Þjóðviljinn - 15.03.1987, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 15.03.1987, Qupperneq 15
/ '•v.. Hefur þverpólitskt starf KRFÍverið til góðs? Hefur verkalýðshreyfingin brugðist? Eru konur nóguvirkar? stefnu ASÍ og BSRB um verka- lýðshreyfinguna og jafnréttið. „Ég er gjörsamlega ósammáfa því og þó það megi kenna verka- lýðshreyfingunni um ýmislegt þá er hún ekki ein ábyrg fyrir mis- rétti sem konur í landinu búa við. Það má ekki firra aðra ábyrgð einsog atvinnurekendur, stjórnvöld og jafnvel konur sjálf- ar. Ef að konur eru svona óá- nægðar með verkalýðshreyfing- una þá ættu þær að taka þátt í henni og breyta baráttuaðferðun- um sem þeim finnst of slappar og hrista upp í kerfinu." Uppsveifla eða lœgð? „Þær konur sem starfa í Sam- tökum kvenna á vinnumarkaði fara á fundi í sínum félögum, enda þótt þeim finnist oft á tíðum að það þjóni litlum tilgangi,“ sagði Birna Þórðardóttir. „Samtökum kvenna á vinnu- markaði hefur tekist að hrista svolítið upp í umræðunni um launamálin þó við höfum ekki náð miklu fram og við höfum átt ágætt samstarf við bæði mennta- og verkakonur innan ASÍ og BSRB.“ Launamálin brenna mjög á konum einsog sjá má af ofan- greindum tilvitnunum. En nóg um þau í bili. Ég spurði allar kon- urnar að því hvort þær teldu að það væri minni kraftur í barátt- unni nú en áður en þær greindi nokkuð á um það. Sigríður Dúna sagði mikinn kraft innan Sam- taka um kvennalista og sú upp- sveifla sem hefði hafist með til- komu þeirra í kringum 1982 væri enn við lýði. Birna Þórðardóttir var ósam- mála þessu. Hún sagðist telja að jafnréttisbaráttan væri í lægð núna, að minnsta kosti væri hún alls ekki eins kröftug og áður. Nostalgía eða hvað? Lára V. Júlíusdóttir hafði þetta að segja: „Ég held að róttæknin sé alveg jafnt til staðar og fyrir 10-15 árum. Þetta er einhver „nostalgía“ (=að sjá fortíðina í rósrauðum ljóma). Það hefur heilmikið áunnist og ég vil ekki trúa því að við séum að missa dampinn.“ „A heildina litið er vissulega ríkjandi lægð í kvennabaráttunni einsog í allri annarri baráttu vegna óhóflegs vinnuálags," sagði Unnur Sólrún. „Hins vegar tek ég eftir því hér á Austurlandi að konur hafa staðið sig mjög vel og taka virkan þátt í störfum innan Alþýðubandalags- ins og stefna þess fellur saman við stefnu kvennabaráttunnar.“ Það hefur stundum pirrað undirritaða að í allri launamála- umræðunni, sem er vissulega af hinu góða, þá er einsog það hafi farist alveg fyrir að ræða um bar- áttuna inni á heimilunum. Rifr- ildin um uppeldið, eldamennsk- una og heimilisverkin fara fram innan fjögurra veggja heimilisins og það er einsog enginn vilji viðurkenna að hún standi í þessu ströggli sjálf. Svo virðist sem kona, sem kvartar í dag undan því að mað- urinn hennar neiti að taka þátt í heimilisstörfunum, sé álitin aumkunarverð og það sé hennar að redda sínum málum. Hún er talin úr takti við tíðarandann. Ég bar þetta undir viðmælend- ur mína: Göfugt hlutverk húsmóðurinnar „Það verður að leggja meiri áherslu á jöfnun heimilisábyrgð- arinnar," sagði Lára V. „Þetta er ekki bara stríð við karlana sem slíka heldur þetta þjóðfélag sem við búum í.“ „Það er hiklaust mín skoðun að allir beri jafna ábyrgð á heimilis- störfum og þetta hefur alls ekki verið nóg til umræðu," sagði Að- alheiður Bjarnfreðsdóttir. „Jafnrétti á vinnumarkaðinum helst í hendur við jafnrétti inni á heimilunum," sagði Unnur Sól- rún. „Launamismunurinn, lág laun og langur vinnudagur eiga mikla sök á ástandinu og verði það leiðrétt eru komnar forsend- ur til breytinga. Karlmenn munu þó aldrei sleppa forréttindum sín- um með góðu, konur þurfa alltaf að berjast fyrir þeim.