Þjóðviljinn - 13.01.1987, Blaðsíða 3
______________________________FRÉTTIR______________________________
Kísilmálmverksmidjan
Stjómin klúðraði málinu
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður: Framtíð kísilmálmverksmiðjunnar í algerri óvissu. Alfarið
háð vilja Rio Tinto Zink. Ohœf framkoma gagnvart byggðarlögunum.
Það er alveg greinilegt að ríkis-
stjórnin hefur klúðrað þessu
máli. Það er ljóst að stjórninni
nýtist ekki þetta kjörtímabil til
þess að ganga frá því og fram-
vinda þess er í algerri óvissu,
sagði Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður þegar Þjóðviljinn
leitaði álits hans á stöðu mála
varðandi byggingu kísilmálm-
verksmiðju á Reyðarfirði.
Þjóðviljinn skýrði frá því fyrir
helgi að samningaviðræður við
Rio Tinto Zink væru í biðstöðu.
Fyrirtækið heldur að sér höndum
vegna mikils kostnaðar við bygg-
ingu verksmiðjunnar og ónógrar
arðsemi að mati fulltrúa fyrirtæk-
isins.
Hjörleifur sagði í gær að við
stjórnarskiptin 1983 hefði sú af-
drifaríka stefnubreyting verið
gerð að fá erlenda aðila til þess að
gerast meirihlutaaðili í verk-
smiðjunni. „Menn fóru af stað út
í heim með betlistafinn, auglýstu
ódýra orku, ódýrt vinnuafl og að-
stöðu, en engu að síður hefur
ekkert gengið, ekki síst vegna
þess að allt ákvarðanavald er í
höndum Bretanna. Það er alger-
lega háð þeim hvort af byggingu
verksmiðjunnar verður eða ekki.
Málið er í fullkominni óvissu og
að mínu mati hefur fólkið í við-
komandi byggðarlögum verið
dregið óhæfilega lengi á ákvörð-
un.
Það hefur heldur ekki bætt úr
skák að stjórn verksmiðjunnar
hefur verið ýtt út í horn. Fulltrúar
stjórnarandstöðunnar þar hafa
ekki fengið upplýsingar um gang
mála fyrr en eftir dúk og disk,"
sagði Hjörleifur.
Birgir Isleifur Gunnarsson for-
maður stjóriðjunefndar sagðist
aðspurður í sjálfu sér ekki telja
það ósigur fyrir stjórnina að ekki
skuli takast að koma málinu í
höfn fyrir kosningar.
„Það er unnið í málinu og við
höfum sett okkur það mark að
komast að niðurstöðu í síðasta
lagi um mitt þetta ár. Það er alveg
fráleitt að við höfum klúðrað
málinu. Þetta hefur ekki gengið
eins vel og útlit var fyrir, en málið
er alls ekki dautt,“ sagði Birgir.
Að sögn Birgis liggja fyrir drög
að samkomulagi um ýmis atriði,
en hann sagði raforkuverð enn
ekki hafa verið rætt.
-gg
Dagsbrúnarsamningurinn
Hreykjum okkur
ekki
Samningur Dagsbrúnar samþykktur. Pröstur
Ólafsson: 3-5% umfram ASÍsamninginn.
Afundi stjórnar Dagsbrúnar
með félagsmönnum í gær
voru samningarnir samþykktir
með öllum þorra atkvæða gegn 32
atkvæðum. Þröstur Ólafsson
framkvæmdarstjóri Dagsbrúnar
segir þá hækkun sem samningur-
inn felur í sér á bilinu 3-5% meiri
Samningaviðrœður
Snót til
sáttasemjara
Kjaradcilu verkakvennafélags-
ins Snótar í Vestmannaeyjum og
vinnuveitenda hefur verið vísað
til Ríkissáttasemjara, en Snót fell-
di samninga ASÍ og VSÍ sem gerð-
ir voru í desember sl.
Að sögn Vilborgar Þor-
steinsdóttur formanns Snótar ber
mikið í milli að samningar náist.
Snót hefur lagt mikla áherslu á
það að fá starfsaldurshækkanir
fyrir félaga sína sem flestir starfa
við fiskvinnslu, en tilboð vinnu-
veitenda við þeirri kröfu hefur
verið hækkun til handa þeim sem
eru á 15 ára og 10 ára töxtum.
Snót hafnaði þessu tilboði.
