Þjóðviljinn - 11.01.1987, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 11.01.1987, Blaðsíða 18
KROSSGÁTA Nr. 551 7— 1— ¥ 6 (0 7— 7 8 1 9— 4— /0 11 1‘1 J~ 13 )¥ 7 )s" )b~ 7 )t> )/ T~ )? 7 ih II W Ý )i 'lö 21 ii T~ TJT 23 )1 ? w 7 Z‘i 2/ II <P b 1 21 <£ ) 17~ zH W~ 1+ 22 7 IT 21 23 2l Z/ Zb ? 7- /4 ¥ T~ T~ <tt >1 ? W 2J 1/ 7 )6J Ý T~ 7 15 23 s 7 71~~ 5 7 22 /ó" 2? 2/ >¥- is- w zT~ 11 H~ /•/ 7 * TT~ 23 )? V' y T2~ ¥ ig 4 V 7- 0- 2 2/ (V) J 5 2i 23 9 1? 16' )7 2/ II V 2/ y~ 5 ) l 7 18 24 (0 7 2l 11 23 b 2o )5 22 / 23 7 TT~ 78 ll 21 23 )5 2i V ? )4 2/ <P 25’ 17 7 2c ' ft ‘F 28 T~ 7- 16 <? 9 15* w AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Setjiö rétta stafi í reitina hér fyrir neöan. Þeir mynda þá götunafn í Reykjavík. Sendiö þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 551“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 1? 2/ ? 9 l¥ 30 2/ 23 ? Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því að með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru þess vegna eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að ÍJaessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í staö á eða öfugt. Steinunn H. Hauksdóttir, Háaleitisbraut 34, Reykjavík, fékk verðlaun fyrir krossgátu nr. 548. Lykilorðið var Reyni- hlíð. Hún fær senda Stóru hundabókina. Verðlaunin fyrir krossgátuna þessa vikuna eru tvær felu- myndabækur frá Fjölva. Fjúk- andi hattur og Stebbi týndur. SKAK BRIDGE Tilburgmótið Meðal keppenda á Tilburg mótinu sem fram fór í október og nóvember í haust voru nokkrir stórmeistarar sem keppa munu á stórmótinu hér í Reykjavík í endaðan febrúar. Júgóslavneski stórmeistarinn Ljubojevic varð í öðru sæti (með 8 vinninga) en gamli baráttujaxlinn Kortsnoj féll saman í lokin og hafnaði í neðsta sæti. Tefld var tvöföld um- ferð og tókst Ljubojevic að vinna báðar skákirnar gegn Kortsnoj. Við skulum huga að þeirri síðari. Hvítt: Ljubojevic Svart: Kortsnoj 1. e4 - e6 2. d4 - d5 3. Rc3 - Bb4 4. a3 - Bxc3+ 5. bxc3 - dxe4 6. Dg4 - Rf6 7. Dxg7 - Hg8 8. Dh6 - Rb-d7 Hér er skarpara að leika c7-c5 strax. 9. Rh3 - c5 10. Be2 - Da5 11. Bd2 - ... Hvítur leggur kapp á að koma mönnunum á framfæri. Svartur gín nú við peðinu á g2 en hefði betur leikið Hg6 og reynt svo að koma mönnunum á drottningarvæng út. 11. ... - Hxg2 12. Rg5 - cxd4 13. Dg7 - ... mm 1 A tkMk Wm. ... HS! 'Wm. m tí iim i ■Ai§í/ Ekki 13. cxd4 vegna Df5 og kóngur hvíts er í hættu. Hótun hvíts nú er einföld, 14. Dxf7+ (Kd8) 15. Rxe6 mát. Svartur verður að láta skipta- mun en fær þrjú peð upp í. 13. ... - Hxg5 14. Dxg5 - Dxg5 15. Bxg5 - dxc3 16. 0-0-0 - a6 Hvítu mennirnir standa mun betur en þeir svörtu og ríður það bagga- muninn í framhaldinu. Svartur lék a6 m.a. til að taka reiði af hvítreita- biskup hvíts (b5 og c4). 17. Hh-gl - b5 18. Hg3 - Rd5 19. Hh3 - f6 20. Be3 - Rxe3 Nítjándi leikur svarts orkaði tví- mælis en þessi er slæmur því það stenst ekki að skipta upp á eina mann- inum sem stendur vel. Svartur hefði átt að gefa h-peðið með 20. ... Bb7 21. Hxh7 0-0-0 og leita eftir mótspili með því að ýta miðborðspeðunum áfram. 