Þjóðviljinn - 13.01.1987, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 13.01.1987, Blaðsíða 13
Umsjón: Magnús H. Gíslason Eysteinn G. Gíslason Skáleyjum Að sleppa lausum almennum skothernaði í selalátrum er slíkur óvitaskapur að furðu gegnir. Selurinn í sjónum Hugleiðingar um sel og selveiðar „Selurinn í sjónum syndir upp á sker...“, segir í gömlum hús- gangi. Ótal mörg slík stef úr þjóð- vísum og barnagælum minna á dálæti íslendinga á selnum á liðn- um öldum, enda ekki óeðiilegt hjá þjóð, sem löngum átti við skort að búa. Selurinn var „sæla í búi“: gaf af sér það, sem oft skorti sárast: fæði, skæði og ljósmeti. Frá upp- hafi vega munum við aldrei hafa átt svo glámskyggna ráðamenn, að þeir ekki sæju, að þarna var auðlind, sem ekki mátti eyði- leggja, heldur nytja af skynsemi. Þannig er það vonandi enn. Með- an aðrar þjóðir þurrkuðu út af yfirborði jarðar dýrategundir vegna græðgi og hugsunarleysis, meðan við sjálfir eyddum gróðri og skógi landsins, þó að flóar og firðir tæmdust af fiski og við borð lægi að þorskurinn og sfldin hlytu sömu örlög og geirfuglinn, höfðum við vit á að haga okkur skikkanlega gagnvart selnum - svonaíaðalatriðuma.m.k. Ogþó að við veiddum hann stöðugt, allt frá landnámstíð, nýttum afurðir hans upp til agna og seldum í seinni tíð útlendingum skinnin á háu verði, var þó tryggt með lögum, hefð og hugarfari al- mennings að tegundin mætti lifa og tímgast. Réttara er reyndar að segja tegundirnar því þær eru tvær, sem eiga heimkynni hér við land, eins og flestir vita, þ.e. landselur og útselur. Á síðustu árum, þegar mannkynið er loks að átta sig á að það var á góðri leið með að gera jörðina óbyggilega, þegar við ættum öll að vera farin að vita að maðurinn verður að viðhalda jafnvægi í náttúrunni en eyði- leggja það ekki koma upp hér á landi háværar kröfur um að út- rýma selnum, og ekki látið sitja við orðin tóm í því efni. Bent hef- ur verið á, að upphaf þeirra firna megi rekja til baráttu fyrir vern- dun sela og sannast þar hið forn- kveðna, að ekki er öll vitleysan eins. Við skulum þó vona að sel- urinn í sjónum haldi áfram að synda upp á sker, en við þurr- lendingarnir steitum ekki á þeim skerjum fljótræðis og mistaka, sem forfeður okkar sáu og forð- uðust. Ekki er ætlunin að ráðast hér að einstaklingum með ásökunum að svo stöddu, en vera má að ein- hverjir eigi skilið að fá svolítinn „selbita". Selamál og áróður Selamál hafa verið til umræðu og í sviðsljósum hér á landi og víðar undanfarið. Ástæðurnar eru flestum kunnar. Það, sem gerst hefur, er m.a. þetta: - Áróðursherferð erlendis gegn selaveiðum eyðilagði skinnamarkaðinn. íslensku land- selskópaskinnin urðu óseljanleg, en þau voru lengi verðmæt grá- vara og undirstaða arðvænlegra veiða í selalátrum. - Hefðbundnar landselskópa- veiðar drógust fljótt saman og lögðust niður að mestu, en það hafði gerst fyrr með útselinn. - Talið var að þar með hlyti selnum að fjölga, sem þó mun vera ósannað mál, m.a. vegna þess hve mikið ferst af kópum í grásleppunetum núorðið. - Útgerðarmenn og fiskverk- endur kröfðust aðgerða þar eð selurinn gerði hvorttveggja að eta fiskinn í sjónum og smita hann af