Þjóðviljinn - 17.01.1987, Blaðsíða 1
Norðanmenn
Laugardagur 17 janúar 1987 12. tölublað 52. árgangur
Geypileg reiði um alltNorðurland.
Engin kennsla ígrunnskólum ígœr.
Sverrir Pálsson skólastjóri: Efráðherra
lœtur ekki undan verða skólarnir
óstarfhœfir. Vinnum ekki undir
ógnarstjórn, hótunum og skapofsa
Geysihörð viðbrögð hafa verið
vegna uppsagnarinnar og vinnu-
brögð Sverris Hermannssonar
harðlega fordæmd á þeim fjöl-
mörgu fundum sem haldnir voru í
gær.
Mikill órói er meðal Sjálfstæð-
ismanna á Norðurlandi vegna
framgöngu menntamálaráðherra
í þessu máli og hafa fjölmargir
forystumanna flokksins þar lýst
undrun á vinnubrögðum ráð-
herra. Sverrir Pálsson skólastjóri
sagði í gær að hver og einn gæti
allt eins átt von á því að verða
næstur ef ekki yrði brugðist hart
við. „Erum við tilbúin að vinna
undir ógnarstjórn með hótunum
og skapofsa eða viljum við aðra
starfshætti og starfsaðstöðu,“
sagði Sverrir Pálsson.
Það er almenn skoðun skóla-
stjórnarmanna í kjördæminu að
leggi menntamálaráðherra ekki
hið fyrsta fram einhver haldbær
rök fyrir brottvísun Sturlu úr
starfi, verði hart látið mæta
hörðu og alls óvíst hvað þá verður
um skólastarf í fjórðungnum
fram að næstu kosningum.
-tg./-y/Akureyri
Ef uppsagnarbréfið verður ekki
afturkallað, verður látið
sverfa til stáls og þá mun annar
aðilinn fara með fullan sigur af
hólmi. Ef Sverrir lætur ekki
undan verður hann að fara frá
sjálfur, að öðrum kosti verða
skólar á þessu svæði óstarfhæfír,
sagði Sverrir Pálsson skólastjóri
Gagnfræðaskóla Akureyrar m.a.
á fundi kennara og stjórnenda
skólans í gær. Kennsla féll niður í
öllum grunnskólum á Norður-
landi eystra í gær þar sem skóla-
menn réðu ráðum sínum vegna
brottvikningar menntamálaráð-
herra á Sturlu Kristjánssyni
fræðslustjóra.
Noregur
Vínflöskur
springa
Það er svo kalt í Noregi að
brennivín frýs og sprengir utanaf
sér flöskurnar. Tíu þúsund flösk-
ur af 40% víni sprungu í lestar:
vagni í kuldanum í Osló í gær. í
Verdens Gang er sögð af því sér-
stök frétt að á íslandi sé hlýjast í
Evrópu.
Baldur Pálsson nemandi í
Lillehammer sagði Þjóðviljanum
í gær að menn virtust vera farnir
að venja sig við kuldann. Þó eru
um tvö þúsund manns frá vinnu í
fylkjunum umhverfis, Opland og
Hedmark. Ekki er von hlýrra
veðurs á næstunni, og eru menn
uggandi um eina helstu hátíð í
Noregi, meistaramótið á skíðum
um helgina. Vafi leikur á að hægt
verði að keppa í skíðagöngu, þar
sem leyfilegur hámarkskuldi í 15
kílómetra göngu er mínus 18 og í
30 kílómetrum mínus 15 gráður.
Er hart sorfið að frændum vorum
og helstu áhugaefnum þeirra
þessa dagana.
ÞessimyndafmenntamálaráðherraskreytirnúgangaFræðsluskrifstofunnará Akureyri. Sendingin kom frá skóla
mönnum úr næstu nágrannasveit. Mynd -Yk/Akureyri.
Sjómenn
Samþykktu naumlega
Sjómannasambandið samþykkir með 685 atkvœðum gegn 480.
Samningarfelldir hjá Sjómannafélagi ísafjarðar. Yfirgnæfandi
meirihluti yfirmanna samþykkur
Ljóst er að sjómenn eru ekki of
hressir með nýgerða kjara-
samninga þvf þcir voru sam-
þykktir með frekar naumum
meirihluta í allsherjaratkvæða-
greiðslu sjómannasambandsins.
Undirmenn á ísafirði felldu
samningana og hefur verið boð-
aður fundur f Sjómannafélagi
ísafjarðar í dag. Annars staðar á
Vestfjörðum voru samningarnir
samþykktir naumlega.
Alls greiddu 685 sjómenn
samningnum atkvæði sitt í alls-
her j aratkvæðagreiðslu
sjómannasambandsins en 480
voru á móti. Auðir seðlar og óg-
ildir voru 14. Á ísafirði felldu
undirmenn samningana með 28
atkvæðum gegn 22. Samningarn-
ir voru hins vegar samþykktir á
Flateyri. Yfirmenn í Bylgjunni á
Vestfjörðum samþykktu einnig,
með 52 atkvæðum gegn 12.
Yfirmenn á farskipum sam-
þykktu samningana einnig í gær.
453 greiddu atkvæði með, en
1259 voru á móti. 11 seðlar voru
auðir.
-Hér voru menn frekar nei-
kvæðir og þá einkum vegna á-
kvarðana um að binda saman
olíuverð og kostaðarhlutdeild
sagði Guðjón Jónsson formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar í
gær. Þórður Jóhannesson hjá
Skipstjóra- og stýrimannafé-
laginu Sindra á Austfjörðum tók í
sama streng. Önundur Haralds-
son hjá sjómanna og vélstjórafé-
lagi Grindavíkur sagði að mesta
óánægjan hefði komið fram hjá
rækjusjómönnum, samningarnir
hefðu gefið þeim lítið í sinn hlut.
Guðlaugur Þorvaldsson sagð-
ist í gærkvöldi eiga von á nætur-
fundi með samningsaðilum í
deilu undirmanna á farskipum.
Undirmenn gera kröfu um 80%
álag á yfirvinnu í stað 60% auk
þess sem þeir krefjast 35 þúsund
króna lágmarkslauna.
Þá hefst í dag hjá sáttasemjara
fundur með Verkakvennafé-
laginu Snót í Vestmannaeyjum.
->g
ABR
Listinn
ákveðinn
í dag
Á félagsfundi Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík á Hótel Sögu í
dag, verður gengið frá ákvörðun
um framboðslista flokksins við
komandi alþingiskosningar.
- Við vonumst til að sjá sem
allra flesta stuðningsmenn
flokksins á þessum fundi þar sem
við formlega hefjum okkar kosn-
ingabaráttu, sagði Guðni Jó-
hannesson formaður ABR í sam-
tali í gær.
Fundurinn á Sögu verður í
Súlnasal og hefst kl. 14.00. Þar
mun Hrafn Magnússon formaður
kjömefndar kynna tillögur
nefndarinnar og meðal annarra
dagskráratriða má nefna upplest-
ur Guðmundar Ólafssonar á ljóð-
um Snorra Hjartarsonar.
Fundarstjóri verður Þráinn Bert-
elsson.
->g-
C|jpS)
Sjúkdómseinkenni
á samfélaginu
Sjá Innsýn bls. 5
Brottvísunin
verði
afturkölluð