Þjóðviljinn - 27.01.1987, Blaðsíða 11
Afvopnunarmál
Yfirlýsing Perez de Cuellar
Yfirlýsing frá Perez de Cuellar
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna vegna veitingar Pomer-
ance afvopnunarverðlaunanna
rir árið 1986 en þau voru veitt
lafi Ragnari Grímssyni vegna
„framúrskarandi framlags til bar-
áttunnar fyrir afvopnun“.
„Það er mér sérstök ánægja að
senda Dr. Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Parliamentar-
ians Global Action (Þingmanna-
samtök um alþjóðlegar aðgerðir)
innilegar hamingjuóskir og
kveðjur vegna Pomerance af-
vopnunarverðlaunanna fyrir árið
1986 en þau eru veitt fyrir fram-
úrskarandi framlag til baráttunn-
ar fyrir afvopnun.
Perez de Cuellar.
Með því að sýna Dr. Grímssyni
þennan heiður er verið að beina
verðskuldaðri athygli að störfum
hans í þágu viðleitni til að efla
alþjóðlegt öryggi og frið og fé-
lagslegar og efnahagslegar fram-
farir þjóða heims. Verðlaunin
eru einnig viðurkenning fyrir
þann árangur sem samtökin Parl-
iamentarians Global Action hafa
náð á undanförnum árum í að
glæða umræður um herðnaðar-
legar hættur og félagslegar og
efnahagslegar afleiðingar víg-
búnaðarkapphlaupsins og fyrir
að koma fram með nýjar hug-
myndir í leitinni að lausnum á
þessum vandamálum.
Ég hef oft áður lagt áherslu á
að Sameinuðu þjóðirnar telja
starfsemi slíkra samtaka afar
mikilvæga. Parliamentarians
Global Action hafa beitt sér fyrir
mikilvægum verkefnum á sviði
afvopnunar, m.a. að koma á
Friðarfrumkvæði þjóðarleiðtog-
anna sex en það hefur skapað
nýjar víddir í baráttunni fyrir af-
vopnun. Undir forystu Dr.
Grímssonar hafa Parliamentari-
ans Global Action komið á fram-
færi á margvíslegan hátt ákveðn-
um tillögum á sviði afvopnunar,
t.d. varðandi allsherjar bann við
tilraunum með kjarnorkuvopn
og um eflingu samvinnu fjöl-
margra aðila sem beita sér í þágu
þessara stefnumála.
Ég beiniþví þeim einlægu ósk-
um til Dr. Ólafs Grímssonar og til
Parliamentarians Global Action
að störf hans og samtakanna
verði áfram jafn árangursrík,
einkum hvað varðar léit að nýj-
um leiðum og aðferðum til að
fjarlægja þá ógnun sem felst í sí-
vaxandi vígbúnaðarkapphlaupi
og til að efla alþjóðlegt öryggi,
frið og framfarir en það eru æðstu
markmið Sameinuðu þjóðanna."
ÆSKULÝÐSFYIKINGIN
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Félagsfundur
Félagsfundur verður fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.30 að Hverfisgötu
105.
Fundarefni: 1) Starfið framundan. Framsaga: Sigurður Einarsson. 2)
Önnur mál.
Nýir félagar eru sérstaklega boðnir á þennan fund. Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Albaníukvöld
Menningartengsl Albaníu og íslands, MAÍ, halda
fund vegna komu sendiherra Albaníu til íslands.
Dagskrá: 1) Sýnd heimildamynd af myndbandi,
2) Utanríkismálastefna Albaníu, 3) Umræður.
Fundurinn verður haldinn í Hlaðvarpanum mið-
vikudaginn 28. janúar kl. 20.
Auglýsið í Þjóðviljanum
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
ABR
Spilakvöld
Fyrsta spilakvöldið á þessu ári verður haldið að Hverfisgötu 105, þriðjudag-
inn 27. janúar kl. 20.00. Mætum öll vel og stundvíslega. Nefndln.
ABR
Deildarfundur 4. deildar
Deildarfundur 4. deildar ABR verður haldinn
laugardaginn 31. janúar kl. 14.00 að Hverfisgötu
105.
Dagskrá: 1) Starf deildarinnar í komandi kosning-
um: Sigurður Einarsson formaður deildarinnar. 2)
Önnur mál.
Gestur fundarins verður Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalagsins.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin þann 6. febrúar
nk. í Alþýðuhúsinu. Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.30.
Ávörp, söngur, glens og grín. Heiðursgestir verða Lena og Árni Berg-
mann.
Skemmtinefndin.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði ABH, laugardaginn 31. janúar kl.
10.00 í Skálanum, Strandgötu 41.
Dagskrá: 1) Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar. Undirbúningur fyrir
síðari umræðu. 2) Upplýsingar úr nefndarstörfum. 3) Útgáfa Vegamóta.
4)önnur mál.
Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Almennur félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.30
að Kirkjuvegi 7.
Efstu menn framboðslistans koma og ræða kosningastarfið framundan.
Nýir félagar velkomnir.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Sigurður
Þ0RRABL0T ABR 1987
Laugardag 31. janúar
í RISINU,
HVERFISGÖTU 105.
Húsið opnað kl. 19.00.
Borðhald hefst kl. 20.00.
SIÐAMAÐUR
Árni Björnsson,
þjóöháttafræðingur.
Sif
Ragnhildardóttir
syngur gömul lög, sem
Marlene Dietrich gerði
vinsæl á fjórða
áratugnum.
Jóhann Kristinsson, píanó.
Tómas R. Einarsson, bassi.
Framboðskór G-listans
í Reykjavík
syngur nýjar og fornar blótvísur.
-listinn, ekki ein nóta fölsk.
íslenskur
Sala miða og borðapantanir:
þriðjudag til föstudags kl. 17—19
á skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105.
Sími 17500.
þorramatur
Glæsir leika fyrir dansi.
Verð miða kr. 1.400.-