Þjóðviljinn - 23.08.1987, Síða 16
Smiðimir
í uppiausn!
Johnny Marr hœttur ÍThe Smiths
og framtíðin óviss
Frá Bretlandi berast nú þær
fréttir að John Marr hafi sagt
skilið við fyrrum félaga sína í
hljómsveitinni TheSmiths. Hefur
þetta fengist opinberlega staðfest
af útgáfufyrirtæki sveitarinnar
Rough Trade og segir þar einnig
að leit sé nú hafin að nýjum gítar-
leikara, og að aðrir meðlimir
sveitarinnar óski Marr alls hins
besta í framtíðinni.
Þetta þykir þó allsendis óvíst
þar sem Marr var einn af aðaldrif-
fjöðrum sveitarinnar og einn
helsti lagahöfundur hennar.
Rétturinn til að nota nafnið er
líka ekki á hreinu þar sem bæði
Morrissey og Marr gera kröfu til
nafnsins. Nýlegur samningur The
Smiths við E.M.I. setur einnig
strik í reikninginn. Allt virðist því
benda til að þegar væntanleg
breiðskífa The Smiths kemur út í
haust geti orðið löng bið þar til
aftur heyrist í The Smiths eða
hvað svo sem Marr eða Morrissey
gera í framtíðinni, þar sem áður
nefndur samningur bindur þá
E.M.I. Það er því rétt að fylgjast
vel með því sem gerist á þessum
vígstöðvum á næstunni.
Marianne Faithfull
- Slrange
Ég mundi ekki mæla með því
að sorgmætt fólk settist niður og
hlustaði á þessa plötu. Hér er
Marianne Faithfull að syngja lög
sem eru öll eftir aðra listamenn
og öll eru þau fremur tregafull.
Það er ekki hægt að neita því að
hér er samt sem áður um vandað-
an grip að ræða og eins og búast
mátti við hefur Marianne fengið
til liðs við sig hóp af afburða tón-
listarmönnum. Það er þó alltaf
Weather
heldur súrt í broti þegar tónlistar-
menn senda frá sér efni sem að
ekki er að nokkru leyti eftir þá
sjálfa. Að þessu sögðu er þó rétt
að benda á að platan er mjög góð
sé hún tekin með þessum fyrir-
vara og fyrir flesta ætti hér að
vera um freistandi grip að ræða,
því það er bara ekki hægt að segja
að Marianne Faithfull geri ekki
hlutina vel.
Imperium - Imperium
Plata þessi sem er nýlega kom-
in út í Bretlandi er afrakstur sam-
starfs Hilmars Arnar Hilmars-
sonar, John Balance (úr Coil),
Douglas P. (úr Death In June),
Wulfe (úr Sol Invictus) og Tibet
er líklega með tormeltara efni
sem nú er á boðstólnum. Að kalla
þetta popp væri svipað og að
kalla Wham pönk. Þetta er held-
ur ekki plata sem er líkleg til að
birtast á vinsældalista og því lýtur
tónlistin talsvert öðrum lögmál-
um en er um popptónlist. Hér er
meira kapp lagt á það að reyna
eitthvað nýtt og halda inn á ó-
troðnar slóðir. Svæðið sem
Imperium fer í könnunarleiðang-
ur inn á er allt fremur drungalegt
og tilvitnanir í helgar bækur
hljóma á meðan tónlistarmenn-
irnir fikra sig áfram. Ég er ekki
viss hvort hér hafi þetta skilað
miklum árangri, en hér er amk.
reynt.
The Catheads - Hubba
Hljómsveitin The Catheads
mun eiga rætur sínar að rekja til
Califomiu, sem svo sannarlega
hefur verið einskonar gróðrar-
stöð bandarísks rokks á undan-
förnum ámm. Eftir því sem ég
kemst næst hefur þessi sveit verið
starfandi um nokkurn tíma, en
það skal fúslega viðurkennt að
vitneskja mín er ekki öllu meiri.
Það kom mér skemmtilega á
óvart að hér er um að ræða mjög
svo frambærilega plötu þar sem
reyndar er lítið um frumlegheit í
tónlistarsköpun, en húmorinn er
bara þess meiri. Sem þýðir að
hafa má gaman af plötunni á
tvennan hátt, annars vegar af
tónlistinni og hins vegar húmorn-
um. Platan er í heild nokkuð
dæmigerð fyrir sveitir af þessu
tagi, en fær auka stig fyrir að taka
sig ekki of alvarlega.
The B-52’s
— Bouncing Off The Satellites
Þetta er hljómsveitin sem hefði
átt að vera búin að sigra heiminn.
The B-52 er bandarísk sveit sem
hefur verið starfandi um nokkurt
skeið en þessi nýja plata hennar
er sú fyrsta í nokkurn tíma, þar
sem allt var í óvissu um framhald-
ið. Nú er þessi skífa loksins kom-
in út og er amk. hvað mig varðar
ein af þeim sem koma manni í
gott skap og maður setur á aftur
og aftur. Það kæmi mér á óvart ef
þessi plata nær ekki að gera það
gott á sölulistum bæði hér heima
og erlendis, til þess hefur hún alla
kosti.
B-52’s tekst á frábæran hátt að
sameina popp og það sem frum-
legt er í rokktónlist. Tvímæla-
laust ein af tíu bestu plötum árs-
ins.
POPPSIÐAN
The Smiths - ein besta hljómsveit allra tíma í eyðingarhættu.
