Þjóðviljinn - 28.04.1987, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 28.04.1987, Qupperneq 1
Þriðjudagur 28. apríl 1987 95. tölublað 52. árgangur Kosningaúrslitin Stjómin biðst lausnar Uppstokkun íflokkakerfinu. Hrun hjá Sjálfstœðisflokknum. Fylgistap Alþýðubandalags. Stórsigurhjá Albert og Kvennalista. Framsóknhéltsínu. Fylgisaukning hjá krötum Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar er fallin. Á ríkis- stjórnarfundi nú árdegis mun for- sætisráðherra tilkynna afsögn stjórnarinnar og ganga síðan á fund forseta íslands og óska eftir formlegri afsögn stjórnarinnar sem tapaði meirihluta sínum í al- þingiskosningunum sl. laugar- dag. Vigdís Finnbogadóttir for- seti mun kalla formenn þingf- lokkanna til fundar við sig síðar í dag og er talið lfldegt að hún feli Steingrími Hermannsyni fyrstum umboð til myndunar nýrrar ríkis- stjórnar. Úrslit alþingiskosninganna á laugardag eru ein þau söguleg- ustu í áratugi. Sjálfstæðisflokkur- inn varð fyrir gríðarlegu fylgis- tapi, missti 11.5% og hefur ekki fengið minna fylgi frá stofnun flokksins. Sömu sögu er að segja um Alþýðubandalagið sem tap- aði 4% af fyrra fylgi sínu. Borg- araflokkur Alberts Guðmunds- sonar sem enn hefur ekki verið formlega stofnaður hlaut yfir 10% atkvæða og 7 þingmenn og Kvennalistinn nær tvöfaldaði fylgi sitt frá síðustu þingkosning- um. Alþýðuflokkurinn náði ekki samanlögðu fylgi sínu og Banda- lags jafnaðarmanna úr síðustu kosningum en bætti þó við sig nokkru fylgi og er í fyrsta sinn stærri en flokkur sósíalista. Framsóknarflokkurinn hélt sínu og Steingrímur Hermannsson vann umtalsverðan sigur í Reykj aneskj ördæmi. - Við höfum tapað orrustu en stríðið heldur áfram, sagði Svav- ar Gestsson formaður Alþýðu- bandalagsins í samtali við Þjóð- viljann í gær. Hann segir ástæður fylgistaps flokksins margþættar og að þessi úrslit snúi ekki bara að flokknum heldur einnig verka- lýðshreyfingunni sem verði einn- ig að skoða sína stöðu bæði fag- lega og pólitískt. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í gær að úrslitin væru áfall fyrir flokk- inn. Hann sagðist ekki segja af sér embætti meðan hann fyndi að hann nyti enn trausts sinna flokksmanna. Kristín Halldórsdóttir segir úr- slit kosninganna skýr skilaboð til ráðamanna að þeir geti ekki vikið sér lengur undan því að bæta kjör kvenna og þeirra sem minnst mega sín. Hún segir Kvennalist- akonur munu standa fast á sínum skilyrðum í stjórnarmyndunar- viðræðum. Steingrímur Hermannsson sagðist hafa fengið meiri stuðning en hann átti von á. Hann varar við að mynduð verði ný stjórn í „óðagoti" og segir úrslit kosning- anna stuðning við áframhaldandi stjórarsetu Framsóknarflokks- ins. Albert Guðmundsson segist ekki síst þakka Þorsteini Pálssyni árangur sinn í kosningabarátt- unni. Hann vildi ekkert gefa upp um hugsanlega stjórnarþátttöku Borgaraflokksins en sagði að það þyrfti ekki síður að vera til Sterk stjórnarandstaða en sterk stjórn. Jón Baldvin Hannibalsson seg- ist geta unað vel við úrslit kosn- inganna. Smáflokkarnir verði nú að endurmeta sína stöðu og hann vilji nánara samstarf við Alþýðu- bandalagið en áður. - Ig./kól. Sjá bls. 2,3,4,5,13 og 19. Nýkjörnir þingmenn Kvennalistans, aðrir