Þjóðviljinn - 07.06.1987, Síða 14
SKAK
Erfiðir dagar í Búkarest
Sveit TR slegin út
í klúbbakeppni Evrópu
Taflfélag Reykjavíkurtókífyrsta
skipti í sögu félagsins þátt í Evr-
ópukeppni taflfélaga. Það hafa
um langt skeið verið skiptar
skoðanirum hvortfélagið, sem
stendur undir geysilega þýðing-
armikilli unglingastarfsemi sem
hvað eftir annað ber blómlegan
ávöxt, nú síðast með sigri Hann-
esar Hlífars Stefánssonar á
heimsmeistarmóti sveina, ásamt
annarri starfsemi einnig mjög
viðamikilli, eigi að taka slíkt spor
og eftir mikinn þrýsting frá ýms-
um sterkustu skákmönnum fé-
lagsins ásamt nýjum stjórnar-
mönnum var farin þessi leið.
Taflfélag Reykjavíkur hefur
ávallt haft innan sinna vébanda
sterkustu skákmenn landsins,
Reykjavík enda höfuðvígi skák-
listarinnar, og verður því varla
breytt á næstu árum og ára-
tugum. Til ferðarinnar völdust
allir meðlimir íslensku sveitar-
innar sem gerði garðinn frægan á
Ólympíumótinu í Dubai í Sam-
einuðu Arabafurstadæmunum.
Var sveitin þannig skipuð: 1
borð: Helgi Ölafsson, 2. borð:
Jóhann Hjartarson, 3. borð: Jón
L. Árnason, 4. borð: Margeir
Pétursson, 5. borð: Guðmundur
Sigurjónsson, 6. borð: Karl Þor-
steins og varamaður var Þröstur
Þórhallsson. Farar- og liðsstjóri í
ferðinni til Rúmeníu var Jón G.
Briem, formaður TR. Þessi sveit
var á pappírnum mun sterkari en
sveit Rúmenanna en þeir höfðu
þó innan sinna vébanda
þrautreynda landsliðsmenn sem
hafa tekið þátt í örfáum Ólym-
píumótum. Rúmenar voru fyrir
u.þ.b. 20 árum stórveldi í skák-
inni, ávallt í flokki þeirra fremstu
á Ólympíumótum en nokkuð hef-
ur dregið úr gengi þeirra; þegar
aðrar þjóðir hafa tekið stórkost-
legum framförum hefur mátt
finna greinileg merki stöðnunar
hjá Rúmenum. Upplýsingabylt-
ing hefur ekki náð yfir landamær-
in og með örfáum undantekning-
um eiga þeirra bestu menn erfitt
með að fá leyfi til að taka þátt í
skákkeppnum á Vesturlöndum
og er ástandið þar eigi ósvipað
því sem gerist í Á-Þýskalandi þar
sem skákmenn hafa ekki fengið
fararleyfi á skákmót til Vestur-
landa um langt árabil þ.m.t. Ól-
ympíumót.
Skákkeppni taflfélaga í Evr-
ópu hefur verið í stöðugum upp-
gangi hin síðari ár, og er svo kom-
ið að mörg taflfélög einkum í
Þýskalandi, Hollandi og Sovét-
ríkjunum tefla fram ægisterkum
sveitum. CSKA Moskva vann
þessa keppni í fyrra en á fyrsta
borði tefldi Anatoly Karpov og á
öðru borði Artur Jusupov. Aðrar
ægisterkar sveitir má nefna sem
taka þátt í keppni nú s.s. Volmac
Rotterdam með þá Timman og
Kortsnoj og Porz í V-Þýskalandi
með HBner, Short og Spasskí.
Taflfélag Reykjavíkur hélt út í
þessa keppni með glæstar vonir
og það stóð aldrei annað til en að
sigra Rúmena og komast sem
allra lengst. Ólympíumenn ís-
lands hafa aldrei byrjað sérlega
vel í sveitakeppnum og að þessu
sinni komust þeir aldrei almenni-
lega í gang. Niðurstaðan varð
jafntefli 6:6 og vegna hagstæðra
stiga komast Rúmenar áfram.
Það var erfiður biti að kyngja.
