Þjóðviljinn - 28.04.1987, Page 3
_______________________FRETTIR_____________________
Alþýðubandalagið
Hvemig skýra þau fylgistapið
Asmundur: Ekkart klárt og kvitt svar. Skúli: Kvennahreyfingin hjó í okkar raðir. Steingrímur J: Ekki sýnt næga einurð. Unnur Sólrún: Verðum að skerpa máiflutning okkar.
j ^ %£Í
Margrét: Þurfumjákvæðni og frískleika. Kristinn: Okkur var kennt um ASl-samninginn. Ragnar: Verðum að endurskoða baráttuað- ferðir. Ólafur Ragnar: Of bundin gömlum formúlum.
Norðurland vestra
Langmesta
áfallið
í Reykjavík
„Úrslitin í heild eru Alþýðu-
bandalaginu mikið áfall og sýna
að við þurfum að endurskoða
starf okkar og baráttuaðferðir,”
sagði Ragnar Arnalds efsti maður
á lista flokksins í Norðurlands-
kjördæmi vestra.
Aiþýðubandalagið tapaði rúm-
lega tveimur prósentum í kjör-
dæminu, hlaut 15,7%. Sjálfstæð-
isflokkurinn beið afhroð og tap-
aði manni, Framsókn hélt
tveimur og Alþýðuflokkurinn
fékk jöfnunarsætið.
Ragnar sagði að nýju framboð-
in hefðu tekið til sín á milli 15 og
20% úti á landi og því engin stór-
tíðindi þótt Alþýðubandalagið
tapaði 2-3% í Norðurlands-
kjördæmunum, Vestfjörðum og
Suðurlandi. „Langstærsta áfallið
er á Faxaflóasvæðinu, einkum í
Reykjavík. Tapið á Reykjanesi
er minna, en þar töpuðum við
miklu í kosningunum 1983, þann-
ig að útkoman þar nú er alvar-
legur skellur.”
Aðspurður um hvað fram-
undanværi sagði Ragnar: „Fyrst
og fremst þurfum við að ræða
þessi úrslit og stöðu flokksins af
hreinskilni. Við þurfum að undir-
búa landsfundinn í haust mjög
vandlega og varast að láta allar
ákvarðanir um hann einkennast
af fljótræði.” -hj.
Vestfirðir
Við erum mjög
svekkt
„Við erum mjög svekkt yfir
þessum úrslitum. Miðað við
gamla kerfið þá hefðum við feng-
ið mann í kjördæminu,” sagði
Kristinn H. Gunnarsson efsti
maður á lista Alþýðubandalags-
ins í Vestfjarðakjördæmi.
Tap Alþýðubandalagsins í
kjördæminu var innan við tvö
prósent og það minnsta á
landinu. Kristinn sagði að feiki-
lega vel hefði verið unnið en
frambjóðendurnir allir verið
óvanir. Nýju framboðin hefðu
tekið mikið frá flokknum þótt
honum hefðu bæst margir liðs-
menn.
Kristinn kvaðst telja að tap Al-
þýðubandalagsins í heild mætti
rekja til atburða síðustu vikna.
„Eftir samningana við opinbera
starfsmenn var Alþýðubandalag-
inu kennt um ASI-samningana.”
„Nú er ljóst að það þarf að
kalla saman miðstjórnarfund og
síðan landsfund strax í sumar.
Við verðum að gera okkur grein
fyrir orsökum tapsins og horfa
fram á við. Það þolir enga bið, ef
kosið verður í haust þurfum við
að vera búin að endurskoða
stefnu okkar og starf,” sagði
Kristinn að lokum. -hj.
