Þjóðviljinn - 13.01.1987, Page 6

Þjóðviljinn - 13.01.1987, Page 6
VIDHORF IÐNTÆKNISTOFNUN Eftirtalin námskeiö veröa haldin á næstunni hjá löntæknistofnun: RAFTÆKNIDEILD: 19.-22. jan. Örtölvutækni III. Vélbúnaöur. Inn/út tengingar. Stjórnvistunar- og gagnalínur. Minnisrásir, RAM, ROM og EPR- OM. Tengslarásir 8255, 8251. 40 kennslustundir. 2.-4. feb. Örtölvutækni I. Grunnnámskeið. - Hvernig vinnur 8088- örgjörvinn? Forritun á véla- og smalamáli (assembler). 30 kennslustundir. 9.-12. feb. Örtölvutækni II. Forritun, framhaldsnámskeið. Sma- lamál. Skipanamengi iAPC 8088. Minnisskipting (segments). 40 kennslustundir. VINNU VÉLANÁMSKEIÐIN: 26. jan. Námskeið fyrir stjórnendur vinnuvéla. Haldiö í húsi VSFK í Keflavík. Hefst mánudaginn 26. jan. Upplýsingar hjá Vinnueftirlitinu í Keflavík í síma 1002. VERKSTJÓRNARFRÆÐSLAN: 19.-22. jan. Stjórnun 1. - Undirstöðuatriði í stjórnun og mann- legum samskiptum. 26.-19. jan. Verkskipulagning. Haldið á Eskifirði. - Undirstöðu- atriði í skipulagningu verka og áætlanagerð. 2. -5. feb. Vinnuumhverfismál. - Helstu atriði í vinnulöggjöf og bótarétti. Skyldur verkstjóra og ábyrgð. Öryggismál, brunavarnir og slysavarnir. 9.-12. feb. Stjórnun 2. Haldið í Borgarnesi. - Undirstöðuatriði í verktilsögn. Líkamsbeiting við vinnu. Stjórnun breytinga og hegðun einstaklinga við vinnu. MÁLMTÆKNIDEILD: 19.-24. jan. Hlífðargassuða. - 1. Ryðfrítt stál. 2. Ál. - Flokkun og eiginleikar. Tæring, suðugallar og orsakir. Aðferðir, tæki, efni. REKSTRARTÆKNIDEILD: 6.-7. feb. Stofnun og rekstur fyrirtækja. Haldið á Sauðárkróki. - Stofnáætlun og frumkvöðull fyrirtækis. Viðskiptahugmynd og markaðsmál. Fjármál, félagsmál og reglugerðir. Öflun upplýs- inga og reynsla annarra. FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS: 17. og 19.-27. jan. Vökvakerfi I og II. Grunn- og framhaldsnám- skeið í vökvakerfum, haldin í einni lotu. - Vökvakerfi, frumatriði, einstakir hlutar, efni. Bilanaleit og viðgerðir. Formúlur, töflur og tákn. - Ætlað málmiönaðarmönnum og vélstjórum. 26.-30. jan. Útveggjaklæðningar. Námskeið unnið af starfs- mönnum Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins og haldið í samvinnu við hana. - Veggklæðning og frágangur. Festingar. Loftræst og óloftræst múrklæðning. Markaðskönnun, kostnað- ur, skoðunarferðir. - Ætlað meisturum og sveinum í húsasmíði. 26.-31. jan. Flísalagnir. Haldið hjá Rannsóknastofnun byggingar- iðnaðarins, Keldnaholti. - Flísalögn á gólf og veggi. Skemmdir og viðgerðir. Steinlögn, terrassólögn. Staðlar. Kostnaður. Heilbrigðismál. Skoðunaríerðir og kynning á efnum og áhöldum. - Ætlað starfandi múrurum. 26.-30. jan. Steypuskemmdir. Haldið hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. - Eðli skemmda og orsakir. Greining. Undirbúningur viðgerða. Viðgerðir á sementsbundnum efnum, plastefnum, frostskemmdum, alkalískemmdum og á skemmdu yfirborði. Sprautusteypa. Pússning. Fljótandi steypa. Verk- og efnislýsing. Áætlanir. - Ætlað iðnaðarmönnum, verkfræðingum og tæknifræðingum í byggingargreinum. 3. -5. og 7. feb. Gluggar og glerjun. Haldið hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. - Gluggaefni og gagnvörn, lögun, stærðir og gerðir, hengsli og stormjárn. ísetning í mismunandi veggi. Endurbætur. - Efnisfræði glers, þéttilistar og fúguefni. ísetning- araðferðir, viðgerðir á einangrunargleri. 