Þjóðviljinn - 19.08.1987, Qupperneq 11
hÖRFRÉTTIRm
Sovéskir
ráöamenn eru nú ekki jafn tregir
til aö veita einstaklingum sem
haft hafa aögang að ríkis-
leyndarmálum leyfi til að flytja úr
landi og hér fyrr á árum. Þorri
Sovétborgara sem fengið hafa
synjun af þessum sökum á um-
liðnum árum en hafa áfrýjað
munu fá heimild til að hleypa
heimdraganum
Tveir pólskir
blaðamenn og tveir Danir sitja nú
í gæsluvarðhaldi og verða brátt
dregnir fyrir rétt og sakaðir um
njósnir. Ef mennirnir verða
fundnir sekir geta þeir átt dauða-
dóm yfir höfði sér. Hér er um tvö
aðskild mál að ræða. Pólverjarnir
eru grunaðir um að hafa selt er-
lendri leyniþjónustu upplýsingar
um viðskiptatengsl Sovétmanna
og Pólverja, pólskar neðanjarð-
arhreyfingar og samskipti ríkis og
kirkju í Póllandi. Danirnir eru sak-
aðir um að hafa valsað um her-
stöð við strönd Eystrasalts og
Ijósmyndað í gríð og erg.
Ilona Staller
hefur komist að því að undan-
förnu að fallvalt er veraldargengi.
Eftir að hún var kjörin til setu á
ítalska þinginu hefur henni
gengið afleitlega að verða sér úti
um störf í sinni sérgrein, dóna-
legum tilburðum fyrirframan feita
karla. Næturklúbbur á nætur-
klúbb ofan hefur aflýst sýningum
með þingmanninn (aðalhlutverki
þar eð sýningar hennar vekja at-
hygli lögreglunnar á því sem fram
fer innandyra og þolir ekki dags-
ins Ijós.
Bruggun áfengra
drykkja er um það bil að verða
eftirlætis tómstundaiðja þegna
Mikjáls þess Gorbatsjofs sem
veit hið fornkveðna að „esa svá
gótt/sem gótt kveða/öl alda son-
um.“ En ráðamenn eystra hafa
ráð undir rifi hverju og lögregluyf-
irvöld í Kazakhstan hafa til að
mynda fengið þær Taigu og
Pölmu til liðs við sig. Stöllur þess-
ar þefa uppi einkabrugghúsin í
lýðveldinu og verði þær varar við
slíka starfsemi segja þær voff,
voff. Þegar er búið að loka fjölda
áhugamanna um guðaveigar
bak við lás og slá fyrir tilverknað
Taigu og Pölmu.
Sri Lanka
Forseta sýnt
banatilræði
Einn þingmaður beið
bana ogfjölmargir
slösuðust þegar reynt
varað ráðaJayewar-
deneforseta af
dögum í gœr
Forseti Sri Lanka, Junius Jay-
ewardene, slapp naumlega
þegar honum var sýnt banatil-
ræði á þingfundi í gær. Tveim
handsprengjum var varpað f átt
að honum þar sem hann sat við
háborð við hlið ráðherra sinna og
einu skoti var hleypt af.
Forsetann sakaði ekki en for-
sætisráðherrann, Ranasingne
Premadasa, og fimm samráð-
herra hans slösuðust og einn
þingmaður lét lífið.
Talsmaður stjórnvalda kvað
skotið hafa hæft aðstoðarmann
forsætisráðherrans er sat næst Ja-
yewardene. Strax eftir að skotinu
hafði verið hleypt af var hand-
sprengju kastað að forsetanum
en hún skall á borðplötunni,
skoppaði niður á gólf fyrir fram-
an öryggismálaráðherrann og
sprakk þar.
Annarri handsprengju var
varpað og lenti hún í kös þing-
manna og slasaði sautján þeirra.
Jayewardene var samstundis
fluttur á brott í fylgd öryggis-
varða og þingmanna en hinir
slösuðu voru færðir á sjúkrahús.
Forsætisráðherrann mun ekki
hafa hlotið alvarleg meiðsl.
