Þjóðviljinn - 29.07.1987, Page 6

Þjóðviljinn - 29.07.1987, Page 6
Tilkynning til matvörukaupmanna frá fjármálaráðuneytinu Samkvæmt reglugerð nr. 337/1987 ber frá og með 1. ágúst n.k. að greiða 10% sérstakan sölu- skatt af allri matvöru annarri en þeirri sem talin er upp hér á eftir: a) Nýmjólk, G-mjólk, léttmjólk, rjómi, sýrður rjómi, kaffi- og þeytirjómi, skyr (hreint sem blandað), sýrð mjólk, jógúrt (hrein sem blönduð), mysa, undanarenna og smjör. b) Allur ostur, þ.m.t. kostasæla. c) Nýrfiskur, þ.m.t. vatnafiskur, humar, rækjaog skelfiskur, hvort sem hann er heill, flakaður, hakkaður eða bútaður. Sama á við um saltað- an, siginn, frosinn, reyktan, grafinn, krydd- leginn (einnig í brauðraspi) og kæstan fisk. Fiskur sem hlotið hefur einhverja vinnslu- eða geymslumeðferð umfram það sem að ofan greinir er hins vegar skattskyldur. d) Nýttjfrosið, reykt, sýrt og saltað kjöt. Sama á við um niðurskorið, kryddlegið (einnig í brauðraspi), úrbeinað og hakkað kjöt, kjöt- álegg sem ekki er niðursoðið, kjötfars, pylsur, bjúgu, svið, sviðasultu, hrútspunga og ótilreitt sem og tilreitt slátur. Kjöt sem hlotið hefur vinnslumeðferð umfram það sem að framan greinir er skattskylt. e) Matjurtir, þ.e. nýir ávextir, nýtt grænmeti og garðávextir, sem ekki hafa fengið neina vinnslumeðferð aðra en þvott og pökkun í smásöluumbúðir. f) Egg g) Smjörlíki h) Matvara sem er söluskattsskyld, sbr. 2. mgr. 2. tl. 13 gr. reglugerðar nr. 486/1982 um sölu- skatt með síðari breytingum, svo sem gos, sælgæti o.fl. Fjármálaráðuneytið, 27. júlí 1987 Tilkynning til bakara frá fjármálaráðuneytinu Athygli bakara er vakin á því að frá og með 1. ágústn.k. beraðgreiða 10% sérstakan söluskatt af framleiðsluvörum þeirra. Gjaldskyldum aðilum ber að tilkynna viðkomandi skattstjóra um starf- semi sína fyrir 1. ágúst n.k. Þeir sem þegar eru á söluskattsskrá eru þó undanþegnir tilkynninga- skyldu vegna sérstaks söluskatts. Fjármálaráðuneytið 27. julí 1987 Deildar- þroskaþjálfa Vantar til framtíðarstarfa á sambýli og skammtímavistun félagsins að Víðihlíð. Upplýsingar gefa Solveig Theódórsdóttir í síma 31667, Sveinbjörg Kristjánsdóttir í síma 688185 og skrifstofa félagsins að Háteigsvegi 6, sími 15941. Kennarar Kennara vantar að Grunnskóla Reyðarfjarðar. Kennslugreinar: Enska, handavinna og almenn kennsla. Húsnæði og önnur fyrirgreiðsla í boði. Upplýsingar gefur formaður skólanefndar í síma 97-4101 eða 97-4110. Skólanefnd Dýralæknar Fræðsluna þarf að auka Engin rannsóknaraðstaðafyrir dýralœkna ísláturhúsunum. Þörfá tilraunasláturhúsi og kennslufyrir starfsfólk Fjölmargar ályktanir voru samþykktar á aðalfundi Dýra- læknafélags íslands á Selfossi og á samhliða ráðstefnu um kjöt- skoðun, kjötvinnslu, lyfjaleifar í matvælum og sjúkdóma sem bor- ist geta í menn úr matvælum. f frétt frá Dýralæknafélaginu segir að þar sem dýralæknar annist allt heilbrigðiseftirlit með sláturaf- urðum og í sláturhúsum snerti at- burðir síðustu mánaða og vikna þá mjög. „Dýralæknar gera sér fyllilega grein fyrir sinni ábyrgð. Þeim er því miður ekki gert kleift í dag að hafa eftirlit með ósýnilegum göllum eins og t.d. salmohellu. Þeir hafa enga rannsóknaaðstöðu í sláturhúsunum og engin rannsóknarstofa er nógu öflug til að taka við sýnum frá öllum slát- urhúsum samtímis, sé það nauðsynlegt. Úr þessu þarf að bæta. Einnig þarf að koma á reglubundnu eftirliti með aðskot- aefnum í matvælum, svo sem lyfj- um. Við teljum ekki að lyfjaleifar séu í kjöti, en viljum ganga úr skugga um það með reglubundnu eftirliti eins og gert er með mjólk og mjólkurvörur. Mjög brýnt er að koma á fót tilraunasláturhúsi og kennslu fyrir starfsfólk sláturhúsa.“ í stjórn Dýralæknafélags ís- lands eru: Birnir Bjarnason for- maður, Höfn í Homafirði, Magn- ús H. Guðjónsson ritari, Kefla- vík, Guðbjörg Þorvarðardóttir gjaldkeri, Hólmavík og Gísli Sverrir Halldórsson meðstjórn- andi, Hofsósi. Umhverfisvernd Græn framb'ð græðir iand Ný „grœn“ samtök standafyrir landgrœðsluferð um verslunarmannahelgina. Samtök um grœna framtíð: ofbeldislaustþjóðfélag þarsem virðing fyrir náttúrunni ræður ríkjum Ný samtök umhverfisverndar- fólks, Samtök um græna framtíð, hafa gefið út stefnuyfirlýsingu þarsem mjög er slegið á svipaðar nótur og pólitísk samtök græn- ingja gera erlendis, en fyrsta verkefni samtakanna er land- græðsluferð um verslunarmanna- helgina