hringormi. - Skipuð var nefnd úr hópi þeirra, sem vildu eyða selnum og henni fengið vald og fé í hendur. Á hennar vegum var síðan efnt til rannsókna, sem höfðu þann yfir- lýsta tilgang, að réttlæta fyrirhug- aðar aðgerðir. - Um árabil hefur nefndin - Hringormanefnd - greitt mönnum fé fyrir að drepa sel. Af- leiðingar þess hafa orðið skipu- lagslaus hernaður, oft í trássi við gildandi landslög, sem þegar hef- ur spiilt landnytjum margra veiðijarða í stórum stfl. - Þeir, sem bera fyrir brjósti áframhaldandi jafnvægi, fornar landsnytjar og umhverfisvernd, og sem trúa því að markaðir eigi eftir að opnast á ný, hafa furðað sig á þjösnaskapnum og lögbrot- unum, sem óðu uppi. Hinsvegar bundu margir vonir við ný lög um sambúð manna og sela. - Frumvarp til laga um sela- veiðar kom fram, en var á ýmsan hátt þannig úr garði gert, að því er líkast að lögunum sé einkum ætlað að greiða fyrir eyðingunni og lögfesta hana. - Samtök bænda hafa mótmælt einstökum ákvæðum frumvarps- ins, enda höfðu lítil sem engin samráð verið við þau höfð, og sel- veiðibændur hafa nýlega stofnað sín samtök. Landvernd gaf út rit um selamálið, þar sem tekinn er saman margþættur fróðleikur og sýnt fram á alvarlegar misfellur í máltilbúnaði og áróðri sjávarút- vegsmanna. - Þrívegis hefur selafrumvarp- ið dagað uppi á Alþingi. Það hef- ur valdið deilum þar og umræðu í fjölmiðlum, en gagnrýni á það hefur helst verið svarað með full- yrðingum um að verið sé að leysa ákveðinn vanda með því, og Al- þingi geti ekki verið þekkt fyrir að afgreiða það ekki möglunar- laust. Selveiðar eru búgrein Vegna framangreindra atvika og átaka skal hér á eftir bent á nokkrar staðreyndir, sem vert er að hafa í huga. Sumt af því hefur komið fram áður, annað e.t.v. síður. Frá upphafi hafa sellátrin, þ.e. kæpingar- og uppeldisstöðvar selsins, á skerjum, söndum og við árósa, tilheyrt ákveðnum bújörð- um, veiðin verið hlunnindi við- komandi jarða, nytjuð af ábú- endum eins og annað jarðargagn. í friðlýstum látrum er öllum óhei- milt að skjóta sel, jafnt land- eiganda sem öðrum. Reynslan hafði kennt mönnum að skot- veiði flæmdi selinn burt - eyði- lagði látrin. í látrunum er hins- vegar hægt að fanga kópana án allar röskunar og á því hefur ny- tjun selastofnanna einkum byggst. Fáist verð fyrir kópa- sícinnin, sem lengi hafa verið verðmætasti hluti selaafurða, tryggir þetta gamla fyrirkomulag jafnvægi og æskilegustu nýtingu. Bændur veiða árlega stóran hluta viðkomunnar, en nóg verður eftir til viðhalds. Jafnvægi helst, enda hagur bóndans að ganga ekki svo langt að það raskist. Þetta er sjálfvirkt kerfi, þar sem lítið er um boð og bönn, og leikreglur einfaldar, enda hefur það reynst vel, eins og áður segir. Landselalátur eru á fjölmörg- um jörðum á landinu. Kóparnir eru teknir þar á 2-3 vikum í júní. Til þess þarf staðkunnuga menn, sem kunna til allra verka við veiðar og vprkun afla. Kópaveiði Hafrannsóknarstofnunar í Aber- deen hélst sýking þorsksins af „selormi“ við Bretland svipuð eða óbreytt, á ákveðnu árabili. Á sama tíma hafði fjöldi útsela meira en þrefaldast á sama svæði. 