Austfirðir
Verðum að líta
í eiginn barm
„Við reiknuðum aldrei með
svona slæmri útreið í þessu kjör-
dæmi. Við bjuggumst að vísu við
einhverju tapi vegna þess að
Helgi Seljan lét af þingmennsku
og ég tók við í staðinn, nánast
óþekkt og hafði lítið starfað
innan flokksins,” sagði Unnur
Sólrún Bragadóttir sem skipaði
annað sætið á framboðslista Al-
þýðubandalagsins á Austfjörðum
í samtali við Þjóðviljann.
Alþýðubandalagið tapaði tæp-
um sjö prósentum og einu þing-
sæti í kjördæminu. „Kvennalist-
inn fékk rúm 6 prósent og virðist
eiga lygilega auðvelt með að ná
árangri. Þær fóru seint af stað og
hafa hvergi starfað innan
launþegahreyfingarinnar eða
stjórnsýslunnar.
Hvað varðar útkomu flokksins
yfir landið allt er greinilegt að Al-
þýðubandalagið verður að
skerpa málflutning sinn sem eini
vinstriflokkurinn. Mér finnst líka
að flokksforystan hafi lagt of litla
áherslu á málefni landsbyggðar-
innar og stefnu í sjávarútvegs-
málum. Ég vil þó engan veginn
kenna flokksforystunni alfarið
um þessa útkomu. Við verðum
líka að líta í eigin barm hérna í
þessu kjördæmi,” sagði Unnur
Sólrún að lokum. _hj.
Reykjavík
Þurfum að
efla innri
samstöðu
„Ég hef ekkert klárt og kvitt
svar við því hversvegna Alþýðu-
bandalagið tapaði fylgi í kosning-
unum. Augljóst er að við höfum
ekki megnað nægjanlega vel að
koma okkar málstað á framfæri
þannig að hann höfðaði til fólks.
Það segir mér að við verðum að
taka okkur tak í þeim efnum.
Okkur verður að takast að efla
innri samstöðu og sýna þann
styrk að við getum snúið þessari
óheillaþróun við,“ sagði Ás-
mundur Stefánsson, forseti Al-
þýðusambandsins og þriðji mað-
ur á lista Alþýðubandalagsins í
Reykjavík.
„Það er alltaf hægt að skýra ó-
farir sem þessar með sjálfs-
gagnrýni og málatilbúnaði, sem
gengur út á það að finna ákveðna
syndaseli. Það sem gildir er að
flokkurinn nái sér upp úr þeirri
lægð sem hann er í. Áð mínu viti
gerist það ekki nema með því að
efla innri samstöðu og styrkja
málflutning Alþýðubandalags-
ins, svo að hægt sé að koma þeim
boðum til fólks, sem við teljum
mestu skipta.
Á síðari árum hefur sérhyggju-
hugsunarháttur sótt á í þjóðmál-
aumræðu og nær nú í raðir allra
þjóðfélagshópa. Við erum vitni
að því hvernig fjármagnsöflin
veitast að velferðarkerfinu og við
sjáum að félagsleg viðhorf um
samhjálp og og krafan um sam-
stöðu hefur átt undir högg að
sækja í þjóðfélaginu að undan-
förnu. Til þess að unnt verði að
snúa þessari þróun við verður Al-
þýðubandalagið að ná að sýna
styrk og samstöðu,“ sagði Ás-
mundur Stefánsson. -RK
Vesturland
Markvissari
stefnu í launa
og atvinnumálum
„Trúlega hefur stefna Alþýðu-
bandalagsins ekki verið nógu
markviss og skýr. Hitt er líka að
við hliðina á okkur var öflug *
hreyfing kvenna, sem hjó inn í
okkar raðir, án þess að þar væri
um grundvallar skoðanaá-
greining að ræða. Ég held að
þetta séu helstu atriðin varðandi
það hversvegna við töpuðum
þetta miklu fylgi,“ sagði Skúli Al-
exandersson, alþingismaður Al-
þýðubandalagsins á Vesturlandi.
„Stefna Alþýðubandalagsins í
atvinnu-, efnahags- og kjaramál-
um hefði þurft að vera mikið
markvissari ef okkur átti að tak-
ast að sækja fram til aukins fylgis.