í samráði við land- græðslustjóra. Skal sáð í rofa- börð í nágrenni Laugarvatns eins og kraftar leyfa. „ Allir þeir sem láta sér annt um íslenska náttúru eru hvattir til að taka þátt. Farið verður með bif- reið frá Guðmundi Jónassyni á föstudagskvöld kl. 20.30 frá BSÍ. Tjaldað verður á Laugarvatni að- faranótt laugardags og farið tii baka á laugardagskvöld. Ferðin er farin til að sýna fram á að al- menningur getur gert eitthvað raunhæft til að stöðva uppblástur landsins og ^nnfremur er ætlunin að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda í þessum efnum," segir í tilkynn- ingu frá samtökunum. I ferðinni verður Regina Op- itz, sem er áhrifamaður í flokki Græningja í Svartaskógi í Þýska- landi og hefur undanfarið ferðast um ísland. í stefnuyfirlýsingu samtakanna segir meðal annars að þau séu „samtök fólks sem vill búa í of- beldislausu þjóðfélagi þar sem virðing fyrir náttúrunni, hinu fé- lagslega umhverfi og manneskj- unni ræður ríkjum. Samtök um græna framtíð berjast fyrir því að mannkynið lifi í samræmi við fé- lagslegt og náttúrulegt umhverfi sitt. Við höfnum öllu sem ógnar lífinu, friði og umhverfinu. Við vinnum að breytingum á friðsam- legan hátt án ofbeldis." Forsvarsmaður samtakanna er Sigurður B. Sigurðsson. Amnesty International Fangar mánaðarins Mannréttindasamtökin Amn- esty International vilja vekja at- hygli almennings á máli eftirfar- andi samviskufanga í júlí. Jafn- framt vonast samtökin til að fólk sjái sér fært að skrifa bréf tii hjálpar þessum föngum og sýna þannig í verki andstöðu sína við að slík mannréttindabrot eru framin. fslandsdeild Amnesty gefur einnig út póstkort til stuðn- ings föngum mánaðarins og fást áskriftir á skrifstofu samtakanna. Jórdanía: Mazin ’Abd al-Waid ai-As’ad er 28 ára rithöfundur. Hann var handtekinn 6. nóv. 1985 af leyni- þjónustumönnum og haldið í að- alstöðvum þeirra í 6-7 vikur þar sem hann var pyntaður til að láta í ljósi stjórnmálaskoðanir sínar. Hann var dæmdur í ágúst 1986 af herrétti í 3 ára fangelsi. Ákæran á hendur honum var aðild að ólög- legum samtökum, sem eiga að hafa það markmið að velta stjórn Jórdaníu, og að taka þátt í fjár- mögnun og dreifingu á ritum sem gefin eru út á vegum þessara sam- taka. Hann mun hafa neitað þess- um ákærum. Mazin’Abd al-Waid al-As’ad var aldrei ákærður fyrir að hafa beitt eða hvatt til ofbeldis né heldur hafa ólöglegu samtökin hvatt til ofbeldis gegn ríkisstjórn Jórdaníu í ritum sínum. Tyrkland: Erhan Tuskan er þrítugur hagfræðinemi. Hann var dæmdur í rúml. 48 ára fang- elsi fyrir kommúnistaáróður. Hann var þá ritstjóri tímarits samtakanna IGD (framfarasinn- uð ungmennasamtök). Hann var dæmdur af herrétti og var þá vitn- að í ýmsar greinar í tímariti því sem hann ritstýrði. Hann var fyrst hafður í haldi í herfangelsi en síðar fluttur í fangelsi sem er eingöngu ætlað pólitískum föng- um. Erhan Tuskan var aldrei sak- aður um að hafa hvatt til né beitt ofbeldi. Fangelsun hans er því í andstöðu við grein 10 í Mannréttindasáttmála Evrópu sem Tyrkland er aðili að. Kína: Chen Erjin er fyrrverandi kennari og töl- fræðingur. Hann hefur verið í fangelsi síðan 1981 vegna stjórnmálaskoðana sinna en þær voru í anda jafnaðarstefnunnar sem ríkti árin 1978-1980. Chen Erjin var handtekinn í apríl 1981 ásamt ritstjórum margra óopin- berra tímarita sem útgefin voru á árunum 1978-1980. Hann var dæmdur 3. júlí 1982 og fékk 10 ára fangelsisdóm. Ákæran á hendur honum var sú að hann hefði haft í huga að stofna and- byltingarsinnaðan stjórnmála- flokk. Chen Erjin skrifaði á árun- um 1975/76 ritgerð sem fjallaði um stéttaskiptingu í Kína og komst að þeirri niðurstöðu að í landinu væri að myndast emb- ættismannayfirstétt. Hann hafði samband við ritstjóra margra óopinberra tímarita til að fá rit- gerð sína útgefna. Hann var handtekinn í kjölfar þess. Þeir sem vilja leggja málum þessara fanga lið, og þá um leið mannréttindabaráttu almennt, eru vinsamlega beðnir að hafa samband við skrifstofu fslands- deildar Amnesty, Hafnarstræti 15, Reykjavfk, sími 16940. Skrif- stofan er opin frá 16-18 alla virka daga. Þar fást nánari upplýsingar sem og heimilisföng þeirra aðila sem skrifa skal til. Einnig er veitt aðstoð við bréfaskriftir ef óskað er. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. júlí 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.