Þjóðviljinn - 13.01.1987, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 13.01.1987, Blaðsíða 9
Forystumenn skæruliða í Afganistan hittust í gær í norðvesturhluta Pakistan til að ræða nýjustu viðburði, vopna- hlésboð Najibullah leiðtoga Kabúl-stjórnarinnar. Áætlað er að fundurinn standi í þrjá daga en frá niðurstöðum verður ekki sagt fyrren á laugardag. Talsmenn skæruliða höfnuðu strax vopria- hlésboðinu, en sumar fylkingar munu vilja láta reyna á samn- ingsvilja forystumanna í Kabúl og Moskvu. Fimmta febrúar er talið að Bandaríkjamenn munu sprengja fyrstu atómsprengju sína á árinu samkvæmt heimild- um New York Times, og á að sprengja sex sinnum á þremur mánuðum. Sovétmenn hafa sagt að þeir muni hefja tilraunaspren- gingar á ný eftir fyrstu spreng- juna vestra. FOA-stofnunin í Sví- þjóð hefur sent frá sér tölur um kjarnorkutilraunir 1986. Þærvoru samtals 21, færri en 1985 (30), aðallega vegna tilraunahlés í So- vét. Bandaríkjamenn sprengdu tólf sinnum, Frakkar átta sinnum, Bretar einu sinni. Önnur kjarn- orkuveldi, Sovét, Indland og Kína, sprengdu ekki á árinu. Flokkur Kohls kanslara virðist ekki eiga neitt á hættu í þingkosingunum í Vestur- Þýskalandi 25. janúar. í skoð- anakönnun sem birtist í gær fá íhaldsflokkar Kohls og Strauss 48,5% og samstarfsflokkur þeirra FDP 7%. Jafnaðarmenn fá aðeins 36,5% og græningjar 7%. í síðustu kosningum fengu CSU og CDU 48,8%, SPD 38,2%, FDP 7%, græningjar 5,1%. -47° C var kuldinn í þorpinu Drevsjo í Heiðmörk í Noregi í gær og hefur aldrei mælst önnur eins tala. Af Evrópulöndum er nú einna nota- legast á íslandi; alls staðar ann- ars staðar í álfunni berjast menn viö kuldann. Snjór í Madrid, Vín- arbúar á skíðum, Norðmenn va- raðir við að drekka heita drykki rétt eftir að þeir eru komnir inn úr kuldanum til að eyðileggja ekki glerunginn í tönnunum. Yfir tugur manns hefur látist í Sovét af sökum kuldans, útigangsmaður fannst frosinn undir brú í Munc- hen, tveir dóu í járnbrautarslysi í hríðarkófi í Búdapest. Skólar voru lokaðir í hlutum Vestur- Þýskalands, í Austurríki fóru skriðdrekar hersins af stað til að hjálpa strönduðum ökumönnum. ERLENDAR FRÉTTIR ÁRNASON /REU1ER 1986 8 þúsund fallnir Um átta þúsund manns eru taldir hafa fallið í styrjöldum og skærum í þremur Mið- Ameríkuríkjum árið 1986, eða 22 daglega. Um 900 eru taldir hafa fallið í skærum í Guatemala, og tals- menn kirkjunnar í E1 Salvador segja 1725 fallna þar. Það er minna en í fyrra en samtals er mannfall þar frá 1979 um 64 þús- und manns. Samkvæmt upplýsingum stjórnvalda féllu um 5300 í Nicar- agua á árinu, um 4000 „contra“- liðar, rúmlega þúsund stjórnar- hermenn og um 300 almennir borgarar. Þetta er mun meira en árið áður (um 4600), og horfur eru taldar óvænlegar þarsem átökin hljóti að magnast eftir að contra-herirnir fá 100 milljón dollara stuðning frá Bandaríkj- unum. HEIMURINN Efnahagsbandalagið Þýska markið hækkað Franskifrankinn heldursínu, mark oggyllini upp. Brussel - Fjármálaráðherrar þeirra átta Efnahagsbanda- lagslanda sem hafa með sér samvinnu um gengismál kom- ust að samkomulagi um breytingar á gengisramman- um eftir erfið fundahöld í Brussel á laugardag og sunnu- dag. Þýska markið og hol- lenska gyllinið voru hækkuð um 3 prósent miðað við aðra gjaldmiðla samvinnuland- anna, og belgíski frankinn um 2 prósent. Franski fjármála- ráðherrann Balladur hefur lýst ánægju sinni með úrslitin þar- sem tekist hafi að koma f veg fyrir gengisfellingu á frankan- um, og er Brusself undurinn ta- linn kærkominn sigur fyrir að- kreppta stjórn Chiracs í París. Undanfarinn mánuð hefur ver- Bagdad/Teheran - Stórsókn ír- anshers að hafnarborginni Basra syðst í írak virðist ekki hafa