Þjóðviljinn - 09.01.1987, Síða 2

Þjóðviljinn - 09.01.1987, Síða 2
f—SPURNINGIN- Spurt í Háskóla íslands Hvernig líst þér þér á frumvarps- drög menntamálaráðherra að nýjum lögum um Lánasjóð námsmanna? Runólfur Ágústsson, lögfræðinemi: Mér líst afar illa á þessar hugmyndir, t.d. um þakið svonefnda. Svona lagað kemur verst niður á þeim sem þurfa á svona lánum að halda, t.d. einstæðum foreldrum. Einnig fyrir fólk sem er í löngu námi. Freyr Þormóðsson, nemi íAlmennri bókmenntafræði: Þetta eru nokkuð vafasamar hug- myndir, þetta þak t.d., að færa þetta yfir á bankavexti við ákveðin mörk. Þetta stenst ekki hjá mörgum náms- mönnum sem eru í löngu og dýru námi. Sigrún Ásta Jónsdóttir, sagnfræðinemi: j Mér virðist margt í þessum drögum I nokkuð sérkennilegt. Ég skil ekki hvernig það á að vera mögulegt t.d. fyrir fólk í löngu námi að standa síðan í endurgreiðslum á lánum sem verða að miklu leyti komnir á bankavexti. Þórunn Valdimarsdóttir, sagnfræðinemi: Það er margt stórhættulegt í þessum frumvarpsdrögum, t.d. þetta með að beina námsmönnum á ákveðin lönd og þetta með bankavexti við ákveðið mark. Þau bætast við önnur lán og manni virðist að gera eigi námsmenn að hinum nýju öreigum þjóðfélags- ins. Jónas Guðbjörnsson, viðskiptafræðinemi: Ég er mótfallinn þessum hugmynd- um. Þessar nýju hugmyndir um bank- avexti við ákveðin mörk eru t.d. mjög varasamar. FRÉTTÍR Námslán Ekkert frumvarp án Framsóknar Menntamálaráðherra vill samþykki Framsóknar og býst ekki við breytingum á nefndardrögunum. Hörð andstaða íFramsókn. Hugs- anlegtað kratar styðjifrumvarp Sverris Lánasjóðsmálum er ljóst að innan þingflokks Framsóknar- manna er hörð andstaða við meg- indrætti í frumvarpsdrögum Sverris. Er talið að um helmingur þingflokksins sé staðráðinn í að styðja sjónarmið Finns, þar á meðal Páll Pétursson þingflokks- formaður og Ingvar Gíslason fyrrverandi menntamálaráð- herra. Er hugsanlegt að stjórn- arfrumvarp um lánasjóð þyrfti á atkvæðum frá krötum að halda til að ná í gegnum þingið. Einsog stendur er jafnlíklegt að ekkert frumvarp verði lagt fram. Það yrði mikill ósigur fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem allt kjörtímabilið hefur beitt sér fyrir stórfelldum breytingum á Lán- asjóðnum. Færi svo yrðu náms- málin að kosningamáli. Námsmenn eru uggandi um sinn hag þessa daga. Forystu- menn þeirra höfðu teygt sig langt í samkomulagsátt, og óttast að ef ekki verður samþykkt frumvarp á þessu þingi muni Sjálfstæðis- menn ráðast að sjóðnum með heift ef þeir ná að sitja í næstu ríkisstjórn, og yrði hugsanleg stjórnarþátttaka krata lítil hlíf námsmönnum. Námsmenn hafa til samkomu- lags fallist á markmið um 90% heildarendurgreiðslur í sjóðinn og tekur lokatillaga þeirra mið af því, sem og frumvarp Finns sem mjög svipar til hennar. Pá er ekki verulegur munur á afstöðu til þess að greiðslurnar miðist að nokkru við tekjur, sem Sverrir gerði ekki ráð fýrir í upphafi. Helst ber í milli að Sverrir vill vexti á lán umfram 1,5 miljón, taka lántökugjald, og stöðva heildarlán