21. fxe3 - Rf8 22. Bh5+ - Ke7 23. Hg3 - Bd7 24. Hg7+ - Svartur gafst upp því eftir 24. ... Kd8 25. Hd-d7+ Rxd7 26. Hg8+ fell- ur hrókurinn. Kortsnoj eyddi rúmum tveim tímum á skákina en Ljúbojevic hugsaði ekki nema í 40 mínútur. „Maður mótsins“ var rússneski skákmeistarinn Beljavsky. Hann tap- aði tveim fyrstu skákunum en með mikilli hörku náði hann efsta sætinu (8V2 vinning) en Karpof varð þriðjt (7>/2). Karpof tapaði einni skák, ein- mitt gegn Beljavský, og er freistandi að líta á hana þótt hvorugur þeirra muni keppa hér í vetur. Hvítt: Karpof Svart: Beljavský 1. d4 - d5 7. Bd3 - Rb-d7 2. c4 - e6 8. Rf3 - 0-0 3. Rc3 - Rf6 9. 0-0 - He8 4. cxd5 - exc5 10. Dc2 - Rf8 5. Bg5 - Be7 11. h3 - ... 6. e3 - c6 Flest orkar tvímælis þá gert er sagði Njáll og sannast það hér. Þessi leikur veikir peðagirðinguna fyrir framan kónginn lítillega og kemur það sér illa síðar meir. Kostir leiksins eru að kóngur hvíts er ekki lokaður í borð- inu en meginmarkmiðið er að taka g4-reitinn af drottningarbiskup svarts. Skákfræðimenn hafa ritað stórar bækur um svona peðaleiki en enn hef- ur ekki fengist niðurstaða um ágæti þeirra eða galla. 11. ... - Be6 12. Bf4 - Bd6 Þessi uppskipti verða að koma fyrr eða síðar því svartur þolir ekki að svartreitabiskup hvíts miði á drottn- ingarvæng hans. 13. Bxd6 - Dxd6 14. a3 - De7 15. b4 - Ha-c8 16. Hf-cl - R6-d7 17. Re2 - Rg6 18. Rg3 - Rd-f8 19. Rd2 - Rh4 20. Rb3 - ... Hlutirnir gerast hægt. Hvítur hefur víxlað riddurum sínum en svartur kemur öðrum riddaranum fyrir í vörn en lætur hinn vaða fram til sóknar. 20. ... - Dg5 21. Kh2 - Hc7 22. Rc5 - Bc8 23. Hel - g6 24. Ha-cl - h5 Hvítur hefur teflt of hægfara. Hann er nú loks að byrja minnihlutasókn- ina á drottningarvæng en rétt var að styrkja varnir kóngsins með Bfl í næsta leik. Nú skellur stormurinn á. 25. b5 - Rxg2 26. Kxg2 - h4 Hér kom til greina að leika 27. e4 og kemur þá upp flókin staða, t.d. 27. ... hxg3 28. fxg3 Dh5 29. Df2 Dxh3+ 30. Kgl. Eftir 30. ... dxe4 31. Rxe4 hefur hann mótfæri á kóngsvæng en eftir 30. ... cxb5 31. exd5 verða d- peðin sterk. 27. bxc6 - hxg3 28. fxg3 - Hxe3 29. Hxe3 - Dxe3 30. cxb7 - Bxb7 31. Dc3 - Hxc5 Nú kemur á daginn að menn hvíts standa ólánlega og hann tapar tveim mönnum fyrir hrók því eftir 32. dxc5 d4+ missir hann drottninguna. Er nú skammt til loka. 32. Dxc5 - Dxd3 33. Dc3 - De2+ 34. Kgl - Re6 35. Hel - Rxd4 36. Khl - Rb5 Hvítur gafst upp. Ur ýmsum áttum... Bridgehátíð nálgast óðum. Dagana 13.-16. febrúar n.k., verður hin árlega Bridgehátíð spiluð á Loftleiðum. Erlendir gestir okkar verða m.a. Zia Ma- hmod frá Pakistan, heimsmeist- arinn Alan Sontag, og á móti honum Broadway-Billy Eisen- berg (eins og hann hefur verið kallaður), olypíumeistarinn Ge- orge Mittelmann frá Kanada og á móti honum Alan Greaves (þeir kcmu einnig á síðustu Bridgehá- tíð) og Granovetter-hjónin frá USA auk danska landsliðsins. Ljóst er að góðir gestir eru á ferð- inni. Þegar hafa 5 pör sótt um að fá að taka þátt í Evrópumótinu í tví- menning, sem haldið verður í París dagana 27.