Þjóðviljinn - 10.03.1987, Side 14
MINNING
Bjami Vilhjálmsson
fyrrum þjóðskjalavörður
F. 12. júní 1915 - D. 2. mars 1987
Kveðja frá Þjóðskjalasafni
íslands.
Bjarni Vilhjálmsson fyrrver-
andi þjóðskjalavörður var
Austfirðingur að ætt, fæddur á
Nesi í Norðfirði 12. júní árið
1915, var hann á 72. aldursári er
hann lést. Hann lagði stund á ís-
lensk fræði og lauk cand. mag
prófi frá Háskóla íslands árið
1936.
Bjarni Vilhjálmsson stundaði
kennslu framan af starfsævinni og
lengst af í Kennaraskólanum.
Auk þess sinnti hann blaða-
mennsku og umfangsmiklum út-
gáfustörfum. Hann gegndi í tæpa
tvo áratugi formennsku í erilsöm-
ustu nefnd skólakerfisins,
landsprófsnefnd, og var lengi rit-
ari Hugvísindadeildar Vísinda-
sjóðs.
Árið 1958 varð Bjarni skjala-
vörður í Þjóðskjalasafni. Var
starfsvettvangur hans þar einkum
skjalasöfn amtmanna og stiftamt-
manns, og voru þau verk öll unn-
in af stakri vandvirkni. Bjarni
Vilhjálmsson var skipaður
þjóðskjalavörður árið 1968 og
gegndi því embætti uns hann lét
af störfum samkvæmt eigin ósk
fyrir aldurs sakir 1. desember
1984.
Hann lét hefja nýja ritröð, sem
nefnist Heimildaútáfa Þjóðskjal-
asafns, og komu út undir stjórn
hans tvö bindi. Hið fyrra árið
1979: Bréf Þorláks biskups
Skúlasonar, sem Bjarni vann að
ásamt Júníusi Kristinssyni og
Jóni Þ. Þór, en hið síðara 1983,
Prestastefnudómar og bréfabók
Gísla biskups Þorlákssonar, sem
hann gaf út ásamt Júníusi Krist-
inssyni.
Ég kynntist Bjarna Vilhjálms-
syni ekki náið en af stuttum kynn-
um var ljóst að þar fór hæglátur
öðlingsmaður, sem vel kunni að
sjá bjartar hliðar á mönnum og
málefnum.
Eftir að Bjarni Vilhljálmsson
hafði látið af embætti var hann
tíður gestur í Þjóðskjalasafni og
sinnti hugðarefnum sínum. Urðu
þau ár alltof fá, sem hann naut til
þeirra mála eftir að embættisferli
hans lauk.
Ég þakka Bjarna Vilhjálms-
syni góð kynni og flyt ekkju hans
og börnum samúðarkveðjur
starfsfólks Þjóðskjalasafns ís-
lands.
Olafur Asgeirsson
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir febrúar mánuð er 15.
mars.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
A
Aðalfundir
deilda
KRON
verða sem hér segir:
4. og 5. deild
Aðalfundur mánudaginn 16. mars kl. 20.30 í hátíð-
asal Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Félagssvæði 4. deildar:
Smáíbúðahverfí, Gerðin, Fossvogur, Blesugróf,
neðra Breiðholt og Seljahverfi. Auk þess Norður-
iand og Austurland.
Félagssvæði 5. deildar:
Efra Breiðholt, Árbær, Ártúnsholt, Grafarvogur,
Mosfellssveit og Kjalarnes.
2. og 3. deild
Aðalfundur þriðjudaginn 17. mars kl. 20.30 í Afur-
ðasölu SÍS Kirkjusandi.
Félagssvæði 2. deildar:
Hlíðarnar, Háaleitishverfi, Múlahverfi, Túnin og
Norðurmýri. Auk þess Suðurland og Vestmannaeyj-
ar.
Félagssvæði 3. deildar:
Laugarneshverfi, Kleppsholt, Heima- og Voga-
hverfi. Auk þess Vesturland og Vestfirðir.
1. deild
Aðalfundur miðvikudaginn 18. mars kl. 20.30 í
Hamragörðum, Hávallagötu 24.
Félagssvæði 1. deildar.
Seltjarnarnes, Vesturbær og miðbær vestan Snorr-
abrautar. Auk þess Hafnarfjörður.
6. deild
Aðalfundur fimmtudaginn 19.mars kl. 20.30 í
fundarstofu Stórmarkaðaríns, Skemmuvegi 4a.
