Þjóðviljinn - 17.01.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333.
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiNN
Laugardaour 17. janúar 1987 12. tölublað 52. árgangur
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Veðrið
Hlýindunum
lokið í bili
Menn hafa verið að undrast að
undanförnu yfir miklum hlýind-
um hér á landi og fimbulkuldum í
Skandinavlu og á meginlandi
Evrópu. Þjóðviljinn hafði sam-
band við Pál Bergþórsson til að
leita skýringa á þessu.
Páll sagði að þetta væri ósköp
eðlilegt óeðli í veðrinu. Því yllu
kaldir loftstraumar frá Síberíu
sem bærust yfir meginland Evr-
ópu og þessu fylgdu hlýindi hjá
okkur, sem eðlilegt væri. Svipað
ástand var á veðri í febrúar 1956
til dæmis.
Hlýindakaflanum er þó að
öllum líkindum lokið í bili og
strax í dag megum við búast við
verulega kóinandi veðri og
jafnvel snjókomu. Hjörleifur
Jónsson hjá vegaeftirliti Vega-
gerðar ríkisins sagði að færð á
vegum væri óvenju góð miðað við
árstíma og flestir fjallvegir færir.
-sá.
Garðar Ingólfsson vagnstjóri hjá SVR heldur hér á strætisvagnakorti með sjö
„styrktarmiðum". Mynd E.ÓI
Strætó
Styrktarmiðar
tilsölu
Miði á litlu korti kostar28,57 krónuren
fargjald greitt með peningum kostar 28
krónur
Hver miði á strætisvagnakort-
um með sjö miðum hjá SVR
kostar nú 28 krónur og 57 aura
samkvæmt gjaldskrárákvörðun
4.janúar. Greiði strætisvagnafar-
þegar hins vegar fargjaldið með
peningum kostar farið 28 krónur.
Áður fyrr voru miðakortin af-
sláttarkort og voru miðar ódýrari
ef kort var keypt. Síðastliðið ár
hefur miði á litlu korti kostað
jafnmikið og fargjald greitt með
peningum.
„Ástæðan fyrir þessu er fyrst
og fremst sú að flýta sem mest
fyrir vagnstjórum" sagði Hörður
Gíslason skrifstofustjóri SVR í
samtali við blaðið.
„Vagnstjórarnir gefa ekki til
baka vegna þess hve mikinn tíma
það myndi taka og þess vegna var
ákveðið að láta verðið standa á
sléttu hundraði. Við bendum
fólki á að ef það kaupir stærri
kortin sem eru með 26 miðum þá
fær það verulegan afslátt og hver
miði á þeim kostar aðeins 20,40
krónur. Þessi kort fást á miða-
sölum SVR. -vd.
Brennuvargurinn
Enn ófundinn
Brennuvargur sá sem að und-
anförnu hefur gert usla hér í
borginni var enn ófundinn í gær-
kvöldi að sögn lögreglunnar í
Reykjavík og er rannsókn mála í
höndum Rannsóknarlögreglu
ríkisins. - sá.