gullappels- ínu (kumquat), papaya, kívi, mangó, litchi, ástríðuávöxt (pass- ionfruit) og granatepli. Aldnir hafa orðið, 15. bindi Erlingur Davíðsson rithöfundur sendir nú frá sér 15. bindi þessa einstæða ritsafns, sem nú er orð- ið mikið bæði að vöxtum og vin- sældum. Alls eru sögumenn orðnir 105, og bækurnar 15 eru merkar heimildir um ættfræði, atvinnusögu, þjóðhætti, sagn- fræði og margt fleira. Þótt þeir, sem hér segja frá, séu enn á lífi og flestir í fullu fjöri, þá spegla frásagnirnar liðinn tíma, sem fjar- lægist ört á okkar miklu breytingatímum. - Þau, sem frásagnir eiga í þessu bindi, eru: Elín Stefáns- dóttir húsfreyja og ljósmóðir að Miðfelli í Hreppum, Finnlaugur Pétur Snorrason frá Syðri-Bægisá í Öxnadal, Helga Gunnarsdóttir verkakona á Akureyri, Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur í Reykjavík, Jóhanna Árnason í Rammagerðinni á Akureyri, Sig- urður Elíasson iðnrekandi í Kóp- avogi og Þórarinn Vigfússon skipstjóri á Húsavík. Leiðtogafundurinn í Reykjavík Guðmundur Magnússon, blaðamaður á Morgunblaðinu hefur samið bók sem nefnist „Leiðtogafundurinn í Reykjavík". Almenna bókafélagið gefur út. I bókarkynningu segir á þessa leið: í þessu verki birtist greinargóð frásögn af því sem gerðist hér- lendis dagana fyrir leiðtogafund- inn í Höfða og á meðan fundur- inn stóð yfir. Sagt er frá viðbún- aði vegna fundarins, frétta- mönnum, fundinum sjálfum og þeim málum sem tekin voru fyrir og deilt var um. Bókin er prýdd fjölda mynda með textum bæði á íslensku og ensku. Þá er í bókar- lok útdráttur á ensku. , 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 18. desember 1986 f Þetta er eigulegt verk fyrir þá er vilja varðveita minninguna um þá daga í september og október 1986 er ísland var svið heimsat- burða. Dómari og böðull Bókaútgáfan Breiðablik hefur sent frá sér bókina Dómari og böðull, eftir Mickey Spillane. Mickey Spillane er heimsþekktur sakamálarithöfundur af „harða skólanum" svonefnda. Nokkur orð um innihald bókarinnar: „Félagi minn Jack er dáinn, - myrtur af einhverjum sem hefur horft á hann deyja með háðsbros á vör, meðan honum blæddi út... Ég hef svarið þess dýran eið að hefna dauða Jacks vinar míns. Og þegar ég hef gómað morðingjann mun ekkert stöðva mig. Ég mun verða allt í senn, kviðdómur, dómari og böðull... “ Þannig talar Mike Hammer, einkaspæjarinn. ...Maðurinn sem framfylgir rétt- lætinu, meðan Iögreglan stendur ráðþrota. Fíladelfíuforlagið Trúarleg rit og dagatöl Fíladelfíuforlagiö hefur sent frá sér bækurnar „Friður, Mattheus- arguðspjair og „Trú, Bréf Páls til Rómverja". Þetta eru fallegar bækur innbundnar í harða kápu og skreyttar litmyndum á hverri síðu. Textinn er úr „Lifandi orð“, endursögn Nýja testamentisins á íslensku. Bækurnar eru einkar aðgengilegar fyrir þá sem ekki eru vanir að lesa Nýja testament- ið, og kjörnar fyrir þá sem vilja kynnast sígildum boðskap þess, - eins og segir í bókarkynningu. Bækurnar kosta 400 kr. hvor um sig. Sama forlag hefur einnig sent frá sér litprentað dagatal, sem kallast „Sköpunin“, er hefur að geyma myndir úr ríki náttúrunn- ar. Hverjum degi ársins fylgir jafnframt ritningargrein og reitur fyrir minnisatriði. Dagatalið kostar 295 kr. Þá er einnig komið út hjá Fíla- delfíu póstkortadagatalið Börn og vinir með vinsælum barna- myndurn. Þessum dagatölum er ætlað að standa á borði eða hanga á vegg og kosta þau 255 og 215 krónur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.