Þjóðviljinn - 08.03.1987, Page 13

Þjóðviljinn - 08.03.1987, Page 13
Danni og Halli á Unglingaheimilinu: Skiljum hvert annað af því við höfum álíka fortíð. Við krakkarnir skynjum það sem aðrir geta ekki skynjað. Ljóð vikunnar eftir Halla á Unglingaheimilinu Vorið Atómljóð Loksins er hið langþráða vor komið - veturinn er farinn. Brátt kemur sumarið og fuglarnir byrja að tísta. Og skemmta mannkyninu sem bíður þeirra Sþennt. Strákarnir fara í fótbolta eða útilegu eða þá fara í sólbað eða sund, - þá er skemmtilegt. Það er gott veður þegar sjómennirnir koma í land, þá byrjar vinnan, frystihúsið verður fullt og næg atvinna. Þegar vinnudegi er lokið þá fara allir heim. Sumir þrauka fram að helgi en aðrir fara á fyllerí. Framtíðin Halli: Mér finnst stundum að það vanti skilninginn. Til dæmis fólkið hérna heldur að það leysi vandann að tala um þetta, rifja upp ógeðslegar minningar... Þau verða að geta sett sig í okkar spor og það geta þau ekki. Þau muna ekki hvernig það var þegar þau voru ung. Danni: Þegar þau tala um hvað þau gerðu, þá er það alltaf að þau hafi ekki drukkið eða gert neitt af sér. - Finnst ykkur þá starfsfólkið hérna ekkert betra en fólkið sem var í kringum ykkur? Halli: Það eru ekki mín orð. Þau eru betri en annað fólk að vissu leyti. Þau láta mann fá alla þá umönnun sem maður þarf og það liggur við að maður sé eins og sonur þeirra - og það kann ég auðvitað að meta. En þau mis- skilja stundum. -En þið krakkarnir: Skiljið þið hvert annað? Halli: Já, við krakkarnir hérna skiljum hvert annað af því að við höfum álíka fortíð. Höfum lent í svipuðu og skiljum hvernig hin- um líður. Við skynjum það sem aðrir geta ekki skynjað. -hj. Sjómannslífið heillar mig það er mín framtíð þéna og græða Vinna og mennta sig það eru mínir framtíðardraumar Ég er rifinn upp úr hugsun minni það er kallað: „Skólinn er búinn" Við göngum frá okkar dóti og röltum heim á leið Árni Stefán Jónsson, deildarstjóri fyrir Meðferðarheimilið að Sólheimum 7, með áttunda vistmanninn köttinn Geirþrúði, í fanginu. „Vandamálin eru ákaflega ein- staklingsbundin en einkennin eru oft þannig, til dæmis hjá strákun- um, að þeir byrja í innbrotum, eru mjög ódælir í skóla og fjöl- skyldulífið gengur ekki. Það er hægt að rekja þessi vandamál tal- svert langt aftur í bernsku. Við viljum líta svo á að unglingurinn sé einkennisberi fyrir viss vanda- mál innan fjölskyldunnar. Við gerum þá kröfu þegar við tökum unglinga í meðferð hér að við get- um tekið allt fjölskyldumynstrið fyrir. Það er misjafnt hvernig það er lagt upp, hvort um er að ræða ráðgjöf eða hreina og klára fjöl- skyldumeðferð!" - Hvernig gengur að vinna með fjölskyldunum út frá því að unglingurinn sé ekki bara vanda- málið? „Það gengur mjög misjafnlega. Sumar eru afar samstarfsfúsar en aðrar - einkum til að byrja með - eiga erfitt með að viðurkenna að unglingurinn sé ekki eina vanda- málið. Hin síðustu ár hefur okkur fundist að fleiri fjölskyldur hafi komið til okkar sem eru svo veikar að fátt hefur verið til ráða.“ Jákvœð og neikvœð sjálfsímynd - Frá hvernig fjölskyldum koma þessir krakkar? „Það hefur sýnt sig í gegnum árin að aðeins 25% þeirra ung- linga sem til okkar koma búa hjá kynforeldrum sínum. Oftast er um að ræða að móðir hafi tekið saman við annan mann, - ótrú- lega hátt hlutfall sem á stjúpa.“ - Hvaða aðferðum beitið þið við unglingana? „Stikkorðið sem við göngum útfrá er að koma af stað jákvæðri þróun hjá unglingnum. Oft er unglingurinn mjög fastur í nei- kvæðri sjálfsímynd: Hann getur ekki neitt og er taparinn í lífinu. Okkar hlutverk er að koma hon- um upp úr þessu - þroska og þróa jákvæða sjálfsímynd. Við viljum að unglingurinn geti tekið ábyrgð á sjálfum sér og framtíð sinni.“ - Þegar unglingarnir fara héð- an, hvað tekur þá við? „Ef þau eiga fjölskyldu að hverfa til þá fara þau þangað. Ef það hefur sýnt sig að fjölskyldan sé það sterk þá tekur hún við hon- um aftur. Við reynum að prófa okkur áfram með heimfarar- leyfum. Ef viðkomandi getur ekki farið heim eða þarf á meiri aðstoð að halda þá höfum við sambýli hér uppi í Sólheimum 17. Og þar geta krakkarnir verið til 18 ára aldurs. Sambýlið er ansi merkilegt að því leyti að þar býr fjölskylda, hjón með tvo krakka. Þau búa með unglingunum ásamt einum starfsmanni. Stigsmunur- inn á sambýlinu og heimilinu hér felst í því að krakkarnir eiga að geta tekið miklu meiri ábyrgð á sjálfum sér. Þetta er meira hugs- að sem staður sem þau geta búið á og fengið þessa aðstoð. Þarna búa núna fimm krakkar og eru ýmist að vinna eða í skóla. Tveir af þessum krökkum eru til dæmis í menntaskóla núna. - Finnst þér að starfsemi Ung- Sunnudagur 8. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 lingaheimilisins njóti skilnings hjá almenningi? „Ég er búinn að starfa hérna síðan 1981 og hef fundið fyrir miklum breytingum. Það er alveg öruggt að fordómar út í Ung- lingaheimilið voru miklir á tíma- bili, en með meiri umræðu í þjóðfélaginu á síðari árum hefur þetta breyst. Fordómarnir hafa ekkert síður minnkað hjá ung- lingunum sjálfum." - hj. Áhersla „Það eru nú 13 einstaklingar í skólanum. Þau koma náttúrlega hingað af því þau eru illa sett í námi og félagslega," sagði Jó- hanna Gestsdóttir, kennari við skóla Unglingaheimilisins í stuttu spjalli. „Munurinn á þessum skóla og öðrum felst fyrst og fremst í því að við getum unnið miklu meira með hverjum einstaklingi en til dæmis grunnskólarnir hafa tök á. Að öðru leyti er skólakerfið um margt svipað, við byrjuðum í haust og krakkarnir taka próf í vor.Það eru til dæmis þrjú sem taka samræmdu prófin hjá okk- ur. Húsnæðið hentar ágætlega bráðabirgða, en við höfum enga aðstöðu fyrir handmennta- kennslu. Eins erum við það langt frá öðrum skólum að það er erfitt um vik fyrir krakkana að fara í leikfimi.“ Stundafjöldinn á viku er 34 og það eru þrjár og hálf staða við skólann. -hj.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.