Þjóðviljinn - 20.12.1986, Blaðsíða 5
Hagsmunir sumra -
eða hagsmunir allra?
þlÓÐVILJINN
Fyrirtœkin
Milljarðar fra hemum
íslenskir Aðalverktakarfengu nœr2,5milljarða frá hernum á árunum 1984og 1985.
Nær300 íslensk fyrirtœki i viðskiptum við herinn.
Fimmtíu stœrstufengu um 5 milljarða á tveimur árum
> rciðslur band*rbfcji bcnfaM til
lOOOdolUrahvert.enekkierget- Iranna 1984 og 1985. Fyrra árið
iö um fyrirUelu sem hafa átt við- námu þ*r um 136 milljónum
tlinti vjð twrinn um tninni fjár- kjróoa, cð 244 milljónum scinna
milljón, Eimskip sem fyrr segir
mcð 56 milljónir, Orkustofnun
með 54 milljónir. Hafskip fékk
x 33 milljónir, Mjólkursamsal-
ot.Himms-
Saudárkrókur
Minkur í
rúmfötunum
Minkadráparax háóu mlklnn
eflingarleik á beimili gamallar
konur á SauSárkróki í gser og
unnu aO tokura á dýrinu i rum-
falageyouiu i svefnbekk.
Gamla konan hafði brugðið sér
út á tróppur að taka á móti gcsti
þegar minkurinn stökk alltieinu
óboðinn innum gcttina. Konan
kallaði á lógreglu scm kvaddi til
með sér menn frá benum og tókst
' þvi lidi loks að handsama mink-
inn i rúmfötunum
Borgar
þetta sig?
Það kostar Bandaríkjastjórn
ekkert smáræði að verja íslend-
inga fyrir aðsteðjandi ógnum. Og
þessir peningar koma upp úr
vösum bandarískra skattgreið-
enda, svo að þeir sem peningun-
um beina til hersins í Keflavík
hljóta öðru hverju að þurfa að
svara spurningunni: Borgar þetta
sig?
Sömuleiðis þurfa Islendingar
að spyrja sjálfa sig sömu spurn-
ingar: Borgar þetta sig?
Svörin bæði í Bandaríkjunum
og á íslandi hljóta að byggjast á
mati á hagsmunum.
Bandaríkjamenn hljóta að
spyrja sjálfa sig, hvað sé upp úr
því að hafa að halda her manns
með hergögn upp á tugi milljarða
á íslandi. Er svona mikið gefandi
fyrir að vernda söguþjóðina fyrir
árásum vondra manna? Eða er
kannski verið að borga fyrir
bandarískt öryggi? Er verið að
borga fyrir ómissandi hlekk í
varnarkeðju Bandaríkjanna
sjálfra? Er verið að borga að-
stöðu á hernaðarlega mikilvæg-
um stað, sem liggur mitt á milli
Bandaríkjanna og Evrópu, og er
lykill að öllum hernaðaraðgerð-
um á Norður-Atlantshafi?
Sennilega er svarið svo einfalt
að Bandaríkjamenn séu reiðu-
búnir að eyða miklu fé í hersetu á
íslandi, þar sem sú herseta sé
ómissandi fyrir þeirra eigið ör-
yggi. Og ekkert við því að segja,
nema hvað betra er að hafa það
heldur er sannara reynist, og
viðurkenna að herstöðin hér
þjóni fyrst og fremst bandarísk-
um hagsmunum.
Hvað með
íslendinga?
Gott og vel. Hvað með íslend-
inga? Borgar þetta sig fyrir okk-
ur? Er eitthvert öryggi fólgið í því
að hafa hér herstöð og flugvélar
og hernaðarmannvirki, sem eru
augljós skotmörk, ef Bandaríkin
lentu í vopnuðum útistöðum við
einhverja andstæðinga? Eða eru
þessi mannvirki og vígvélar hér
fyrst og fremst til að forða því, að
einhverjir ruddar fari að abbast
upp á íslendinga og beiti þá
vopnavaldi?
Það er fljótsagt, að meiri líkur
eru á því að Bandaríkjamenn
lendi í vopnaviðskiptum heldur
en íslendingar, sem í seinni tíð
hafa ekki átt í útistöðum við aðr-
ar þjóðir en Natófélaga okkar
Breta.
