Þjóðviljinn - 05.03.1987, Side 15
IÞROTTIR
Körfubolti
Valsmenn sterkari
Haukar að missa af úrslitakeppninni
Knattspyrna
Sigþór
hættir við
Sigþór Ómarsson skagamaður
hefur hætt við að leika með Völs-
ungum.
Sigþór ætlaði að leika með
Völsungum næsta keppnistímabil
en fékk sig ekki lausan frá vinnu
og verður því áfram á skaganum.
-ibe
England
Arsenal á Wembley
Það verða Liverpool og Arse-
nal sem leika til úrslita í deildar-
bikarnum þann 5. aprfl. Arsenal
sigraði Tottenham í gær 2-1 og
tryggði sér þarmeð farseðilinn til
Wembley.
Það var David Rocastle sem
skoraði sigurmark Arsenal þegar
komið var fram yfir venjulegan
leiktíma.
Clive Allen kom Tottenham
yfir á 62. mínútu með sínu 39.
marki en Ian Allison jafnaði þeg-
ar átta mínútur voru til Ieiksloka
og sigurmark Rocastle kom á síð-
ustu sekúndum leiksins.
Aston Villa og Wimbledon
gerðu markalaust jafntefli í 1.
deildinni ensku og sömu sögu er
að segja af 2. deildarliðunum
Derby og Portsmouth.
-Ibe/Reuter
Schumacher átti eftir tvö ár af
samning sínum við Köln, en hon-
um mun ljúka í júní. Flestir
reikna með að hann komi til með
að leika utan Þýskalands. Ekki
hefur verið ákveðið hvort hann
verði áfram í landsliðshópnum.
Schumacher hefur verið talinn
einn af bestu markvörðum heims
og er einn hæstlaunaðasti leik-
maðurinn í Bundesligunni. Hann
hefur tvisvar verið valinn knatt-
spyrnumaður Vestur-Þýskalands
og hefur leikið flesta landsleiki af
þeim sem enn eru í landsliðinu,
76 talsins. Hann hefur leikið með Toni schumacher síðasta tímabil
Köln í 15 ár hans með Köln.
Lothar Matthaus sat á bekknum í gær en Michael Rummenigge átti góðan leik og skoraði fyrsta mark Bayern Munchen.
Evrópukeppni
Stórsigur Bayem
Skelltu Anderlecht 5-0. Spœnsku risarnir töpuðu
Með stórgóðum tíu mínútna
kafla í síðari hálfleik, náðu Vals-
menn að tryggja sér góðan sigur
yfir Haukum í gærkvöldi.
Haukar voru yflr í hálfleik 47-44,
en Valur vann 93-85.
Leikurinn byrjaði vel hjá báð-
um aðilum, en síðan kom kafli
þarsem hvorki gekk né rak. Vals-
menn virtust öllu sterkari og
náðu góðu forskoti, en þá fór
Pálmar Sigurðsson að hitta og
með 9 stigum í röð í 3 tilraunum
jafnaði hann fyrir Hauka, sem
síðan komust yfir fyrir hlé.
Haukarnir byrjuðu vel í síðari
hálfleik og komust í 54-46. Þá fór
vörn þeirra að opnast illa ásamt
því að Valsmenn þéttu sína vörn
og á næstu 10 mín. skoruðu Vals-
menn 30 stig gegn 7 stigum
Seljaskóli 4. mars.
Valur - Haukar 93-85 (44-
47)
4-4, 12-12, 21-16, 24-24, 36-27,
38-38, 42-40, 44-47 - 46-54, 67-58,
76-61, 85-68, 91-78, 93-85.
Stlg Vals: Tómas Holton 26, Sturla
Orlygsson 26, Leifur Gústafsson 14,
Björn Zóega 8, Torfi Magnússon 8,
Páll Arnar 7, Einar Ólafsson 4.
Stig Hauka: Pálmar Sigurösson 25,
Henning Henningsson 24, Ivar Ás-
grímsson 13, Ingimar Jónsson 8, Bogi
Hjálmtýsson 6, Ólafur Rafnsson 5,
Tryggvi Jónsson 4.
Dómarar: Kristbjörn Albertsson og
Sigurður Valgeirsson - nokkuð góðir.
Maður lelkslna: Sturla Örlygsson,
Val
Hauka. Með þessu náðu þeir að
tryggja sér sigur og var hann ör-
uggur þrátt fyrir að Pálmar færi
að hitta aftur og Haukar dregið á
undir lok leiksins.
Leikurinn var hraður og
skemmtilegur. Valsmenn voru
sterkari og þeirra bestur var
Sturla Örlygsson, geysisterkur
jafnt í vörn sem sókn. Aðrir
skiluðu sínu hlutverki einnig vel.
Hjá Haukum var Henning
bestur, traustur og ódrepandi
vinnuhestur. Spilið hjá þeim
byggist enn of mikið á Pálmari og
þegar hann hittir jafn illa og í
þessum leik gefur eitthvað eftir.
Haukarnir hafa mannskap og
geta gert betur sem kom t.d. í ljós
þegar Pálmar fór að spila sam-
herjana betur uppi.
-GSM
Sturla örlygsson átti góðan leik
gegn Haukum í gær.
Toni Schumacher hefur faliist á
að hætta með liði Kölnar í
Bundesligunni í kjölfar ásakanna
sinna um lyfjanotkun knatts-
pyrnumanna í Þýskaiandi. Peter
Weiand forseti Kölnar tilkynnti
þetta á blaðamannafundi í gær.