námsmanns við ákveðið hámark. Gegn þessu berjast námsmenn, og hafa í sín- um tillögum gert ráð fyrir 90% endurgreiðslum án þess arna. Þeir benda á að vextir mundu gera greiðslubyrðina (í 40 ár) mjög erfiða, og yrði varla á færi nokkurs manns að taka vaxtalán lengur en eitt námsár. Sverrir gerir ráð fyrir að styrkjakerfi taki við þeim sem lengst nám stunda, en hugmyndir um það eru ómótaðar, og óttast námsmenn að með því stýrðu misvitur stjórnvöld náms- mönnum í þær greinar sem á hverjum tíma teldust „hagnýtar“ og hömpuðu einstökum náms- mönnum að geðþótta. - m að er ekkert nýtt af þessum málum að frétta, sagði Sverr- ir Hermannsson menntamálaráð- herra við Þjóðviljann í gær um nýtt námslánafrumvarp. Hann sagði þó skammt í að hann tæki lokaákvörðun um málið, sem nú er í hans höndum og forsætisráð- herra. Sverrir sagði að ef stjórn- arflokkarnir kæmu sér ekki sam- an yrði ekkert frumvarp lagt fram. Vitað er um harða and- stöðu við frumvarpsdrög Sverris innan þingflokks Framsóknar- flokksins. Sverrir segist meðal annars bíða viðbragða námsmanna við frumvarpi stjórnarflokkanefn- darinnar, því sem Finnur Ingólfs- son hefur nú svarið af sér, en seg- ist ekki búast við teljandi breytingum. Frumvarpið verði lagt fyrir ríkisstjórnina og síðan fyrir þingflokka stjórnarinnar. Alþýðuflokksmenn hafa tekið undir eina af meginbreytingartil- lögum Sverris í Lánasjóðnum, að námslánin heri vexti, og eru uppi getgátur um að Alþýðuflokkur- inn kynni að styðja frumvarp Sverris lítt breytt ef Framsóknar- menn féllu frá. Sverrir segir að ef stjórnarflokkarnir komi sér ekki saman verði ekkert frumvarp lagt fram. „Ég er að stjórna landinu með öðrum flokki, og kann ekki svoleiðis vinnubrögð," - að treysta á stuðning stjórnarand- stöðuflokks, - „Ég tala nú ekki um þessa flugfiska sem alltaf eru að kaupa sér atkvæði." Þótt Steingrímur Hermanns- son hafi vikið Finni Ingólfssyni til hliðar og reyni nú að ná samstöðu við Sverri og Sjálfstæðismenn í Jón Ægir í Hafrúnu gær. Því miður, enginn nýr fiskur. Mynd E.ÓI. Fiskbúðir Bakkamir að tæmast Ferskur fiskursést varla ífiskbúðum. Góð sala ífrystum, söltuðum, reyktum og hertumfiski eftir jólasteikurnar Það fækkar bökkunum hérna hjá okkur á hverjum degi. Ferskan físk höfum við ekki feng- ið, það eru ekki nema þrír bátar sem mega róa hérna á svæðinu. Við bíðum til 15. þá mega smá- bátarnir fara af stað og við getum þá boðið nýju ýsu í soðið, sagði Jón Ægir Pétursson fisksali í Hafrúnu í samtali við Þjóðvifjann í gær. Almenningur verður oft fyrst var við afleiðingar sjómanna- verkfalls þegar lítið er að fá í fisk- búðunum. Nú eftir jólahátíðina hefur verið góð vertíð í fiskbúð- um þrátt fyrir skort á nýjum fiski en borearbúar kaupa þess í stað frystan og saltaðan fisk, kinnar og gellur, reyktan og hertan. Við erum með góðan frystan fisk af vestan og hann selst vel auk þess sem ég býð uppá ferskan sjóalinn silung sem er herra- mannsmatur, sagði Jón Ægir fisksali í Hafrúnu. -Ig-

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.