Þjóðviljinn - 20.01.1987, Síða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Kosningabaráttan
Ætla ekki
að verja
íhaldið
Kjartan Ragnarsson
leikari:
Hœgrisveiflan í
þjóðmálaumrœðunni
erhœttuleg
Mér finnst hægrisveiflan í
þjóðmálaumræðunni hættu-
leg, sagði Kjartan Ragnarsson
leikari, en hann hefur tekið sæti á
lista Alþýðubandalagsins í
Reykjavík fyrir komandi kosn-
ingar.
Kjartan sagðist hafa verið óá-
nægður með frammistöðu vinstri
flokkanna í borgarstjórn, sér-
staklega hvað varðaði menning-
armál og það væri ekkert laun-
ungarmái að hann hefði stutt Da-
víð Oddsson fyrir síðustu borg-
arstjórnarkosningar.
„Ég vona að þessi kosninga-
barátta þurfi ekki að fara í það að
ég þurfi að verja íhaldið og ég get
ekki séð að nýtilkominn upp-
gangur Alþýðuflokksins hafi
neitt stöðvað uppivöðslu hægri
aflanna. Þeirra öflugasti and-
stæðingur hefur verið og er Al-
þýðubandalagið“. -sá.
Gausdal
Jóhann
annar
Kemst sennilega beint
á millisvœðamót
Jóhann Hjartarson varð í öðru
sæti á svæðismótinu í Gausdal
í Noregi, og kemst að öllum lík-
indum beint á millisvæðamót án
þess að þurfa að standa í einvígj-
um þarsem reglum um þátttöku
úr Norðurlandamótinu á að
breyta á næstunni. Jón L. varð
íjórði, Svíinn Ernst efstur.
í næstsíðustu umferð á laugar-
dag tapaði Jóhann fyrir Hellers,
Jón L. vann 0gaard, Guðmund-
ur vann Hansen og Sævar gerði
jafntefli við Hóy. 19. og síðustu
umferð vann Jóhann Guðmund,
Jón L. vann Agdestein, Sævar
gerði jafntefli við Kristiansen.
Röð efstu manna varð þessi: 1.
Ernst (S) 6V2 v., 2.-4. Jóhann,
Hellers, (S), Jón L. 6 v., 6-9.
Agdestein (N), Hector (S),
Mortensen (D), 0gaard (N) 5. v.
Guðmundur fékk 4 vinninga, Sæ-
var 3.
Jóhann lenti í öðru og Jón L. í
fjórða með útreikningi á vinning-
um þeirra sem þeir og Hellers
kepptu við á mótinu. Nokkrar
líkur eru á að Hellers komist
einnig áfram á millisvæðamót.
-in
þJÚOVIUIN
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Þriðjudagur 20. janúar 1987 14. tölublað 52. örgangur
NÝIAR REGUIR
IIMIDGJAUMGRBDSUIR
Áfangahækkun iðgjalda til lífeyrissjóða SAL.
Samkvæmt kjarasamningi ASÍ og VSI frá 26. febrúar 1986 skulu iðgjöld til lífeyrissjóða
aukast í áföngum á næstu 3 árum, þar til 1. janúar 1990 að starfsmenn greiða 4% af
öllum launum til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjalda-
skyldra launa telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus. Sérstakar reglur gilda þó
um iðgjaldagreiðslur sjómanna.
Umsamið hlutfall iðgjalda af öllum Eaunum er sem hér segir:
Árin 1987-1989:
a) Starfsmenn: 4% iðgjald skal greiða af öllum tekjum starfsmanna á mánuði
hverjum, hverju nafni sem nefnast, þó skal ekki greiða
4% iðgjald af hærri fjárhæð, en sem svarar til iðgjalds
fyrir 1731/3 klst. miðað við tímakaup hlutaðeigandi starfs-
manns í dagvinnu, að viðbættu orlofi.
Atvinnurekendur: 6% iðgjald af sömu fjárhæð.
b) Ef launatekjur eru hærri, en sem nemur tekjum fyrir 1731/3 klst. að viðbættu orlofi,
sbr. a-lið, skal greiða til viðbótar sem hér segir:
Árið 1987
Starfsmenn: 1 % iðgjald af þeim hluta tekna, sem ekki var tekið iðgjald af,
samkvæmt a-lið.
Atvinnurekendur: 1.5% iðgjald af sömu fjárhæð.
c) Hinn 1. janúar 1988 aukast framangreindar greiðslur, samkvæmt b-lið þannig, að
starfsmenn greiða 2% og atvinnurekendur 3% og frá 1. janúar 1989 greiða starfs-
menn 3% og atvinnurekendur 4.5%.
Frá 1. janúar 1990 greiða starfsmenn 4% iðgjald af öllum launum og atvinnurek-
endur með sama hætti 6%.
Nauðsynlegt er að starfsmenn og atvinnurekendur geri sér grein fyrir þessum nýju
reglum um iðgjaldagreiðslur af öllum launum til lífeyrissjóða í áföngum. Munið að nýju
reglurnar tóku gildi 1. janúar s.l.!
SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA
Samræmd lífeyrisheild
ASB og BSFÍ •
byggingamanna •
Dagsbrúnar og Framsóknar •
Félags garðyrkjumanna •
framreiðslumanna •
málm- og skipasmiða •
matreiðslumanna •
rafiðnaðarmanna •
Sóknar
verksmiðjufólks •
Vesturlands •
Bolungarvíkur •
Vestfirðinga •
verkamanna, Hvammstanga •
stéttarfélaga í Skagafirði •
Iðju á Akureyri •
Sameining, Akureyri •
Lsj. trésmiða á Akureyri
Lsj. Björg, Húsavík
Lsj. Austurlands
Lsj. Vestmanneyinga
Lsj. Rangæinga
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurnesjum
Lsj. verkafólks í Grindavík
Lsj. Hlífar og Framtíðarinnar
AUGLVSINGASTOFA ES