Félagssvæði 6. deildar:
Kópavogur, Garðabær og Suðurnes.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
KAUPFELAG REYKJAVÍKUR 0G NAGRENNIS
Bjarni Vilhjálmsson, sem í dag
er kvaddur hinstu kveðju, var
fæddur í Hátúni á Norðfirði 12.
júní 1915. Foreldrar hans voru
Vilhjálmur Stefánsson útvegs-
bóndi og seinni kona hans,
Kristín Arnadóttir. Bjarni ólst
upp á menningarheimili í stórum
systkinahópi. Hann varð stúdent
frá Menntaskólanum á Akureyri
1936 og lauk cand. mag. prófi í
íslenskum fræðum frá Háskóla
íslands 1942. Hann var kennari í
Reykjavík í mörg ár en 1958 varð
hann skjalavörður í Þjóðskjala-
safni íslands þar sem hann starf-
aði til ársloka 1984 þegar hann lét
af störfum fyrir aldurs sakir. Frá
1968 gegndi hann starfi þjóðsk-
jalavarðar. Hann var formaður
landsprófsnefndar um tveggja
áratuga skeið og lengi ritari hu-
gvísindadeildar Vísindasjóðs.
Bjarni var þjóðkunnur maður
fyrir ýmis fræðistörf. Hann vann
að og gaf út fjölda fræðilegra
bóka og ritgerða um ýmis efni ís-
lenskra fræða. Bjarni kvæntist
1943 og gekk að eiga Kristínu
Eiríksdóttur frá Hesteyri. Þau
eignuðust fjögur börn sem öll eru
uppkomin.
Með Bjarna Vilhjálmssyni er
genginn mætur maður, góður
eiginmaður og fjölskyldufaðir,
tryggur bróðir og sannur vinur
sinna fjölmörgu vina. Hann vildi
hvers manns vanda leysa og
heimili þeirra hjóna stóð öllum
opið enda gestrisni og alúð hús-
ráðenda alkunn. Sjálf var ég í
hópi þeirra sem naut þessara
þátta. Frá æskuárum hef ég verið
heimagangur þar á bæ og varla
leið sú vika að við Bjarni ræddum
ekki saman. Hann reyndist ntér
ráðhollur og góður vinur sem ég
gat ávallt treyst.
Bjarni leitaði sífellt fróðleiks
og þekkingar; hann spurði af já-
kvæðri forvitni og var þá oft
barnslegur og einlægur. Og gleði
hans var hlý og fölskvalaus þegar
hann taldi sig hafa höndlað hið
rétta svar. Fyrsta fræðiverk
Bjarna var athugun á nýyrða-
smíði Jónasar Hallgrímssonar í
þýðingu hans á stjörnufræði Urs-
ins. Og alla tíð voru Bjarna orð
hugleikin. Hann naut þess að
kanna þau og leita þeim skýringa.
Bjarni Vilhjálmsson lést á
heimili sínu aðfaranótt 2. mars.
Hann kvaddi á augabragði og
hljóðlega og í því líktist burtförin
lífi hans svo látlaus og hógvær
maður sem hann var.
Kristínu og öðrum ástvinum
hins látna votta ég mína dýpstu
samúð og óska þeint velfarnaðar.
Og á þessari sorgarstundu bið ég
þau um að minnast þess hve rík
þau eru af samvistunum við
þennan góða dreng. Því Bjarni
Vilhjálmsson var góður drengur.
Margrét Jónsdóttir
Nokkur minningarorð verð ég
að skrifa um gamlan vin og
skólabróður Bjarna Vilhjálms-
son fyrrverandi þjóðskjalavörð.
Bjarni fæddust á Nesi í Norð-
firði, eins og Neskaupstaður hét
þá, þann 12. júní 1915.
Við Bjarni ólumst því upp sam-
an á Norðfirði. Þar gengum við
saman í barnaskóla og unglinga-
skóla og síðan fylgdumst við að í
Menntaskólann á Akureyri.
Bjarni var góður skólafélagi,
mikill námsmaður og vinsæll í
hópi nemenda. Skólaárin sem við
Bjarni áttum saman eru mér
minnisstæð, og þegar ég hugsa til
þeirra verður mér ofarlega í huga
þakklæti til þeirra ágætu manna á
Norðfirði, sem á sínum tíma hlut-
uðust til um það að senda slíkan
ágætismann, Bjarna Vilhjálms-
son áfram til frekari mennta, en
Bjarni var eins og ég og fleiri af
fátæku fólki kominn, og hefði
varla ráðið við lengri skólagöngu,
nema vegna sérstakra áhrifa
hinna góðu manna, sem þar réðu
úrslitum.
