Þjóðviljinn - 19.08.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.08.1987, Blaðsíða 1
Útvegsbankinn íhaldið felmtri slegið Einstakirþingmenn Sjálfstœðisflokksins hóta stjórnarslitum verði Sambandinu seldur Útvegsbankinn. Engin flokkslína innan Alþýðuflokksins um hverfœr bankann, en meirihluti virðistfylgja Sambandinu. Tilgreina kemur að ríkið taki aðalstöðvar Sambandsins við Sölvhólsgötu upp íhluta af kaupverðinu Eg sé ekki hvernig við getum verið áfram í ríkisstjórninni verði einokun Sambandsins í ís- lensku viðskiptalífi efid með því að selja því Útvegsbankann, sagði þingmaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali við Þjóðviljann í gær. En gifurleg ólga ríkir nú innan fiokksins eftir að menn þar náðu að jafna sig eftir leiftursókn SÍS að rcytum Útvegsbankans, sem álitin er þrauthugsað bragð Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra Sambandsins. Einstakir þing- menn flokksins hafa haft við orð að slíta stjórnarsamstarfinu taki Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra ákvörðun um að sclja bankann til SÍS og þungavigtar- menn úr hópi Sjálfstæðismanna f röðum iðnrekenda hafa haft uppi svipuð orð. Ráðherrar annarra flokka könnuðust í gærkveldi við að ein- stakir þingmenn Sjálfstæðis- manna hefðu haft uppi orð um stjórnarslit. Þeir vildu hins vegar ekki staðfesta orðróm um að ráð- herrar íhaldsins hefðu haft uppi hótanir um stjórnarslit. Jón Sigurðsson eftir ríkisstjórnarfundinn í gær: Skulda Sambandinu svar fyrsf. Nýja flugstöðin Farþegar borga brúsann Flugleiðir hœkkar fargjöldin 1. september Flugleiðir hafa í hyggju að hækka flugfargjöld um mán- aðamótin, að sögn Leifs Magnús- sonar, framkvæmdastjóra hjá Flugieiðum. Að sögn Leifs er þessi hækkun tilkomin vegna breyttra verðforsendna innan- lands og sumpart vegna þess kostnaðarauka sem félagið ber vegna leigu á aðstöðu í nýju flug- stöðinni á Keflavíkurflugvelli. - Ég get ekki sagt til um það hve mikil hækkun verður á far- gjöldum félagsins, sagði Leifur Magnússon. - Því er ekki að leyna að það er ýmiskonar útgjaldaauki samfara nýju flugstöðinni og leigan fyrir aðstöðuna er mikil. Hvort við munum fara að dæmi Amarflugs og afsala okkur einhverju af því athafanrými sem okkur var út- hlutað í flugstöðinni get ég ekkert fullyrt um. Við erum að kanna möguleika á því hvort til að mynda sé hægt að flytja eitthvað af starfseminni yfir í flugþjónust- ubyggingu, sem við reistum þar skammt frá, sagði Leifur Magnússon. -rk Engin flokkslína er í röðum krata um málið, en svo virðist sem yfirgnæfandi meirihluti hinna bestu manna þeirra telji að SÍS hreppi bankann. Þjóðviljinn hefur það jafn- framt staðfest, að verði af sölunni til SÍS hefur ríkið fullan hug á að taka upp í hluta greiðslunnar húsakynni SÍS við Sölvhólsgötu, þar sem aðalstöðvar Sambands- ins eru nú til húsa. Þetta hefur þegar verið rætt milli SÍS og ríkis- ins. En hið opinbera hefur lengi haft augastað á húsinu sem og öðrum hlutum torfunnar undir húsnæði ráðuneyta. Innan Sjálfstæðisflokksins er talið að staða Þorsteins Pálssonar þoli ekki að íhaldið tapi af bank- anum til SÍS, og þessvegna verði barist til