Þjóðviljinn - 17.01.1987, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 17.01.1987, Blaðsíða 4
LEHDARI Eg um mig frá mér til mín . „Ég hef talaö alveg nógu skýrt í þessu máli. Ég get ekki haft mann í minni þjónustu, sem viröir aö vettugi fyrirmæli mín, sem eyðir tug- milljónum í heimildarleysi, sem ekki er hægt aö hafa stjórn á. Ég hef ekkert viö slíkan mann aö gera og því verður ekki breytt." (Leturbr. Þjóöv.) Hver er þaö sem talar af þvílíku kennivaldi viö blaðamann Þjóöviljans? Jú, þaö er aö sjálfsögðu enginn annar en menntamálaráðherrann í ríkisstjórn Steingríms^ Hermannssonar og heitir Sverrir Hermanns- son. Tilvitnunin í orð Sverris Hermannssonar er úr frétt, sem birtist í gær í Þjóðviljanum. Þar var Sverrir inntur eftir því, hvenær hann hygðist svara spurningum fræösluráðs og skólamanna á Noröurlandi eystra um ástæöur þeirrar ák- vörðunar hans aö reka Sturlu Kristjánsson úr starfi námsstjóra. Þeirri spurningu svaraöi menntamálaráö- herrann á sinn dæmigerða máta: „Ég ætla norður þegar ég hef tímatil þess. Ég held þaö sé betra að bíöa þar til öldurnar lægir og tek öllu rólega. Ég lít á þessar orösendingar þeirra, þegar ég kem í bæinn aftur eftir helgi. Ég átti rétt eins von á þessum harkalegu viö- brögöum. Þetta eru skapheitir menn.“ Þaö er sjálfsagt rétt hjá Sverri, aö betra er fyrir hann að fresta norðurferð sinni þar til öldurnar tekur aö lægja, en sú biö getur orðiö alllöng, því að ekki er útlit fyrir aö greiðist úr þeim óveðurs- skýjum sem hrannast hafa upp yfir mennta- málaráöuneytinu í embættistíð Sverris, fyrr en þar hafa orðið húsbóndaskipti. Það tiltæki Sverris Hermannssonar aö reka Sturlu Kristjánsson úr starfi fræðslustjóra á Norðurlandi eystra hefur valdið harkalegum viöbrögðum. Hart mætir hörðu. Skólamenn á Norðurlandi eystra hafa fellt niöur kennslu í skólum. Steingrímur J. Sigfússon alþingismaöur hef- ur farið fram á að fjallað veröi um málið utan dagskrár þegar Alþingi veröur kallað saman, og ennfremur hefur Steingrímur boðaö, að hann muni í framhaldi af því leggja fram vantrauststil- lögu á Sverri Hermannsson eða ríkisstjórnina í heild, eða grípa til annarra ráðstafana vegna þessa máls. Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður segir: „í raun og veru snýst þetta mál ekki fyrst og fremst um Sturlu Kristjánsson, hvort hann er góður eða vondur. Þetta er skólapólitískt og byggðapólitískt mál. Sverrir Hermannsson er þarna aðeins að hengja Sturlu fyrir baráttu fræðsluyfirvalda í kjördæminu gegn skefja- lausum niðurskurði á framlögum til skólanna þar nyrðra, og í þessu skyni misbeitir Sverrir valdi sínu herfilega og það ekki í fyrsta sinn.“ Þetta er kjarni málsins. Og því er við að bæta, að fleiri fræðslustjórar og starfsmenn fræðsluskrifstofa úti um landið hafa orðið að þola ásakanir og dylgjur frá Sverri Hermannssyni menntamálaráðherra, og af því tilefni lagði Hjörleifur Guttormsson alþingis- maður fram fyrirspurn til Sverris Hermanns- sonar í október í fyrra - sem menntamálaráð- herrann hefur ekki komist til að svara. Það er rétt hjá Steingrími J. Sigfússyni, að þetta mál er „skólapólitískt og byggðapólitískt". Flokkspólitískt er [Dað ekki, enda eru þeir Sturla og Sverrir báðir sjálfstæðismenn. Sjálfstæðismenn gera sér vel Ijóst að emb- ættisrekstur Sverris Hermannssonar er flokkn- um til lítils framdráttar, enda bendir Jónas Krist- jánsson ritstjóri DV á það í leiðara síðastliðinn laugardag áður en Sturlumálið kom upp: „Ef Sjálfstæðisflokkurinn á aðild að næstu ríkisstjórn, væri heppilegt, að hann endur- skipaði ekki ráðherra, sem hefur annan eins flumbrugangsferil að baki.“ Þetta eru holl ráð, en það er varlegt fyrir landsmenn að treysta því, að eftir þeim verði farið. Eina ráðið til að forðast ráðherra, sem beita valdi sínu á borð við Sverri Hermannsson, er að kjósa gegn íhaldinu. Og til þess gefst kærkomið tækifæri fyrr en varir. - Þráinn • ■ I L • • Lv. ■ ■ I 1 ■ óso p 1 1 1 ■ ■fr- J Mynd:E. Ól. Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðinsson. Fréttaatjóri: Lúðvík Geirsson. Biaðamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, MörðurÁmason, ÓlafurGíslason, SiaurðurÁ. Friðþjófsson, Valþór Hlöðversson, Viltwrg Davíðsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrita- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Lftlitateiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Framkvæmdaatjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrlfstofuatjórl: Jóhannes Harðarson. Skrifatofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Auglýaingaatjóri: Sigríður HannaSigurbjömsdóttir. Auglýaingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir. Símvarala: Katrin Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð. Bdstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir. Afgreiðalustjóri:HörðurOddfriðarson. Afgrelðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristfn Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjömsson. Utkeyrsla, afgreiðsla, rltstjóm: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Siðumúla 6, sfmar 681331 og 681310. Umbrotogsetning: Prentsmiðja Þjóðviljanshf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 50 kr. Helgarblöð: 55 kr. Áskriftarverð á mánuðl: 500 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. janúar 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.