Þjóðviljinn - 09.01.1987, Page 3
FRETTIR
Spítalasalan
Andstaða starfsfólks magnast
Ólafur Jónsson formabur lœknaráðs segir sig úr nefnd Ragnhildar. Starfsmenn ítreka mótmœli gegn kaupum ríkisins.
Ég sagði mig úr þessari nefnd
annars vegar vegna þess að ég á
sæti í nefnd starfsfóiks, sem falið
hefur verið að ræða við ríki og
borg um framtíð spítalans, og
hins vegar vegna þess að ég álít
Hœkkanir
1100
kall fyrir
teinið
Pungaskattur hœkkar
um 5000 krónur
u
m áramót hækkaði verð á
þjónustugjöldum bifreiðaeft-
irlitsins um 10%. Nýskráning á
bfl kostar því núna 2.200 krónur,
eigendaskipti á bfl 1.100 krónur,
umskráning á bfl milli umdæma
1.100 krónur og umskráning
innan sama umdæmis 3.300.
Parið af númeraplötum kostar
nú 800 krónur, vottorð um skrán-
ingu bifreiðar 100 krónur, öku-
mannstrygging 400 krónur og
skoðunargjald er 880 krónur.
Þungaskattur hefur einnig
hækkað um 10%, árgjald af dísel
einkabfl var á síðasta ári 46.016
krónur en er nú 50.980 krónur.
Sé mælir í bifreiðinni er hægt að
greiða eftir honum 2.47 krónur á
hvern ekinn kflómetra.
Endurnýjun ökuskírteinis eftir
eitt ár kostar nú 1.100 krónur en
kostaði 1000 krónur fyrir áramót.
-vd.
Borgarspítalinn
Meina-
tæknar enn
á förum
Yfir helmingur meinatækna á
Borgarspítalanum hefur sagt upp
störfum sínum á nýjan leik, eða
26 konur.
Að sögn Jóhannesar Pálma-
sonar framkvæmdastjóra spítal-
ans tilgreina meinatæknarnir
enga ástæðu fyrir uppsögn sinni í
bréfi. Meinatæknarnir hafa
þriggja mánaða uppsagnarfrest
og tryggingu fyrir því að frestur-
inn verði ekki framlengdur.
Jóhannes vildi í gær ekkert
segja um hvernig brugðist vrði
við þessum uppsögnum. -gg
Sölumiðstöðin
Fiskvinnsla
framtíöarinnar
Á annað hundrað verkstjórar
og stjórnendur í frystihúsum
Sölumiðstöðvarinnar sitja nú á
fræðslufundi í Reykjavík þar sem
m.a. er rætt um „Fiskvinnslu
framtíðarinnar“.
Fræðslufundir þessir eru hald-
nir annað hvert ár og þar m.a.
rætt um markaðsmál, einstök
markaðssvæði, gæðastýringu,
blokkarvinnslu, vélvæðingu í
frystihúsum og fl.
í umræðunni í dag verður m.a.
fjallað um frjálst fiskverð og upp-
boðsmarkaði, gæðamál , nýjar
pakkningar og vörutegundir og
ný launakerfi í fiskvinnslunni.
-Ig-
þetta mál óviðkomandi fulltrúum
ríkisspítalanna eins og sakir
standa, sagði Ólafur Jónsson for-
maður læknaráðs Borgarspítal-
ans í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Olafur hefur sagt sig úr nefnd
þeirri sem Ragnhildur Helga-
dóttir heilbrigðisráðherra skipaði
á mánudaginn og var ætlað að
ræða stjórnarfyrirkomulag Borg-
arspítalans í framtíðinni. Nefndin
heáir enn ekki verið kölluð sam-
an.
Starfsfóik Borgarspítalans ítr-
ekaði í vikunni mótmæli sín gegn
kaupum ríkisins á Borgarspítal-
anum. í ályktun fundar starfs-
fólks segir að ekkert bendi til þess
að kaupunum fylgi aukin hag-
kvæmni í rekstri eða bætt þjón-
usta.
