Þjóðviljinn - 23.08.1987, Page 3

Þjóðviljinn - 23.08.1987, Page 3
,...ein ofurvirðuleg frú sem missti matarlystina þegar hún sá eina af myndunum mínum!" (Mynd: Sig). Þjóðlegar hefðin Landróver á beit Dálítið spjall við Lars Emil Árnason myndlistarmann „ Þetta er fyrsta einkasýningin mín hérlendis; áður hef ég sýnt á kaffihúsum og félagsheimilum útum allar trissur. Þannig get ég núna nýtt plássið til hins ýtrasta og skipulagt sýninguna með það í huga. Auk þess er engin hætta á slysi eins og varð þegarég sýndi einu sinni á Café heitnum Gesti: en þá missti ein of ur virðuleg frú matarlystina þegar hún sá eina myndina!" sagði Lars Emil Árna- son, myndlistarmaður í samtali við Sunnudagsblaðið. Hann hefur undanfarið sýnt í dálitlu galleríi á Laufásvegi 1 sem heitir Hallgerður. Lars útskrifað- ist úr nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla íslands og hélt að því búnu til Amsterdam, þar sem hann nam í þrjá vetur. Hann tók þátt í samsýningum í Hollandi, auk þess að halda þar einkasýn- ingar. Á næsta ári hyggst hann sækja nám til útlanda, að öllum líkindum í New York. „Ég hef verið á staðnum síðan sýningin opnaði og fengið margs- konar viðbrögð frá fólki,“ segir Lars. „Sumir eru á því að ég sé rétt liðtækur skiltamálari, en aðr- ir eru hrifnir af því sem ég er að gera. Ég lít á þessa sýningu sem eðlilega þróun frá expressionism- anum og nýja málverkinu. sem ég var í til sícamms tíma. Ég vann mikið með börnum og unglingum og hreifst af þessum hráa og spontana stíl sem einkennir þau... Undanfarið hef ég verið að reyna að temja mér ákveðna ögun ög beiti annars konar vinnu- brögðum. En svo hafa líka sumir ásakað mig fyrir að vera ekki nógu þjóðlegur í verkum mín- um“. - Og er slæmt að vera ekki þjóðlegur? „Það finnst mér alls ekki. Við eigum góða listamenn sem byggja á þjóðlegum hefðum, en það er einfaldlega ekki mín deild. Ég lít svo á að ég tilheyri kynslóð sem við getum kennt við rokk og ég hitti fólk útum öll lönd sem talar sama „mál“ og ég geri. Ég reyni þannig að vera trúr lífs- skoðun minni fremur en að remb- ast í einhverjum óskilgreindum þjóðlegheitum. Ég fór raunar út á land í vetur til þess að leita að þjóðlegu hefð- unum,“ segir Lars, „en það eina sem ég fann voru Landróverar á beit og yfirfullar vídeóleigur!" - Er almennur áhugi á mynd- list? „Það eru svona 250 manns sem hafa virkilegan áhuga og reyna að fylgjast með því sem er að gerast. Það er þetta lið sem mætir á allar sýningamar - en almennur áhugi held ég að sé afar takmarkaður. Jafnvel nemar í Myndlistarskól- anum eru ósköp latir við að fara á sýningar; sjálfir stúdentamir...“ - Og hvað tekur svo við eftir þessa sýningu, sem lýkur nú um helgina? „Ég er farinn að leggja drög að stærri sýningu, - eins og þú sérð em þetta eingöngu smámyndir, - mig langar semsagt til að færa mig yfir á stærri flöt. Sýningin mín hér er tilraun af minni hálfu, - og síð- an held ég áfram.“ -hj. Erfið fæðing hjá ÁTVR Áður en Ríkið gat opnað í Kringlunni nýju gekk margt á. Það var engu líkara en ein- hverjir þeir straumar lægju í lofti sem vildu slá því á f rest að þetta musteri Bakkusar opn- aði dyr sínar þorstlátum. Þegar innréttingum var langt komið og farið að raða flöskum í hillur sáu menn sér til skelfingar aö hillurnar gerðu sig líklegar til að sligast undan guðaveigunum, flö- skurnar mundu þá hrapa á gólf niður og fara í mask og mél. Var flöskuröðun slegið á frest og hið snarasta útvegað- ar sterkari hillur, eða amk. sterkari