Þjóðviljinn - 20.01.1987, Síða 5

Þjóðviljinn - 20.01.1987, Síða 5
ÞJÓÐMÁL Tillaga Ragnars gerir ráð fyrir að Háskóli (slands starfræki fjarkennslu í gegnum útvarp, sjónvarp og með aðstoð myndbanda og tölvutækni. Alþingi r m Ragnar Arnalds: Æðri menntun verði gerð aðgengilegfyrir alla óháð aldri, búsetu eðafyrri menntun. Útvarpsráð og Bandalag kennarafélaga jákvœð í umsögnum sínum Spurt r a Alþingi... ... innlán og útlán Hjörleifur Guttormsson spyr viðskiptaráðherra um stöðu og þróun inn- og útlána í bönkum og sparisjóðum á tímabilinu 1976- 1986. Hjörleifur óskar eftir upp- lýsingum um hin ýmsu sparnað- arform í hverju kjördæmi varð- andi innlánin og sundurliðun eftir kjördæmum og lántakendum þ.e. einstaklingum, stofnunum og fyrirtækjum, varðandi útlánin. Þá spyr Hjörleifur um hver hafi verið heildarútlán í hverju kjör- dæmi á sama tímabili frá innlánsstofnunum, lífeyrissjóð- um og fjárfestingalánasjóðum. ... lög um lausafjárskap Svavar Gestsson spyr viðskipt- aráðherra hvenær endurskoðun laganna um lausafjárkaup Ijúki. .. OECD-skýrsluna Stefán Benediktsson spyr menntamálaráðherra hver séu áform hans um úrlausn þess vanda í íslenskum menntamálum sem lýst er í skýrslu menntamálanefndar OECD um könnun á íslenskri mennta- stefnu. Hann spyr hvað ráðu- neytið hefur gert í þessum efnum síðan skýrslan barst og hvort al- þingi verði gerð grein fyrir efni hennar. ... tekjur og útgjöld ríkissjóðs Steingrímur J. Sigfússon spyr fjármálaráðherra um tekjur og út- gjöld ríkisins eftir kjördæmum sl. fimm ár. Hann spyr m.a. hvernig tekjur ríkissjóðs skiptist eftir kjör- dæmum sundurliðað I hina ýmsu skatta og hvert hlutfall teknanna sé miðað við íbúafjölda viðkom- andi kjördæmis. Á sama hátt spyr Steingrímur hvernig útgjöld ríkisins sl. fimm ár hafi skipst og óskar sundurliðunar í því svari. ... hækkun á landbúnaðarvörum Svavar Gestsson spyr landbún- aðarráðherra hver hafi verið hækkun á landbúnaðarvörum til neytenda 1. desember sl. og hver hafi verið á sama tíma hækkunin til bænda á sauðfjáraf- urðum annars vegar og á mjólk- urafurðum hins vegar. Þá spyr hann hver hafi orðið hækkunin til milliliða og hver hafi verið áhrifin á fjárfestingarkostnaði Mjólkur- samsölunnar á verð mjólkurvara. ... aðstoð vegna veikra barna Kristín Halldórsdóttir spyr heilbrigðisráðherra hvernig hátt- að sé aðstoð við foreldra veikra barna af landsbyggðinni sem (Durfa að dveljast langdvölum fjarri heimilum sínum vegna læknismeðferðar. Hún spyr hvort foreldrarnir fái greiddan ferða- kostnað og þá hvernig þeim greiðslum sé háttað og hvort þeir hafi I eitthvert hús að venda með- an á meðferð stendur. ... landsframleiðslu eftir kjördæmum Hjörleifur Guttormsson hefur lagt fram fyrirspurn I fjórum liðum til forsætisráðherra um skiptingu aflaverðmætis, útflutningsverð- mæti sjávarafurða og landsfram- leiðslu eftir kjördæmum á tímabil- inu 1981 til 1986. Ragnar Arnalds hefur endur- flutt þingsályktunartillögu sína frá í fyrra um að við Háskóla Is- lands verði stofnuð fjarkennslu- deild, svokallaður „Opinn há- skóli“ sem geri nemendum kleift að stunda háskólanám í heima- húsum með aðstoð útvarps, sjón- varps, myndbanda og tölvu- tækni. Námið geti allir stundað sem vilja án tillits til búsetu eða fyrri menntunar. í greinargerð með tillögu sinni minnir Ragnar Arnalds m.a. á Opna háskólann í Bretlandi, sem hefur verið starfræktur í hálfan annan áratug með góðum árangri og segir hann rektor Háskóla Is- lands hafa sýnt þessu máli mikinn áhuga. Þá segir: „Hér er gerð tillaga um nýjan skóla, sem starfræktur verði á vegum Háskóla fslands. í skólan- um verði boðið upp á fjölbreytt háskólanám er menn geti stund- að um allt land heima hjá sér eða í smáhópum með aðstoð útvarps og sjónvarps, myndbanda og tölvutækni. Þannig verði æðri menntun gerð aðgengileg fyrir alla óháð aldri, búsetu eða fyrri menntun. Tilgangur þessarar starfsemi væri: - að veita áhugasömu fólki fjarri menntastöðvum aukin tæk- ifæri til ærði menntun, - að byggja upp áfangakerfi fyrir nemendur sem ekki uppfylla formlega menntunarskilyrði há- skóla, - að byggja upp samfellt menntakerfi til að þjálfa og endurmennta starfsfólk í atvinnulífi í nánu samstarfi við at- vinnuvegina, - að hafa forystu hér á landi um notkun fjölmiðla í fræðsluskyni og þróa kennsluaðferðir á þessu sviði með hliðsjón af íslenskum aðstæðum og fenginni reynslu hjá öðrum þjóðum." Tillaga Ragnars varð ekki út- rædd í fyrra en hlaut mjög góðar og