Þjóðviljinn - 07.06.1987, Síða 4

Þjóðviljinn - 07.06.1987, Síða 4
HVAÐER EINHVERFA Á hverju óri greinast að meðaltali tvö einhverf börn. Þau mynda ekki eðlileg félagsleg eða tilfinningaleg tengsl við aðra en lifa í sínum eigin heimi Á hverju ári greinast að með- altali tvö einhverf börn hér á landi. Sjúkdómurinn ein- hverfa var fyrst uppgötvaður af Bandaríkjamanninum Kanner fyrir u.þ.b. hálfri öld. Lengst af töldu menn að börn gætu ekki verið geðveik og var sú skoðun býsna lífseig. Höfuðeinkenni allra ein- hverfra barna eru þrjú: . í fyrsta lagi getuleysi til að mynda félagsleg og tilfinningaleg tengsl við annað fólk. Barnið vill einatt vera algerlega í friði í sín- um heimi sem lýtur þess eigin lög- málum. Þannig myndast ekki eðlileg tengsl við foreldra eða önnur börn. Mörg einhverf börn virðast heyrnarlaus, þar sem þau sýna litla sem enga svörun við hljóðum úr umhverfinu og kemur það heim og saman við almennt áhugaleysi þeirra á öllu öðru en eigin hugarheimi. I öðru lagi þroskast málskiln- ingur og málnotkun einhverfra barna mun síðar en hjá öðrum. Um helmingur þeirra er með öllu mállaus. Hjá þeim sem á annað borð læra að tala gerist það seint og aldrei til fulls. Mjög algengt er að þau noti 2. persónufornöfn um sjálf sig, spyrji t.d. „ertu að gráta?“ þegar þau eiga við að þau séu sjálf að gráta. Einhverf börn nota mál yfirleitt lítið til að tjá langanir sínar og þarfir. Miklu al- gengara er að þau noti fullorðið fólk eins og tæki: Leiði það að því sem þau vilja láta ná í eða láta gera fyrir sig. í þriðja Jagi eru einhverf börn mótfallin öllum breytingum í sínu nánasta umhverfi. Þau þarfnast þess að allt sé í föstum skorðum og líður beinlínis illa ef einhver röskun verður þar á. Þau taka gjarnan ástfóstri við einhvern einn hlut, og eru óhuggandi ef hann er tekinn af þeim. Þau geta einnig fengið gríðarlegan áhuga á hlutum eins og götuheitum, bíl- númerum eða fæðingardögum fólks og sýna þá oft ótrúlegt minni. Sjúkdómseinkennin geta verið fleiri og margbreytilegri og börnin eru haldin þeim í mjög mismiklum mæli. Einhverf börn eru að því leyti frábrugðin öðrum fötluðum og þroskaheftum börnum að þau líta oftast eðlilega út. Því getur verið erfitt fyrir ókunnugt fólk að átta sig á þessum börnum og sjúk- dómi þeirra. Þau geta átt það til að reka upp gól á götum úti, pota í fólk í strætisvögnum og rífa vörur úr hillum verslana. For- eldrar einhverfra barna veigra sér þessvegna oft við að vera með þau á almannafæri og einangrast vegna sjúkdóms barns síns. Með- al annarra vandamála sem for- eldrar þurfa að takast á við er að mataræði barnanna er oft á tíðum einhæft. Börnin varast ekki hætt- ur og geta farið sér að voða ef ekki er með þeim fylgst. Jafn- framt geta einhverf börn verið á- rásargjörn. Árásargirnin getur beinst jöfnum höndum að öðru fólki og þeim sjálfum. Þau geta átt það til að bíta sig og slá höfð- inu við. Einhverfa er ólæknandi sjúk- dómur en í flestum tilvikum er hægt að draga verulega úr ein- kennum og bæta líðan sjúklings- ins, t.d. með því að rjúfa að nokkru félagslega einangrun hans, og gera hann að einhverju leyti