5., 9., 11., 13., og 14. feb. Efnisfræði stáls. Haldið íTækniskóla íslands. - Efnisuppbygging, framleiðsla, oxun, afoxun. íb- löndunarefni. Flokkun, staðlar. Málmsuða, suðuhæfni stáls, suðuþræðir, aðferðir, gallar. Gæðaeftirlit. Tæring og tæringar- vamir. - Ætlað járniönaðarmönnum, kennurum málmiðngreina og sölumönnum smíðaefnis. Námskeið í Reykjavík eru haldin í húsakynnum Iðntæknistofnunar, nema annað sé tekið fram. Nánari upplýsingar og innritun hjá stofnuninni í síma (91968-000, Fræðslumiðstöð iðnaðarins í síma (91968-7440 og Verk- stjórnarfræðslunni í síma (91 )68-7009. GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA! ÞJÓÐVILJINN ÁSKRIFTARÁTAK Okkur vantar fólk til starfa í ÁSKRIFTARÁTAKI ÞJÓÐVILJANS. Góö laun fyrir röskar mannes- kjur. Hafið samband viö Hörö í síma 681333 eöa 681663. Þjóðviljinn. Lífið leikur til sigurs Játvarður Jökull Júlíusson skrifar Ærin ástæða er til að viður- að fyrir mínum skilningi er Líf til að vega upp það afhroð sem fyrir- kenna það sem vel er gert. Þakka einhvers makleg uppreisn fyrir tækið Gleðibankinn galt. Sjónvarpinu fyrir leikritiz Líf til Sjónvarpið. Og veitti ekki af til Játvarður Jökull Júlíusson einhvers. Og samfagna því yfir ______________________ einstökum árangri. Nína Björk Árnadóttir sver sig sannarlega í skáldaættina. Hún túlkar í verkinu sýn skáldsins með þeirri þroskuðu náðargáfu, sem snillingum einum er gefið að ná tökum á og beita. Leikstjóranum, Kristínu Jó- hannesdóttur, tekst yfirleitt vel. Og ekki láta leikararnir sitt eftir liggja. Bergnuminn varð maður og dolfallinn yfir þeim kynngimögnuðu sviptingum sem urðu milli kvennanna í leiknum. Og ekki síst innra með þeim sjálf- um. Mætti þar margt um segja. Mér varð að orði þegar fastast svarf að ungu stúlkunni: „Er svona ofboðslega erfitt að vera ung?“ Og svarið kom stunu líkast úr áhorfendahópnum: „Já.“ Galdur höfundar, leikstjóra og leikara er hvað helst sá, að hug- sýnir og holdsdraumar skiptast á við veruleikann örar en auga á festir. Þó ég horfði á þetta töfrum tek- inn, verð ég líka að taka fram, að minn sveitamaður sá þarna mannlíf „vegavillt í borgum". Og sumt aðeins í svo strjálum og snöggum leiftrum, að einhvers staðar gat manni yfirsést. Þetta á við um ógæfukonuna. Hvílíkur samnefnari niðurlægingar og reisnar. Hvílíkar andstæður. ísköld eigingirni í eitt skiptið, en svo í lokin heiftugur vilji móður sem einskis svífst. Ó þú vesalings mannlíf „vegavillt í borgum". Drekkingarhylur Stóradóms öld fram af öld er brenndur í vit- und þjóðarinnar. Efa má hvort fólk annarra þjóða skynjar eins og við, þegar leikurinn skírskotar til hans. Skilji heimurinn Drekk- ingarhyl íslenskum skilningi, þá er leikurinn Líf til einhvers til- tækur fyrir allan heiminn. í Lífi til einhvers er sýnt aftan á opinbera og víðtekna glansmynd borgarlífsins, þjóðlífsins á þessari stundu. Margir urðu æfir yfir að Sjónvarpið sýndi leikinn í árs- byrjun. Fjasa þetta Iíka litla, skammast og rífast, karlar og konur. Er það fólk svona sárreitt sannleikanum? Þolir það ekki að vera ónáðað? Þykir því of nærri höggvið? Áftur þakka ég öllum aðstand- endum og samfagna. Og þó ég vilji engan særa, verð ég að segja, / Ertþú \ búinn að fara í Ijósa - skoðunar -ferð? 