Þjóðviljinn - 10.03.1987, Page 1

Þjóðviljinn - 10.03.1987, Page 1
Þriðjudagur 10. mars 1987 57. tölublað 52. órgangur Ríkisstjórnin Verðbólgan rýkur upp Svavar Gestsson: Þenslan í ríkisfjármálunum stórhœttuleg. Verður að tryggja stöðugleika í efnahagsmálum. Ólafur Ragnar Grímsson: Stóriðjustefnan er gjaldþrota að verður að tryggja stöðug- leika í efnahagsmálum og koma í veg fyrir verðbólgu - sprengingu.Það er nú 3 þúsund miUjón króna halli á ríkissjóði, þensla í peningamálum og þróun lánskjaravísitölu sýnir að þegar er 20% verðbólga. Þetta er ekki bara álit Alþýðubandalagsmanna heldur hafa tveir helstu yngri hagfræðingar landsins, Þorvaldur Gylfason og Þráinn Eggertsson tekið í sama streng, sagði Svavar Gestsson á fréttamannafundi, þar sem stefnumál Alþýðubandalags- ins fyrir kosningarnar, voru kynnt. „Staðgreiðslukerfi skatta er það sem koma skal, en hins vegar er flaustursbragur á stjórnar - írumvarpinu sem nú er til af- greiðslu á alþingi. Við teljum að hækka eigi skattleysismörk og ekki verði lagður tekjuskattur á laun undir 50 þúsund kr. á mán- uði og leiðrétta verður misgengi launa og lána á árunum 1983- 1984“, sagði Ragnar Arnalds. Til að mæta tekjutapi ríkis- sjóðs ef skattleysismörk einstak- linga verða lækkuð, verður að auka skattheimtu á fyrirtækjum, en í tíð núverandi ríkisstjórnar hafa þau sloppið betur en efni standa til og lagt er til að frádrátt- arliðum fyrirtækja verði fækkað að mun, stóreignir og miklar vax- tatekjur verði skattlagðar. í menntamálum hyggst Al- þýðubandalagið stuðla að stofn- un opins háskóla, að framhalds- skólakerfið verði samræmt og framlög til menningarmála verði tvöfölduð. í atvinnumálum er þörf mikilla breytinga: Ólafur Ragnar Gríms- son sagði að stóriðjustefnan væri nú gjaldþrota sem sýndi sig best í því að sendimenn hefðu verið á þeytingi allt stjórnartímabil nú- verandi ríkisstjórnar út um allan heim að reyna að fá erlenda aðila til að leggja út í stóriðju hér á landi, en árangur enginn verið. Tínii væri til að líta sér nær og hyggja að nýsköpun í sjávarút- vegi og innlendum iðnaði og eflingu íslensks hugvits, með út- flutning þess í huga. Þá kom fram í máli Olafs að utanríkisstefna ís- lands ætti að vera meir í anda þess að efla frið og sáttfýsi meðal þjóða en slíkt hefði ekki verið haft að leiðarljósi hjá núverandi ríkisstjórn, sem á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna hefði oftast greitt atkvæði með auknum víg- búnaði eða setið hjá. Stöðva þyrfti frekari hernaðar- uppbyggingu hér á Iandi, ísland yrði aðili að kjarnorkuvopna- lausum Norðurlöndum og að það yrði herlaust og friðlýst. -sa. Sjá nánar bls. 8 og 13 Stúdentaráð Hægri meirihlutinn í hættu Nái vinstri menn að vinna mann í stúdentaráðskosningun- um á fimmtudaginn er hægri meirihlutinn fallinn. Jafnræði yrði þá með stjórnarandstöðu og stjórn, bæði með 15 fulltrúa. Stígandi, klofningshópur úr röðum Umbótasinna, gengur nær allur úr ráðinu. Við það breytast valdahlutföll þannig að fengju Umbar einungis einn mann kjör- inn, og vinstri menn jafn marga og ganga úr ráðinu úr þeirra hópi, þá hefðu þessi tvö öfl sameigin- lega meirihluta, eða 16 fulltrúa alls. Fulltrúar Umba vilja ekki þvertaka fyrir, að þeir kynnu að halda Vöku í meirihluta eftir kosningar. „Þetta sýnir bara,“ segir Birna Gunnlaugsdóttir, formannsefni vinstri manna, „að til að tryggja að hægri meirihlutinn falli, verða stúdentar að sjá til þess að vinstri menn vinni manninn.“ ÖS Sjá fréttaskýringu bls. 7 Það þarf að efla íslenska atvinnuvegi og jafna aðstöðumun íbúa landsins með titliti til menntunar, atvinnu og lífsgæða gætu þær Sigríður Stefánsdóttir, þriðji maður á lista Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra og Margrét Frímannsdóttir, efsti maður á lista Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi verið að ræða um. Skattrannsóknadeild Hótel Ork undir smásjá Grunur leikur á um söluskattssvik. Oddur Gunnarsson hjá rannsóknadeild ríkisskattstjóra: Vil hvorki játaþessu né neita Hjá embætti skattrannsókna- deildar ríkisskattstjóra stend- ur nú yfir rannsókn á bókhaldi og fjárreiðum Hótel Arkar með til- liti til hugsanlegra skattsvika. Samkvæmt heimildum blaðsins getur verið um að ræða umtals- verð söluskattssvik, auk þess sem tollar og innflutningsgjöld hafi ekki verið gerð upp á réttan hátt. í samtaii við blaðið vildi Oddur Gunnarsson, yfirmaður lögfræðisviðs rannsóknadcildar ríkisskattstjóra, hvorki játa þessu né neita. Þjóðviljinn hefur heimildir fyrir því að rannsóknin, sem ekki er komin á lokastig, nái yfir það tímabil sem hótelið hefur starfað og þegar mun sýnt að söluskatts- svikin geti skipt milljónum. Þá mun ekki hafa verið staðið rétt að bókfærslu reikninga og ekki fundist nótur fyrir öllum útgjöld- um. Rannsóknin nær einnig til Vélaleigu Helga Þórs Jónssonar, eiganda Hótel Arkar, og virðist sem fylgiskjölum með innflutn- ingi fyrirtækisins sé mjög ábóta- vant og einnig vanti mikið af reikningum, en Vélaleigan flutti m.a. inn tæki sem notuð voru við byggingu hótelsins. Þjóðviljinn reyndi árangurs- laust að ná tali af Helga Þór í gær en á Hótel Örk var upplýst að hann tæki eingöngu síma á þriðjudögum og fimmtudögum. - lg/ÖS Ritstjóri Indriði á Tímann? Allar líkur benda til þess að Indriði G. Þorsteinsson rithöf- undur verði ráðinn sem nýr rit- stjóri á Tímanum innan skamms. Blaðstjórn Tímans hefur þegar ákveðið að ráða nýjan ritstjóra að blaðinu til viðbótar við Níels Arna Lund. „Það er verið að skoða þessi mál og það eru margir inní mynd- inni, þar á meðal Indriði,“ sagði Kristinn Finnbogason, fram- kvæmdastjóri Tímans, í gær. Hann sagði að fundur í blaðstjórn yrði haldinn öðru hvoru megin við helgina þar sem þessi mál yrðu rædd frekar. „Ég get ekkert sagt um þetta á þessu stigi og vísa málinu til Kristins,“ sagði Indriði G. Þor- steinsson í gær. - ig.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.