Þjóðviljinn - 20.12.1986, Síða 16

Þjóðviljinn - 20.12.1986, Síða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348. Helgarsími 681663 þjómnuiNN Laugardagur 20. desember 1986 291. tölublað 51. árgangur SFJALDHAGI allar upplýsingar á einum stað SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Sjómannasamningar Fundum frestað Ætti að draga til tíðinda á mánudag „Það hefur ekkert gerst í samn- ingarnálum sjómanna, þau eru í biðstöðu ennþá“ sagði Guð- laugur Þorvaldsson ríkissátta- senyari í samtali við Þjóðviljann aðspurður um gang viðræðna á milli útgerðarmanna og sjó- manna. Fjórða samningafundi hefur verið frestað fram á mánudag og að sögn Guðlaugs eru menn sam- mála um að rétt sé að bíða uns til tíðinda dregur hjá Verðlagsráði sjávarútvegsins. „Þessi mál eru svo samtengd, og það hlýtur að koma í ljós á mánudag hvort menn vilja gefa fiskverð frjálst eða ákveða lág- marksverð“ sagði Guðlaugur. „Verði ákveðið lágmarksverð getur það dregist fram í janúar og þá veit ég ekki hvað samningsað- ilar vilja gera.“ -vd. Farmenn Verkfall og uppsagnir Undirmenn boða verkfall frá 5. janúar og yfirmenn hafa sagt upp frá áramótum Undirmenn á farskipaflotanum hafa boðað verkfall frá og með 5. janúar n.k. Sjómannafélag Reykjavíkur sem fer með samn- ingamál undirmanna hefur staðið f ströngum viðræðum við kaupskipaútgerðirnar síðustu daga án nokkurs árangurs, en um áramótin falla úr gildi þau gerð- ardómslög sem sett voru á undir- menn á farskipum fyrr á þessu ári. Þá hafa yfirmenn á farskipum sagt upp störfum sínum frá og með áramótum og taka uppsagn- irnar gildi í byrjun mars. Mikil óánægja er með kjörin hjá far- mönnum, en meginkrafa bæði undirmanna og yfirmanna er stórhækkun á fastakaupinu. ->g. Bílstjórar Vísa málum til ríkis- sáttasemjara Sleipnir, félag bflstjóra sem aka rútubflum sérleyfishafa, hef- ur vísað samingamálum sfnum til ríkissáttasenijara. Gerðardómur sem settur var á bílstjórana í fyrra rennur út um áramótin og hafa þeir sagt honum upp. Guðlaugur Þorvaldsson nkis- sáttasemjari kvaðst í samtali við Þjóðviljann boða fund deiluaðila fljótlega. Sérleyfishafar eru flest- ir í Félagi sérleyfishafa en þó ekki allir og gerir það samningamál flóknari en ella. _vd í FADDINGTON BANGSI er til sýnis í glugga Búnaðarbankans að Hafnarstræti 8 og þar eru sparibaukamir Ilka Nuer PADDINGTON BANGSI kominn I Búnaðarbankann alla leið firá Englandi. Hann hafði með sér marga PADDINGTON SPARIBANGSA handa þeim krökkum sem vilja spara og eignast skemmtilegan sparibauk. Krakkar sem koma I bankann fyrir áramót fá sértaka jólakveðju frá Paddington sparibangsa.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.