Þjóðviljinn - 05.03.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIMIN
Fimmtudagur 5. mars 1987 53. tölublað 52. örgangur
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Skýrsla utanríkisráðherra
Hermangið magnast
Aðalverktakarfengu2,201 miljarð fyrir sinn snúð 1986.1,103
miljarða 1985. Miklar nýframkvœmdirfyrir herinnfyrirhugaðar:
M.a. 250 íbúðir, félagsheimili, nýjar vararafstöðvar, vegagerð
Rfldsstjórnin og utanríkisráð-
herra hafa á valdaferli sínum
stóreflt fjárhagslegt samkrull ís-
lendinga og hersins og gert er ráð
fyrir í skýrslu utanríkisráðherra
til alþingis að haldið verði áfram
á þeirri braut.
í skýrslunni kemur fram að
búið er að endurnýja flugflota
hersins, haldið sé áfram að bæta
tengsl annarra ríkja NATO við
starfsemi hersins og í yfirstjórn
herliðsins eru nú dani, Hollend-
ingur og von á Norðmanni.
Herinn greiddi íslenskum fyrir-
tækjum og einstaklingum 1986
rúmlega 4,1 milljarð og er fyrir-
hugað að lítið dragi úr á næsta ári
og er meiningin að ráðast í meiri-
háttar framkvæmdir að vori, þar
á meðal byggingu félagsheimilis,
skrifstofuhúsnæði fyrir ýmsa
starfsemi hersins, alls um 1500
fermetra, byggingu 250 íbúða,
vararafstöðvar við byggingu kaf-
bátaleitareftirlits ásamt öðru og
gert er ráð fyrir að Aðalverktakar
fái fyrir sinn snúð vegna þessara
nýju framkvæmda, 70 milljónir
dollara eða tæpa 3 miljarða
króna.
-sá.
Bankastarfsmenn
Félag um
dagsvistun
„Áhuginn er mjög mikill, und-
irbúningur að stofnun félagsins
hófst í haust,“ sagði Kristrún Guð-
mundsdóttir stjórnarformaður í
nýju félagi áhugafólks banka-
starfsmanna um stofnun og rekst-
ur dagvistarheimilis.
Nefnd á vegum Sambands
bankamanna vann að undirbún-
ingi og starfsfólk allra bankanna
tók þátt í stofnun félagsins.
„Það kom í ljós við könnun
sem gerð var í fyrra að þörfin fyrir
dagvistarheimili er alveg gífur-
leg,“ sagði Kristrún. „Öll vinna
er ennþá á byrjunarstigi en við
erum að kanna núna hvaða fjár-
öflunarleiðir eru færar.“ - vd
Háskóli íslands
Konum
fækkar í
raungreinum
„Kvenfólki við nám í raun-
greinum við Háskóla íslands hef-
ur fækkað í ár miðað við árið í
fyrra,“ segir Brynhildur Brynj-
ólfsdóttir hjá Nemendaráði Há-
skóla íslands. Hún kvaðst ekki
hafa skýringu á reiðum höndum.
Á námsárinu 1985-1986 voru
112 konur við nám í raungreinum
við Háskóla íslands en sam-
kvæmt nemendaskrá fyrir árið
1986-1987 eru þær aðeins 88.
Heildarnemendatalan í ár,
1986-1987 er 591 nemandi, þar af
eru nýnemar 279. Af nýnemum
eru 191 karl en aðeins 88 konur.
grh.
Rafmagnsverkfræðingar framtíð-
arinnar, þær Guðlaug Sigurðar-
dóttir t.v. og Björg Magnúsdóttir
t.h. halda ótrauðar sínu striki við
námið þó svo að kynsystrum
þeirra hafi fækkað í raungreinum
við Háskóla Islands.
Kópavogur
Yfir 20%
launahækkun
Starfsmannafélag
Kópavogs semur
- Ég er viss um að þetta
samkomulag á eftir að gefa tóninn
í samningum annarra sveitarfé-
laga í endurskoðun á starfsmati
og að þessi niðurstaða sem við
fengum verði ráðandi í þeim
samningum sem á eftir að gera,
sagði Kristján Guðmundsson
bæjarstjóri í Kópavogi, í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Starfsmannafélag Kópavogs
hefur samþykkt nær einróma
nýjan kjarasamning við
bæjaryfirvöld í Kópavogi , en
samningurinn felur meðal annars
í sér launahækkun til starfsmanna
bæjarins á þessu ári upp á 21 -
22%. Inni í þessari hækkun felst
uppstokkun á starfsmati bæjar-
starfsmanna sem samið var um að
framkvæmt yrði á þessu ári í þeim
rammasamningi sem
bæjarstarfsmannafélögin gerðu
nýlega til næstu þriggja ára.
