Þjóðviljinn - 15.03.1987, Síða 3
Ingibjörg Björnsdóttir á forsíðu Natio-
nal Geographic.
ísland
í risa-
upplagi
í febrúarhefti National Geo-
graphic eru þrjátíu síður helgaðar
Islandi í máli og myndum, auk
þess sem níu ára afkomandi Vík-
inga, Ingibjörg Björnsdóttir,
prýðir forsíðu heftisins.
Greinin er skrifuð af Louise E.
Levathes og hefst á lýsingu á
Snæfellsjökli. Sú lýsing er þó
fljótt leyst af hólmi af frásögn af
mótmælum hernámsandstæðinga
við herstöðina á Miðnesi.
Sveinbjörn Beinteinsson reisir
níðstöng gegn hernum og síðan er
sagt frá herstöðinni.
I greininni er vitaskuld greint
frá leiðtogafundinum og rætt við
Styrmi Gunnarsson Morgunblað-
sritstjóra um hann. Þá eru sögu
þjóðarinnar gerð skil, landi íss og
elda lýst á ljóðrænan ferðaskrif-
stofuhátt, jarðsagan afgreidd,
komið við á bóndabæ og spjallað
við húsfreyjuna. Þá fær hulduf-
ólkið sinn skammt, blaðamaður-
inn er viðstaddur skírn í Þingvall-
akirkju og rætt við Heimi Steins-
son um kristna trú á íslandi, bók-
menntunum gerð töluverð skil og
Halldór Laxness tekinn tali. Við
skoðum fuglalífið við Mývatn og
skreppum vestur á Isafjörð.
Snjóbylur á heiðum uppi í miðj-
um júlí og sjóferð með Sigurvon-
inni. Þá fær höfuðborgin sína um-
fjöllun. Minnst er á myndlistar-
mennina Jóhannes Kjarval og
Ásmund Sveinsson. Rætt er við
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta
íslands, og segir hún frá kvenn-
afrídeginum 1975. Greininni lýk-
ur svo á ferð á Vatnajökul.
Einsog sjá má á þessari upp-
talningu er hér um nokkuð ítar-
lega umfjöllun að ræða. Það eru
þó myndirnar sem fyrst og fremst
grípa skoðandann. Það er ljós-
myndarinn Bob Krist, sem á
heiðurinn af þeim, utan einnar
myndar af þeim Vigdísi og Reag-
an, sem Ragnar Axelsson tók
þegar leiðtogafundurinn var í
Reykjavík.
Hér er sennilega um að ræða
eina bestu landkynningu sem við
höfum fengið, því National Geo-
graphic er eitt virtasta tímarit
sem út kemur á sínu sviði, og er
útbreiðsla þess í hlutfalli við það.
-Sáf
Snyrt
með slori
Nú hefur komið í ljós að slorið
er til ýmissa hluta nytsamlegt. í
meltingarkerfi þorsksins eru ens-
ím, sem vísindamenn í Bergen
reyna nú að einangra, í þeim til-
gápgi að nota í brugghúsum og
mjólkurbúum. Þá telja þeir mikla
möguleika á að hægt verði að
nota þessi ensím til lyfjafram-
leiðslu og framleiðslu fegrunar-
lyfja.
Nú þegar er ensímið pepsin
framleitt úr fiskslori.
Heimilisleysingjum í
Evrópu fjölgar
stöðugt
Ekki er langt síðan menn höfðu
tilhneigingu til að láta sér fátt um
finnast þegar heimilisleysingja
bar fyrir augu, rótandi í ruslatunn-
um og sofandi á dagblöðum á
járnbrautarstöðvum stórborga.
Eins víst, hugsuðu menn, að hér
færu alkar og geðbilaðir menn.
En þær hugmyndir eru að
breytast; langvarandi atvinnu-
leysi, niðurskurður á velferðar-
kerfum og fleira þesslegt hefur
fjölgað ört í her heimilislausra -
má vera að þeir séu nú orðnir um
ein miljón talsins Evrópumenn-
irnir sem eiga hvergi höfði að
halla.
Þetta fólk kemur úr ýmsum átt-
um. í þessum hópi er ungt fólk
sem hefur ekki komist inn á
vinnumarkað, konur og börn úr
tvístruðum fjölskyldum og mið-
stéttarfólk sem hefur nýlega
misst atvinnuna og getur ekki
lengur greitt húsaleigu
Til dæmis eru flestir hinna nýju
allsleysingja í Frakklandi mið-
stéttarmenn sem misstu atvinn-
una á fimmta áratug ævi sinnar,
gátu ekki fundið aðra vinnu og
hafa séð atvinnuleysisbætur sínar
gufa upp á skömmum tíma.