-29. mars n.k. Frestur til að sækja um rennur út 20. janúar. 7 pör eiga rétt á þátt- töku frá íslandi. Nýja húsnæðið að Sigtúni 9 var tekið í notkun 1' vikunni. Reykja- víkurmótið í sveitakeppni hófst sl. miðvikudag, með þátttöku 21 sveitar. Er óhætt að segja að bridge- menn hafi fagnað þessum merka áfanga í sögu Bridge á íslandi, þó sérstaklega sveit Olafs Lárusson- ar, sem leiddi Reykjavíkurmótið eftir tvær fyrstu umferðirnar. Semsagt fyrstu sigurvegarar í Sigtúni 9 (hvað sem tíminn mun leiða í ljós...) Allt annar Ingólfur það. Það er komið að skuldadögum hjá félögunum í landinu. Fyrri gjalddagi árgjalda er 15. janúar n.k. Greiðslu má koma í pósthólf 272 - 121 - Reykjavík, merkt BSÍ. Frestur til að tilkynna þátttöku í tvímenningskeppnina á Bridge- hátíð 1987, rennur út 28. janúar n.k. f Opna Flugleiðamótið (sveitakeppnina) er hins vegar hægt að skrá sveitir fram til þriðj- udagsins 13. febrúar. Frestur til að tilkynna þátttöku í undankeppni fyrir íslandsmótið í sveitakeppni á Vestfjörðum, rennur út 31. janúar. Ævar Jón- asson annast þá hlið málanna. Bikarkeppni Bridgesambands Reykjavíkur í sveitakeppni (sem er nýjung) hefst í þessum mán- uði. 24 sveitir eru með. Dregið hefur verið í 1. umferð og var sú nýbreytni tekin upp, að skipa sveitum í 8 hópa. Þrjar sveitir verða í hverjum hópi og kemst ein sveit áfram í 8 sveita úrslit úr hverjum hópi. ÓLAFUR LÁRUSSON Hóparnir eru þannig: 1. riðill: SigurðurB. Porsteinsson B. R., Esther Jakobsdóttir B. kv., og Elín J. Ólafsdóttir B.R. 2. riðill: Aðalsteinn Jörgensen B.R., sveit Pólaris B.R. og Páll Valdimarsson B.R. 3. riðill: sveit Atlantik BmR., Jón Steinar Gunnlaugsson B.R. og Guðmundur Þorkelsson Armúlask. 4. riðill: Þórður Sigfússon TBK, Sigfús Örn Árnason TBK og Baldur Bjartmarsson Breiðholti. 5. riðill: Sigurður Sigurjónsson B.R., sveit Fram B.R. og Sig- mundur Stefánsson B.R. 6. riðill: Magnús Sverrisson BFB, Guðni Kolbeinsson Skagfirðing- um og sveit Delta B.R. 7. riðill: Jón Hjaltason B.R., Sigtrygur Sigurðsson B.R. og sveit Samvinnuferða/Landsýnar B.R. 8. riðill: Sigurður Steingrímsson TBK, Guðmundur Baldursson Breiðholti og Jóhann Jóhannsson BFB. í 1. umferð leika svetir nr. 2-3, í 2. umferð sveitir nr. 3-1 og í 3. umferð sveitir nr. 1-2. Leikjum í 1. umferð skal vera lokið fyrir 23. febrúar n.k. Verði einhverjum leik þá ólokið reiknast engin stig fyrir þann leik. Keppnisgjald er kr. 3.200 pr. sveit og greiðist fyrir 1. febrúar n.k., til Olafs Lárus- sonar. Sé því ekki sinnt, dettur sú sveit sjálfkrafa úr leik. Aðstaða fyrir einstaka leiki verður fyrir hendi í Sigtúni 9, sé þess óskað. 18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. janúar 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.