Að sögn Ólafs átti 5 manna
nefnd starfsfólks fund með Þor-
steini Pálssyni fjármálaráðherra
um framtíð spítalans í fyrradag,
en engin niðurstaða varð af fund-
inum. Ráðgert er að nefndin eigi
fund með Davíð Oddssyni og
Ragnhildi Helgadóttur um mál-
ið, en enn er óljóst hvort og þá
hvenær af því verður.
Þrátt fyrir að nánast sé ljóst að
ríkið muni verða við beiðni borg-
arstjóra um að kaupa spítalann,
hefur málið enn hvergi verið lagt
fyrir kjörna fulltrúa borgarbúa,
hvorki í borgarráði né borgar-
stjórn. Þar af leiðandi hefur borg-
arstjóri enn enga heimild til þess
að ganga frá sölu stofnunarinnar.
Aðspurður um þetta sagði Sig-
urjón Pétursson borgarfulltrúi í
samtali við blaðið í gær að vinnu-
brögð borgarstjóra í þessu máli
væru gersamlega óþolandi. „Það
er ólíðandi að borgarstjóri skuli á
þennan hátt ráðskast með eignir
borgarbúa eins og sína einka-
eign,“ sagði Sigurjón.
-gg
Fulltrúar sjómanna á leið á fund ráðherra í gær. F.v. Guðmundur Hallvarðsson og Hólmgeir Jónsson. Mynd. Sig.
Sjómenn
Bull í Þjóðhagsstofnun
Þjóðhagsstofnun telur að sjómenn hafifengiðþað bættsem þeir misstu með
lögum um kostnaðarhlutdeild 1983. Hólmgeir Jónsson: Bull
Það er bara bull að vera að
blanda saman hlutaskipta-
kerfinu og öðrum atriðum sem
varða kjarasamninga sjómanna,
en það er f.o.f. skiptaverðshlut-
fallið sem við viljum fá leiðrétt,
sagði Hólmgeir Jónsson hagfræð-
ingur Sjómannasambandsins um
niðurstöður úr samantekt Þjóð-
hagsstofnunar þar sem talið er að
sjómenn hafi fengið það bætt að
fullu sem tekið var af þeim með
lögum um kostnaðarhlutdeild
árið 1983.
Hólmgeir sagði að í niðurstöð-
um Þjóðhagsstofnunar væri t.d.
verið að tilgreina kjarabætur frá
því í mars 1985 sem eru m.a.
hækkun kauptryggingar, aukin
lífeyrisréttindi og auknir fæðis-
peningar. Að sögn Hólmgeirs er í
sumum þessum tilfellum ekki um
hækkanir að ræða, heldur
leiðréttingar. T.d. voru fæðis-
peningar sjómanna skertir árið
1983 og hækkunin 1985 hafi ein-
ungis verið leiðrétting á þeirri
skerðingu. Þá var með aukningu
lífeyrisréttinda einungis verið að
ná samræmingu við lífeyrisrétt-
indi þeirra sem starfa á stóru tog-
urunum. Loks benti Hólmgeir á
að ekki væri rétt að blanda saman
kauptryggingu sem væri lág-
markslaun sjómanna og hluta-
skiptakjörum.
Hólmgeir lagði áherslu á að
það væri kostnaðarhlutdeildin
sem sjómenn vildu fá til baka.
Skiptahlutfall er nú 71% af
heildarverðmæti og enn vantaði
13% á að það væri leiðrétt að
fullu, en sjómenn telja að með
réttu ætti það að vera 84%. í yfir-
standandi samningsviðræðum
hafa sjómenn þó ekki farið fram á
að skiptaverð verði hærra en
80%. „Kjaraskerðingin 1983 var
gerð í skjóli hækkaðs olíuverðs
og aukins fjármagnskostnaðar.
Nú hefur þetta snúist við og þess
vegna hlýtur það að vera eðlilegt
og réttlátt að hlutaskiptakjörin
séu leiðrétt þegar vel árar,“ sagði
Hólmgeir.