-Ig./-Ing.
Eg held að ekkert annað
sveitarfélag í landinu hafí orð-
ið að þola annan eins samdrátt í
afla í kjölfar kvótakerfisins. Það
er min skoðun að lögin um stjórn-
un fiskveiða, kvótalögin, hafi
beinlínis kippt lífsbjörginni frá
þeim byggðarlögum sem af ein-
hverjum ástæðum hafa ekki verið
tilbúin til þess að kaupa þau skip
sem þar hafa verið til sölu, segir
Úlfar Thoroddsen, sveitarstjóri á
Patreksfirði.
Á síðustu árum hefur orðið
geysimikill samdráttur á afla sem
borist hefur á land á Patreksfirði
samfara fækkun á fiskiskipum.
Frá 1982-1986 varð 40% sam-
dráttur í tonnum talið af fiski sem
þangað kom á land, eðá úr 13.200
tonnum 1982 í rúm í rúm 7 þús-
und tonn á síðasta ári. Á sama
tíma fækkaði vertíðarbátum úr 10
í 2 báta. Þessi minnkun í afla hef-
ur orðið til þess að það er varla
hægt að halda uppi fullri atvinnu í
frystihúsinu. Þetta hefur auðvit-
að leitt til fólksflótta úr sveitarfé-
laginu og hefur íbúum á Patreks-
firði fækkað um 10% á þessu
tímabili.
Til að reyna að stemma stigu
við þessari óheillaþróun hefur
verið kosin nefnd til að vinna að
stofnun nýs útgerðarfélags. Áætl-
að er að safna um 40-50 miijónum
króna í hlutafé.
Vandi Patreksfirðinga hefur
verið ræddur margoft við
stjórnvöld og þau jafnan lýst yfir
skilningi á vandamálinu en hing-
að til hafa þau ekki treyst sér til
að gera nokkuð þeim til lausnar.
„Við erum auðvitað bjartsýnir
á að okkur muni takast ætlunar-
verk okkar að skjóta styrkum
stoðum undir atvinnulífið hér
með stofnun nýs útgerðarfélags.
Því það er tómt mál að tala um
annan atvinnurekstur hér en
þann sem lýtur að fiskveiöum,"
sagði Úlfar.
Tilboð ríkisins um sömu áfang-
ahækkanir og samið var um í
jólaföstusamningum ASI og VSI
auk 3,5% hækkunar er búið að
standa síðan í janúar. Okkur
finnst það enginn umræðugrund-
völlur fyrir samningum, segir
Júlíus K. Björnsson, formaður
launamálaráðs BHMR.
í gær bættist Félag íslenskra
sjúkraþjálfara í hóp þeirra félaga
innan BHMR sem boðað hafa
verkfall í þessum mánuði. Áður
hafa Hið íslenska kennarafélag
og Félag háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga boðað verk-
fall.
Þá hefur Félag félagsráðgjafa
ákveðið að halda atkvæða-
greiðslu um verkfallsboðun í dag
og á morgun og Félag náttúrufr-
æðinga þann 6., 9., og 10. mars
n.k.
„Ég tel að þeim félögum innan
BHMR muni fjölda á næstunni
sem ákveða að fara í verkfall ef
engar breytingar verða á afstöðu
ríkisins til raunhæfra samninga,“
sagði Júlíus K. Björnsson.
grh.
Patreksfjörður
Lífsbjörginni kippt undan okkur
Úlfar Thoroddsen sveitarstjóri: Kvótinn orsakar 40% aflaminnkun- Vertíðarbátum fœkkar-
Fólksflótti um 10% - Stefnum að stofnun nýs útgerðarfélags
BHMR/Ríkið:
Verkfallsboðum fjölgar
Júlíus K. Björnsson, formaður launamála-
ráðs BHMR: - Hörð baráttaframundan -
Ríkið talar ekki við okkur