Þjóðviljinn - 28.04.1987, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 28.04.1987, Qupperneq 5
Stjórnarmyndun Flókin staða Sjálfstœðisflokkur, kratar og Kvennalisti líklegasta mynstrið íbyrjun. Konurgœtu orðið í meirihluta ríkisstjórnar. Verður konaforsœtisráð- herra ífyrsta sinn? Myndar Steingrímur minnihlutastjórn Framsóknar fram á haustið? -Þátttaka Borgaraflokksins í ríkisstjórn talin lykill að framtíðarlífi flokksins. En enginn vill hann í stjórn - ennþá! Mikil óvissa ríkir um myndun ríkisstjórnar, enda ljóst að engir tveir flokkar geta saman myndað stjórn. Góða útkomu Kvennalist- ans er tæpast hægt að túlka öðru vísi en kröfu kjósenda um þátt- töku þeirra í ríkisstjórn, og lík- legt er að listinn verði áberandi í stj órnarmyndunarviðræðum næstu dag® Tilvistarkreppan sem Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í eftir að hafa goldið af- hroð í kosningum hefur j afnframt gert að verkum að flokkurinn vill allt til vinna að komast í ríkis- stjórn, - þar sem Borgaraflokk- urinn á ekki aðild. Muni illa horfa á næstu dögum um myndun stjórnar með þátt- töku Kvennalista aukast líkur á gamalkunnu þriggja flokka stjórnarmynstri, Framsóknar, krata og Sjálfstæðisflokks. Hjá sumum eldri flokkanna virðist örla á vilja til að hafa aðrar kosningar sem fyrst, og í kjölfar stjórnarkreppu er sá möguleiki ekki fjarlægur. Aðdragandi haustkosninga gæti þá mögulega verið minnihlutastjórn Fram- sóknarflokksins undir forsæti Steingríms Hermannssonar, sem Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu- bandalag verðu falli. Forsætis- ráðherra myndi þá boða til kosn- inga með lækkandi sól. Fimm konur í stjórn? Kvennalistinn tvöfaldaði þing- mannatölu sína og er hinn stóri sigurvegari kosninganna, ásamt með Borgaraflokknum. Hinn mikla sigur er ekki hægt að túlka öðru vísi sem mjög þunga kröfu um að Kvennalistinn verði aðili að landsstjórninni. Þingkonur li- stans hafa enda látið uppi, að þær gangi fúsar til stjórnarmyndunar- viðræðna. Listinn er í afhaldi miklu hjá kjósendum, hefur ferskleika og afskaplega hæfa þingseta. Öll rök hníga þessvegna í þá átt, að vænt- anlegir stjórnarsmiðir freisti þess af öllum mætti að hafa Kvenna- listann með, þó ekki væri nema til að afla viðkomandi ríkisstjórn hluta þeirra vinsælda, sem kon- urnar njóta núna. Sú skoðun virðist ríkja á meðal ýmissa vinstri manna, að Kvennalistinn sé ófús til stjómar- þátttöku og jafnframt, að það verði honum ekki til framdráttar. Það er vafalaust rangt. Þing- konur listans munu til dæmis vinna sér drjúga innistæðu í við- ræðunum, sem þær eiga nú í við krata og íhald, með því að krefj- ast þess að vinsælasti þingmaður Alþýðuflokksins, Jóhanna Sig- urðardóttir, verði ráðherra. Frú forsœtisráðherra Sjálfstæðisflokkurinn er í sár- um, - og staða Þorsteins Páls- sonar ótrygg. Besta leiðin til að festa sig í sessi fyrir Þorstein er að verða ráðherra, helst forsætisráð- herra. En hið mikla tap flokksins rýrir mjög þunga á bak við allar kröfur íhaldsins um að eiga for- sætisráðherra í ríkisstjórn, flokk- urinn á einfaldlega ekki móralska kröfu um þá tign andspænis höfnun kjósenda á honum. Hins vegar mun Sjálfstæðisflokkurinn ekki setja fram miklar málefna- kröfur. Honum nægir, að Borg- araflokkurinn fái örugglega ekki aðild að ríkisstjórn, og veslist þannig smám saman upp. Konurnar vita um þetta. Þær gera sér líka grein fyrir, að eftir að hið mikla fylgi sem kratar höfðu í könnunum glutraðist nið- ur, þá er staða Jóns Baldvins ekki ýkja sterk heldur. Það er til að mynda erfitt að sjá fyrir stjórn- armynstur sæmilega starfhæfrar ríkisstjórnar, þar sem Jón Bald- vin ætti kröhi á forsætisráðherr- astól. Kvennalistinn er því í ótrúlega sterkri stöðu í viðræðum um stjórnarmyndun með krötum og íhaldi. Vegna þessarar styrku stöðu sinnar er ekki ólíklegt að Kvennalistinn leggi fram eftirfar- andi grundvallarkröfur varðandi mönnun nýrrar stjórnar: 1. Jó- hanna Sigurðardóttir úr Alþýðu- flokki verði félagsmálaráðherra. 2. Auk þess verði ein kona úr hópi þingmanna Sjálfstæðis- flokksins ráðherra. 