Þessu til viðbótar gerði fram-
boð kvenna okkur skráveifu um
allt land. Ég tel að við eigum ansi
stóran hóp fyrrum fylgismanna
meðal raða kennalistakjósenda.
Hvort okkur megi takast að vinna
aftur traust þessa fólks verður
tíminn einn að leiða í ljós. Það
ræðst af miklu leyti hvernig
Kvennalistinn heldur á málum
þetta kjörtímabilið.
Á hinn veginn held ég að það sé
nauðsynlegt að við mörkum okk-
ur nokkuð harðari og ákveðnari
atvinnustefnu til sjávar og sveita.
Vitaskuld verðum við ekki hvað
síst að taka okkur tak í launamál-
unum,“ sagði Skúli Alexanders-
son. -RK
Suðurland
Okkur skorti
dug og þor
„Ég tel að ástæðan fyrir þessu
fylgistapi Alþýðubandalagsins sé
einfaldlega sú að við gengum
ekki nógu galvösk til kosninga-
baráttunnar að þessu sinni. Við
vorum hvorki nógu dugleg í kosn-
ingavinnunni, né nógu hress,“
sagði Margrét Sæunn Frímanns-
dóttir, alþingismaður Alþýðu-
bandalagsins á Suðurlandi.
„Málefnastaða okkar átti að
vera nógu góð fyrir þessar kosn-
ingar, svo að skilaði sér í kjör-
kössunum. Þanrifg að ég held að
skýringanna sé helst að leita með-
al okkar sjálfra. Alþýðubanda-
lagsfélagar unnu ekki nógu ötul-
lega að því að útbreiða stefnu
flokksins og gerðir þingflokksins
út á meðal almennings. Við þurf-
um að reyna að temja okkur já-
kvæðni og frískleika í starfi. Ég er
viss um að þetta var það sem
einkum skorti á.“
Þú ert þá ekki sammála því,
sem haldið hefur verið fram að
flokkurinn hafi sinn djöful að
draga þar sem kjaramálastefna
hans er annarsvegar?
„Við settum fram ákveðna
stefnu í kjaramálum. Aftur á
móti finnst mér hafa á skort að
setja það skýrar fram að samn-
ingar Alþýðusambandsins voru
ekki gerðir af Alþýðubandalag-
inu. Við teljum þá kjarabót sem
fékkst í síðustu samningum
verkalýðshreyfingarinnar, alltof
litla. Við höfum ekkert farið í
launkofa með það álit okkar,“
sagði Margrét S. Frímannsdóttir.
-RK
Norðurland eystra
Útkoman
vissulega
áfalll14
„Við getum ekki annað en við-
urkennt það að okkur hafi mis-
tekist í einhverjum efnum. Kosn-
ingarnar er vitanlega mikið áfall
fyrir Alþýðubandalagið. Það eru
að vísu nokkuð staðbundnar að-
stæður í kjördæmum. Árangur-
inn á Norðurlandi eystra er í raun
og veru betri en hann lítur út fyrir
að vera, þegar tekið er mið af því
að við höfðum við að etja enn eitt
framboðið, af mörgum öðrum,
sem fær svo þetta mikla fylgi,“
sagði Steingrímur Sigfússon, al-
þingismaður í Norðurlandskjör-
dæmi eystra.
„Ég held að það leggist margt á
eitt, sem hafi gert útkomu Al-
þýðubandalagsins í kosningunum
jafn laka og raun ber vitni.
Okkur tókst ekki jafn vel í
kosningaáróðrinum og ýmsum
öðrum. Allavega vorum við ekki
nógu trúverðugur valkostur
gagnvart stjórnarstefnunni, eða
það að hún sé svona vinsæl. Að
vísu missir ríkisstjórnin meiri-
hluta, en á móti kemur að Borg-
araflokkurinn fær töluvert fylgi
og Stefán Valgeirsson náði kjöri.