Bjarni Vilhjálmsson varð
þjóðkunnur maður, virtur og vel
metinn í sinni fræðigrein. Bjarni
var einstaklega fróður um allt
sem snertir íslenskt mál, íslenska
þjóðarsögu og menningarmál al-
mennt.
Þegar Bjarni var sjötugur árið
1985 gáfu vinir hans og samstarfs-
menn út glæsilegt afmælisrit helg-
að Bjarna, en þar voru sýnishorn
af ýmsu því sem Bjarni hefur rit-
að. í þessu afmælisriti er m.a. af-
burða glögg og góð ritgerð
Bjarna um dr. Kristján heitinn
Eldjárn fyrrum forseta íslands,
en Kristján var einmitt bekkjar-
bróðir okkar Bjarna úr
Menntaskólanum á Akureyri, en
Bjarni og Kristján voru allt frá
Menntaskólaárum til dauða
Kristjáns miklir vinir og nánir
samstarfsmenn.
Bjarni Vilhjálmsson var mikill
Norðfirðingur. Þar átti hann
mörg systkini og marga vini og
Norðfirðingar vissu líka vel af
því, að hinn mikilsvirti fræðimað-
ur Bjarni Vilhjálmsson var Norð-
firðingur.
Norðfirðingafélagið í Reykja-
vík leitaði oft til Bjarna og fyrir
það félag gerði Bjarni flest sem
um var beðið.
Eftir Bjarna Vilhjálmsson
liggur mikið lífsstarf. Hann var
þjóðskjalavörður, kennari við
marga skóla m.a. Háskóla ís-
lands. Hann varð landskunnur
fyrir þætti sína í útvarpi um ís-
lenskt mál og eftir hann liggja
mikii ritstörf.
Bjarni var svo hamingjusamur
að eignast góða konu, Kristínu
Eiríksdóttur, sem lifir mann sinn.
Við sem þekktum Bjarna vel og
persónulega, vissum að kona
hans var honum einstök hjálpar-
hella. Bjarni var vissulega mikill
gáfumaður en hann þurfti eigi að
síður á að halda góðri aðstoð og
hana fékk hann með sinni góðu
konu.
Bjarni og Kristín eignuðust 4
börn sem öll eru uppkomin.
Ég og kona mín vottum
Kristínu og börnum þeirra og ætt-
mennurn, samúð okkar um leið
og við kveðjum okkar góða vin,
Bjarna Vilhjálmsson.
Lúðvík Jósepsson
Utboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir til-
boðum í Vegmálun 1987,
þ.e. málun akbrauta í Suðurlands- og Reykjaneskjör-
dæmi og einnig í Reykjavíkurborg.
Helstu magntölur:
Akreinalínur 233 km
Markalínur 556 km
Stakar merkingar 530 stk.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 10. mars n.k.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 23.
mars 1987.
Vegamálastjóri
Utankjörfundarat-
kvæðagreiðsla
í Reykjavík vegna alþingiskosninga 1987 hefst miðvikudaginn 11.
mars nk. Fyrst um sinn, þar til annað verður auglýst, verður kjör-
staður opinn á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, mánudaga til
föstudaga kl. 10 til 15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
KOSNINGASKRIFSTOFUR
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins er í Lárusarhúsi,
Eiðsvallagötu 18, Akureyri. Til að byrja með verður skrifstofan
opin þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16-18. Starfsmaður er Krist-
jana Helgadóttir. Síminn er 25875.
Alþýðubandalagið Vestfjörðum
Búið er að opna kosningaskrifstofu á Hæstakaupstað, Aðal-
stræti 42, Isafirði. Skrifstofan er opin allan daginn. Síminn er
94-4242. Kosningastjórí er Gísli Þór Guðmundsson. Alltaf heitt
á könnunni.
G-listinn Reykjanesi
Aðalkosningaskrifstofa G-listans í Reykjaneskjördæmi er í
Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi. Þar er opið alla virka daga
frá kl. 10.00-19.00. Alltaf heitt á könnunni og starfsmennirnir
Valþór, Ásdís, Helgi og Unnur til þjónustu reiðubúin. Símarnir
eru 41746 og 46275.
Þá hefur einnig verið opnuð kosningaskrifstofa í Keflavík, að
Hafnargötu 34. Síminn þar er 92-4286. - G-listinn Reykjanesi.