Það er því erfitt að sjá hvernig
það getur borgað sig fyrir íslend-
inga að hafa bandarískt herlið á
íslenskri grund. Það er að segja,
þegar talað er um íslendinga sem
heild.
En hins vegar er hægt að líta
öðruvísi á málið: Það sem borgar
sig fyrir suma íslendinga þarf
ekki endilega að borga sig fyrir
alla íslendinga. Eða: það sem
borgar sig ekki fyrir íslendinga
sem heild getur engu að síður
borgað sig ákaflega ríkulega fyrir
suma íslendinga.
Og þá er maður farinn að nálg-
ast kjarna málsins: Ef hersetan
þjónaði engum íslenskum hags-
munum þá væri engin herseta
hérna, nema því aðeins að við
hefðum annaðhvort verið
keyptir, íslendingar, eða beittir
ofbeldi.
Á íslandi er erlendur her. Sá
her þjónar hagsmunum Banda-
Viðmiöunargengi USD 41.278
1. ísl. Aðalverktakar
Byggingaverktaki ofl.
2. Keflavíkur verktakar
Byggingaverktaki
3. Hitaveita Suðurnesja
Hitaveita
4. Olíufélagið h.f. R
Afgreiðsla og geymsla
á olíubirgðum varnar-
liðsins á Kef.flv./Hvalf.
5. Rarik
Rafmagn
6. Póstur og sfml
Póst- og símaþjónusta
7. Eimskip h.f. Rvík
Flutningar og gámaleiga
8. Orkustofnun Rvík
Mælingaþjónusta
9. Hafskip h.f. Rvík
Flutningar og gámaleiga
10. Mjólkursamsalan Rvfk
Mjólkurafurðir
11. Rammagerðin Rvík
fsl. ullar- og gjafavörur
12. Sérleyfisbifreiðar Keflav.
Flutningar á fólki
13. Karl Arason Keflavík
Hreingerningaverktaki
14. P. Árnason s.f. Rvík.
Pökkunarþjónusta
15. Suðurleið
Flutningar á gámum frá Rvík
16. Pökkun og flutningar s.f.
Pökkunarþjónusta
17. íslenska Pökkunarfélagið
Pökkunarþjónusta
18. Hilmar Sölvason Kef.
Hreingerningaverktaki
19. Flugleiðir h.f. Rvík
Flutningaþjónusta
20. Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja
Sorpeyðing
21. K.K. Karlsson Rvík
Áfengi
22. Samband fsl.
Samvinnufélaga SÍS Rvík.
Flutningar/alhliða vörur
23. Hafsteinn Axelsson
Njarðvík
Sorphreinsunarverktaki
24. Gísli J. Johnsen h.f.
Tölvubúnaður/
skrifst.húsgögn
25. Heiðar Pétursson
Flutningur Höfn/Keflav.
ríkjamanna, því að annars væru
þeir ekki að kosta dvöl hans hér
eða sækjast eftir hernaðaráhrif-
um.
En hvað með hagsmuni íslend-
inga? Sumir eru hræddir við að
USD fslenskar krónur
25,298,998.02 1.044.292.040.27
8,844,310.00 365.075.428.18
5,930,664.37 244.805.963.87
4,480,892.73 184.962.290.11
3,238,346.06 133.672.448.67
2,208,527.69 91.163.605.99
1,360,372.91 56.153.472.98
1,308,682.12 54.019.780.55
796,525.72 32.878.988.67
565,076.17 23.325.214.15
561,964.69 23.196.778.47
539,589.22 22.273.163.82
444,127.99 18.332.715.17
382,085.63 15.771.730.64
375,921.52 15.517.288.50
364,040.08 15.026.846.42
363,485.40 15.003.950.34
357,137.56 14.741.924.20
305,870.07 12.625.704.75
268,028.43 11.063.677.53
240,820.30 9.940.580.34
143,177.51 5.910.081.26
134,185.20 5.538.896.69
127,641.54 5.268.787.49
126,769.35 5.232.785.23
nærvera hersins geri ísland að
skotmarki. Sumir eru hræddir við
að herlaust land sé freistandi
bráð fyrir vopnaða víkinga. Það
eru skiptar skoðanir um þetta.