þrautar. Ráðamenn sem rætt var við í gær höfðu mjög skiptar skoðanir á lyktum máls- ins. Flestir töldu þó, að tæpast yrði um slit á stjórnarsamstarfinu að ræða þó bankinn færi til SÍS og Þorsteinn og ráðherrar flokksins myndu láta sér nægja „að gera hávaða með bókunum" einsog einn orðaði það. Áhrifamaður úr miðstjórn flokksins var ósam- mála þessu. Hann kvaðst telja aö líf ríkisstjórnarinnar yrði ekki lengra en örfáir mánuðir, fengi SÍS bankann. Ríkisstjórnin fjallaði um þetta mál á fundi sínum í gærmorgun og voru skoðanir ráðherra mjög skiptar að loknum fundi. Steingrímur Hermannsson sagði að það þyrfti ákaflega sterk rök til að hafna tilboði Sambandsins, enda hefðu hlutabréfin verið tekin úr sölu þegar tilboðið barst. Þorsteinn Pálsson sagði að stjórnvöld gætu tekið báðum til- boðum og Jón Sigurðsson, sagð- ist skulda SÍS svar fyrst. Á fundinum var skipuð nefnd þriggja ráðherra til að kanna til- boðin og fundaði ráðherranefn- din síðdegis í gær. Mun nefndin meðal annars kanna tryggingar að baki tilboðunum. í dag mun viðskiptaráðherra svo hitta Val Arnþórsson, stjórnarformann Sambandsins. Máletm Dankanna heyra undir viðskiptaráðuneytið og það verð- ur því Jón Sigurðsson, sem á lok- aorðið í þessu fyrsta deilumáli ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. ÖS-Sáf Snœfellsness- og Hnappadalssýsla Velheppnuð forsetaheimsókn Kornelíus Sigmundssonforsetaritari: Einstök veðurblíða og höfðinglegar móttökur að hefur hvarvetna verið tekið höfðinglega á móti okk- ur og veðrið leikið við okkur á þessu ferðalagi. Við getum því ekki verið annað en hæstánægð, sagði Kornelíus Sigmundsson forsetaritari þegar Þjóðviljinn hafði tal af honum í félagsheimil- inu Breiðabliki i gær þar sem heimamenn tóku á móti Vigdísi Finnbogadóttur forseta og fyigd- arliði síðdegis í gær. Síðdegiskaffið í Breiðabliki var lokaáfanginn í fjögurra daga ferð forsetans um byggðir Snæfells- og Hnappadalssýslu. Einmuna veðurblíða var meðan á ferð for- setans stóð um sýslurnar og var mikil og almenn þátttaka heima- manna í þeim samkomum sem haldnar voru forsetanum til heiðurs. - Það var úði í Reykjavík þeg- ar við lögðum upp í ferðina en sólin tók á móti okkur hér í sýsl- unum og hefur fylgt okkur allan tímann, en nú er komið úðaregn aftur þegar við kveðjum. Heima- menn hafa tekið einstaklega vel á móti okkur, fært Vigdísi góðar gjafir og flutt henni ljóð. Þetta hefur verið afskaplega skemmti- leg upplifun, sagði Kornelíus Sig- mundsson. _i„ Haförninn 21 ungi arnarpör urpu eða gerðu tilraun til varps í sumar en varpið tókst aðeins hjá 16 pörum og komu þau upp 21 unga, sem er að mati Fuglaverndunarfélagsins og Náttúrufræðistofunar þokka- legur árangur miðað við fyrri ár. Varpið tókst áberandi best við sunnanverðan Breiðarfjörð eins og undanfarin ár en einnig með besta móti við norðanverðan fjörðinn. Við talningu í sumar fiindust 36 arnarpör sem er nokkru færra en undanfarin tvö ár. Ernir verpa nú eingöngu við vestanvert landið og á Vestfjörð- um. Langflest pörin eru við Breiðafjörð 23 talsins, 7 við Fax- aflóa og 6 í ísafjarðarsýslum. -•g-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.