í samningaviðræðunum sem
sjómenn áttu með útvegs-
mönnum í síðustu viku fengu þeir
tilboð frá útvegsmönnum sem
hljóðaði uppá 0.6% hækkun á
hlut sjómanna, en krafa sjó-
manna hljóðar uppá 9.5% hækk-
un. Það ber því mikið í milli.
-K.Ól.
Dagsbrún
Afturá
morgun
Dagsbrúnarmenn og vinnu-
veitendur luku sólarhringsfundi
um samninga í gær klukkan
fjögur og ætla að athuga málin
þangað til þeir hittast aftur á
morgun um tvöleytið.
Samningamenn urðu sammála
um að þegja sem fastast um við-
ræður sínar.
-m
ísafjörður
Sendingar
úr stolnu
tæki
Neyðarsendirinnfannst í
miðjum bænum. Stolið
úr trillu í vetur
Neyðarsendirinn sem var mið-
aður út á ísafirði á þriðjudag
er talinn hafa verið senditæki sem
stolið var úr lítilli trillu, Stapan-
um, í vetur.
Sendirinn var miðaður út af
varðskipi og fannst hann í kofa í
efri hluta bæjarins. í fyrstu var
gefið upp að sendingarnar bærust
úr Víkingi III til þess að sá sem
setti tækið af stað næðist ef hann
myndi nálgaðist það en sú von
brást.
Tækið er sömu tegundar og
það sem var í gúmmíbát Stapans
þegar honum var stolið en búið
var að skrapa af því merkingu
bátsins og bæta við aukaraf-
hlöðu.
„Það er mjög ólíklegt að ung-
lingar gætu hafa bætt við þessarri
aukarafhlöðu,“ sagði Páll Guð-
mundsson hjá Skipaeftirlitinu í
samtali við blaðið. Fyrsta til-
kynningin um neyðarsendinguna
kom frá Bodö í Noregi og
skömmu síðar frá flugvélum sem
flugu yfir bæinn. „Þessi tæki
eru okkur mjög mikils virði sem
öryggistæki og þau eru ekki til að
leika sér að á nokkurn hátt,“
sagði Páll. „Ég vil benda
mönnum á að þegar þeir taka
gúmmíbáta úr notkun vegna
aldurs þá ættu þeir að fjarlægja
tækin úr þeim strax.“
-vd.
Suðurlandskratar
Fundað um Elínu
Líklegast að prófkjörsröð verði látin ráða listanum
Flest bendir til að Elín Alma
Arthúrsdóttir haldi öðru sæt-
inu á Alþýðuflokkslistanum á
Suðurlandi eftir kjördæmisráðs-
fund sem boðaður hefur verið í
Eyjum á laugardag, þvert á þá
tillögu stjórnar ráðsins að hnika
prófkjörsúrslitum þannig að Elín
Alma færi í þriðja sætið en Þor-
lákur Helgason á Selfossi í annað
sætið.
Sú tillaga stjórnarinnar hefur
verið mjög umdeild og lýsti Eh'n
því yfir að hún tæki ekki þriðja
sætið á listanum. Hún sagði um
leið af sér trúnaðarstörfum á veg-
um flokksins. Elín var meðal
annars formaður Eyjafélagsins.
Elín hefur nú sagst draga allt til
baka verði prófkjörsúrslitin látin
ráða á fundinum á laugardag,
einsog líklegt er.
Fyrsti maður krata á Suður-
landi er Eyjamaðurinn Magnús
Magnússon, og þótti fastlending-
um af krataætt illt við að búa að
Eyjamenn hirtu einnig annað
sætið. f kjördæmi þarsem fyrsti
maður Alþýðubandalagsins er
kona er varla heppilegt að hugsa
einungis eftir hreppum, en það
bætir enn á vanda krata að Þor-
lákur er einn fárra fyrrverandi
BJ-manna á þokkalegum stað á
A-listum. Eru úrslit máls ekki
augljós.
Prófkjör Suðurlandskrata hef-
ur verið kært vegna þess að á Sel-
fossi einum staða þurftu kjósend-
ur að'undirrita stuðningsyfirlýs-
ingu við flokkinn, en ólíklegt er
að sú kæra leiði annað af sér en
afsökunarbeiðni.
-m