Þjóðviljinn - 07.06.1987, Qupperneq 19
Jörðin er flöt
og bœnin
gagnslaus
Afbók um menn sem höfðu hinar undarlegustu
skoðanir
Til er bresk bók, sem margir
munu vafalaust hafa ánægju af
aö blaða í, og fjallar um sérvitr-
inga og þeirra furðulegu skoðanir
og það merkilega kapp sem þeir
lögðu á það að sanna mál sitt.
Hún heitir „Eccentric lives and
peculiar notions" og höfundur er
John Mitchell.
Dag nokkum, segir í umsögn
um bók þessa sem hér verður
vitnað til, var maður að nafni Ro-
bert Blatchford að boða guðleysi
á hinu fræga „horni“ í Hyde Park.
Einhver náungi var sífellt að and-
mæla honum og Blatchford
skoraði á þann hinn sama að
sanna tilveru guðs á stundinni.
Herra minn, sagði framígrípand-
inn, ég efast um yðar tilveru.
Gjörið svo vel að sanna mér að
þér séuð til. Þetta kom svo flatt
upp á Blatchford, að hann steig
ofan af sínum kassa og yfirgaf
svæðið.
Ljósmynd af laki
Þessi ræðutruflari hét Mulgra-
ve og hafði áður verið prestur.
Hann var eindreginn baráttu-
maður fyrir þeirri kenningu að
jörðin væri flöt og starfaði með
lafði Blount að útgáfu tímarits,
sem kallað var Jörðin - helsti
boðskapur þess var að kveða í
kútinn “ballarsinna" eða þá sem
tóku það gott og gilt að jörðin
væri hnöttur.
Árið 1905 gerði frú þessi til-
raun sem „sannaði“ að jörðin
væri flöt. Vettvangur tilraunar-
innar var langur og þráðbeinn
skipaskurður. Um fimm metra
langt lak var hengt af brú og náði
til yfirborðs vatnsins í skurðinum
og síðan var tekin mynd af lakinu
með myndavél sem var stillt
tveim fetum yfir vatnsborðið í sex
mflna fjarlægð.
Samkvæmt kenningu ballar-
sinna átti neðri endi laksins að
hverfa undir sjónmál. En ljós-
myndin sýndi ekki aðeins allt lak-
ið heldur og endurspeglun þess í
vatni. Þar með var fengin hin
merkasta og ótvíræðasta sönnun
fyrir því að jörðin er í reyndinni
flöt.
Til voru þó enn róttækari menn
eins og dr. Cyrus Teed, sem var
ekki aðeins harður andstæðingur
hnattarsinna heldur og flatköku-
sinna. Hann taldi að við byggjum
ekki utan á hnetti heldur innan í
honum. Og sannaði það að sjálf-
sögðu með ótvíræðum hætti.
Bænin og kóngarnir
í þessari bók, sem kom út hjá
forlaginu Thames and Hudson,
kennir margra grasa. Þar er að
sjálfsögðu margt sagt frá þeim
sem hafa leitað að höfundi
leikrita Shakespeares (en ótrú-
legur fjöldi manna hefur aldrei
trúað því að sá leikaraaumingi
hafi samið verkin sem við hann
eru kennd). Þarna er greint til
dæmis frá mönnum sem hafa bor-
ið fram merkar kenningar um
réttlæti, eins og til dæmis Galton
sá, sem vildi leiðrétta refsikerfið.
Hann sagði, að úr því að menn
væru misjafnlega næmir, þá ættu
dómarar að dæma fólk til refsinga
eftir því sem hann kallaði „þján-
ingareiningar“. Sá sem næmari er
fær þá miklu vægari dóm fyrir af-
brot en þykkskinnungur.
Galton þessi gerði og merki-
lega úttekt á mætti bænarinnar.
Hann sagði sem svo: Ekki er jafn
mikið og heitt beðið fyrir lífi og
heilsu neinna manna og kónga.
Samt kemur það á daginn að
kóngar lifa skemur í raun en aðrir
þeir sem búa við góð efni. Af því
leiðir að máttur bænarinnar er
enginn - eða verra en það!
áb tók saman.
Einnota buxnableyjur
MEÐ LIMBORÐA SEM AUÐVELT
ER AÐ LOSA OG FESTA AFTUR.
Rakaheldnar og meö mjúkan teygjukant. Falla vel aö
barninu. HAGSTÆTT VERÐ.
LIBERO MINI: Fyrir börn sem eru 3-5 kg. 44 stk.
LIBERO SUPER: Fyrir börn sem eru 4-10 kg. 36 stk.
LIBERO MAXI: Fyrir börn sem eru 9-18 kg. 30 stk.
KAUPSELSF.
LAUGAVEGI 25
SÍMAR: 27770 OG 27740
VATO
glörðu
svo vel
Hvort sem þú ætlar að veita vatni um lengri eða skemmri veg
er varla til auðveldari og ódýrari leið
en gegnum rörin frá Reykjalundi.
Rörin frá Reykjalundi eru viðurkennd fyrir gæði
og auðvelda meðferð.
Flestar stærðir vatnsröra, kapalröra, frárennslisröra
og hitaþolinna röra eru jafnan til á lager og
með tiltölulega stuttum fyrirvara er hægt að afgreiða sverari rör.
Sérstök áhersla er lögð á mikla og góða þjónustu.
Rörin frá Reykjalundi
- rör sem duga.
REYKJALUNDUR
Söludeild • Sími 666200