ERLENDAR FRÉTTIR
Danmörk
Þingkjör 8. september
Paul Schlueter segir Dani standa á tímamótum og því sé
æskilegt að þeir kjósi strax stjórn næstu ára
Forsætisráðherra Danaveldis,
Paul Schlueter, lýsti því yfir á
neyðarfundi danska þingsins í
gær að hann myndi rjúfa þing og
efna til kosninga sem fara muni
fram þann áttunda september
næstkomandi. Fjórum mánuðum
áður en ráð var fyrir gert.
„Það er bæði nauðsynlegt fyrir
almenning og efnahagslífið að
ekki dragist á langinn að taka
ákvörðun um hver eða hverjir
eigi að axla ábyrgð á stjórn þessa
lands og hvaða stefnu eigi að
móta í landsmálum á komandi
árum.
Ef kosið verður bráðlega getur
nýtt þing tekið til starfa fyrsta
þriðjudag í októbermánuði og
hafist handa um að leysa hin
mörgu vandamál sem að okkur
steðja.“
Yfirlýsing Schlueters kemur
ekki ýkja mikið á óvart í Dan-
mörku þar eð legið hefur í loftinu
frá því á fimmtudag í síðustu viku
að hann hygðist efna til þingkjörs
í haust.
Stjórn Schlueters tók við völd-
um í landinu árið 1982 og hélt
veili í kosningum tveim árum síð-
ar. Hún er minnihlutastjórn fjög-
urra flokka, íhaldssams þjóðar-
flokks Schlueters sjálfs, Vinstri-
flokksins, Miðdemókrata og
Kristilega þjóðarflokksins.
Forsætisráðherrann boðaði til
neyðarfundar danska þingsins í
fyrri viku vegna launadeilu hins
opinbera og 600 starfsmanna við
tölvur ríkisins. Tölvumenn hafa
verið í verkfalli frá því í apríl og
fyrir vikið er starfsemi kerfisins
lömuð að stórum hluta. Krefjast
þeir 15 prósent launahækkunar
og afturvirkni en stjórnin hefur
boðið þeim ellefu prósent hækk-
un.
Þegar Schlueter kallaði þingið
saman sagði hann vinnudeiluna
komna á það alvarlegt stig að
hætta væri á að margvísleg þjón-
usta myndi falla niður. En efa-
semdamenn þóttust vita hvar
fiskur lá undir steini og þeir hafa
reynst sannspáir. Efnahagssér-
fræðingar hafa spáð því að nokk-
uð halli á ógæfuhliðina í efnahag
landsins í lok ársins og að
atvinnuleysi muni aukast. Það er
því mun skynsamlegra fyrir
stjórnarflokkana að láta þingkjör
fara fram nú en í janúar á næsta
ári þegar hætt er við að menn
hugsi ríkisstjórninni þegjandi
þörfina.
Ennfremur benda menn á ann-
an augljósan kost á því fyrir
Schlueter að láta kjósa í septemb-
erbyrjun því um þær mundir mun
landsfundur Jafnaðarmanna-
flokksins fara fram, helsta óvin-
arins. Hætt er við að hann veki
litla athygli í öllu kosningafárinu.
-ks.
Blakkir námamenn í Suður-Afríku hafa nú verið í verkfalli í níu daga og láta ekki
<tei9*n*'9‘ Suður-Afríka
Námamenn
slíta viðræðum
Paul Schlueter. Rauf þing í gær og boðaði til kosninga.
Suður-Kórea
Stjómin hyggst
miðla málum
Aöðrum degi viðræðna Leið-
toga sambands námamanna
og forráðamanna Ensk-amerísku
gullsamsteypunnar um leiðir til
að binda enda á ofbeldi i námam-
annaverkfallinu bárust þær frétt-
ir að sveitir öryggisvarða og lög-
regluþjóna hefðu ráðist á hóp
verkfallsmanna, skotið fugia-
höglum og gúmmíkúlum að þeim
og barið þá með svipum.
Námamenn, með Ciril Ramap-
hosa í broddi fylkingar, siitu við-
ræðunum þegar í stað og gengu
út. Verkfallsmenn voru staddir
við strætisvagnabiðstöð steinsnar
frá gullnámu „Steyns forseta“ í
fríríkinu Orange þegar ráðist var
á þá. 15 slösuðust.