Dæmigerð saga : bókara í fyrir-
tæki er sagt upp, hann leggst í
drykkjuskap, konan hendir hon-
um út, og síðan hefst hann við í
völundarhúsi neðanjarðar-
brautarinnar í París.
í Bretlandi er aftur á móti
mikið um heimilislaust ungt fólk,
sem hefur flúið atvinnuleysishér-
uð norðursins suður til London í
leit að atvinnu og húsaskjóli sem
sjaldan ber árangur. Hátt hlutfall
skilnaða hefur fjölgað þeim ung-
lingum sem eiga sér hvergi at-
hvarf - þar í borg eru meira en 80
þúsundir þeirra, sem eiga sér
hvergi athvarf, undir 25 ára aldri.
Ekki bætir úr skák niðurskurður
hægristjórnar til félagsmála. í
Bretlandi hefur Margaret Thatc-
UMFERÐARMENNING
Líf í vesöld og smón
Athvarfs leitað í völundarhúsi neðanjarðarlestarinnar í París : miðstéttarfólk fyllir í vaxandi mæli flokk allsleysingja.
her látið selja mikið af því leigu-
húsnæði á vegum bæjarfélaga
sem ætlað var verst settum og um
leið hefur hún skorið niður um 40
% framlög til félagslegra bygg-
inga. í ýmsum tilvikum reyna
bæjastarfsmenn að leysa vanda
fólks til bráðabirgða með því að
koma því fyrir í ódýrum gistihús-
um, þar sem heilar fjölskyldur
verða kannski að hýrast í einu
herbergi - rétt eins og á dögum
Dickens.
Svo mætti lengi áfram rekja
raunatölur frá ýmsum löndum.
Ríkisstjórnir viðurkenna í orði að
þörf sé á því að grípa til sérstakra
aðgerða til aðstoðar heimilis-
lausum, en framkvæmdin lætur á
sér standa. Meðal annars vegna
þess að yfirvöld á hverjum stað
reyna að tefja sem mest fyrir
greiðslum til þurfamanna - af
ókristilegum ótta við að slíkt fólk
streymi þangað sem von er á
hjálp. Það er víst ekki mörg at-
kvæði að hafa út á aðstoð við þá
sem fátækastir eru, og þeim er þá
í vaxandi mæli vísað á náttból og
súpugjafahús góðgerðarfélaga á
vegum kirkna.
áb byggði á Newsweek.
Þér Ijúgið, kennari!
„Menn geta sagt hvað sem
þeir vilja um nasistana, en þeir
litu æðislega út. Konurnar í
blússunum og með þessa skelfi-
legu hárgreiðslu - gleymdu þeim.
En það var eitthvað að gerast þá.
Við sáum í skólanum kvikmyndir
af skrúðgöngum, hvernig allir
æptu af hrifningu. Maður sér ekk-
ert slíkt núna."
Segir Stefanía, sonardóttir
manns sem hengdur var fyrir
stríðsglæpi, í einu þeirra viðtala
við afkomendur nasista í Spiegel,
sem vitnað var til hér að ofan.
Já, segir hún ennfremur, ég
veit að þetta voru slæmir tímar.
Stríðið, ekkert að éta, sprengj-
urnar, gyðingarnir. Við vorum
með sögukennara, síðhærðan og
skeggjaðan í lopapeysu. Það var
nú meira hvað maðurinn þusaði.
Klukkustundum saman um gyð-
inga, kommúnista, sígauna,
rússa, allt saman fórnarlömb,
ekkert nema fórnarlömb...
Þá spurði einn úr bekknum : Af
hverju voru allir svona hrifnir þá?
Eitthvað annað hlýtur að hafa
gerst...
Þá varð hann trítilóður og fór
að kalla okkur nýnasista. Við
létum okkur ekki. Hann hamað-
ist á okkur, og ekkert voru þetta
nema glæpir og svívirða, og alltaf
vorum það við, Þjóðverjar. Allir
æptu í einu. Þetta er bull sem þú
segir, sagði einn. Við sáum það á
myndunum sem þú sýndir. Hlæj-
andi börn, konur með ljómandi
augu, hundruð þúsunda á götun-
um og allir júblandi. Hvaðan
kom öll þessi hrifning ?
Þér ljúgið að okkur, herra
kennari, sagði ég upp í opið geðið
á honum.....
AUGLYSENDUR
Fermingargjafahandbók
Þjóðvlljans kemur út
í flmmta sinn 26. mars n.k.
Þetr auglýsendur,
sem áhuga hafa á aft auglýsa
i handbóklnni,
eru vinsamlegast beðnir um
að hafa samband við
auglýslngadeild Þjóðvlljans,
Rannveigu,
í sfma 681333 fyrir 23. mars
i sfðasta lagi.