Þjóðviljinn - 28.04.1987, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 28.04.1987, Blaðsíða 14
FLOÁMARKAÐURINN Húsnæði óskast Hjón með eitt barn og annaö á leiðinni á leið heim úr námi frá Kaupmannahöfn óska eftir íbúð til leigu frafej. ágúst. Vineamlegast hringið^tea 23976 eðé í K.höfn 01-8167HB3ina Guðrún og Viðar. 3ja sæt, að hani síma 1 N í ski Við þig þið getii óskað verndui stræti 1 þriðjudi 18. gefins st gefins gegn því ■ttur. Up^Jýsingar í imtnn og geymslum þökkum það sem notað. Seekjum ef markaður Dýra- ta íslands, Hafnar- ra. Opið mánudaga, miðvikudaga kl. 14- Cettlingar Fallegir og vel vandir kettfingar fást gefins. Upplýsingar í síma 12176 eftir kl. 17 virka daga. Hæ! Hæ! Okkur vantar íbúð til leigu, helst í vesturbænum. Sértu með eina á lausu láttu þá önnu vita í síma 19567. Ritvél Óska eftir notaðri rafmagnsritvél með leiðréttingarborða og vélritun- arborði. Upplýsingar í síma 42109. Hjá okkur er allt ódýrt Flóamarkaður Dýraverndunarfé- lags Islands, Hafnarstræti 17, kjall- ara. Opið: mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 14-18. Wartburg/hjólbörur Til sölu Wartburg 1980. Einnig ósk- ast hjólbörur á sama stað. Uppl.s. 31254. Óska eftir 3ja herb. íbúð frá 1. júlí Upplýsingar í símí 26610 Til sölu stór 8 sæta plussklæddur hornsófi og eikarhús- gögn í unglingaherbergi. Koja með innbyggðu skrifborði og hillum. Uppl.s. 79248 eftir kl. 19 á kvöldin. Herbergi til leigu í sumar í vesturbænum fyrir reglusama stúlku gegn heimilishjálp. Uppl.s. 13092 eftir kl. 19. Er ekki einhver sem vill losna við rennibraut úr garðinum sínum? Hafið þá samband við Maríu í síma 40496. Vantar telpureiðhjól fyrir 6 ára. Á sama stað er til sölu kommóða með 4 skúffum. Tilvalin fyrir barnaföt. Uppl.s. 641693 Kettlingar fást gefins Gullfallegir, vel vandir kettlingar fást gefins. Uppl.s. 36787. Dugleg og áhugasöm stúlka óskar eftir vel launuðu og skemmtilegu starfi. Æskilegur vinn- utími frá kl. 8-13 eða 8-14, hef unnið við margvísleg störf. Uppl.s. 31884. Vantar hjól fyrir tvær telpur 9 og 13 ára. Uppl.s. 54327. Kvenhjól til sölu Cortina - selst ódýrt. Uppl. Rannveig í síma 79089. Par óskar eftir 2ja-3ja herbergja íbúð, helst mið- svæöis, frá 1. júní. Skilvísar greiðslur og reglusemi í fyrirrúmi. Uppl.s. 17089. Til sölu 10 vetra töltari. Tilvalinn fyrir börn og þá sem vilja Ijúfan reiöskjóta. Einnig til sölu ónotaðir fótboltaskór nr. 32. Sími 688204 eftir kl. 17.30. Fæst gefins Kolaeldavél (Vossherd) með mið- stöðvarhitun. 3 metrar furuhandrið fyrir stigaop og 3 metrar járnhand- rið fyrir stiga. 2ja sæta sófi, Ijósblár. Sími 42758. Óskast gefins eða ódýrt Óska eftir gömlum, notuðum tau- skáp. Uppl.s. 32296 á kvöldin. Til sölu barnavagn/burðar- rúm og baðborð, allt á 6.000 kr. Barna- stóll fæst gefins með. Uppl.s. 53090 Fjarstýrður bíll óskast Óska eftir að kaupa fjarstýrðan bensínbíl (Buggy), með takkadekkj- um að aftan. Uppl.s. 31216. 2 miðstöðvarofnar 1x1 til sölu. Tilvaldir í bílskúr eða geymslu. Lítill vaskur ca. 50x40 með blöndunartækjum og Rafha eldavél. Selst ódýrt. Uppl.s_53206. Trabant til sölu á 10 þúsund til niðurrifs. Góð vél, dekk og felgur. Sími 18648 eftir kl. 17. n Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Pípugerðar Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboð- um í hrærivél, ásamt flutnings og skömmtunarbúnaði. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag- inn 10. júní nk. kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 OpASv í-aiiT líli/ fllá Menntaskólinn á Egilsstöðum Tilboð óskast í að steypa upp og fullgera 1. áfanga skólahúss M.E., auk frágangs á lóð næst húsinu. Húsið er ein hæð og kjallari, gólfflatarmál um 950 m2. Verkinu skal skilað í tvennu lagi, efri hæð skal fullgerð fyrir 1. sept. 1988, en öllu verkinu lokið fyrir’1. sept. 1989. Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg- artúni 7, Reykjavík gegn 5000.- kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 19: maí 1987, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS Borgartúni 7, sími 26844 MINNING Guðmundur Magnússon Framhalf af bls 8 arvegar stóð yfir eru mér ógleym- anleg, ekki síst vegna óvenjulegs samstarfs við þá verkfræðinga Guðmund og Theódór. Svo skemmtilega vildi til, að allar götur síðan bygging Hafn- arfjarðarvegar hófst, hafði Guð- mundur bækistöð sína og verk- fræðistofu í Kópavogi og vann mörg ómetanleg og margvísleg störf við mannvirkjagerð fyrir Kópavogskaupstað. Guðmundur Magnússon var óumdeilanlega margfróður og vel gefinn maður. Hann var ákaflega hnyttinn í tilsvörum og skemmti- legur til viðræðu. Hann hefði ef til vill notið sín ennþá betur sem fræðimaður og vísindamaður. Hann gat ekki látið frá sér fara nokkurt verkefni, nema grann- skoða hvert atriði ofan í kjölinn. Leitin að hinu eina sanna og rétta var svo ótrúlega rík í fari hans. Leiðir okkar Guðmundar fóru ekki alltaf saman í stjórnmálum, þótt markmiðin væru þau sömu. En það var alltaf jafngaman að takast á um dægurmálin við Guð- mund, því fáa þekkti ég, sem voru honum hnyttnari í tilsvörum og rökum og er margt það flest- um ógleymanlegt sem á hlýddu. Á árunum sem bygging Hafn- arfjarðarvegar stóð yfir fórum við tvívegis til útlanda saman ásamt fleiri félögum. í þessum ferðum kynntist ég nýrri hlið á Guðmundi. Hann var óþreytandi að fræða og lýsa atburðum og stöðum, sem við komum til. I hans munni varð sagan lifandi og skýr, boðskapurinn glöggur. Það duldist engum, sem á hlýddi, að hann var víðlesinn og fádæma minnugur. Hin síðari ár urðu samveru- stundirnar færri, báðir vorum við uppteknir við verkefni og brauðstritið, sem aldrei tekur enda. En nú eru leiðarlok eftir langan, þungan dag. Ég geng einn um Hafnarfjarðarveg og brýrnar, þetta fallega og mikla mannvirki, sem var athafnasvæð- ið okkar fyrir tuttugu árum - ég hugsa og ég horfi - yfir sviðið eitt andartak og spyr - hvar hitti ég þig næst góði félagi? - hvenær mun ég sjálfur leggja upp frá þessum sama stað? Ég samhryggist fjölskyldunni á Kleppsvegi 84, aldraðri móður, eiginkonu og börnum og bið þeim blessunar um alla framtíð. Björn Einarsson Guðmundur Magnússon verk- fræðingur lést 14. apríl síð- astliðinn 59 ára að aldri. Sam- fylgd, sem hófst í menntaskóla fyrir 43 árum er skyndilega lokið. Guðmundur var frá Grinda- vík. Hann hafði tekið gagn- fræðapróf á Akureyri og verið nemandi í 3. og 4. bekk Mennta- skólans á Akureyri, en fékk inngöngu í 5. bekk stærðfræði- deildar Menntaskólans í Reykja- vík haustið 1944. Hann var úrvalsnemandi og skipaði sér fljótt meðal þeirra sem bestir voru í bekk hans hér fyrir sunnan. Ég minnist fagnað- arkenndar og hreykni yfir að þetta gáfnaljós úr alþýðustétt skyldi skipa sér í raðir okkar rót- tæklinganna. Við gátum ekki allir státað af háum einkunnum í að- alfögum og engar einkunnir gefn- ar fyrir þekkingu í fræðum sósíal- ismans þá. Auk þess að vera af- burðanemandi í stærðfræðigrein- um, sýndi Guðmundur mikinn áhuga á landafræði og sögu. í þeim efnum var hann alla tíð áhugasamur og mikill fróðleiks- brunnur. Eftir stúdentspróf 1946 las hann til fyrrihlutaprófs í verk- fræði hér heima við Háskólann og lauk þeim áfanga 1949. Þótt við værum sinn í hvorri háskóla- deildinni vorum við saman í hópi góðra félaga og vina í flestum 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN tómstundum og tókst vel að halda heitri hugsjónaglóðinni. Á þessum tíma var alltaf mikið að gerast í innanlandsmálum. Það brýndi okkur sífellt til dáða í póli- tíkinni og þá ekki síður stórfeng- legir atburðir, sem voru að gerast úti í heimi. Átök sigurvegaranna í 2. heimsstríðinu um skiptingu heimsins voru í fulium gangi og sigurganga kínversku byltingar- innar stóð sem hæst á þessum tíma. Það mátti sannarlega kalla kraftaverk að námsmenn með svo tímafreka áráttu sem við Guðmundur skyldum ná prófum í háskólanáminu. Haustið 1950 hóf hann nám í Danmarks Tekniske Höjskole í