„Félögum samtaka okkar á
námasvæðunum blæðir meðan
við sitjum hér á samningafundi,“
sagði Ramaphosa og var heitt í
hamsi. Hann hélt því fram að ör-
yggisverðir Ensk-amerísku sam-
steypunnar hafi tekið þátt í atlög-
unni sem gerð hafi verið án þess
að námamennirnir hafi ögrað
þeim á nokkum hátt. „Við eigum
í deilum við svikulan, ragan og
ruddafenginn andstæðing," sagði
hann um námafyrirtækið.
Talsmenn gullsamsteypunnar
sögðu að árásin hefði verið gerð í
trássi við vilja forráðamanna
fyrirtækisins og að þeir væru
reiðubúnir að halda viðræðunum
áfram. Hann hélt því fram að lög-
reglan bæri alla ábyrgð á þessum
ofbeldisverkum og að atlagan
hefði ekki verið gerð á náma-
svæðinu sjálfu.
Verkfallið hefur nú staðið ó-
slitið í níu daga. Ýmsir þóttust
vera farnir að eygja lausn á
deilunni eftir að samningsaðilar
tóku upp viðræður í fyrradag en
atburðirnir í gær juku svartsýni á
að samningar takist bráðlega.
Ofbeldi hefur færst jafnt og
þétt í aukana og var skotárás ör-
yggisvarða og lögregluþjóna á
verkfallsmenn í gær sú þriðja á
nokkrum dögum. Leiðtogar
námamanna fullyrða að yfir 200
félagar sínir hafi slasast í átökum
við sveitir öryggisvarða og lög-
reglu frá því vinnustöðvunin
hófst.
-ks
Itvo daga hefur ekki verið unnið
við fyrirtæki Hyundaisam-
steypunnar í Suður-Kóreu en hún
framleiðir lungann úr útflutn-
ingsvörum landsins. Verkamenn
krefjast ríflegrar launahækkunar
og réttar til að stofna verkalýðsfé-
lög í fyrirtækj unum.
Um 8 þúsund verkfallsmenn
höfðu í hyggju að efna til verk-
fallsvöku á almenningsleikvangi í
borginni Ulsan í nótt, þar sem
flestar verksmiðjur fyrirtækisins
eru, en þeir féllu frá þeim áform-
um þegar leiðtogum þeirra bárust
boð frá ríkisstjórninni um að hún
hygðist beita sér fyrir lausn
deilunnar.
Um 100 þúsund verkamenn í
verksmiðjum samsteypunnar
gengu fylktu liði um götur Ulsan í
gær og hrópuðu slagorð gegn
stjórn fyrirtækisins en ekki skarst
í odda með þeim og lögreglu-
sveitum.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar
hvatti menn til að fara varlega í
sakirnar í dag og sagðist ætla að
koma á fót fundi leiðtoga verk-
fallsmanna og yfirstjómar Hy-
undaifyrirtækjanna. Sagðist
hann vonast til að samningavið-
ræður myndu ganga hratt og vel
fyrir sig þannig að vinna gæti haf-
ist á ný á morgun.
Vericfallsmenn efndu til
mótmælaaðgerðanna í Ulsan
þegar yfirstjómin hótaði að loka
sex verksmiðjum ef ekki yrði lát á
verkföllum.
Hyundai verksmiðjurnar í Uls-
an framleiða allt sem nöfnum tjá-
ir að nefna en viðamest er fram-
leiðslan á vörum í þungaiðnaði
svo sem bifreiðum, skipum og
stórvirkum maskínum. Einnig er
þar framleiddur háþróaður raf-
eindabúnaður, og risavaxnar
trésmiðjur era þar ófáar.
-ks.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í að
smíða og reisa stálburðargrind birgðaskemmu á
Nesjavöllum.
Gólfflötur er 15x37 m, hæð 7,8 m.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15 þús. kr. skilatrygg-
ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 1. september n.k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Mi&vlkudagur 19. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11