Þjóðviljinn - 11.01.1987, Blaðsíða 14
3
sem fann upp dínamitið og stofn-
aði friðarverðlaun sjálfs sín.
Ekki nógu svalir
Ekki tilheyra allar frægar per-
sónur sögunnar þeim svölu. Hrói
höttur fékk frumlega hugmynd;
að ræna þá ríku og gefa hinum
fátæku, en klæðaburðurinn var
fyrir neðan allar hellur, auk þess
var hann alltof léttlyndur til að
teljast svalur.
Rudolf Hess, kunningi Hitlers.
Flaug til Skotlands til að bjóða
frið. Var stungið í fangelsi og sit-
ur þar enn.
Édward Kennedy. Átti svala
bræður enda voru þeir báðir
myrtir. Sjálfur keyrði hann út í
vatn með vinkonu sína í farþega-
sætinu. Hann gleymdi að bjarga
henni og þar með var pólitískur
frami hans að engu orðinn.
Svalir þjóðflokkar
Þegar litið er til ákveðinna
menningarhópa kemur í ljós að
sumir eru svalari en aðrir. Vík-
ingarnir voru meðal þeirra svöl-
ustu. Þeir ráku ferðaskrifstofu
sem bauð upp á ferðir um allan
hinn þekkta heim og fyrir tilvilj-
un rákust þeir á Ameríku fimm
hundruð árum á undan Kólumb-
us. Á ferðalögunum var ýmislegt
sér til gamans gert, farið með rán-
um og gripdeildum, ofbeldi var
hversdagsleg iðja og eftir að
kveikt hafði verið í klaustrum,
konum nauðgað, börn tekin til
fanga og körlum slátrað, settust
þeir niður og ortu ljóð.
Inkarnir dýrkuðu sólina, lifðu í
friði án vopna þrátt fyrir allt gull-
ið. Mættu svo andstæðingum sín-
um, Spánverjum, með reist
höfuð, stolti og hugprýði. Og létu
útrýma sér.
I dag er heimurinn fullur af
hópum sem eru ákaflega ósvalir:
Nýnasistar, Ku klux Klan, Upp-
ar, Frímúrarar og Englar vítis svo
nokkrir séu nefndir..
Hver er svalur?
Ólíklegast fólk er svalt. Það
getur verið feitt, sköllótt og for-
ljótt. Marlon Brando og Orson
Wells eru góð dæmi um það að
útlitið skiptir engu. Það eru ekki
bara hetjurnar sem eru svalar,
andhetjur einsog Woody Allen
tilheyra ekki síður hópnum.
Jafnvel þeir sem eitt sinn voru
hetjur og féllu svo niður í með-
almennskuna einsog George
Best geta talist svalir. Þeir sýna
enn að þrátt fyrir að þeim hefur
mistekist þá hafa þeir engu
gleymt.
Jafnvel brjálæðingargeta verið
svalir einsog brjálæðingar Anth-
ony Perkins í öllum Pshyco
myndunum. Sérvitringar teljast
einnig oft í hópi þeirra svölu,
Howard Hughes, Paul Getty, svo
tveir múltímillar séu nefndir.
En peningar eru ekki allt sem
þarf. Þeir eru eiginlega algjört
aukaatriði. Eina sem þú þarft að
vita um peninga er hvernig á að
eyða þeim. Það er alls ekki sama
hvað keypt er. Það er t.d. mjög
ósvalt að kaupa sér volvo, jafnvel
þó þú hafir efni á því. ÍCauptu
frekar Morris míní og notaðu af-
ganginn á svalan hátt, eða gerðu
einsog Peter Green, fyrrverandi
gítarleikari Fleetwood Mac.
Áttu Volvó? Sé svo þá
reiknast þú ekki í hópi þeirra
svölu. Reykiröu hinsvegar
franskar sígarettur þarf ekki
frekari vitnanna við: Þú ert
svalur.
Það er stöðugt verið að draga
fólk í dilka, eftir útliti, fram-
komu, lifnaðarháttum. Mjög hef-
ur verið rætt og ritað um fyrirbær-
ið uppa en það skal hér með upp-
lýst að upparnir eru ekki svalir,
þar af leiðandi þykir ekki lengur
fínt að tilheyra þeirri manngerð,
því það er hinn svali persónuleiki
sem er inni, svo slett sé á okkar
ylhýra.
Nýlega kom út handbók í Bret-
landi, sem enginn lætur sjá sig
með, vilji hann tilheyra hóp
þeirra svölu. Heitir bókin Cool á
frummálinu, sem útleggst svalur
á fornnorrænu. Er þar í máli og
myndum gerð ítarleg grein fyrir
öllum kostum sem hinn svali þarf
að vera gæddur. Einnig er bent á
ýmislegt sem varast ber vilji mað-
ur tilheyra hópnum.