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Jlífi til einhvers, ersýntaftaná opinbera og viðtekna glansmynd borgarlífsins, þjóðlífsins á þessari stundu“ FLÓAMARKAÐURINN Fríar auglýsingar fyrir áskrifendur Þjóðviljans á þriðjudögum og fimmtudögum í viku hverri. GERIST ASKRIFENDUR - ÞAÐ BORGAR SIG. Til sölu Baðborð til sölu á 1.000 krónur. Uppl. í síma 20601 eftir hádegi. Kópavogur Óska eftir 2ja eða 3ja herbergja íbúð til leigu í skemmri eða lengri tíma. Fyrirframgreiðsla, reglusemi og skilvísar greiðslur. Uppl. í síma 641538. Til sölu ný og ónotuð, hvít garðstofuhús- gögn úr smíðajárni. Borð og tveir stólar. Uppl. í síma 99-1659. Tuskubrúðunámskeið Kennsla í gerð Waldorfsbrúða. Uppl. í síma 43758, Ólína Geirs- dóttir. Til sölu stækkanlegt borðstofuborð á kr. 1500,2 borðstofustólar á kr. 500 og hvítur vaskur, 50x16 cm meö blöndunartækjum og festingum á kr. 1000. Uppl. í síma 688492. Óþekktur myndlistarmaður með meistaraverk undir höndum óskar eftir samstarfi við eiganda góðs sýningasalar. Uppl. hjá Guð- ríði (Gurrý) í síma 44284. Til sölu 4 nagladekk á felgum fyrir Lödu Sport. Uppl. í síma 32384. Til sölu barnavagn á 3000 kr. og barnastóll á 1000 kr. Uppl. í síma 25119, Bryn- hildur. Óska eftir notaðri rafmagnsritvél, ekki mjög dýrri. Uppl. í síma 24876 og 35694 eftirkl. 16. Til sölu 200 lítra hitakútur. Selst ódýrt. Uppl. í síma 667098 á kvöldin. Trabant til sölu Árg. '82, gulbrúnn, 3ja dyra, vel með farinn. Ekinn 40.000 km, vetrardekk. Uppl. í síma 93-2902. Barnapössun Vantar pössun fyrir 7 mánaða, yndislega stelpu í vesturbæ, hluta úr degi í 3 vikur um það bil. Uppl. í síma 28257. Sófasett Bráðvantar gott sófasett eða sófa. Hringið í síma 28257. Skíði óskast fyrir 10 ára telpu. Einnig skíðaskór nr. 35. Sími 50579 eftir kl. 18. Svart hvítt sjónvarp til sölu Sími 75868 eftir kl. 19. Til sölu Skoda 120 L árg. 1978 Kom á götuna 1979. Fagurgrænn. Falur á sanngjörnu staðgreiðslu- verði. Sími 613635. Eins manns svefnsófi vel með farinn til sölu. Rúmfata- geymsla í baki. Litur rauðleitur. Verð: 1.700 kr. Sími 50066. Ertu að taka til? Ef þú vilt losna við eða ert að því kominn að henda sófasetti þá get ég svo vel þegið það. Ég er öryrki og mig vantar eitthvað í stofuna hjá mér til að sitja á. Vinsamlegast hringið í síma 689412. Bamavagn til sölu Einnig bílútvarp með einum hátal- ara. Uppl. í síma 687162 fyrir há- degi og eftir kl. 17. Kettlingur fæst gefins Uppl. í síma 686821. Til sölu leður kvensmókingjakki, svartur. Uppl. í síma 689232 eftir kl. 18. Til sölu tvískiptur kæliskápur, eldhúsborð og 4 stólar, rúm og 2 stakir járnstól- ar frá Ikea. Á sama stað óskast ko- jur til kaups. Uppl. í síma 72590 eftir kl. 18. Saumanámskeið Námskeið í fatasaumi fyrir alla hefst fljótlega ef næg þátttaka fæst. Uppl. í símum 15511 og 83069. Flygill af eldri gerð til sölu. Hagstætt verð ef samið er strax. Uppl. í síma 74147. Viðgerðir Tek að mér ýmsar viðgerðir utan húss sem innan. Uppl. gefur Helgi í síma 38229. Geymið auglýsing- una. Au-pair Reglusöm stúlka óskast á heimili í S-Þýskalandi strax. Þarf að hafa bílpróf. Nánari upplýsingar hjá Hemblen í síma- 90 49 8022 74757 eftir hádegi á daginn. Til sölu gömul Husquarna eldavél. Verö ca. 2500. Uppl. Ísima41785eftirkl. 18. Óska eftir dýnu í einstaklingsrúm, borði ca. 70x100 eða stærra og frekar lágum bókahillum og breiðum. Má vera gamalt. Uppl. í síma 17087. Reiðhjól - barnastóll Mig vantar ca 28” reiðhjól og barn- astól á reiðhjól. Vil helst fá hjól með að minnsta kosti 3 gírum og í góðu lagi. Hringið í síma 681310 eða 681331 og biðjið um Olgu. Þvottavél Mig bráðvantar ódýra en starfhæfa þvottavél. Má vera gömul en verður að vera sjálfvirk og ódýr. Hringið í síma 681310 á daginn (Olga) og ( síma 16472 á kvöldin (Kristbjörg).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.