Þjóðviljinn - 20.01.1987, Side 1
Þriðjudagur 20. janúar 1987 14. tölublað 52. árgangur
Forsœtisráðherra
Tek ekki
þáttí
Það var kraftur í frambjóðendum G-listans i Reykjavík þegar þeir sungu Inter- stefánsson, Tryggva Emilsson sem skipar heiðurssæti listans, Olgu Guðrúnu
nationalinn hástöfum á Hótel Sögu á laugardaginn. Á myndinni mám.a. sjá Pál Árnadóttur, Álfheiði Ingadóttur, Sif Ragnhildardóttur og Ásdísi Þórhallsdóttur.
Bergþórsson, Auði Sveinsdóttur, Guðmund Þ. Jónsson, Svövu Jakobsdóttur, Mynd Kristján.
Guðrúnu Helgadóttur, Þorstein Vilhjálmsson, Sigurð Svavarsson, Ásmund
G-listinn í Reykjavík
Verzlunarbankinn
Leist ekki á blikuna
Verzlunarbankinn dró sig út úr viðrœðum um sameiningu við
Utvegsbanka og Iðnaðarbanka eftir að hafa séð stöðuna.
Geir Hallgrímsson: Mikil vonbrigði
Okkur leist ekkert á þetta, mál-
ið er stærra og erfiðara en við
vissum af í byrjun, sagði Höskuld-
ur Ólafsson bankastjóri Verzlun-
arbankans í samtali við Þjóðvilj-
ann I gær, þegar hann var spurð-
ur að því hvers vegna bankaráðið
hefði ákveðið einróma að draga
sig út úr viðræðum um samein-
ingu Verzlunar-og Iðnaðarbanka
við Útvegsbankann.
„Við vissum þetta ekki fyrr en
við sáum gögn málsins, það er svo
viðamikið að það er ekki á færi
lítils einkabanka einsog okkar að
taka þátt í þessu,“ sagði Höskuld-
ur.
„Þetta eru mér mikil von-
brigði,“ sagði Geir Hallgrímsson
bankastjóri Seðlabankans í sam-
tali við blaðið. „Við teljum að
þarna hafi verið vænlegur kostur,
en auðvitað loka menn ekki
augum fyrir því að Útvegsbank-
inn á í vanda og fram hefur komið
að útlánadreifing hans er önnur
en einkabankanna og því ef til vill
þyngri í vöfum.
Sameining Útvegsbanka og
Búnaðarbanka er því næstbesti
kosturinn en ég hefði viljað að
við hefðum tíma til að ræða betur
við Iðnaðarbankann sem hefur
sagt að hann væri reiðubúinn að
kanna nánar aðra kosti,“ sagði
Geir.
„Það er alveg ljóst að það hefði
átt að fara að okkar tillögum
strax um sameiningu Útvegs-og
Búnaðarbanka,“ sagði
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra í samtali við Þjóð-
viljann í gær. „Við vildum þó að
bankamálaráðherra kannaði
þessa leið fyrst."
„Við höfum Iýst okkur reiðu-
búna til að ræða aðra kosti en
framtíðin verður að skera úr um
hvort eitthvað verður af slíku,"
sagði Valur Valsson bankastjóri
Iðnaðarbankans í samtali við
blaðið í gær. „Það hefði verið
æskilegast núna að okkar mati að
við hefðum ásamt Verzl-
unarbankanum gert sameiginlegt
tilboð í Útvegsbankann og með
þeim hætti látið á það reyna hvort
eigandi Útvegsbankans er reiðu-
búinn til að Ieysa vanda hans
samkvæmt þeim skilyrðum sem
við myndum setja. Það kom ekki
til að þetta yrði gert þar sem
Verzlunarbankinn dró sig út úr
viðræðunum."
í tilkynningu frá Seðlabankan-
um segir að vegna hinnar slæmu
eiginfjárstöðu Ötvegsbankans sé
„ekki unnt að sameina hann Bún-
aðarbankanum, nema um leið
verði tryggt verulegt nýtt eigin-
fjárframlag ríkisins, sem varla
getur orðið lægra en um 900
m.kr. Til að opna leið til að
endurheimta þetta fé er sú lausn
helzt fyrir hendi að gera hinn nýja
sameinaða banka að hlutafé-
lagi.“
-vd.
Stórfelld
aukning
sjálfsvíga
Sjálfsvíg á Islandi voru tölulega
fleiri árin 1983 og 1984 en þau
hafa nokkru sinni verið áður.
Fyrra árið skráði hagstofan 40
sjálfsvíg og 44 seinna árið. Leita
verður allt aftur til ársins 1966 til
þess að fá sambærilegan fjölda,
en þá voru skráð 37 sjálfsvíg.
Fjöldi sjálfsvíga á hverju ári
hefur verið mjög sveiflukenndur.