En fyrst er
sögulegt yfirllt
Við byrjum í aldingarðinum
Eden. Adam og Eva voru svöl
þegar þau bitu í forboðna eplið
og gerðu mannkynið brottrækt úr
pardís að eilífu amen. Nói byggði
sína örk þó nágrannarnir gerðu
gys að honum, þeir höfðu ekki
jafn gott samband við veðurstof-
una og hann.
Fleiri persónur Biblíunnar til-
heyra hópi hinna svölu. Lot sem
samrekkti dætrum sínum. Abra-
ham sem ætlaði að fórna syni sín-
um. Móses sem gekk á þurru yfir
Rauðahaf. Davíð sem slóst við
Golíat með slönguvað einan að
vopni. Og sjálfur Kristur sem
ætíð bauð hina kinnina, gekk á
vatni, mettaði fimmþúsundir,
breytti vatni í vín, snéri út úr fyrir
guðfræðingum og valdsmönnum.
Önnur svöl mikilmenni sög-
unnar eru t.d. Alexander mikli,
sem hafði sölsað undir sig allan
hinn siðmenntaða heim áður en
hann varð tvítugur, drakk einsog
berserkur og lést ungur. Múham-
eð sem innleiddi ný trúarbrögð
og bannaði fylgismönnum sínum
að drekka áfenga drykki. Rætnar
tungur segja ástæðuna þá að
hann hafi verið hasssölumaður.
Ef við færum okkur nær í tíma
hittum við fyrir Leonardo da
Vinci í ítölsku endurreisninni.
Að telja upp allt það sem hann
lagði stund á myndi æra óstöðug-
an. Hann skráði sínar vísindalegu
uppgötvanir með spegilskrift og
nú hefur komið fram sú tilgáta að
hin dularfulla Móna Lisa sé engin
önnur en hann sjálfur og brosið
fýlusvipur meistarans á hvolfi.
Sé haldið áfram að stikla á
stóru má nefna Alfred Nobel,
Gefðu þá og fáðu þer starf sem
kirkjugarðsvörðúr.
Hetjudýrkun þekkist ekki hjá
hinum svölu, með einni undan-
tekningu þó. Þeirdýrkasjálfasig.
Að lokum er rétt að geta þess að
þeir svöla hlýta aldrei neinum
reglum, nema þegar þeir spila
krikket og því er óhætt að taka
ekki mark á neinu afþví sem á
undan hefur verið sagt, nema því
að eignast ekki volvó.
Heimili
hinna svölu
En skoðum okkur nú um á
heimili hinna svölu. Fyrst er þó
að geta þess að flestir hinna svölu
búa einir, einstaka undantekning
er þó þar á og svöl pör eru til, þó
ótrúlegt megi virðast. Þeir svölu
búa annaðhvort í eigin húsnæði
eða leiguhúsnæði, einsog allir
hinir, en heimili þeirra eiga það
sameiginlegt að þau geisla ekki af
góðum smekk og „design'* hús-
gögnum. Húsgögnin er hægt að
kaupa notuð eða í Ikea, eða bara
hvar sem er og Hús og hýbýli er
ekki fyrirmyndin þegar hlutunum
er raðað í skipulegt kaos á heimili
hinna svölu.
Yfirleitt er bjart í íbúðunum og
hlutunum komið fyrir á þægi-
legan hátt þannig að íbúum og
gestum líður vel. Fari gesturinn
að rýna nánar í umhverfið, sem
þeir svölu vona að hann geri,
rekst hann á fullt af undarlegum
hlutum sem koma honum á
óvart. Myndirnar á veggjunum
virðast tala til gestsins, ekki um
myndasmiðinn, heldur um
eigandann.
Þú tekur eftir því að húsráð-
andi hefur ekki eytt peningum í
húsbúnað, en sé nánar hugað að
kemur í ljós að innbúið hefur
kostað sitt, peningarnir liggja í
málverkum, mjög góðu hljóm-
plötusafni, bókasafni þar sem
tölvert er af fyrstu útgáfum. Þeir
liggja hinsvegar ekki í dýrri eld-
húsinnréttingu og dýrum gólf-
teppum.
Á bamum
Þeir svölu kunna vel að meta
áfengi en kunna sér hófs þó þeir
telji sig geta drukkið hvern sem
er undir borðið. Þeir fá þó timb-
urmenn einsog allir aðrir. Það er
þó ekki algilt að þeir svölu
smakki það. Sumir þeirra komast
nefnilega í vímu af því einu að
vera með sjálfum sér.
Ef við lítum á vínlistann hjá
þeim sem ekki láta sér eigin nær-
veru nægja til að komast í vímu,
sjáum við efst á blaði kampavín.
Það skal drukkið úr ekta kristal-
glösum en sjálft vínið þarf alls
ekki að vera það besta sem fáan-
legt er og alls ekki það dýrasta.
Pipar vodka. Heimalagaður.
Gluggað í handbók fyrir þá sem vilja teljast svalir