frambjóðendur og stuðningsmenn lögðudrögaðmálefnaskráfyrirþærstjórnarmyndunarviðræðursemnúeruað fagna úrslitum kosninganna en Kvennalistinn tvöfaldaði þingstyrk sinn í kosn- hefjast. Mynd - Sig. ingunum. í gær hittust Kvennalistakonur í höfuðstöðvum þingflokksins og Heildsalan Skoða þetta mál! Það er nú alveg óráðið, þessi nýja staða er enn í nokkurra klukkutíma fjarlægð og það þarf að taka þetta dæmi og skoða,“ sagði Ingi Björn Albertsson þing- maður og forstjóri Heildversl- unar Alberts Guðmundssonar um það hvort hann ætlaði að láta af afskiptum af rekstri heildversl- unarinnar. Svo sem frægt er orðið fól Al- bert syni sínum umsjón með heildversluninni þegar hann var kjörinn á þing. Aðspurður um það hvort eðlilegt væri að þing- menn gegndu öðrum launuðum störfum sagði Ingi Björn: „Það eru nú margir sem gera það. Hvað mig varðar þá get ég ekkert sagt, nema að það þarf að skoða þetta mál.“ - hj. y Stjórnarmyndun Ymsar þreifingar í gangi Þreifingar hafnar. Frumkvœðið að mestufráJóni Baldvin. Jón Baldvin: Tel eðlilegast að Alþýðuflokkur, Sjálfstœðisflokkur og Kvennalisti myndi stjórn. Alþýðubandalagið í myndinni reifingar um stjórnarmyndun eru nú þegar farnar af stað og mun það að mestu vera fyrir frumkvæði Jóns Baldvins Hanni- balssonar formanns Alþýðu- flokksins. í þeim tilgangi hefur Jón Baldvin haft samband við Þorstein Pálsson formann Sjálf- stæðisflokksins, Svavar Gestsson formann Alþýðubandalagsins og Kvennalistakonur. Þá munu full- trúar Alþýðuflokksins hafa rætt við fulltrúa Framsóknarflokks- ins. Jafnframt er Þjóðviljanum kunnugt um fundarhöld fulltrúa fráfarandi ríkisstjórnar. Jón Baldvin sagði í samtali við Þjóðviljann að í ljósi kosning- aúrslitanna væri eðlilegast að kanna fyrst stjórnarmyndun Al- þýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og Kvennalista. „Stjórn þessara að- ila gæti orðið róttæk umbóta- stjórn í félagsmálum og í stjórnkerfinu,“ sagði Jón Bald- vin. Þá sagði Jón Baldvin að hann og Þorsteinn Pálsson litu svo á að ein af þeim kröfum sem birtust í kosningunum væri sú að hlut- deild kvenna yrði aukin og þess vegna yrði lögð sérstök áhersla á þátttöku Kvennalistans. „Kvennalistinn tók hægt og hljótt í málið en ég vænti þess að fá svör frá þeim áður en stjórnarmyndunarmenúettinn hefst“. „Frá okkar sjónarhóli er ekk- ert í þessum viðræðum okkar við Jón Baldvin sem hægt er að túlka sem undirbúning að stjórnar- myndunarviðræðum. Við lítum fyrst og fremst á þessar viðræður sem viðræður vinnufélaga.“ sagði Kristín Halldórsdóttir þingmað- ur Kvennalistans um málið. Verði stjórnarmyndun þessara flokka er ekki talið ólíklegt að Kvennalisti fái forsætisráðherr- ann. Áberandi frumkvæði Jóns Baldvins Hannibalssonar í þess- um stjórnarmyndunarþreifingum vekur athygli en aðspurður um þessa framtakssemi sagði Jón Baldvin að fulltrúum flokkanna bæri skylda til þess að auðvelda forseta lýðveldisins valið á um- bjóðanda þannig að hægt verði að ganga til stjórnarmyndunar- viðræðna hratt og örugglega. Þú myndir gjarnan vilja vera sá umbjóðandi sem forsetinn velur til starfans? „Það vantar ekkert uppá það,“ sagði Jón Baldvin. Sjá bls 5 -K-01-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.