festingar á þær. Svo var farið að raða flösk- um aftur. En þegar það var búið og sveittir starfsmenn reiðubúnir til að blása úr nös komu önnur ósköp upp. Flöskurnar eru merktar strikum úr tölvu og við kass- ana er stautur dreginn yfir strikin og stimplast þá rétt verð inn á kassann. En ein- hverra hluta vegna reyndist ósamræmi við hugbúnað í merkingum. Allt vín í útsölunni vará vitlausu verði (ekki vitum við hver hefði grætt á því en það er önnur saga). Og nú þurftu menn að bretta upp ermar aftur, bíta á jaxlinn og endurmerkja allar flöskuþúsundirnar. Á meðan þessu fór f ram sat bindindispúki nokkur uppi í rjáfri, fitnaði ört að því er skyggnir menn herma og hristist allur af einlægri Þórð- argleði. Skaldsagan í sókn Eins og fram kemur á bóka- síðu er von á fjölda forvitni- legra skáldsagna nú fyrir jólin. Rithöfundar og útgefendur hafa fulla ástæðu til að vera bjartsýnir, því endanlegar tölur frá síðustu vertíð herma að bók Thors Vilhjálms- sonar, Grámosinn glóir, hafi selst mest; Tímaþjófur Steinunnar Sigurðardóttur varð síðan næst þar á eftir. Sannarlega ánægjuleg þró- un.B ísfólkið og sagnaþjóðin Sumarið er ekki tími gullbók- mennta ef marka má metsölu- lista sem tímaritið Þjóðlíf birti í síðasta tölublaði. Þar trónaði á toppnum Margrét nokkur Sandemó, með nýjasta heftið um ástir og örlög ísfólksins, fræga. Og Margrét og hyski hennar geröu gott betur: Önnur ísfólksbók var fimmta söluhæst af öllum bókum. Ein íslensk skáldsaga var á listanum: Auðvitað sá lífseigi skrattakollur Tómas Jóns- son - metsölubók í tvennum skilningi !B Flórídaferð fyrir sæti í deildinni Alltaf annað slagið heyrast tölur um hvað þjálfarar fá í laun. Flestir eru þeir með upp- bót fyrir sigur í deildinni, eða ná sæti í næstu deild fyrir ofan. Einn þjálfari setti það skilyrði fyrir ráðningu sinni, að ef hann kæmi liðinu upp í næstu deild, fengi hann ferð til Flórída fyrir fjölskylduna. Sannarlega mikið í húfi, en þessi þjálfari er nú hættur störfum.B Að rekast á myndefnið! Það hefur lengi verið talið að- alsmerki góðs fréttaljósmynd- ara að geta sett sig inní hinar breytilegustu aðstæður. Ljósmyndari Tímans var nú fyrir stuttu sendur til að taka mynd af nýopnaðri tjóna- skoðunarstöð bíla. Þeirri fyrstu sem íslensku trygging- arfélögin stofna. Hann hefur líklega verið með hugann við myndefnið, því á leiðinni lenti hann í árekstri.B l*| REYKJNJÍKURBORG IHS p <VS 3 («N H ^I^ Jlcuc&vi Stödíci Dagvist barna Reykjavík vill ráða í eftirtalin störf: Fóstrur, þroskaþjálfar eöa fólk meö aöra uppeld- isfræðilega menntun óskast til stuðnings börnum meö sérþarfir á dagheimilin Laugaborg og Folda- borg. Um er að ræöa 50% starf og/eða 100% starf. Upplýsingar veita forstöðumenn viðkom- andi heimila og Ragnheiður Indriðadóttir sál- fræðingur í síma 27277. Fóstrur óskast á eftirtalin dagvistarheimili: Leiksk. Leikfell, Brákarborg, Njálsborg, Holta- borg, Tjarnarborg, Staðarborg, Seljaborg. Dagh./leiksk. Ægisborg, Hálsaborg, Nóaborg. Dagh. Valhöll, Garðaborg, Suðurborg. Skóladagh. Skála, Hraunkot, Hólakot. Upplýsingar gefa forstöðumenn viðkomandi heimila og umsjónarfóstrur í síma 27277. Forstöðumenn óskast á eftirtalin dagvistarheim- ili: Leikskólann Árborg, dagh./leiksk. Foldaborg, Frostafold 33 og leiksk. Leikfell, Æsufelli 4. Fóstrumenntun áskilin. Upplýsingar gefa framkvæmdastjóri og umsjón- arfóstrur í síma 27277. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Sunnudagur 23. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.