Þjóðviljinn - 15.03.1987, Side 13
Skipst á um að nota pensil.
smíðaðar úr grófum viði, líkust-
um mótatimbri. Fjórir, fimm
stólar standa meðfram öðrum
veggnum, ætlaðir börnum sem
þarna eiga að geta haft aðstöðu til
náms. Við enda gangsins tekur
svo við pínulítið herbergi með
einu borði, þar sem haldnir eru
umræðufundir, sýningar og nám-
skeið fyrir börn.
Samhliða stofnun bókasafnsins
hófst ýmiskonar önnur starfsemi.
Þau hófu námskeið fyrir krakka,
einskonar verkstæði sem er opið
fyrir öll börn sem áhuga hafa. Þar
geta þau teiknað og málað, dans-
að eða farið í leiki. Þetta verks-
tæði á að vera opið alla laugar-
dagsmorgna en oft er ekki til neitt
efni, þegar ekki hefur tekist að
safna fyrir litum eða pappír, og
þá er farið í gönguferð eða dans-
að. Hópurinn hefur leitað eftir
aðstoð fráýmsum einkafyrirtækj-
um en þar er enga hjálp að fá, og
fyrirfram er vitað, að hið opin-
bera styrkir ekki svona óarðbæra
starfsemi.
Marcos hefur tekist með
hörkunni að fá ókeypis aðgang
fyrir krakkana sína á ýmis söfn í
borginni og er það hámark
þeirrar aðstoðar sem hópurinn
hefur fengið. En viðurkenningu
hafa þau fengið fá fólkinu í hverf-
inu sínu, sem áður var svo tor-
tryggið, peningagjafir berast og
þó smáar séu duga þær til að
kaupa liti af og til. Foreldrarnir
koma líka stundum með börnun-
um sínum og hjálpa til við að hafa
stjórn á þessum herskara.
Fimmtán barna hópur sem byrj-
aði er orðinn fimmtíu til sjötíu
börn sem koma reglulega, auk
um hundrað barna sem koma af
og til. Viðurkenningu einstakra
utanaðkomandi aðila hafa þau
líka fengið. í Bocagrande aðal
túristahverfinu og hverfi hinna
nýríku, voru þau beðin um að
skreyta stóran vegg. Það var fyrir
tilstilli ítalskrar konu sem rekur
svipað verkstæði fyrir börn hinna
ríku. Bókasafnsnefndin fór til
Bocagrande ásamt með tvö-
hundruð og fimmtíu börnum og
skreytti múrana.
Fyrsta myndlistarsýningin sem
haldin var í suðausturhverfinu
var nýlega opnuð í litla bókasafn-
inu og umræðufundir hafa verið
margir, um allt frá eldamennsku
til eiturlyfja. Bókasafnshópurinn
ætlar ekki að láta við svo búið
standa, þau leita að stærra hús-
næði og eru nú að býrja á að
skrifa sögu hverfisins, eða eins og
Marcos segir: „Hvers vegna þessi
var drepinn, þessi fór út í eitur-
lyfin og þessi flutti burt.“
Málað undir
hitabeltissól
Árangur heimsóknar okkar
Cheos varð sá að við tókum að
okkur að sjá um verkstæðið
nokkra laugardagsmorgna.
Undir steikjandi hitabeltissólinni
höfum við reynt að hafa
Sigrídur Etfa
Sigurðardóttir
skrífar frá
Kólumbíu
taumhald á fimmtíu börnum sem
mála af hjartans lyst með fingrun-
um og mæðrum sínum efalaust til
mikillar gleði, þurrka sér yfirleitt
í fötin sín. Þau virðast sannarlega
njóta þess að fá tækifæri til að tjá
sig með litum og enginn kvartar
þó litir og pappír séu af skornum
skammti.
Eftir verkstæðistímann er okk-
ur undantekningarlaust boðið í
mat, bókasafnshópurinn safnast
saman, einn leggur til banana,
annar yuca og name, sá þriðji
fiskinn og svo framvegis. Eftir
matinn er svo gjarnan farið í
gönguferð um hverfið og heilsað
upp á vini og kunningja.
Einn laugardaginn voru leigðir
tveir kanóar og farið í bátsferð
um Meyjarlónið. Það var erfitt að
trúa því að lífið í lóninu væri að
fjara út, þegar smáfiskar stukku
upp í kanóana, og erfitt að
ímynda sér að þeir tugir þúsunda
fugla sem lifa við lónið verði
horfnir eftir nokkur ár.
Þeir vijja
okkur burt
Fólkið í suðausturhverfinu er
ekki í nokkrum vafa. „Stjórnvöld
eru að hrekja okkur í burtu, það
verður ekkert gert til að opna
lónið aftur og það verður ekkert
gert til að hreinsa það fyrr en eftir
að við höfum neyðst til að flytja
burt og selja landið fyrir skít á
priki. Þá kaupir einhver góðbor-
garinn þetta svæði fyrir litinn
pening og byggir nokkur stykki
hótel, og þá munu stjórnvöld allt
í einu sjá nauðsyn þess að hreinsa
lónið. Hér mun rísa paradís á
jörð - en ekki ætluð núverandi
íbúum.“
Malbikún
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í malbikun gatna
og göngustíga sumarið 1987.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6, gegn 5 þús. kr.
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
24. mars kl. 11.
Bæjarverkfræðingur
T Malbikun -
JL viðhald
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í viðhald á malbiki
gatna sumarið 1987.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6, gegn 5 þús. kr.
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
24. mars kl. 11.
Bæjarverkfræðingur
Skrifstofustarf við
Raunvísindastofnun
Háskólans
er laust til umsóknar nú þegar.
Starfið felst í almennum skrifstofustörfum auk
símvörslu. Um er að ræða heila stöðu, en til
greina kemur að ráða tvo starfsmenn í hálft starf.
Góð almenn menntun og stundvísi áskilin og
nokkur reynsla í meðferð skrifstofuvéla æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar milli kl.
13 og 15 næstu daga í síma 21340.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist framkvæmdastjóra fyrir 25. þ.m.
RAUNVÍSINDASTOFNUN HÁSKÓLANS
Útboð á smíði
Breiðafjarðarferju
Skipatækni hf., f.h. Byggingarnefndar Breiða-
fjarðarferju, óskar eftir tilboðum frá innlendum
skipasmíðastöðvum í smíði ferju til siglinga yfir
Breiðafjörð. Útboðsgögn liggja frammi hjá Skipa-
tækni hf. Grensásvegi 13, 108 Reykjavík.
Opnun tilboða fer fram að Rauðarárstíg 25 hjá
formanni Byggingarnefndar, Guðmundi
Malmquist, þriðjudaginn 31. mars 1987 kl. 14.00.
Skipatækni hf. veitir frekari upplýsingar ef óskað
er í síma 91-681610.
F.h. Byggingarnefndar Breiðafjarðarferju,
Skipatækni hf.
Hafnarfjörður -
íbúðalóðir
Hafnarfjarðarbær hefur til úthlutunar lóðir fyrir
íbúðarhús á Setbergi og víðar. Um er að ræða
lóðir fyrir einbýlishús, raðhús og fjölbýlishús.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa bæjarverkf-
ræðings, Strandgötu 6, þar með talið um gjöld
vegna lóðanna, byggingarskilmálao.fl. Umsókn-
um skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem
þar fást eigi síðar en þriðjudaginn 31. mars n.k.
Bæjarverkfræðingur
Sunnudagur 15. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13