3. í síðasta lagi munu þær svo setja fram kröfu um að forsætis- ráðherra komi úr þeirra hópi. Þannig er alls ekki skotið loku fyrir, að meirihluti ráðherra í rík- isstjórn sem Kvennalisti, kratar og Sjálfstæðisflokkur myndi, verði konur, og kona verði í fyrsta skipti forsætisráðherra. Borgaraflokkur hœpinn aðili Gangi ekki ofangreint mynstur með Kvennalista, krötum og Sjálfstæðisflokki, þá er fræði- legur möguleiki á því að Steingrímur Hermannsson reyni að framlengja líf núverandi ríkis- stjórnar með því að kippa inn Borgaraflokknum. Vitað er að enga ósk á Albert Guðmundsson og fjölskyldu- flokkur hans æðri. Það er hins vegar erfitt hvernig það kynni að ganga. Sjálfstæðis- flokkurinn, sérflagi forysta hans, er bólgin af heift út í Albert. Honum er kennt um tap Sjálf- stæðisflokksins, þó það sé eigi að síður miklu meira en nemur fylgi Borgaraflokksins. Það væri jafn- framt hundraðogellefta meðferð á einum flokksformanni að ætla að knýja vesalings Þorstein Páls- son til að fallast á að Albert Guð- mundsson taki þátt í stjórn, - og allsendis óvíst hvort Þorsteinn gæti hreiniega tekið þann kaleik út. Slíkt mynstur telst því ólíklegt, og því má við bæta, að í flestum pælingum um ríkisstjórn er Borg- araflokkurinn úti. Honum er hins vegar lífsnauðsynlegt að komast í ríkisstjórn, ætli hann ekki að vera vita áhrifalaus og deyja áður en aftur verður boðað til kosninga. Framsókn, kratar, íhald Verði langvarandi kreppa við stjórnarmyndun er ekki ólíklegt, að sú staða komi upp, að eina leið til sæmilegrar stjórnarmyundun- ar væri samstjórn íhalds, Fram- sóknar og krata. Innan Alþýðuflokksins nýtur þessi möguleiki lítillar hylli. Kratar hafa barist harkalega gegn núverandi ríkisstjórn, og vilja síst allra verða til að framlegja líf hennar. Jón Baldvin fýsir hins vegar mjög stíft í stjórn, og sömuleiðis stallbróður hans, Jón Sigurðsson. Báðir sæta nokkru ámæli fyrir frammistöðuna undir lok kosn- ingabaráttunnar, staða beggja hefur veikst, en ráðherratign gæti fleytt þeim yfir boðana. Því má svo við bæta, að ekki eru taldar nokkrar líkur á að þrír ráðherrar geti komið úr hópi Reykjavíkurkrata, tæki Alþýðu- flokkur þátt í ríkisstjórn. Jón Baldvin yrði vitaskuld í slíkri stjórn, en stöðugt vex styrkur þeim röddum, sem segja að Jó- hanna Sigurðardóttir eigi fullt er- indi í ráðherrastól. Fari svo, að kratar fari í þriggja flokka stjórn, þá fá þeir einungis þrjá ráðherra. Yrðu bæði Jón Baldvin og Jó- hanna ráðherrar, þá væri aum- ingja Jón Sigurðsson úti. Þess- vegna er nú verið að undirbua þennan möguleika innan Al- þýðuflokksins með því að leggja drög að því að hinn fyrrverandi forstjóri Þjóðhagsstofnunar verði formaður Alþýðuflokksins fyrr en seinna. Minnihlutastjórn Framsóknar í sjálfu sér kæmi ýmsum flokk- um ekki illa, þó kosið yrði aftur von bráðar. Borgaraflokkurinn virðist telja, að nýjar kosningar myndu færa honum enn meiri styrk. Innan Alþýðubandalagsins er ljóst, að menn tækju snemm- búnum kosningum alls ekki illa, - teldu, að ef til vill yrði þá hægt að vinna upp tapið núna. Sama er uppi á tening Sjálfstæðismanna. Framsóknarmenn eru einnig þeirrar skoðunar, - sumir að minnsta kosti, að nýjar kosningar myndu yfiríæra hinn svokallaða „forsætisráðherraeffekt“ úr Rey kj aneskj ördæmi yfir á landið allt. Nýjar kosningar myndu því verða til þess að staða Steingríms að loknum síðustu kosningum myndi leiða þá til verulegra land- vinninga. Þessvegna er ekki fjarlægur möguleiki, að gangi stjórnar- myndun illa, og Kvennalisti setji erfið skilyrði um aðild að stjórn, þá verði mynduð minnihluta- stjórn fram á haustið, og síðan boðað til nýrra kosninga. Líklegasta mynstur yrði þá minnihlutstjórn Framsóknar undir forsæti þess manns, sem mestan persónulegan sigur vann í kosningunum, Steingríms Her- mannssonar. Alþýðubandalag og Sj álfstæðisflokkur gætu séð sér hag í að verja slíka stjórn falli fram á haustið. Verði stjórnarkreppa er nefni- lega ekki ólíklegt að þegjandi samkomulag náist milli gömlu flokkanna - að krötum undan- skildum - um kosningar að hausti. -Össur Skarphéðinsson Þriftjudagur 28. apríl 1987 ÞJÖÐVILJINN - SlÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.