Þjóðviljinn - 09.01.1987, Síða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjównuiNN
Föstudagur 9. janúar 1987 5. tölublað 52. örgangur
íslendingar
Fleiri og fleiri suður
Öllmannfjölgun á suðvesturhorninu. 8,6% fœkkun í Norður-Isafjarðarsýslu.
243.698 íslendingar í desemberbyrjun, karlar fleiri en konur
Aárinu 1986 fjölgaði okkur um
1948 eða 0,81% samkvæmt
bráðabirgðatöium Hagstofunn-
ar, og voru íslendingar 1. des-
ember 243.698. Karlar hafa vinn-
inginn, og vantar 1178 konur á
fullt jafnræði kynjanna í fjölda.
Fjölgun íslendinga á árinu er
meiri en 1985, hinsvegar talsvert
minni en árin þar á undan. Spek-
ingar á Hagstofunni segja að ekki
hafi fæðst jafnfá börn síðan árið
1947 að árinu ’85 undanskildu
þótt tala kvenna á barnsburðar-
aldri hafi tvöfaldast síðan í stríðs-
lok. Því er spáð að ófæddar kyn-
slóðir verði um 8% fámennari en
kynslóð foreldra í framtíðinni,
sem hingaðtil hefur bæst upp með
hækkandi meðalaldri.
Allan áratuginn hefur fólks-
fjölgun einskorðast við höfuð-
borgarsvæðið og Reykjanes, og
er árið 1986 engin undantekning.
Á höfuðborgarsvæðinu er heild-
arfjölgun 1,7%, mest í Bessast-
aðahreppi. Reykvíkingum fjöl-
gaði um 1,8% og er það hæsta
tala frá 1959. Á Suðurnesjum
fjölgaði fólki um 0,4%
Mannfjöldi stóð í stað á
Austurlandi árið ’86, en fólki
fækkaði á Vesturlandi og Suður-
landi um 0,2%, á Vestfjörðum
um 0,5%, á Norðurlandi eystra
um 0,6% og á Norðurlandi vestra
um 1,1%.
Af þéttbýlisstöðum fjölgaði
mest í Bessastaðahreppi (4,9%)
og Garðabæ (3,5%), en fækkun
var mest á Blönduósi (-4,4%) og
Seyðisfirði (-3,8%). Af sýslum
varð fjölgun mest í Vest-
ur-Barðastrandarsýslu (0,9%), í
Borgarfirði (0,6%) og á Snæfells-
nesi (0,6%). Fækkun varð mest í
Norður-ísafjarðarsýslu (-8,6%),
í Austur-Húnavatnssýslu (-
3,2%) og í Suður-Þingeyjarsýslu
(-2,7%).
-m
„Gæða“-jólaljósin í höndum Magnúsar Guðnasonar deildarstjóra hjá Rafmagnseftirlitinu. (Mynd: Sig.)
Rafmagnseftirlitið
Gæðaserían bráðnaði
Rafmagnseftirlit ríkisins kærði
fyrir skömmu tii Rannsóknar-
lögreglu ríkisins fyrirtækið Jón
og Einar s.f. fyrir að dreifa til sölu
í verslanir fyrir jólin útiljósaserí-
um sem höfðu ekki staðist gæðap-
róf Rafmagnseftirlitsins, en fram-
leiðendur höfðu merkt vöru sína
þannig að hún hefði staðist próf
eftirlitsins og nefnt hana „Gæða
útiljósasería“.
-Við lítum á þetta mál mjög
alvarlegum augum því við viljum
að fólk fylgist vel með er það
kaupir ljós og rafmagnstæki og að
það geti þá líka treyst því sem við
höfum viðurkennt, segir Bergur
Jónsson forstöðumaður Raf-
magnseftirlitsins í samtali við
Þjóðviljann.
Rannsóknarlögreglan gerði
þegar þá kröfu til framleiðenda
að ljósaseríurnar yrðu innkallað-
ar. Þeim hafði að stærstum hluta
Sementsverksmiðjan
Besta ár sögunnar
að er enginn vafi á því að síð-
asta ár var besta árið í sögu
verksmiðjunnar. Það lítur út
fyrir að hagnaður hafí verið um
60 milljónir króna, sagði Ásgeir
Pétursson stjórnarformaður
Sementsverksmiðju ríkisins í
samtali við Þjóðviljann í gær.
„Fyrir því eru margar ástæður.
Verksmiðjan hefur lengst af átt
við erfiðleika að etja, meðal ann-
ars vegna þess að sementsverði
var haldið niðri. En menn hafa
breytt þar um stefnu og að auki
hagrætt í rekstri og fleira og hag-
ur verksmiðjunnar hefur vænkast
að mun.“
Verksmiðjan hefur aldrei
framleitt meira gjall en 1986,112
þúsund tonn. Sala á sementi var
hinsvegar 111 þúsund tonn og
hefur oft verið meiri.
