Þjóðviljinn - 17.01.1987, Side 3
Banaslys í
Stardalshnúki
Það hörmulega slys varð í
fyrrakvöld að 17 ára gamall pilt-
ur úr Reykjavík lést af völdum
áverka sem hann hlaut er hann
hrapaði í Stardalshnúki í Mos-
fellssveit.
Pilturinn, sem var vanur fjall-
göngumaður var ásamt 15 ára fé-
laga sínum við klifuræfingar í
þverhníptum kletti efst í fellinu
þegar öryggisfesting eða „hneta"
í sigbúnaðinum gaf sig. Hann féll
15 metra niður í stórgrýtta urð.
Félaga hans tókst án sigbúnaðar-
ins að fikra sig upp á 40 metra háa
brúnina og gera viðvart um slysið
á bænum Stardal. Björgunar-
sveitarmenn úr Kyndli, lögregla
og læknir komu þá fljótlega á
slysstað og var þyrla Landheigis-
gæslunnar fengin til að flytja pilt-
inn á Borgarspítalanum. Hann
reyndist látinn þegar þangað kom
um klukkan 21, en talið er að
slysið hafi orðið milli klukkan 4
og 5.
Farmenn
Enn í hnút
Síðdegis í gær hafði ekkert
miðað í samkomulagsátt hjá
undirmönnum á kaupskipum og
skipafélaganna og sagði Birgir
Björgvinsson hjá Sjómannafélagi
Reykjavíkur að staðan væri nán-
ast sú sama og í upphafi við-
ræðna.
Aðspurður um það hvort far-
menn óttuðust lagasetningu að
hálfu ríkisstjórnarinnar sagði
Birgir að menn ættu ekki von á
því strax. Frystihúsin væru enn
tóm og þrýstingur því lítill og lítið
væri farið að bera á vöruskorti úti
á landsbyggðinni, enda flestir
vegir færir bflum. „En grípi lög-
gjafinn til þess ráðs enn á ný höf-
um við vopn til þess að mæta því.
Það verður ekki geðslegt að sigla
skipunum ef svo verður," sagði
Birgir og vildi ekkert frekar tjá
sig um vopnin.
- K.Ól.
FRÉTTIR
Eyðslusemi
Hver á að reka Sveiri?
Fékk sjálfur 5 aukafjárveitingar að upphœð 9,5
miljónir til reksturs aðalskrifstofu
menntamálaráðuneytisins. Fjárveiting áfjárlögum
hœkkar um 44% milli áranna 1986 og 1987
Ein af hörðustu ásökunum
Sverris Hermannssonar
menntamálaráðherra í garð
Sturlu Kristjánssonar er sú að
hann hafi farið fram úr fjárlaga-
ramma um 11 miljónir í starfi
sínu sem fræðslustjóri Norður-
lands eystra. Heildarfjárveiting
til fræðsluumdæmisins fyrir síð-
asta ár var um 250 miljónir.
Það sem fræðslustjóri fer um-
fram fjárlög er því rúm 4%.
Menntamálaráðherra fór hins
vegar sjálfur 17,45% umfram
fjárlög því að á síðasta ári var
fjárveiting til aðalskrifstofu
menntamálaráðuneytisins 54.728
miljónir en til viðbótar voru
veittar fimm aukafjárveitingar á
árinu til reksturs aðalskrifsto-
funnar að upphæð samtals 9.550
miljónir króna.
Samtals var því eytt 64.278
miljónum í rekstur aðalskrifstofu
ráðuneytisins. Eitthvað virðist þó
ráðuneytið ætla að auka umsvif
sín á þessu ári því að samkvæmt
nýsamþykktum fjárlögum er
áætlað að veita 79 miljónum í
rekstur aðalskrifstofunnar. Þetta
er 44,4% aukning á fjárlögum á
milli ára. -vd.
Ríkisútvarpið
Framb'ð Rásar 2
/ r
oraoin
Mú fer senn að líða að því að
Ríkisútvarpið rífi sig upp frá
sínum gamla stað við Skúlagöt-
una og fiytji með allt sitt hafurt-
ask upp í nýja útvarpshúsið við
Efstaleiti.
Formaður nýja útvarpshúss-
ins, Hörður Vilhjálmsson sagði
að byrjað yrði að flytja strax í
næsta mánuði. Ekki sagði Hörð-
ur að flutningarnir myndu trufla
útsendingar neitt, þar sem þess
yrði gætt að nægar hljóðstofur
yrðu tiltækar. Rás 2 er þegar í
nýja húsinu og yrði tæknibúnað-
ur hennar auðvitað tiltækur
gamla Gufuradíóinu.
Sjónvarpið flytur hins vegar
ekki upp í Efstaleiti um leið og
útvarpið, þar sem ekki er lokið að
innrétta það pláss sem því er ætl-
að, vegna fjárskorts. Að ljúkaþví
verki tæki 18 mánuði, því væri
ólíklegt að sjónvarpið kæmist á
sinn framtíðarstað fyrr en árið
1989.
Aðspurður um málefni Rásar 2
sagði Hörður að útvarpsráð hefði
skipað nefnd þriggja manna til að
gera úttekt og koma með tillögur
um framtíð rásarinnar. Við stofn-
un hennar hefði verið litið svo á,
að um reynslutíma væri að ræða
og nú væri sá tími liðinn. Hefði
starfsemi rásarinnar hingað til
hvflt að miklu leyti á lausráðnum
þáttagerðarmönnum og líklegt
væri að eftir að öll starfsemi út-
varpsins væri komin á einn stað,
myndu fastráðnir starfsmenn
Ríkisútvarpsins sjá um þáttagerð
Rásar 2 að mestu leyti. - sá.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ í REYKJAVÍK
FÉLAGSFUNDUR
á HÓTELSÖGU
í dag laugardaginn 17. janúar kl. 14:00
Fundarefni: Framboöslisti vegna komandi alþingiskosninga
Fundarstjóri: Þráinn Bertelsson
Tillaga kjörnefndar: Hrafn Magnússon
formaður kjörnefndar
Ávörp frambjóöenda
Snorri
Guömundur Ólafsson
leikari
les Ijóð
eftir
Snorra Hjartarson
skáld
Þráinn
Hrafn
Guðmundur
FÉLAGAR
fjölmennum og sýnum samstööu í upphafi kosningabaráttu