Þjóðviljinn - 10.03.1987, Qupperneq 2
—SPURNINGIN—
Hvernig leggst fyrirhugað
verkfall trésmiða í þig?
Haukur Sigurðsson trésmiður:
Vel. Það er kominn tími til að
við fáum smá hækkun og leiðrétt-
ingu á launum okkar.
Kjartan Sigurðsson trésmiður:
Ég held að það komi ekki til
verkfalls. Mér líst allavega ekki á
það að það verði verkfall.
Eiríkur Jensson trésmiður:
Það leggst vel í mig og sam-
staða okkar er mikil. Yfirvinnu-
bannið hefur sýnt að það er hug-
ur í mönnum.
Þorleifur Sigurðsson trésmið-
ur:
Allir vilja vitanlega meira kaup
og ég er engin undantekning þar
á. Ég er hræddur um að ef til
verkfalls kemur geti það dregist á
langinn.
Viktor Jónsson verkstjóri:
Mér líst illa á verkfall. Ég er á
móti verkfalli. Ef af verður stend-
ur það trúlega ekki lengi.
FRÉTTIR
Laxeldi
Hættuleg stofnablöndun
Sigurður Guðjónsson fiskifrœðingur hjá Veiðimálastofnun: Nýrri
stöðvarnar leita víða aðfanga. Lax ætti sem minnst
að flytja milli landshluta
Heyrst hefur að lax sé veiddur í
stórum stO og síðan fluttur
langar leiðir með tankbflum,
jafnvel milli landshluta. Sigurður
Guðjónsson hjá Veiðimálastofn-
un staðfesti í samtali við Þjóðvilj-
ann að þetta hefði verið gert, en
sagði jafnframt að dregið hefði
stórlega úr því.
Sigurður sagði síðan: „Nú orð-
ið, þegar seiðum er sleppt í ár eru
oftast notuð seiði úr sömu á, en
laxastofnar eru ákaflega misjafn-
ir, enda hver stofn búinn að fá um
tíu þúsund ár til að aðlaga sig og
þróast með sínu umhverfi og
Talia
Arabískar
nætur
Frumsýnt í Mennta-
skólanum við Sund í
gœrkvöld
Talia, leiklistarfélag Mennta-
skólans við Sund, frumsýndi í
gærkvöldi leikritið Arabískar
nætur eftir Friðrik Sigurbjörns-
son. Leikritið byggir á ævintýri
úr sögusafni 1001 nætur.
Leikritið, sem er flutt í nokkuð
breyttri mynd, samdi Friðrik árið
1958 og byggir það á sögunni um
Abú Hassan hinn skrýtna. Frið-
rik sem lést á sl. ári starfaði síðast
sem prófstjóri við Háskólann en
hann var lögfræðingur að mennt.
Um 20 nemendur koma fram í
leikritinu en leikstjóri er Elísabeti
Brekkan.
verða því laxastofnar með tíman-
um jafn ólíkir og árnar eru ólíkar.
Við vitum í raun lítið hvað ger-
ist við stofnablöndun. Það hafa
orðið stórkostlegir skaðar er-
lendis, en hérlendis eru enn fá
dæmi um beina skaða vegna
þessa.
Stofnablöndun getur haft áhrif
á allt sem varðar laxinn, ratvísi
hans brenglast og ýms sníkjudýr
og sýklar, annarrar tegundar en
stofninn hefur lagað sig að, geta
strádrepið fiskinn og jafnframt
haft önnur alvarleg áhrif á lífríki
ánna.
Við getum nefnt sem dæmi að
lífsskilyrði í Hofsá í Vopnafirði
og Elliðaánum í Reykjavík eru
eins ólík og dagur og nótt og sama
er að segja um laxastofna þessara
áa.
Það er svo hröð uppbygging í
fiskeldinu og menn út um allar
jarðir að leita að efnivið til seiða-
eldis og mér er sagt að nýrri
stöðvar hafi leitað fanga víða og
eru því með mismunandi stofna,
en ég veit ekki hvort þeir halda
þeim aðskildum.
Eins og er, er allt leyfilegt í
þessum efnum en við hjá Veiði-
málastofnun höfum gert drög að
reglugerð sem er á leið upp í
ráðuneyti og verður vonandi
samþykkt þar, en í henni er gert
ráð fyrir að reynt verði að hafa
einhverja stjórn á þessu og fiskur
verði sem minnst fluttur milli
svæða.
í norðlægum löndum austan
hafa og vestan hafa orðið stórslys
í þessum efnum enda nú búið að
setja reglugerðir víðast hvar, og
ekki seinna vænna,“ sagði Sig-
urður Guðjónsson að lokum.
-sá.
Þimkosningar
Kosið áður
en frestur
er úti
Framboðsfrestur vegna kom-
andi þingkosninga rennur út
föstudaginn 27. mars eða fjórum
vikum fyrir kjördag.
Utankjörfundaratkvæða-
greiðsla á samkvæmt lögum að
hefjast sem fyrst eftir að kjördag-
ur hefur verið ákveðinn en þó eigi
fyrr en en 8 vikum fyrir kjördag.
Kjörgögn hafa þegar verið send
til embætta sýslumanna og bæjar-
fógeta og hefst utankjörfundarat-
kvæðagreiðsla bæði hér innan-
lands og í sendiráðum erlendis á
morgun 11. mars.
Ríkisútvarpið
Kosningasjónvarp
ákveðið
Utvarpsráð samþykkti í gær til-
lögur fréttastofu sjónvarps
um kosningaþætti í sjónvarpi og
verða þeir með svipuðu sniði og
áður. Þó er ætlunin að hafa
áhorfendur að umræðum í sjón-
varpssal, sýna frá vinnustaða-
fundi á höfuðborgarsvæðinu og
fara á kosningafundi í nokkrum
landsbyggðarkjördæmum.
Hvaða kosningafundum útá
landi verður sjónvarpað er enn
óvíst, en að öðru leyti er dagsrká-
in þessi:
1. apríl - vinnustaðafundur á
höfuðborgarsvæðinu, 60-90 mín-
útur; 2. aprfl (fimmtudag) -
flokkakynningar, sennilega átta
talsins, hver 20 mínútur; 6. aprfl
sjónvarpsfundur frá Norðurlandi
vetra; 7. aprfl - frá Vestfjörðum;
13. apríl - frá Vesturlandi; 14.
apríl - frá Suðurlandi; 21. apríl -
frá Reykjanesi; 22. apríl - frá
Reykjavík; 23. apríl - frá Norð-
urlandi eystra og Austurlandi;
24. apríl - hringborðsumræða
flokksoddvita.
Gert er ráð fyrir að umræður
frambjóðenda úr einstökum
kjördæmum taki 90 mínútur, svo
og hringborðsumræðan kvöldið
fyrir kjördag. _m
2 S(ÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 10. mars 1987