Ásgeir sagði að miklar vonir
væru bundnar við útflutning á
sementi til Grænlands á þessu ári.
Grænlendingar keyptu 38 tonn af
sementi á síðasta ári, en búist er
við að salan aukist verulega.
„Aukinn áhugi Græniendinga
stafar ekki síst af því að með því
að blanda kísilryki í sementið
hafa gæði þess aukist og líkur á
alkalískemmdum minnkað veru-
lega“ sagði Ásgeir.
Hann sagði jafnframt að útlit
væri fyrir að verð á sementi
myndi hækka um 7%-9% á þessu
ári.
-Sg
verið dreift í verslanir úti á lands-
byggðinni og selst þar töluvert.
Yfir 20 voru seldar á Húsavík og
Akureyri, 14 á Vopnafirði og 12 á
ísafirði svo dæmi séu nefnd. Enn
hefur ekki tekist að innkalla allar
seríurnar sem seldust og sumir
hafa neitað að skila, að sögn
Bergs.
Við gæðaathuganir hjá Raf-
magnseftirlitinu kom í ljós að
þéttingar við ljósstæði voru ekki
nægjanlega tryggar og serían
þoldi ekki hita frá 40 W ljósaper-
um. Þrátt fyrir endurbætur fram-
leiðenda stóðst varan ekki próf
eftirlitsins og því var óheimilt að
selja hana hérlendis.
I vikunni birtist í dagblöðunum
auglýsing frá framleiðendum þar
sem þeir innkalla allar seríurnar
en þær eru auðþekktar á grænni
flatri rafmagnssnúru. Raf-
magnseftirlitið hvetur alla þá sem
eru með slíkar lýósaseríur undir
höndum að skila þeim þangað
sem þær voru keyptar.
-4g-
Vestmannaeyjar
Ámi
óhæfur
Vilhjálmur Bjarnason:
Ýmsir forystumenn Sjálf-
stœðisflokksins í Eyjum
œttu ekki að koma nálœgt
stjórnmálum
r
Arni Johnsen er óhæfur þing-
maður, segir Vilhjálmur
Bjarnason í Vestmannaeyjum í
síðasta tölublaði Bcejartíðinda.
í viðtalinu við „Villa banka-
stjóra," sem útibússtjóri Útvegs-
bankans er kallaður á Eyjavísu,
er Vilhj álmur talinn hafa átt þátt í
að koma Árna Johnsen úr öðru í
þriðja sæti D-listans á Suður-
landi, og einnig talinn hafa spillt
fyrir meirihluta Sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn fyrir síðustu
kosningar.
Vilhjálmur segir bæjarstjórn-
armeirihlutann fyrrverandi hafa
glutrað niður sigri sínum á fyrstu
vikunum. „Það er skoðun mín að
ýmsir þeir sem hér eru í forystu
Sjálfstæðisflokksins ættu ekki að
koma nálægt stjórnmálum.
Reyndar eru þeir sumir hverjir að
fást við hluti sem þeir ráða ekkert
við.“
Um Árna Johnsen segir Vil-
hjálmur að í prófkjöri fyrir síð-
ustu kosningar hafi aðeins verið
valdir menn fyrir það kjörtíma-
bil; „Árni Johnsen og félagar
virðast halda að sú niðurstaða
eigi að gilda að eilífu. Ég hef
aldrei legið á þeirri skoðun minni
að Árni Johnsen sé óhæfur þing-
maður og lét þá skoðun í ljósi í
síðasta prófkjöri. Og það voru
fleiri." _ m
Loðnan
Norðmenn
sækja stíft
Loðnugangan óvenju
snemma áferðinni
6 norsk loðnuskip voru inni á
Norðfirði og Seyðisfirði í fyrri-
nótt og gær en skipverjar unnu
við að frysta loðnu sem norsku
skipin hafa veitt undanfarna daga
út af Héraðsflóa. Veiðin hefur
verið nokkuð léleg en athygli vek-
ur hversu loðnan kemur nú fljótt
upp að Austurlandi.
Á meðan íslenski loðnuflotinn
er bundinn við bryggju vegna
sjómannaverkfalls keppast'
Norðmenn við að fylla upp í sinn
60 þús. tonna kvóta, en þeir mega
veiða úr stofninum fram til 15.
febrúar n.k.
Heildarkvóti íslensku skip-
anna er tæpar 926 þúsund lestir
og eiga þau eftir að veiða um 375
þús. lestir að sögn Ástráðs Ing-
varssonar hjá Loðnunefnd. Hver
dagur sem líður er dýr fyrir ís-
lenska loðnuflotann og fisk-
vinnsluna því gæði loðnunnar
rýrna mjög eftir því sem nær
dregur hrygningu.
-*g-