Vissulega get ég tekið undir
það með ýmsum að Alþýðu-
bandalagið hefur á stundum ekki
sýnt næga einurð og festu í ýms-
um málum. Mér sýnist að okkur
sé á vissan hátt refsað fyrir þá
láglaunastefnu sem hér hefur ver-
ið við lýði. Ríkisstjórninni og sér-
staklega Steingrími Hermanns-
syni, virðist að sama skapi þakk-
aður batinn í efnahagsmálum.
Að auki kemur fleira til.
ímynd flokksins hefur ekki verið
nógu traust, ýmis ágreiningsmál
hafa verið uppi í okkar röðum og
við höfum tengst með vissum
hætti ýmsum vondum málum í
þjóðfélaginu.
Við verðum að setjast niður og
meta stöðuna. Síðan er ekkert
annað að gera en að spýta í lófana
og taka á honum stóra sínum,
sem aldrei fyrr,“ sagði Steingrím-
ur Sigfússon. -RK
Reykjanes
Þörf á skýrri
stefnu og
stefnufestu
„Þessi úrslit eru alvarlegasta
áfall sem sósíalísk hreyfing hefur
orðið fyrir frá upphafi. Ástæður
slíkra stóratburða eru bæði marg-
ar og margslungnar. Sumar
þeirra eiga sér rætur í lengri tíma
- aðrar eru meira tengdar atburð-
um síðustu missera. Ég hef lengi
verið þeirrar skoðunar að Al-
þýðubandalagið hefði þurft að
marka sér mun skýrari stefnu og
sýna meiri stefnufestu en það hef-
ur gert. Það er ljóst að Álþýðu-
bandalagið þarf að taka sér tak og
skapa sér skýrari sérstöðu á sviði
íslenskra stjórnmála en það hefur
í dag,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, prófessor og annar
maður á lista Alþýðubandalags-
ins í Reykjaneskjördæmi.
„Alþýðubandalagið verður að
skerpa stefnu sína, bæði hvað
varðar málefni launafólks og sem
viðkemur öðrum þáttum
stjórnmálanna. Sósíalskur flokk-
ur getur ekki til lengdar gert þær
málamiðlanir sem verða í kjaras-
amningum að sinni stefnu - hann
verður skilyrðislaust að standa
með þeim sem harðast sækja
fram til bættra kjara.
í öðru lagi var það vanrækt á
síðasta kjörtímabili að gera upp
feril þeirrar ríkisstjórnar sem ÁI-
þýðubandalagið tók síðast og þau
mistök sem þar áttu sér stað í
atvinnu- og efnahagsmálum.
í þriðja lagi hefur flokkurinn
verið of bundinn af gömlum
formúlum sem samræmast ekki
lengur þjóðfélagslegum veru-
leika dagsins í dag. Þess vegna
hefur hann átt erfitt með að
bregðast við ýmsum aðsteðjandi
vandamálum.
í fjórða lagi hefur flokkurinn á
liðnu kjörtímabili ekki haft nægj-
anlega sérstöðu í ýmsum sam-
tryggingarmálum sem upp hafa
komið og þannig samlagast um of
ríkjandi valdakerfi.
Állt hefur þetta lagst á eitt og
gert flokknum erfitt fyrir með að
skapa af sér mynd sem trúverðug-
um valkosti. Þetta verðum við að
horfast í augu við.
Á næstu vikum og mánuðum
verða allir félagar að leggjast á
eitt og taka þessi mál til umræðu.
Forysta flokksins verður að gera
allt sem í hennar valdi stendur til
að gera þessa umræðu eins opna
og framst er kostur. Menn verða
að horfast í augu við það að
flokkurinn gæti haldið áfram að
tapa, verði ekkert aðhafst,“ sagði
Ólafur Ragnar Grímsson.
-RK
Þriðjudagur 28. apríl 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3