Anderlecht fékk stóran skell
gegn Bayern Munchen í gær.
Anderlecht var í vörn nær allan
tíman og mátti þola stórt tap, 5-0
og líklega eru Arnór Guðjohnsen
og félagar úr leik í Evrópukeppn-
inni.
Það var 15 stiga frost í Munc-
hen en heimamenn létu það ekki
á sig fá og léku við hvern sinn
fingur. Að sögn Jón Halldórs
Garðssonar fréttaritara Þjóðvilj-
ans í Munchen voru það Bayern
sem réðu lögum og lofum á vell-
inum.
Michael Rummenigge skoraði
fyrsta mark Bayern á 15. mínútu
og Hans Pflugler bætti öðru
marki við á 28. mínútu. í hálfleik
var staðan 2-0.
Anderlech komst aðeins inn í
leikinn í upphafi síðari hálfleiks
og var það helst Arnór sem
eitthvað bar á. En tvö mörk frá
„ellismellnum" Dieter Hoenes á
69. og 73. mínútu gerðu út um
vonir Anderlecht. Það var svo
Roland Wohlfarth sem innsiglaði
sigur Bayern með marki af stuttu
færi eftir að Dieter Hoenes hafði
skallað í þverslána.
Að sögn Jóns átti Arnór góðan
leik. Hann lék aftarlega, en var
Schumacher vildi sjálfur ekk-
ert segja um málið.
-Ibe/Reuter
fljótur fram og maðurinn á bak-
við skyndisóknir Anderlecht.
Það verður á brattann að sækja
fyrir Anderlecht og vægast sagt
ólíklegt að þeir nái í undanúrslit.
Þó ber þess að minnast að Ander-
lecht sló Bayern út í fyrra eftir að
hafa tapað 0-2 á útivelli.
Dundee United sigraði Barce-
lona 1-0 á heimavelli í gær. Það
var Kevin Gallacher sem skoraði
sigurmarkið strax á 2. mínútu.
Þetta forskot nægir Dundee þó
líklega ekki því Barcelona eru
erfiðir heim að sækja.
Red Star sigraði risana frá Real
Madrid, 4-2, í hörkuleik, Júgó-
slavarnir komu virkilega á óvart
og í hálfleik var staðan 3-0.
Aðstæðurnar voru ekki sem
bestar fyrir Spánverjana. Mjög
kalt og flestir leikmenn Real Ma-
drid kappklæddir.
Bosko Djurovski fyrirliði Red
Star kom þeim yfir á 7. mínútu,
en 30 sekúndum síðar fengu
Spánverjarnir vítaspyrnu, eftir
að varnarmaður hafði varið bolt-
ann með hendi. Hugo Sanchez
tók spyrnuna, en markvörður
Red Star, Stevan Stojanovic
varði. Zarko Djurovic skoraði
annað mark Red Star á 12. mín-
útu með skoti fyrir utan vítateig.
Boro Cvetkovic skoraði svo
þriðja markið sex mínútum fyrir
leikhlé.
Red Star átti mörg hættuleg
færi í uphafi síðari hálfleiks.
Mitar Mrkela átti skot í þverslá
og tvisvar varði Francisco Buyo,
markvörður glæsilega.
Hugo Sanchez minnkaði mun-
inn í 3-1 með marki á 66. mínútu.
Milan Jankovic kom Red Star í
4-1 með marki úr vítaspyrnu á 84.
mínútu, en Hugo Sanchez átti
síðasta orðið. Hann skoraði úr
þriðju vítaspyrnu leiksins rétt
fyrir leikslok.
Philippe Fargeon skoraði
sigurmark Bordeaux gegn Torpe-
do Moskvu í síðari hálfleik.
Leikjum Malmö gegn Ajax og
Besiktas Istanbul og Dynamo
Kiev var frestað vegna veðurs.
-Ibe
V-Þýskaland
Schumacher hættir
Úrslit í Evrópukeppni Meistaraliða -8- liða úrslit, fyrri leikir
Bayern Munchen(V-Þýskalandi)-Anderlecht(Belgíu).............................5-0
Besiktaslstanbul(Tyrkiandi)-Dynamo Kiev(Sovétr.)............................fr.
Red Star(Júgóslaviu)-Real Madrid (Spáni)....................................4-2
Porto(Portúgal)-Bröndby(Danmörku)...........................................1-0
Evrópukeppni Bikarhafa - 8-liða úrslit, fyrri leikir:
Real Zaragoza(Spáni)-Vitosha Sofia(Búglaría)................................2-0
Malmö(Svíþjóð)-Ajax(Hollandi)...............................................ff-
Bordeaux(Frakklandij-Torpedo Moskva(Sovétr.)................................1-0
Lokomotivo Leipzig(A-Þýskalandi)-Sion(Sviss)................................2-0
UEFA-Bikarinn - 8-liða úrslit, fyrri leikir:
DundeeUnited(Skotlandi)-Barcelona(Spáni)....................................1-0
B.Munchenglb(V-Þýskalandi)-VitoriaGuimareas(Portúgal).......................3-0
Torino((talíu)-Tyrol(Austurríki).............................................0-0
Gautaborg(Svfþjóð)-lnterMilan(ltalíu).......................................0-0
ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 15