gengið upp eftir fjögurra daga harðar og bióðugar orr- ustur. írakar hófu gagnsókn í gær og segjast Iranar hafa hrundið henni, en sem áður fer tvennum sögum af gangi mála og valt að treysta upplýsing- um fjölmiðla í Teheran og Bag- dad. Giskað er á að um 60 þúsund hafi fallið af herjum aðila í árás- inni sem hófst á föstudaginn. ír- anar virðast ekki hafa náð um- talsverðu landi frá írökum, en auk mannfalls á báða bóga hafa báðir herirnir misst mikið af flug- vélum, skriðdrekum og öðrum hergögnum. írakskar flugvélar hafa hvað eftir annað gert loftár- ásir á bæi og borgir í íran og íran- svélar svarað í sömu mynt, - einnig hafa eldflaugar verið send- ar milli landanna, meðal annars ein til Bagdad sem er í ágætu skotfæri Irana. íranar segjast hafa skotið niður 32 flugvélar frá því á föstudag, írakar segjast hafa misst aðeins 5 vélar en eyði- lagt um 250 skriðdreka fyrir ír- önum. Ónafngreindur sérfræðingur í Pentagon, höfuðstöðvum Banda- ríkjahers, sagði um helgina að engar líkur væru á að franar gætu unnið sigur í styjröldinni í náinni ið mikill þrýstingur á fyrri gengis- ramma samvinnulandanna. Þýska markið hefur verið eftir- sótt, meðal annars vegna þess að dollar lækkar og reyna spákaup- menn að selja dollara sína fyrir mörk, sem þarmeð hækka í verði samkvæmt markaðslögmálum. Frankinn hefur hinsvegar verið í lægð, meðal annars vegna óeirða og vinnudeilna þar í landi. Franska stjórnin hafði lýst því yfir að hún sæi enga ástæðu til gengisfellingar og hefur nú haft sitt fram og bjargað andlitinu. í raun er þó um gengislækkun að ræða gagnvart marki, gyllini og belgafranka, og vonast Frakkar til að þessar breytingar efli út- flutning, fyrst og fremst til Þýska- lands, helsta viðskiptalands þeirra. Vöruskiptajöfnuður Fra- framtíð. Þeir hefðu farið halloka í orrustum á suðurvígstöðvunum fyrir hálfum mánuði, misst milli 20 og 30 þúsund hermenn, og sókn þeirra nú virðist ekki árang- ursríkari. Frá upphafi átaka fyrir rúmum sex árum hafa íranar hvað eftir annað boðað lokasókn sem gerði útaf við íraksher og setti af stjórnvöld í Bagdad, en aldrei orðið af. íranstjórn hefur neitað öllum samningaviðræðum og segist ekki ánægð með neitt nema full- an sigur, og taktík fraka er því að kka við Vestur-Þjóðverja var á síðasta ári óhagstæður um 500 milljón dollara þrátt fyrir að nú hafi frankinn lækkað í heild um 9% gagnvart markinu á níu mán- uðum. Gengissamvinna EBE- landanna, EMS, nær til átta af tólf ríkjum bandalagsins. Bret- land, Grikkland, Spánn og Por- túgal eru ekki með. Samstarfið hófst 1979 og er talið hafa reynst vel. Ákveðinn er gengisrammi allra gjaldmiðla samstarfsríkj- anna og má hver gjaldmiðlanna rísa eða hníga um 2,25 prósent. Sé ljóst að munur einstakra gjald- miðla er að verða meiri ber seðla- bönkum landanna að skerast í leikinn, þannig að ef til dæmis franski frankinn stendur tæpt gagnvart marki ber þýska seðla- halda styrjöldinni í sama fari til að þreyta Teheran-klerka og knýja þá til samkomulags. Bandaríski sérfræðingurinn, sem talinn er túlka skoðanir Penta- gons á styrjaldarhorfum, segir að Irakar hafi í raun betur í styrjöld- inni þar sem þeir haldi henni í sama horfi, berjist á eigin landi, hafi yfirburði í lofti og eigi meira af skriðdrekum og stórskotabyss- um en íranar. Að auki sé íraks- her bæði betur þjálfaður og fjöl- mennari (milljón manns gegn 600 þúsund) en íransher. bankanum að kaupa franka til að rétta muninn af. Þegar ljóst þykir að við breytingar verður ekki ráðið með þessari aðferð koma fjármálaráðherrarnir saman og breyta rammanum, einsog í Brússel nú um helgina. Dollarinn hélt áfram að falla í kauphöllum í gær, og fór meðal annars niðurfyrir 1,90 þýskt