sjálfbjarga við athafnir dag- legs lífs. Þrátt fyrir mikinn fjölda rannsókna sem gerðar hafa verið á einhverfu er ekkert sem bendir til þess að hann sé arfgengur. Víðtækar rannsóknir hafa verið gerðar til þess að komast fyrir um orsakir sjúkdómsins, án þess að afgerandi niðurstöður hafi feng- ist. Rannsókir hafa sýnt að um 60% einhverfra einstaklinga verða aldrei færir um að lifa sjálfstæðu lífi. Um 25% ná það miklum framförum að þeir verða sjálfstæðir við ýmis verk eða at- hafnir en þurfa samt sem áður eftirlit. Um 15% aðlagast nokk- uð vel félagslega, geta til dæmis stundað vinnu, en sýna áfram sérkennilega hegðun og eiga í erf- iðleikum með að mynda tengsl við aðra. Þessir erfiðleikar valda því að einhverfir stofna sjaldan til sambands við hitt kynið og mjög sjaldgæft er að þeir gangi í hjóna- band. Dúkrista sem Áslaug gerði þegar hún var 19 ára. Myndin sýnir fólk og inni í því er fleira fólk... (s og fleira góðgæti Áslaug notar myndirnar sínar einatt til að koma á framfæri löngunum sínum. Þannig getur hún gert sig skiljanlega að nokkru leyti, þótt hún tali ekki. Góður Brýnasta verkefnið í málefnum einhverfra er að koma upp vinnu- aðstöðu fyrir þá krakka sem eru aðljúkanámi. Þaðhefurreynst okkur afar erfitt að koma þeim í vinnu annarsstaðar sem hentar þeirn," sagði Sigríður Lóa Jóns- dóttir, forstöðumaður Meðferð- arheimilis fyrir einhverf börn að Trönuhólum 1. Heimilið var sett á laggirnar árið 1982. Þá voru tekin inn sjö börn og hefur ekkert þeirra verið útskrifað. Sigríður Lóa var beðin um að rekja þróun síðustu ára í málum einhverfra. „Árið 1971 var barnageðdeild fyrst stofnuð og þá var byrjað að taka einhverf börn til meðferðar. Það kom þó fljótlega í Ijós að deildin annaði ekki þeirri eftir- spurn sem var fyrir hendi. Þannig „stíflaðist“ geðdeildin fljótlega af einhverfum börnum, en vita- skuld þurfa fleiri börn á þjónustu að halda en þau. Það var síðan upp úr 1976 sem forsvarsmenn deildarinnar fóru að knýja á um að sett yrði á stofn sérstakt með- ferðarheimili fyrir einhverf börn. Um svipað leyti var stofnað Um- sjónarfélag einhverfra barna, sem gerði það að sínu baráttu- máli, og stofnaði í því skyni hús- byggingarsjóð. Arið 1980 voru samþykkt lög um aðstoð við þroskahefta, sem gerðu m.a. að verkum að hægt var að kaupa húsið að Trönuhól- um. Það þurfti að gera ýmsar breytingar á því, þannig að heimilið opnaði ekki fyrr en haustið ’82. Þar með urðu tíma- mót í þessum málum.“ - Fullnægir þetta eina heimili þeirri þörf sem fyrir þjónustuna er? „Nei, enganveginn. Þessi mál eru þó alls ekki í kyrrstöðu - því seinna á þessu ári verður heimil- inu hér breytt í sambýli fyrir ein- hverfa unglinga, jafnframt því sem nýtt meðferðarheimili verð- ur stofnað á Seltjarnarnesinu. Unglingarnir sem hafa verið hjá okkur frá upphafi eru nú á aldrinum 14-20 ára. Þau verða öll áfram hér þegar heimilinu verður breytt í sambýli. Nýja meðferðar- heimilið tekur síðan inn yngri börn.“ Geta barnanna misjöfn - Fullnægir nýja heimilið 4 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 7. júnl 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.