Fyrri umferð
Fyrri umferð keppninnar fór
fram í námunda við háskóla-
hverfi tækniskólans í Rúmeníu
ekki víðsfjarri kjarnorkuveri sem
staðsett var í borginni inanum
mannabústaði. Taflfélagssveitin
stillti upp Ólympíuliðinu og urðu
úrslit þessi:
IR- Polyteknika Búkarest
31/ . 1/
1. b.: Helgi - Ghinda 1:0
2. b.: Jóhann Stoica
4. b.: Margeir - Marin 0:1
5. b.: Guðm. - Dumitrache 1:0
4. b.: Karl - Stanciu i/2.J/2
Hætt er við að liðsmenn hafi
ekki dregið lærdóm af úrslitum
fyrri umferðar því staðreyndin
var sú að við áttum í mesta basli
og flest fór úrskeiðis í byrjunar-
taflmennskunni. Ég varð t.d. illa
úti í Grúnfeldsvörn Ghinda og
fékk greinilega lakara tafl. En
smátt og smátt batnaði staðan og
undir lokin snerist dæmið alger-
lega við og sigur vannst. Guð-
mundur vann eftir miklar svipt-
ingar en hann stóð höllum fæti
eftir byrjunina og það sama má
segja um Jóhann og Jón sem
gerðu stutt jafntefli. Karl átti
hinsvegar í fullu tré við andstæð-
ing sinn og missti af sigrinum í
miklu tímahraki. Margeir tapaði
fyrir Marin en sá er ein mesta von
Rúmena og ávann sér nýlega
þátttökurétt á millisvæðamóti.
Ásamt Ghinda var hann lang-
hættulegasti liðsmaður Polytekn-
ika en Ghinda var í Ólympíuliði
Rúmena síðast og rakaði saman
vinningunum. Niðurlag skákar
minnar við hann var athyglisvert:
Tilkynning frá
Ferðaþjónustu bænda
Vegna lokunar á Hótel Sögu vikuna 9.-14. júní
veröur skrifstofa Ferðaþjónustu bænda flutt um
stundarsakir í skrifstofu á 4. hæð Hafnarstrætis
20 dagana 8.-12. júní.
Pöntunum á gistingu og sumarhúsum hjá bænd-
um verður veitt viðtaka á staðnum og í síma
19200.
Við upphaf viðureigna TR og Polyteknika Búkarest. Margeir Pétursson er fremstur á myndinni en fjær eiga þeir
Guðmundur Sigurjónsson og Karl Þorsteins í höggi við Dumitrasche og Stanciu.
Hxc421. Dxa7Hf722. exd5 Bxd5
23. Dbó Dxbó 24. Bxbó Bb7 25.
Be3 Hb4 26. b6 g5 27. f3 Ha4 28.
Hd2 e4 29. fxe4 Hxfl+ 30. Kxfl
Hxe4 31. Hd8+ Kp 32. Hd7+
He733. Hxe7+ Kxe734. Rf2 Kd7
35. Rd3 Ba6 36. Ke2 Kc637. Kd2
Bc4 38. a4 Kb7 39. a5 Bd5)
Síðasti leikur svarts var ekki
beint heppilegur en hann var í
gífurlegu tímahraki. Betra var
39. - Bf8 þó hvítur hafi eftir sem
áður allgóða vinningsmöguleika.
40. a6+! Ka8
(Ekki 40. - Kxa6 41. Rb4+ og
vinnur. En nú vinnur hvítur taflið
með skemmtilegri riddarahring-
ekju.)
41. Rc5 Bc6
(Eða 41. - Bxg2 42. b7+ Bxb7 43.
axb7+ Kb8 44. Bgl! Be5 45.
Rd7+ og vinnur. Hvítur fær í
öllum tilfellum upp endatafl með
kóng, biskupi og riddara gegn
og undirritaður í vondum stöð-
um. Margeir tapaði aftur og
Ghinda náði fram hefndum. Karl
lagaði stöðuna með góðum sigri
en Guðmundur var neyddur til að
tefla hartnær tapað tafl til sigurs.
Um síðir sættust keppendur á
jafntefli og úrslitin urðu 6:6. Þó
TR ynni á tveimur borðum kom-
ust Rúmenarnir áfram því vægi
borðanna var mismunandi.
Þannig voru gefÍQ 6 stig fyrir sigur
á 1. borði, 5 stig fyrir sigur á 2.
borði og svo koll af kolli. Sigrar
Marins á 4. borði vógu því þyngra
á metunum heldur en sigrar Karls
og Guðmundar á fimmta og
sjötta borði. Úrslitin urðu þessi:
1. b.: Helgi - Ghinda 0:1
2. b.: Jóhann - Stoica 1/2:'l2
3. b.: Jón - Ghiteschu ;/://2
4. b.: Margeir - Marin 0:1
5. b.: Guðmundur - Barechet 1:0
6. b. Karl - Stanciu 1:0
Be3 Dc7 11. Hcl Hd8 12. Dd2
Re5 13. Bb3 c4 14. Bc2 Rg4 15.
Bf4 e516. Bg3 Da517. Hfdl exd4
18. cxd4 Dxd2 19. Hxd2 b5 20.
Hbl a6 21. Bh4 Hd7 22. h3 Re5
23. Hddl Rc6 24. d5Re725. Rd4
Bb7 26. a4 h6 27. axb5 axb5 28.