“ „Ástandið er bara ekki neitt betra en það var 1968-69 og margar konur eru að vakna upp við það núna,“ sagði Birna Þórð- ar. „Það er sama kúgunin heima fyrir og úti á vinnumarkaðinum. Það að baráttan inni á heimilun- um skuli lítið vera til umræðu er kannski ekki nema eðlilegt þegar svo stór hluti þeirra sem eru í kvennabaráttunni er farinn að upphefja hið göfuga starf húsm- óðurinnar. Þessi sjálfsupphafning niður- lægingarinnar hefur orðið til þess að það hefur verið horft framhjá ástandinu einsog það er í raun og veru.“ Og þetta látum við verða niðurlagsorðin hér í þeirri von að það vekji einhverja til umhug- sunar um það hvort jafnréttisbar- áttan á ísiandi sé að missa dam- pinn og hvað sé þá til ráða. -Vilborg Davíðsdóttir. fjj Forstöðumaður- fóstrur Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsireftirtaldar stööur á dagvistarheimilum bæjarins lausar til umsóknar: - Stöðu forstöðumanns á skóladagheimilinu Dal- brekku. Erlausfrá 15. maí. Umsóknarfresturertil 30. mars. Upplýsingar veitir dagvistarfulltrúi í síma 45700. - Fóstru að skóladagheimilinu Dalbrekku. Upp- lýsingar gefur forstöðumaður í síma 41750. - Fóstru að dagvistarheimilinu Efstahjalla. Upp- lýsingar gefur forstöðumaður í síma 46150. - Fóstru að dagvistarheimilinu Grænatúni. Upp- lýsingar gefur forstöðumaður í síma 46580. - Fóstru að leikskólanum Kópahvoli. Upplýsing- ar gefur forstöðumaður í síma 40120. - Fóstru að dagvistarheimilinu Kópasteini. Upp- lýsingar gefur forstöðumaður í síma 41565. - Fóstru að leikskólanum Fögrubrekku. Einnig óskast starfsfólk til afleysinga á sama stað. Upp- lýsingar gefur forstöðumaður í síma 42560. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu- blöðum sem liggja frammi á Félagsmálastofnun Kópavogs. Einnig veitir dagvistarfulltrúi upplýs- ingar um störfin í síma 45700. Félagsmálastofnun Kópavogs. §ft LAUSAR STÖÐUR HJÁ llf REYKJAVIKURBORG Fóstrur, þroskaþjálfar eða aðrir með uppeldis- fræðilega menntun og reynslu, óskast til stuðn- ings börnum með sérþarfir á dagvistarheimilum í vestur- og miðbæ, heilt eða hlutastarf eftir samkomulagi. Upplýsingar hjá Gunnari Gunnarssyni sálfræð- ingi á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277 eða 22360. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Sjúkrahús Skagfirðinga Sauðárkróki óskar að ráða eftirtalið starfsfólk: 1. Hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga, einn- ig í föst störf áfram. 2. Ljósmóður til sumarafleysinga og í fast starf. 3. Meinatækni til sumarafleysinga. 4. Sjúkraliða til sumarafleysinga og í föst störf. 5. Sjúkraþjálfa til sumarafleysinga. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga til sumarafl- eysinga á Heilsugæslustöðina á Sauðárkróki og Hofsósi. Upplýsingar um laun og fleira veita: Fyrir sjúkrahús, Birgitta s. 5270. Fyrir heilsugæslu, Elísabet s. 5270. Hjúkrunarforstjórar. ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKIFTI Eittár íTyrklandi Alþjóðleg ungmennaskipti geta boðið einum skiptinema dvöl í Tyrklandi um eins árs skeið. Umsóknarfrestur til 1. apríl. Nánari upplýsingar á skrifstofu AUS, Snorra- braut 60 eða í síma 24617 milli kl. 13-16. Sunnudagur 15. mars 1987 ÞJÓÐViLJINN — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.