Nú þegar ykkar ástkæri popp-
skríbent heldur á vit ævintýranna
í landi Sáms frænda þykir mér
upplagt að nefna nokkuð af því
efni sem væntanlegt er fram að
næstu áramótum. Það skal þó
tekið skýrt fram að hér er aðeins
um að ræða áætlaðar útgáfur og
margar þeirra eiga örugglega
eftir að frestast og það jafnvel
fram á næsta ár, síðan er ekki
síður mikilvægt að hafa það í
huga að nýjar sveitir eru alltaf að
koma fram og eins líklegt að ein-
hverjar slíkar eigi eftir að líta
dagsins ljós fram að áramótum.
Þar sem hér er aðeins um áætlað-
ar útgáfur verða engin nöfn á
plötunum nefnd þar sem það er
yfirleitt það fyrsta sem breytist.
Þá er bara að demba sér í hópinn.
Allir eftirlifandi bítlar eru með
plötu í sigtinu og Paul McCartney
hefur sagst stefna á tónleika í
Bretlandi. George Harrison og
Ringo Starr hafa enn sem komið
er ekki gefið út slíkar yfirlýsing-
ar. Bruce Springsteen hefur lokið
upptökum á sinni plötu. Leonard
Cohen er á lokasprettinum með
sína plötu en vænta má tafa á út-
gáfu. Bob Dylan er með nýja
plötu í sigtinu og sama gildir um
Joni Mitchell. Nýja platan frá
Pink Floyd dregst enn í útgáfu.
King Grimson sendir frá sér plötu
á árinu en óvíst er um hverjir
leika á skífunni. Gömlu hipparnir
Crosby, Stills, Nash & Young
senda frá sér nýja skífu og sama
gildir um David Crosby sem
sendir frá sér sólo skífu. Hin stór-
góða sveit 10.000 Maniacs sendir
frá sér breiðskífu með nýju efni.
Fairport Convention lætur sér
nægja hljómleikaskífu enda
margir af meðlimunum að gefa út
sóló skífur. Þeirra á meðal er Ric-
hard Thompson. Bæði Mick Jag-
ger og Keith Richards eru á
leiðinni með sóloplötur. Söng-
konurnar Ricky Lee Jones og
Patti Smith eru að taka upp nýtt
efni fyrir sínar skífur og kvenna-
sveitin The Bangles er væntan-
lega að gera það sama. Höfu-
ðpaur Dire Straits, Mark Knop-
fler mun vera að ganga frá sinni
sólóplötu og annar gítarleikari
Hugh Cornwell sem er best þek-
ktur fyrir störf sín með The
Stranglers er að ljúka sinni. Hinn
fyrrum Clash limurJoe Strummer
er að taka upp skífu og í bígerð er
að gefa út efni með The Clash þó
ekki sé enn vitað um hvað er að
ræða. Roy Wood er að ganga frá
en einni skífunni og á hún að
koma út á árinu. Þjóðlagasveitin
Steeleye Span er með plötu á
leiðinni. Fyrrum meðlimir The
Eagles ætla að vera duglegir við
að senda frá sér skífur það sem
eftir er árs en þeir eru Don Henl-
ey, Glenn Frey, og Timothy
Schmith. Bee Gees gefa út
eitthvert efni, og gefnar verða út
hvorki fleiri né færri en 3 skífur
með Monkies („Pool it“, „Live
69“ og „Missing Link“). Jackson
Browne gefur út nýtt efni og Elvis
Costello sendir frá sér nýja plötu
(en það er fyrsta platan sem hann
gefur út fyrir nýjan samning).
Tom Waits er að undirbúa sína
fyrstu plötu frá því hin frábæra
„Rain Dogs“ kom út. Lindsey
Buckingham er með útgáfu á
nýju efni á næstunni og sama má
segja um Stevie Nicks. írinn sem
aldrei varð frægur, Van Morrison
er að vinna að nýrri plötu og anr,-
ar sem varð frægur Elvis Presley
heldur upp á 10 árin með útgáfu á
einhverjum skífum. Fyrrum for-
sprakki Roxy Music, Brian Ferry
er að vinna að nýrri sólóplötu.
Hollies senda frá sér nýja skífu og
sama gildir um Jethro Tull.
Bresku sveitirnar The Alarm og
ABC ættu að senda frá sér skífur
á næstu vikum. Graham Parker
er að vinna að sinni plötu, en
plötur bæði Donovan og Arlo
Guthrie munu vera tilbúnar. The
Pougues munu vera með plötu í
bígerð og Beat Farmers munu
vera í hljóðveri. Söngkonan sem
heillað hefur marga, Emylou
Harris er væntanlega að undirbúa
sína plötu. Simon Nicol er vænt-
anlega að vinna í sínu efni og ætti
plata að líta dagsins ljós fyrir ára-
mót. Andy White sendir frá sér
nýja breiðskífu og nýtt efni er á
leiðinni frá bæði Robbie Robert-
son og Brian Wilson þeim
þrautreyndu kempum. Af öðrum
væntanlegum skífum með
gömlum og velþekktum köppum
má nefna Cliff Richards, Steve
Winwood, Stevie Wonder, Robert
Palmer og Elton John. Christine
Collister og Richard Tompson
munu ennfremur vera að vinna í
sameiningu að plötu. Dexys Mid-
night Runners liggja í upptökum
og það munu Motels líka vera að
gera. John Illsay mun væntan-
legur með plötu og sama má segja
um Jass Butcher. Syd Barret er
væntanlegur á nýrri plötu og er
varla við því að búast að hér sé
um nýtt efni að ræða. Að lokum
er rétt að geta tveggja platna sem
munu innihalda kvikmyndatón-
list úr myndunum „Hearts of
Fire“ og „Leathal Weapon" en
hér mun vera um merka gripi að
ræða og auðvitað á margt íslenskt
efni vera væntalegt er líða tekur á
vetur.
ÆVAR
JÓSEPSSON
16 SÍÐA - ÞJÓDVILJINN Sunnudagur 23. ágúst 1987