Mismunandi hagsmunir. En þá er
26. Ragnarsbakarí Kef.
Brauðvara
27. Droplnn, Keflavík
Málningarvörur o.fl.
28. Hraðfrystihús B.N. Garði
Fiskafurðir
29. Kraninn h.f. Kef.
Kranaþ.v.losun á gámum
30. Suðurvlrkl s.f. Kef.
Sorpeyðing/Verktaki
31. Álnabær Kef/Rvík
Vefnaðarvörur
32. Rolf Johansen Rvík
Áfengi
33. Austurbakkl Rvík
Áfengi
34. Birgir Guðnason Kef.
Efni til bílasprautunar ofl.
35. Verksmiðjan Vífilfell
Gosdrykkir
36. Gleraugnav. Keflavíkur
Öryggisgleraugu ofl.
37. Skrifstofuvélar h.f. Rvík
Tölvubúnaður viðg. á IBM
38. fsl. Ameríska h.f. Rvík
Áfengi
39. H. Marteinsson Rvík
Áfengi
40. H. Hjartarson Tölvuþj.Rvík
Sala á Tölvum ofl.
41. Barr s.f. Rvík
Teppi
42. Aðalverk.Kef.
Verktaki/Jarðvinnsla
43. Radiobúðin Rvík
Tölvuþj. og bún.
44. Gísli Hermannsson Höfn
Sorphreinsun
45. Burstagerðin Garðabær
Burstar á flugbr.kústa
46. Guðmundur Jóhannes-
son Njarðvík
Flutningar á Reykjanesi
47. Sláturfélag Suðurlands
Kjötvara
48. Álafoss Mosfellssveit
Ullarvörur
49. Penninn Rvík
Skrifst.áhöld/Húsgögn
50. Garða Héðinn Garðabæ
Útihúsaklæðning ofl.
Stórar tölur -
stórir hagsmunir
Það eru stórar tölur á þessum
lista. Og stórar tölur tákna oft
stóra hagsmuni.
þess að gæta, að fjárhagslegir
hagsmunir koma líka inn í dæm-
ið:
Það er hægt að græða á hern-
um!
Til þess að hægt sé að græða á
hernum er nauðsynlegt að eiga
einhver viðskipti við hann.
Svavar Gestsson alþingismað-
ur spurði utanríkisráðherra um
slfk viðskipti íslenskra aðila og
bandaríska herliðsins. Eftir
tveggja mánaða umþóttunartíma
barst svarið loksins núna í vik-
unni.
Við skulum líta á lista utan-
ríkisráðherra yfir þá 50 aðila ís-
lenska sem mest viðskipti eiga við
bandaríska herliðið. Viðskipti
ganga náttúrlega upp og niður,
en þó er ekki útilokað að ein-
hverjir þessara aðila græði ofur-
lítið á viðskiptunum - og þá eru
þar komnir hagsmunir sumra fs-
lendinga að hafa hér her til að
græða á:
USD íslenskar krónur
113,808.64 4.697.793.04
108,151.63 4.464.282.98
105,866.93 4.369.975.14
100,774.38 4.159.761.56
100,645.32 4.154.437.52
81,541.02 3.365.850.22
79,095.43 3.264.901.16
74,889.01 3.091.268.55
65,885.16 2.719.607.63
65,186.42 2.690.765.04
64,623.06 2.667.510.67
63,186.10 2.608.195.84
62,660.95 2.586.518.69
56,023.80 2.312.550.42
51,615.00 2.130.563.97
51,287.86 2.117.060.29
51,110.49 2.109.738.81
50,264.45 2.074.815.97
48,662.04 2.008.671.69
45,955.82 1.896.964.34
43,954.93 1.814.371.60
37,956.53 1.566.769.65
35,905.90 1.482.123.74
34,765.63 1.435.055.68
29,672.12 1.224.805.77
Hagsmunir sumra okkar eru
stórir, en hagsmunir allrar heild-
arinnar eru enn stærri. Gróða-
vonin má aldrei fá að ráða ferð-
inni varðandi sjálfstæði og öryggi
íslensku þjóðarinnar.
-Þrálnn
Greiðslur varnarliðsins til íslenskra fyrirtækja árið 1985
Laugardagur 20. de$ember 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5