Þjóðviljinn - 10.03.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
. 681348
Helgarsími
681663
þlÓÐVILIINN
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Þriðjudagur 10. mars 1987 57. tölublað 52. árgangur
Starfsmannafélag Reykjavíkur
Fóstmr vilja ganga út
Margrét Pála Ólafsdóttir: Viljum eignauppgjör við
Starfsmannafélagið eftilþess kemur að við göngum úr því
Það er rétt að við erum að ræða
hvort við göngum út úr
Starfsmannafélagi Rcykjavíkur
og stofnum eigið félag með fullum
samnings- og verkfallsrétti en ef
til kæmi yrði þetta 'fyrst í næstu
samningum, sagði Margrét Pála
Ólafsdóttir fóstra er Þjóðviljinn
leitaði upplýsinga um stöðu fóstra
í kjaramálum.
Nýju samningsréttarlögin sem
gera fólki kleift að semja sér,
gera ráð fyrir að viðkomandi
hópur tilkynni slíkt þrem mánuð-
um fyrir lok samningstímabils.
Samningstímabili fóstra lauk
um áramót en nýju lögin tóku
gildi aðeins þrem vikum áður,
þannig að fóstrur hefðu ekki
möguleika á að notfæra sér þau í
komandi samningum þó þær
vildu.
Margrét Pála sagði ennfremur
að þessi mál væru einungis á um-
Gróður-
lætur
plata
sig
„Trén láta alveg plata sig. Ef
það frystir geta afleiðingarnar
orðið hræðilegar,“ sagði Theodór
Halldórsson, yfirverkstjóri hjá
Garðyrkjustjóra Reykjavíkur, í
samtali við Þjóðviljann.
„Það er víða farið að koma lauf
á tré og runna. Mér sýnist að ösp-
in sé lengst komin en jafnvel birk-
ið lætur líka blekkjast. Ég vona
það besta - ef það gerir 6-8 stiga
frost getur æðakerfið í trjánum
sprungið.“
Að sögn Theodórs er gróður
nú að minnsta kosti mánuði fyrr
sprottinn en að öllu jöfnu vegna
þess hve hlýindin hafa verið lang-
vinn og viðvarandi. _hj.
„Nei, blómin spretta nú ekki
svona snemma heima í Húna-
vatnssýslu," sagði Elísabet
Gísladóttir frá Hvarfi í Víðidal sem
nú býr á elliheimilinu Grund.
Garðurinn er þar í blóma sem um
mitt sumar væri sökum einstakrar
veðurblíðu upp á síðkastið.
Mynd Sig.
Suðurnes
Gufa nýtt til raforku
Hitaveita Suðurnesja hyggur á aukna raforkuframleiðslu með beislun
útblástursgufu. Geturfullnœgt raforkuþörf Suðurnesja til hálfs
Hitaveitan kefur sótt um til iðn-
aðarráðuneytis að fá að
virkja útblástursgufuna til raf-
orkuframleiðslu. Þetta hefur ver-
ið í undirbúningi nokkuð lengi og
ef af verður fæst töluverð viðbót
við þá rafmagnsframleiðslu, sem
er hér fyrir, sagði Bragi Eyjólfs-
son, vélgæslumaður í orkuveri
Hitaveitu Suðurnesja við
Svartsengi.
Ráðgert er að fimm megawött
af raforku fáist með því að beisla
útblástursgufuna, til viðbótar við
þau átta megawött, sem orkuver-
ið framleiðir nú þegar. Þegar
þessi viðbótar raforkuframleiðsla
verður komin í gagnið, mun
orkuver Hitaveitu Suðurnesja sjá
Suðurnesjunum fyrir um helm-
ingi þeirrar orku sem þar er not-
uð.
ræðustigi enn sem komið væri,
fóstrur væru reyndar ósáttar við
núverandi samningsaðstöðu og
væru með umræður í gangi um
hvort þær muni ganga út úr nú-
verandi stéttarfélagi og stofna
eigið félag og þá með fullum
samnings- og verkfallsrétti.
„í framhaldi af því verðum við
að kynna okkur rétt okkar innan
Starfsmannafélags Reykjavík-
ur,“ sagði Margrét Pála ennfrem-
ur. „Við erum 10% innan Starfs-
mannafélagsins og ef við tökum
þetta skref viljum við vita hvort
við eigum tilkall til sanngjarns
hluta þeirra sjóða sem við höfum
lagt í. Á aðalfundi Starfsmanna-
ifélagsins, sem haldinn var s.l.
'laugardag, fengum við í gegn að
stofnuð skuli 3 manna nefnd sem
|á þessu starfsári á að gera tillögur
um hvernig slík skipting gæti orð-
ið. Nefndartillagan var samþykkt
gegn mikilli andstöðu forystu fél-
agsins.“
„Það er okkur ekkert kapps-
|mál að rýja félagið eignum sín-
um,“ sagði Margrét Pála að lok-
um, „en þetta er mjög stórt prins-
ipatriði. Þegar nýju samnings-
réttailögin voru samþykkt var
gert ráð fyrir að hópar gætu farið
út úr félaginu og það er nú einu
sinni þannig að allur skilnaður
hefur í för með sér
eignauppgjör.“
-ing.
Verkföll
löT
felög
í verk-
fall
Igær höfðu tíu stéttarfélög boð-
að verkfall til ríkissáttasemj-
ara. Öll verkföllin eru boðuð í
mars ef samningar nást ekki.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
hefur boðað eftir-, nætur- og
helgarvinnubann frá 4. mars og ef
ekki dugar þá allsherjarverkfall
frá 11. mars.
Byggingardeild Iðnsveinafé-
lags Suðurnesja, Félag bygging-
ariðnaðarmanna í Hafnarfirði og
Félag byggingariðnaðarmanna í
Árnessýslu hafa öll boðað verk-
fall frá 11. mars, og frá sama degi
hefur Múrarafélag Suðurnesja
boðað yfirvinnubann.
BHM félögin sem hafa boðað
verkföll eru Félag háskólamennt-
aðra hjúkrunarfræðinga og Félag
íslenskra sjúkraþjálfara frá 19.
mars, Hið íslenska kennarafélag
frá 16. mars, Félag íslenskra
fræða frá 23. mars og Sálfræðing-
afélag íslands frá 24.mars.
-ing.
Fyrirhugað er að setja upp
fimm hverfla, sem gufan verður
leidd í gegnum. Með þessu móti
fæst gjörnýting á gufunni. „Fyrir
utan beinan hag af því að beisla
gufuna til raforkuframleiðslu,. er
ákveðin landhreinsun að því að
losna við hana. Öll mannvirki, tól
og tæki sem eru í nánd við gufuút-
blásturinn, fara illa vegna sýr-
unnar sem er í gufunni,“ sagði
Bragi Eyjólfsson að lokum.-RK
T
Viltu trimma ‘
um næstu helgi?
Annað kosningablað G-listans í
Reykjavík kemur út um næstu helgi.
Við.treystum á vaska stuðnings-
menn til að dreifa blaðinu, þar sem
aðkeypt dreifing er mjög dýr.
Hringið strax í 17500 (Þórunn eða
Guðlaug María) og látið vita hvaða
götu (götur) þið getið tekið.