Rxb5 Ha2 29. Hbcl Ba6
Gleðitíðindifyrirskákunn- endur. Helgi Ólafsson, stór- meistari í skák, byrjar nú aftur að skrifa um skák fyrir Þjóð- viljann eftir nokkurra ára hlé. Skákþættir Helga í Þjóðviljan- um vöktu á sínum tíma mikla athygli og er blaðinu sérstök ánægja að fá hann aftur til starfa. i!
abcdefgh
Helgi - Ghinda
(1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4.
cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7
7. Bc4 0-0 8. Be3 Rc6 9. h4 e510.
d5 Ra5 11. Bd3 c6 12. c4 b5 13.
cxd5 cxb5 14. h5 Bb7 15. hxgó
fxgó 16. Rh3 h6 17. Da4 Hc8 18.
Hdl Hc3 19. 0-0 Rc4 20. Bxc4
kóngi sem er tiltölulega einfaldur
tæknilegur vinningur þó hann
eigi það til að vefjast fyrir jafnvel
sterkustu skákmönnum.)
42. Re6 Be5
(Þvingað vegna hótunarinnar 43.
Rc7+)
43. Rd8! Bxg2
44. b7+ Bxb7
45. axb7+
- og svartur gafst upp þar sem
hann tapar biskupnum eftir 45. -
Kb8 46. Rc6+ o.s.frv.
Seinni umferð
TR- Polyteknika Búkarest
2V2: 31/2
Rúmenar komu geysilega á-
kveðnir til leiks í seinni umferð
en hjá hverjum og einum okkar
hinna virtist það hugarfar gilda
að þetta yrði „ósköp hversdags-
Iegur dagur á skrifstofunni“.
Innan skamms voru flestir okkar
komnir í sömu botnlausu erfið-
leikana og í fyrri umferðinni að
Karli undanskildum. Að vísu
fengu Jóhann og Jón pappírana
undirritaða tiltölulega fljótt en
eftir sátu Guðmundur, Margeir
Skák Karls var eina glætan hjá
sveit TR. Andstæðingur hans
hinn gamalreyndi Stanciu hefur
teflt á fjölmörgum Ólympíu-
mótum. Hann beitti frekar
hæpnu afbrigði af Grúnfelds-
vörninni, lagði mikið á stöðuna
og upp kom staða þar sem spurt
var um hvort miðborðspeð hvíts
væru sterkari en frípeð svarts á
drottningarvæng. Karl svaraði
þeirri spurningu fyrir sitt leyti
með því að splundra peðafylk-
ingu svarts og að lokum skreið
hvítt alla leið upp í borð. Athygl-
isverð er staðan eftir 30. Rc7!
sem margir héldu að væri af-
leikur. Síðar kom í ljós að svo var
ekki. Eftir 30. - Hxc7 31. d6 g5
32. Bg3 Hd7 33d. dxe7 Hxe7 34.
Hd8+ Kh7 35. e5+ vinnur hvítur
óumflýjanlega skiptamun og þar
með skákina.
Hvítt: Karl Þorsteins
Svart: Stanciu
Grunfeldsvörn:
1. d4Rf62. c4g63. Rc3d54. cxd5
Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7.
Bc4 c5 8. Re2 0-0 9. 0-0 Rc6 10.
/30. Rc7g531. Bg3 Bb732. Re8f5
33. d6 f4 34. dxe7Hxc235. Rf6+
- Svartur gafst upp.
Rúmenía fannst okkur for-
vitnilegt, því land og þjóð var í
sviðsljósinu um það leyti sem
keppnin fór fram vegna heim-
sóknar Gorbatsjofs Sovétleið-
toga. Það er vart hægt að fá heil-
lega mynd af þjðlífinu með svo
stuttri heimsókn en glöggt er
gestsaugað. Maður hefur víða
þvælst um dagana og Rúmenía er
eitt hið dapurlegasta land sem ég
hef heimsótt. Það er staurblindur
maður sem mælir þessum
ósköpum bót. Mannleg samskipti
eru með þeim hætti að það varðar
við lög hafi almenningur einhver
hin minnstu samskipti við útlend-
inga. Búkarest er um margt falleg
borg en heldur drungaleg þegar
kvölda tekur. Stræti illa upplýst
eða alls ekki. Það leyndi sér ekki
að þarna bjó hnípin þjóð í vanda.
Ég gat ekki betur séð en við vær-
um með kátari mönnum t.d. í
neðanjarðarlestum og vorum við
þó í daufara lagi.
Sjálfsupphafning Ceaueschu
forseta Rúmeníu birtist með
ýmsu móti. Út um borg og bý
reisir hann sér minnisvarða s.s.
eins og eina gríðarlega forseta-
höll sem bráðnauðsynlegt þykir
að koma upp ásamt feiknarlegum
mannvirkjum undir hið opin-
bera. Persónudýrkun er geysileg,
bækur foringjans virtust vera
aðal söluvaran í bókaverslunum
og jafnvel skákblöð voru ekki
undanþegin ávarpi foringjans
glæsilega myndskreyttu. Gest-
gjafar okkar voru hinsvegar hið
prýðilegasta fólks sem reyndi að
gera stutta dvöl sem ánægjuleg-
asta.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 7. júnf1987