jákvæðar undirtektir. Með til- lögunni nú eru birtar tvær um- sagnir sem félagsmálanefnd sam- einaðs þings bárust frá útvarps- ráði og frá Bandalagi kennarafé- laga. Utvarpsráð telur tillöguna at- hyglisverða og mælir með að kannaðir verði til hlítar mögu- leikar á framkvæmd hennar. Lögð er áhersla á að nýta út- varpstæknina sem best til að efla menntun og menningu með þjóð- inni og bendir útvarpsráð á 16. grein útvarpslaga sem er um að ríkisútvarpið skuli starfrækja fræðsluútvarp í samvinnu við fræðsluyfirvöld og að veita skuli til þess fé á fjárlögum. Útvarps- ráð bendir á að hugmyndin um opinn háskóla gæti tengst þessu ákvæði en telur miklu varða að Svavar Gestsson hefur lagt fram á alþingi þingsályktunartil- lögu um afnám skyldusparnaðar ungmenna. Skal leggja fram stjórnarfrumvarp um það á næsta þingi samkvæmt tillögunni og í greinargerð er bent á að von sé til þess að þá verði komin ný ríkisstjórn sem hafi næmari skiln- ing á högum ungs fólks og hús- næðiskerfinu en sú sem nú situr. í greinargerð er bent á að skyldusparnaður ungmenna hef- ur nú verið bundinn í lög í 30 ár en lögin voru sett á þeim forsendum að gera ungu fólki kleift að spara á góðum kjörum og betri en völ var á í bankakerfinu á sama tíma. Með lögunum átti einnig að opna fyrir sérstaka lánsmöguleika ungs fólks og tilgangur þeirra var auðvitað einnig að tryggja Bygg- ingarsjóði ríkisins aukið fjár- magn. í greinargerðinni kemur fram að á síðasta ári nam frádráttur frá skatti vegna skyldusparnaðar 342 miljónum króna og það voru tryggilega sé gengið frá fjárhags- legum forsendum áður en til framkvæmda kemur. Þá segir: „Opinn háskóli mundi opna mörgum nýjar leiðir til náms og ekki þarf að orðlengja tækifærin til endurmenntunar og fullorð- insfræðslu sem þar mundi bjóð- ast.“ Stjórn Bandalags kennarafélga fagnar tillögunni í sinni umsögn sem og öðrum tillögum sem lúta að aukinni almennri menntun í landinu og hvetur eindregið til þess að nútímatækni verði fullur 10.900 ungmenni sem greiddu skyldusparnað samkvæmt yfirliti ríkisskattstjóra frá í sumar. Svav- ar telur skyldusparnaðinn hafa byggst á skynsamlegri forsendu í upphafi og hann hafi átt rétt á sér. Nú hafi hins vegar allar forsendur breyst og því sé tillagan flutt. í greinargerðinni segir m.a.: „A fyrstu áratugum Bygging- arsjóðsins skilaði skyldusparnað- urinn talsverðu fjármagni í sjóð- inn, auk þess sem þetta sparifé unga fólksins var betur tryggt en ella var kostur á. Oft komu þó upp deilur um fyrirkomulag skyldusparnaðar og ávöxtun hans en reynt var að afnema gallana með nýjum lagaákvæðum. Lagaákvæði um skyldusparnað hafa svo fylgt lögum um Húsnæð- isstofnun ríkisins. Á síðustu árum hefur skyldusparnaðurinn verið neikvæður frá sjónarmiði Hús- næðisstofnunar ríkisins, þannig að útstreymi hefur verið meira en innstreymi skyldusparnaðar. Nú er einnig svo komið að skyldu- gaumur gefinn í því sambandi. Hins vegar minnir stjórnin á að mjög skortir á að kennarar lands- ins eigi þess kost að afla sér nauðsynlegrar menntunar í með- ferð sjónvarps-, útvarps- og tölvutækni til kennslu. Einnig ntinnir stjórnin á að uppbygging og þróun Fræðslumyndadeildar Námsgagnastofnunar hefur liðið fyrir mikinn fjárskort og að fræðslu- og menningarefni sem sýnt er í íslenska sjónvarpinu nýt- ist ekki skólum og almenningi sem skyldi. _ ÁI. sparnaðurinn er ekki ávaxtaður betur en kostur er á í almenna bankakerfinu en greiddir eru 3,5% vextir ofan á verðtryggingu skyldusparnaðarins. Er í flestum bönkum kostur á betri kjörum en um er að ræða á skyldusparnaðin- um. Auk þessa hefur það lengi verið svo um langt árabil að skyldusparnaðurinn hefur ekki veitt aðgang að lánum Húsnæðis- stofnunar umfram aðra. Rökin fyrir því að viðhalda skyldusparn- aði ungmenna eru því hrunin. En fleira kemur nú til. Sá skyldusparnaður, sem felst í því að 10% af launum renna til líf- eyrissjóðanna, er orðinn for- senda fyrir lánveitingum til hús- næðiskaupa. Þess vegna er nú fráleitt að viðhalda skyldusparn- aðinum með þeim hætti sem gert hefur verið. Ævinlega hefur verið brotalöm á innheimtu skyldusparnaðar og engin rök eru því lengur fyrir því að viðhalda þessum skyldusparn- aði að mati flutningsmanns.“_ Alþýðubandalagið Skylduspamaður afnuminn Rökinfyrirþvíað viðhalda skyldusparnaði ungmenna eru hrunin, segir Svavar Gestsson Þriðjudagur 20. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN — SfÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.