mark sem ekki hefur gerst síðan 1980. Verð á gulli og öðrum eðalmálm- um hækkar samsvarandi. íran/contra Miljonir gufa upp Washington - Með hverjum degi bætast við upplýsingar um hið undarlega „Iranagua"- mál sem nú herðir að hálsi Bandaríkjaforseta. Formaður þeirrar nefndar öldunga- deildarinnar sem fylgist með leyniþjónustinni, demókratinn David Boren, sagði í sjón- varpsviðtali í fyrradag að enn væri of snemmt að slá nokkru föstu um lagahlið mála, en á því væru þó allar líkur að lög hefðu verið brotin. Stórblaðið New York Times hefur skýrt frá því að Oliver North, ofurstinn sem virðist pott- ur og panna í málinu, hafi skipu- lagt vopnasendingar til Nicarag- ua um Portúgal og segir ennfrem- ur að tveir ofurstar í sendiráðum í París og London hafi séð um ó- löglega vopnasölu til íran frá ár- inu ’83. Los Angeles og Washing- ton Post segja víst að ísraelsmenn séu blandaðir í rnálið, og í því síðarnefnda segir að Peres utan- ríkisráðherra ísraels hafi átt hug- myndina að peningafærslum frá íran til contraliða í Nicaragua. Ráðherrar í ísráel keppast við að neita hlutdeild. Washington Post hefur eftir heimildum frá rannsóknarnefnd öldungadeildarinnar að miljónir dollara sem komu við sögu í vopnasölunni virðist vera gufað- ar upp án þess nokkur viti hvern- ig- Aðstoðarmenn Reagans lögðu fyrir helgi fram leyniskjöl sem ætiað var að lægja öldurnar, en virðist í staðinn negla forsetann niður sem ósannindamann um að hann hafi ekki litið á vopnin til fran sem greiðslu fyrir gísla í Lí- banon. íran-írak Sóknin virðist misheppnuð Kettirnir bíða átekta meðan mýsnar murka lífið hvor úr annarri. Túlkun þýska teiknarans Horts Haitzinger á gangi mála við Persaflóann. Nicaragua Stjómarskrá í gildi og úr Fjölrœði, blandað hagkerfi, óháð ríki. Gagnrýnifrá hœgri og vinstri. Gildistöku mannréttindagreina frestað Managua - Dainel Ortega for- seti Nicaragua staðfesti á laugardaginn nýja stjórnar- skrá í Nicaragua, hina fyrstu frá því Somoza var steypt af stóli árið 1979. Nokkrum tím- um síðar var gildistöku tíu greina þarsem ýmis mannréttindi eru tryggð.frest- að og sagði Ortega að neyðar- ástandi í landinu yrði ekki aflétt fyrren Bandaríkjastjórn hætti stuðningi við „Contra“- skæruliða sem nú eru taldir um 15 þúsund. í stjórnarskránni, sem í Nicar- auga er kölluð „carta magna“ er gert ráð fyrir pólitísku fjölræði, lýðræðislegum kosningum, blönduðu hagkerfi, almennum mannréttindum, þar á meðal tjáningarfrelsi og verkfallsrétti. í stjórnarskránni er því lýst yfir að Nicaragua sé óháð ríki sem berj- ist gegn heimsvaldastefnu. Stjórnarskráin var samþykkt á' þingi með meirihluta atkvæða eftir þriggja mánaða umræður, en er gagnrýnd bæði af hægri- mönnum og vinstrimönnum. Clemente Guido formaður Lýð- ræðislega fhaldsflokksins sagði á laugardaginn að með stjórnar- skránni væri alræðisskipan fest í sessi í landinu. Flokkur hans á 14 menn á 96 manna þingi landsins. Carlos Cuadra formaður maó- istasamtaka sem einnig eiga full- trúa á þinginu taldi hinsvegar að stjórnarskráin væri í anda borg- aralegs frjálslyndis og gjörsam- lega óraunhæf. Samtök hans hafa aðeins stutt eina grein stjórnar- skrárinnar, um að Managua sé höfuðborg landsins. Talsmenn Bandaríkjastjórnar hafa sagt stjórnarskrána eiga að hylja al- ræði sandinista í Nicaragua. Alan Garica forseti Perú var viðstaddur athöfnina þegar Or- tega staðfesti stjórnarskrána og var jákvæðum ummælum hans fagnað mjög af mannfjöldanum. Um tvöþúsund manns fóru í göngu gegn stjórninni í Managua á laugardag í trássi við bann yfir- valda. Gangan fór friðsamlega fram og lét lögreglan ekki á sér bæra. Þriðjudagur 13. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.