Kaupmannahöfn og lauk þaðan prófi í byggingarverkfræði 1953. Þrátt fyrir harðar námskröfur í þeim skóla gaf Guðmundur sér tíma til að sinna störfum fyrir Fé- lag íslenskra stúdenta í Kaup- mannahöfn. Hann var formaður þess 1951-1953 og tók þátt í bar- áttumálum alþýðunnar í Dan- mörku eins og heima á Fróni. Hann skrifar mér 3. maí 1950. „Ég tók þátt í kröfugöngu komm- únista sem var mjög fjölmenn og glæsileg. Af kröfum hins róttæka verkalýðs bar mest á kröfunni um frið og auðvitað kröfunni um vinnu handa öllum. Gangan var skreytt á alla lund, m.a. voru bornar risavaxnar myndir af helstu foringjum hreyfingarinnar í ýmsum löndum. Slíkar myndir voru af Togliatti, Passionariu, Pali Robeson, Martin Andersen- Nexö, Mao-Tse Tung, Thorez o.fl.“ Reynslu af ennþá stærri hópgöngum og miklum hátíðum naut ég síðan með honum rúmu ári seinna, þegar hópur ungra sósíalista af íslandi tók þátt í heimsmóti æskunnar í Berlín 1951. Eftir heimkomu réðst hann til starfa á verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen. Þar fékk hann skjótt mikilvæga reynslu í faginu og yfirsýn yfir sum stærstu verk- efni verkfræðinnar í landinu. Guðmundur vann hjá því fyrir- tæki í 7 ár. Frá 1962 rak hann eigin verkfræðistofu. Guðmundur var góður fulltrúi þeirra sósíalista, sem komust til vits og ára í og eftir seinni heimsstyrjöld, tóku þátt í lýð- veldisstofnuninni og hrifust af hugsjónum nýsköpunarstjórnar- innar 1944-1946. Framkvæmd þeirra var ætlað að festa í sessi Islenska lýðveldið, með því að styrkja eftiahagsgrundvöll þess og gera það þannig frjálst og óháð. Verkfræðingar og tækni- menn á ýmsum sviðum hafa átt mikinn þátt í að gera þessar hug- sjónir að veruleika æ síðan. Það er því nokkuð víst að Guðmund- ur hefur löngum notið starfsham- ingju við verkfræðistörfin. Ekki þurfti sameignarsinninn Guð- mundur Magnússon að kvarta um að fagfélagar hans væru ein- göngu í einkapuði og hermangs- verkfræði. Skrá verkfræðinga- talsins frá 1964 um mannvirki og stofnanir vekur mikla ánægju og þjóðarstolt yfir hinum stórfelldu sameignum okkar. Og mikið höf- um við eignast sameiginlega síð- an og með góðum styrk okkar verkfræðingastéttar. Guðmundur starfaði alla tíð í stjórnmálasamtökum sósíalista, Æskulýðsfylkingunni, Sósíalista- flokknum og Alþýðubandalag- inu. Við erum því mörg, skoð- anabræður og systur, sem stönd- um í mikilli þakkarskuld við hann fyrir að hafa lagt mikið og gott til mála. í bréfi hans 1951 til okkar í skipulagsnefnd fyrir Berlínar- mótið, sem áður var minnst á, segir hann: „Talsvert af íslensk- um söngvum verða þátttakendur að hafa á takteinum, því að búast má við að íslendingar verði neyddir til að raula lagstúf þarna við ófyrirsjáanleg tækifæri. Þetta er nú bara ágizkun, en það er betra að vera við öllu búinn.“ Hinar fjölbreyttu gáfur hans voru löngum upptendraðar af hug- sjónahita og lífsgleði. Guðmundur var kvæntur Mar- gréti Tómasdóttur og eignuðust þau fimm mannvænleg börn. Móðir Guðmundar, Sigríður Daníelsdóttur hefur búið í sama húsi. Við Erla sendum fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Ólafur Jensson Georges Duby. Sagnfrœði Georges Duby í Haskolanum Einn kunnasti sagnfrœðingur Frakka heldurfyrir- lestra í Háskóla íslands síðari fyrirlesturinn, sem fluttur verður á ensku miðvikudaginn 29. apríl kl. 17 á sama stað nefnist „Dómkirkjan, borgin og kon- ungsvaldið“. Hér er um einstakt tækifæri að ræða fyrir þá fjölmörgu íslend- inga sem hafa áhuga á miðalda- sögu og menningu miðalda, en fyrirlestrarnir eru opnir öllum að kostnaðarlausu. Rétt er að vekja athygli á því að í dag og á morgun mun prófessor Georges Duby, sem er heims- þekktur sérfræðingur í miðalda- sögu og kennari við College de France í París halda fyrirlestra í Háskóla íslands. Fyrri fyrirlesturinn, sem verð- ur fluttur á frönsku í sal 101 í Odda í dag kl. 17, fjallar um kjöj kvenna í Frakklandi á 12. öld, en

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.