5. Selir eru lokahýsill fyrir eina tegund hringorma (selorm), hvalir fyrir aðra (sem þá má vænt- anlega kalla hvalorm). Báðar þessar hringormategundir finnast í fiski á Islandsmiðum, þó að meira sé af þeirri fyrrnefndu. Sjaldan finnast þær báðar í einum og sama fiskinum og er álitið að þær þrífist ekki í slíku sambýli. Því hafa menn getið þess til, að ef önnur tegundin hyrfi úr sögunni, kynni hin að færast í aukana að sama skapi. Ef íslendingar dræpu allan sel við landið er hugsanlegt, en ekki víst, að „selormurinn“ hyrfi líka. Myndi þá ekki „hval- ormurinn" koma í staðinn, fyrir tilverknað vaxandi friðaðra hvalastofna? Að minnsta kosti þyrfti eftir sem áður að leita að hringormi og ormahreinsa fiskinn. Sagt er að hvalormurinn sé minni og sjáist verr en hinn. Yrðu skiptin til bóta? Eða yrði kannski að útrýma hvalnum líka? Er nokkuð í vegi með það? Sumir halda reyndar að loka- hýslar hringorma kunni að vera fleiri en selir og hvalir, t.d. sjó- fuglar. Þá mun fjölmargt vera óljóst og órannsakað varðandi millihýsla í hringormakeðjunni, og yfir höfuð flest, sem menn þyrftu að vita áður en ráðist er í niðurskurð. Til dæmis er það með öllu óljóst, hvort selafjöldi hefur áhrif á selormafjölda í fiski, sbr. dæmin um Grænland og skosku rannsóknina hér að fram- an. Augljóst mál er, að erfitt yrði eða óframkvæmanlegt að drepa allan sel við landið, þótt fljótgert sé að eyðileggja selalátrin. Þar að auki dettur varla nokkrum manni í hug í alvöru að íslendingar kæmust upp með að reyna það. Auðvelt reyndist að beygja okk- ur til hlýðni í hvalveiðimálunum. Myndi heimurinn láta afskipta- laust ef við reyndum að útrýma selnum? 6. Selir éta nytjafisk ásamt mörgu öðru. Það er vitað mál. Að sá fiskur myndi skila sér allur sem aflaaukning á miðum, ef selnum væri eytt, er fjarstæða, að dómi a.m.k. sumra fræðimanna. Fæðukeðjan í sjónum, þar sem hver lifir á öðrum, er það marg- slungin, að búast má við, að ef fækkun verður hjá einni tegund færist aðrar, sem neyta sömu fæðu, í aukana í staðinn. Við erum búnir að reka útlend- ingana af íslandsmiðum - loks- ins. Ekki er þó allt fengið með því: Næst þarf að útrýma selnum, sem sagður er éta árlega tugi togarafarma af fiski. Því næst kæmi röðin væntanleg að fjöl- gandi hvölum, eitthvað éta þeir. Er nokkuð í veginum að slátra þeim? Eða sjófuglunum? Þeir eru sagðir éta margfalt fleiri fiska (ungviði) en veiðiflotinn fær í sinn hlut. Yrði ekki að snúa sér að þeim þarnæst? Herja á fugla- björgin með fallbyssum og sprengjuvörpum t.d.? Gamanlaust: Ekki dugir að setja dæmið upp á þennan hátt. Selir eru hluti af lífkeðju hafsins eins og hvalir og sjófuglar. Og við vitum of lítið um hvaða afleiðing- ar það getur haft að raska þeirri keðju, með útrýmingu tegunda, til þess að réttlætanlegt sé að gera slíkt. Hvað selinn varðar er margt, sem þarf að rannsaka áður en gripið er til niðurskurðarins og þá af réttum aðilum. Að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í selalátrum verður ekki stunduð af öðrum en þeim, sem eru á staðnum yfir hinn stutta veiði- tíma, þ.e.a.s. heimamönnum. Aðvífandi selfangarar eiga þar I i ; Þriðjudagur 13. janúar 1987 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.