Árið 1976 voru skráð 19 sjálfsvíg
og fram til ársins 1982 voru þau á
bilinu 16-30, en árið 1983 fjölgaði
þeim upp í 40. Tölur fyrir tvö síð-
ast liðin ár liggja ekki fyrir. -gg
Sjá síðu 8 og 13
skítkasti
Ungir menn eru fljótir að
hlaupa upp, það er dálítið
seint að taka stjórnarþátttöku til
endurskoðunar núna þegar kjör-
tímabilið er að verða búið, sagði
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra í gær, þegar hann
var spurður álits á ályktun stjórn-
ar Sambands ungra framsóknar-
manna um að Framsóknarflokk-
urinn eigi að taka áframhaldandi
stjórnarþátttöku til alvarlegrar
endurskoðunar.
Hvað varðaði hnútukast und-
anfarinna vikna milli stjórnar-
flokkanna sagði hann: „Það
lendir mest á þeim. Ég læt dreng-
skap ráða svo lengi sem ég sit við
stjórnvölinn. Ég tek ekki þátt í
skítkasti hvað svo sem aðrir
gera.“
SUF lýsir yfir vanþóknun sinni
á ummælum Þorsteins Pálssonar
sem birtust í DV á laugardag og
segist skilja þau sem vantraust á
Framsóknarflokkinn. Jafnframt
lýsir félagið áhyggjum sínum yfir
því að „samskiptaörðugleikar og
valdabarátta innan Sjálfstæðis-
flokksins er farin að draga veru-
lega úr starfsgetu ríkisstjórnar-
innar.“
-vd.
Sameiningarafl vinstri manna
Alþýðubandalagið íReykjavík kynnirframboðslistann á fjölmennum fundi
Glistinn í Reykjavík, fram-
m boðslisti Alþýðubandalags-
ins fyrir næstu alþingiskosningar
var einróma samþykktur á fjöl-
mcnnum fundi Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík, sem haldinn var á
Hótel Sögu á laugardaginn.
Tíu efstu sætin skipa: 1. Svavar
Gestsson, alþingismaður, for-
maður Alþýðubandalagsins, 2.
Guðrún Helgadóttir, alþingis-
maður og rithöfundur, 3. As-
mundur Stefánsson, forseti Al-
þýðusambands íslands, 4. Álf-
heiður Ingadóttur, blaðamaður,
5. Olga Guðrún Árnadóttir, rit-
höfundur, 6. Guðni Jóhannes-
son, verkfræðingur, 7. Ásdís Þór-
hallsdóttir, menntaskólanemi, 8.
Arnór Pétursson, skrifstofumað-
ur, 9. Hulda Ólafsdóttir, sjúkra-
liði, formaður Sjúkraliðafélags
íslands, 10. Auður Sveinsdóttir,
landslagsarkitekt.
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins þakkaði kjör-
nefnd störf hennar. Svavar þakk-
aði einnig Guðmundi J. Guð-
mundssyni fyrir störf hans í þágu
Alþýðubandalagsins, en fyrir síð-
ustu kosningar skipaði Guð-
mundur þriðja sæti G-listans.
Ólafur Ragnar Grímsson var í
fjórða sæti fyrir síðustu kosning-
ar, en er nú í öðru sæti á G-lista í
Reykjaneskjördæmi. Svavar
flutti honum þakkir og sendi fé-
lögunum í Reykjaneskjördæmi
baráttukveðjur.
Svavar þakkaði ennfremur
Einari Olgeirssyni, sem sex sinn-
um hefur skipað heiðursæti G-
listans, en óskaði nú eftir að ann-
ar skipaði það sæti: Tryggvi Em-
ilsson verkamaður og rithöfund-
ur, sem var hylltur með lófataki.
í ávarpi sínu sagði Svavar m.a.:
„Listinn er skipaður í samræmi
við þá stefnu flokks okkar á liðn-
um árum að kalla sem flesta til
verka. Listinn er skipaður í sam-
'ræmi við samfylkingar- og sam-
starfseðli Alþýðubandalagsins.
Listinn er yfirlýsing um að Al-
þýðubandalagið vill verða sam-
einingarafl allra íslenskra vinstri
manna og félagshyggjufólks."
-Þráinn
Sá bls. 6 og 7
og leiðara á bls. 4
Frœðslustjóramálið
Sækir Sturla einn um?
„Að sjálfsögðu sæki ég um
starfið,“ sagði Sturla Kristjáns-
son fyrrverandi fræðslustjóri
þegar hann var spurður hvort
hann hygðist sækja um starf
fræðslustjóra í Norðurlands um-
dæmi eystra sem nú hefur verið
auglýst laust til umsóknar.
Ekki er ólíklegt að Sturla verði
eini umsækjandinn því að sam-
kvæmt heimildum Þjóðviljans
munu stjórnir landsamtaka kenn-
ara og skóiastjórnenda sam-
þykkja að beina þeirri áskorun til
félagsmanna að sækja ekki um
starf fræðslustjóra í Norðurlands
umdæmi eystra.
Menntamálaráðherra skipar
fræðslustjóra að fenginni umsögn
fræðsluráðs og má telja það ör-
uggt að fræðsluráð mælir ein-
róma með Sturlu.
Það er því ljóst að það verður
ekki auðvelt fyrir Sverri Her-
mannsson menntamálaráðherra
að ráða fræðslustjóra í stað Sturlu
ef honum endist þá aldur í ráð-
herrastóli til að taka ákvörðun
um það.
-yk.