Þjóðviljinn - 07.06.1987, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 07.06.1987, Blaðsíða 7
Alloballar í Njálssögu Alda Sveinsdóttir hefur myndskreytt „Hallgerðarþótt Langbrókar”. Fyrirmynd- irnar- að sjólfsögðu forystumenn Alþýðu- bandalagslns „Mérfinnst Kristín Á. Ólafs- dóttir alls ekki vera lík Hallgerði Langbróksem per- sónu. Hinsvegarþykirmér Kristín svo glæsileg kona að hún kemur heim og saman við hugmyndir mínar um útlit Hall- gerðar. Það er líka svo mikil reisn yfir Kristínu - rétt eins og Hallgerði... ÁsmundurStef- ánsson þótti mér óskaplega skemmtilegur, - hann lét ein- hvernveginn alveg að stjórn sem Skarphéðinn Njálsson. Hann er líka svo einstaklega lifandi, myndrænt séð...“ Þetta sagði Alda Sveinsdóttir. Á dögunum útskrifaðist hún úr Myndlista- og handfðaskóla ríkis- ins. Sem lokaverkefni valdi hún sér að myndskreyta „Hallgerðar- þátt Langbrókar“, sem hún vann uppúr Njálssögu. Hallgerðarþáttur er uppá hérum- bil 90 síður og er hver síða mynds- kreytt. En afhverju Hallgerður? „Fyrir mér er þetta kannski fyrst og fremst spurning um rétt- arstöðu konunnar á þjóðveldis- öld og hvernig hún gat haldið reisn sinni og virðingu. Nútíma- konur á íslandi hafa afskaplega góða hefð að þessu leyti og ég held að það sé fátítt að menning- ararfur einnar þjóðar sé jafn hag- stæður fyrir konur og í okkar til- viki. Hallgerður er sérstaklega áhugaverð. Hún er erfið kona á margan hátt, með erfiða lund og það eru margar hliðar á henni. Ég er nú ekki alltaf ánægð með hana og hefði sjálf brugðist öðruvísi við en hún í mörgum tilfellum." Var þetta ekki mikið verk: Að gera myndir á 90 síður og það af svona stórslekti? „Jú, það var ansi mikið verk. í upphafi ætlaði ég að einfalda textann miklu meira. Mér hefur fundist það skaði að unglingar virðast ekki nenna að lesa forn- sögurnar. Þær eru nefnilega ó- skaplega skemmtilegar og spenn- andi bókmenntir. Hugmynd mín var sú að teyma fólk áfram með myndmáli samhliða textanum. Myndlestur er orðinn svo stór þáttur í nútímanum: í mynda- sögum, bíómyndum og kennslu- bókum svo eitthvað sé nefnt." Og þú valdir enga aukvisa sem fyrirmyndir að persónum Njálu... „Nei, það má nú segja! Samt sem áður var það dálítil tilviljun. Ég fór fyrst á myndasafn DV og ætlaði að fá lánaðar myndir af ýmsum leikurum. Þeir á DV nenntu ekkert að sinna mér og töldu öll tormekri á að ég gæti fengið að ganga í safnið þeirra. Tómt vesen, sögðu þeir. Þá fór ég á Þjóðviljann og þar var þetta es- kkert mál: Ég gat fengið að skoða allar þær myndir sem ég vildi.“ Kristín varð að Hallgerði og Ásmundur að Skarphéðni. Hvað með Gunnar, Njál og Bergþóru og það fólk alltsaman? „Gunnar á Hlíðarenda var mjög erfiður. Ragnar Arnalds var kandídat framanaf en það gekk ekki upp. Þeir áttu ekki saman. Eins var með Njál, mér gekk brösullega að finna ein- hvern sem gæti tekið að sér hlut- verk hans. Ég ætlaði að nota Árna Bergmann sem fyrirmynd en varð að hætta við það, af því það voru ekki til nógu fjölbreyti- legar myndir af honum. Síðan notaði ég Guðrúnu Helgadóttur sem Bergþóru. Það var mikið til að lifandi ljósmynd- um af henni. Það er alveg augljóst að ljósmyndurunum ykkar finnst gaman að taka myndir af Guðrúnu. Ég varð að vísu að gera hana dálítið harðari Heimilisfólkió á Bergþórshvoli. Margir munu kannast við þessa mynd úr kosningabaráttu Alþýðubandalagsins. Ásmundur, Olga Guðrún, Guðrún Helgadóttir, Álfheiður, Svavar... og Össur! sem karakter en eftir það var ég mjög ánægð með árangurinn." Hvað með afganginn af eigin- mönnum Hallgerðar? „Það var nú satt að segja tals- verður höfuðverkur. En Ólafur Ragnar Grímsson varð að Glúmi. Það var afar skemmtilegt að geta notað Ólaf, því hann hefur yfir- bragð víkingsins. En ég varð að vísu að bæta á hann skeggi.“ Þessar myndskreytingar, - eru þær kannski einnlegg í um- ræðuna um málefni Alþýðu- bandalagsins? „Nei, hreint ekki! Og ég sé þessar pesónur ekki endilega sem allaballa, þótt það sé vissulega togstreita á báðum vígstöðvum. En á sýningu sem haldin var á lokaverkefnum nemenda úr MHÍ var stungið upp á því að fólkið á Bergþórshvoli væri verkalýðs- armur Alþýðubandalagsins.“ Og hvað verður nú um Hallgerðarþátt Langbrókar? „Á þessari sýningu komu ótrú- lega margir að máli við mig sem vildu að þetta yrði gefið út og fannst tilvalið handa unglingum t.d. En margt eldra fólk hafði gaman af þessu líka og sagðist gjarnan myndi vilja eiga svona bók. Og nú er eitt forlagið að athuga málið, - svo það er aldrei að vita nema Hallgerðarþáttur verði gef- inn út áður en langt um líður!“ -i\i Skarphé&inn Njálsson á þlngi.Þegar Ijósmyndari Þjóðviljans sá þessa mynd kannaðist hann strax við fyrirmyndina: Ásmund Stefánsson á vinnu- staðafundi hjá SÍS! Glúmurog Hallgor&urgiftast.-aðbakiþeimstendurÞjóstólfurvígbúinn, Hallger&ur moft Þorger&i dóttur sfna. „Kristín er glæsileg konaog kemur heim og saman við hugmyndir mfnar Kristín Á. Olafsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson! um útlit Hallgerðar...” Sunnudagur 7. junf 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.