Verkalýðsfélagið Afturelding
á Hellisandi, hefur samþykkt 5%
hækkun ofan á 15 ára taxta fisk-
vinnslufólks, með þeim skilyrð-
um að semji einhver önnur félög í
landinu um meiri hækkun þá
komi hún inní sérkjarasamninga
félagsins. Þá gerir félagið kröfu
um 3 krónu hækkun ofan á tíma-
kaup starfsfólks í salthúsi, en
hækkunin skoðast sem kuldaá-
lag. Að sögn Guðrúnar Gísla-
dóttur formanns félagsins er nú
beðið eftir undirskrift vinnu-
veitenda á þessum samningi.
Þá hefur Verslunnarmannafé-
lag Vestmannaeyja hafið við-
ræður við kaupsýslumenn en fé-
lagið hefur m.a. lagt mikla
áherslu á að samið verði um hærri
lágmarkslaun en í jólaföstusamn-
ingunum. Að sögn Ingimars Ge-
orgssonar er verið að miða við
laun á bilinu 28-29 þúsund krónur
á mánuði. Sagði Ingimar að fé-
lagar virtust tilbúnir til þess að
fara út í viðræður nái þessi krafa
ekki fram að ganga, en kvaðst
frekar bjarsýnn á að kaupsýslu-
menn myndu ganga að þessari
kröfu.
-K.ÓI.
en í aðalkjarasamningum ASÍ frá
því í desember.
„Við erum ekkert að hreykja
okkur af þessum samningum.
Launin eru enn of lág, en við náð-
um ekki meiru út úr þessum við-
ræðum,“ sagði Þröstur Ólafsson
um samninginn á fundi Dags-
brúnarmanna í gær. Samningur-
inn sem undirritaður var á sunnu-
dagsmorgun sl. er í öllum megin-
atriðum byggður á sömu forsend-
um og almennu samningarnir, en
auk þess er samið um 3% starfs-
aldurshækkun til handa starfs-
mönnum í fiskvinnslu sem starfað
hafa hjá sama fyrirtæki í 15 ár. Þá
var samið um un nýjar reglur um
útköll. Jafnframt voru gerðar
nokkrar bókanir um þær við-
ræður sem samningsaðilar hyggj-
ast taka upp á samingstímabilinu,
en þar á meðal verður gerð at-
hugun á áhrifum þess að breyta
yfirvinnugreiðslum, reglur um
staðgengilslaun verða endur-
skoðaðar og viðræður verða
hafnar um endurskoðun á launa-
rétti starfsfólks í slysa og veik-
indatilfellum.
í samningnum felst jafnframt
endurskoðun á 9 sérkjarasaming-
um Dagsbrúnar og sagði Þröstur
að best hefði upp tekist í gerð
sérkjarasamninga fyrir hafnar-
verkamenn og bensínafgreiðslu-
menn.
Á fundinum var stjórn Dags-
brúnar nokkuð gagnrýnd fyrir ó-
lýðræðisleg vinnubrögð í gerð
kröfugerðar Dagsbrúnar og fyrir
það að bera samninginn undir at-
kvæði áður en hann er kynntur á
vinnustöðum.
-K.ÓI.
Formaður Dagsbrúnar, Guðmundur J. Guðmundsson, mælir fyrir samningnum, en hann var samþykktur með þorra
atkvæða gegn 32. Mynd E.ÓI.
Framsóknarflokkurinn
Hörð gagnrýni á Steingrím
Stefán Valgeirsson þungorður í garð formannsins á fundum í kjör-
dœmi sínu: Steingrímur sér landið frá Arnarnesinu
Það er nú kannski ofsagt að ég
hafi farið mjög hörðum orð-
um um formann Framsóknar-
flokksins, en mér er engin
launung á því að þessi ríkisstjórn
hefur ekki tekið á landsbyggð-
armálum, t.d. málefnum land-
búnaðarins, eins og ég og margir
aðrir ætluðumst til, sagði Stefán
Valgeirsson alþingismaður Fram-
sóknarflokksins í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Stefán hefur efnt til opinna
funda í kjördæmi sínu að undan-
förnu og hefur þar deilt á forystu
Framsóknarflokksins, einkan-
lega vegna frammistöðu hennar í
málefnum landsbyggðarinnar.
„Ég lýsti þessu þannig og hef
gert það áður að Eysteinn hafi
séð landið frá Austfjörðum hvar
sem hann hafi verið staddur,
Hermann frá Ströndum og
Ólafur Jóhannesson frá Skaga-
firði. Steingrímur hefði fyrst í
stað séð það frá Vestfjörðum, en
nú virtist mér hann vera farinn að
sjá það frá Arnarnesinu.
Mér finnst menn í Reykjavík
hafa allt of mikil áhrif í þessum
flokki eins og öðrum og áherslan
á landsbyggðina allt of lítil,“
sagði Stefán í gær.
-gg
Þriðjudagur 13. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3