Þjóðviljinn - 16.09.1987, Page 1

Þjóðviljinn - 16.09.1987, Page 1
Miðvikudagur 16. september 1987 204. tölublað 52. árgangur Byggingafulltrúi Davíð enduireisir Sandholt Gunnar Sigurðsson: Ákvörðunborgarstjóra og borgarverkfrœðings Hallgrímur Sandholt, verkfræð- ingur, hóf fyrir viku síðan aft- ur störf hjá byggingafulltrúacmb- ættinu í Reykjavík, en honum var vikið úr starfi í vor í kjölfar burð- arþolsskýrslunnar. Hallgrímur hafði hannað burðarvirkið í eitt af þeim húsum sem skýrslan fjall- aði um og jafnframt séð um úttekt á byggingunni. „Það er rétt, Hallgrímur er kominn aftur til fyrri starfa," Hvalamálið Samkomulag I gærkvöldi var gengið frá samkomulagi milli ríkisstjórnar íslands og Bandaríkjastjórnar í hvalveiðideilunni. Samkomu- lagið felur í sér að Hvalur hf veiðir þær 20 sandreyðar sem ákveðið hafði verið nú í sumar og að rannsóknaáætlunin verður lögð fyrir vísindanefnd Alþjóða- hvalveiðiráðsins til umsagnar á næsta ári og framvegis. íslendingar munu framfylgja vísindalegum tilmælum nefndar- innar. Auk þess felst í samkomu- Iaginu að Bandaríkin munu vinna með íslandi og öðrum aðalfull- trúum hvalveiðiráðsins að endur- skoðun á og tillögugerð um til- högun og framkvæmd á rannsóknarleyfum vísindanefnd- arinnar. Á blaðamannafundi í sjávarút- vegsráðuneytinu klukkan níu í gærkvöldi sagðist Halldór Ás- grímsson vera eftir atvikum sátt- ur við lausnina. „Ég tel að hér sé um líf eða dauða Alþjóða hval- veiðiráðsins að tefla.“ Halldór sagðist ekki vilja telja að með þessu væri björninn unn- inn, „þetta er áfangi á þeirri braut að vinna því fylgi meðal náttúru- verndarsinna að tilfinningasemi ráði ekki nýtingu auðlinda.“ Með samkomulaginu er það tryggt að Bandaríkin leggi ekki fram staðfestingarkæru gegn rík- isstjórn íslands og geta því Japan- ir keypt áfram hvalaafurðir af okkur. Hvalveiðibátarnir fóru á veiðar í gærkvöldi. -Sáf Fjárlög Skera niður, hækka skatt Ríkisstjórnin fundaði lengi og vel í gærdag um fjárlög fyrir næsta ár. Niðurstaða náðist ekki og á að halda áfram á föstudag og laugardag. Bæði Jón Baldvin Hannibals- son og Þorsteinn Pálsson hafa gefið í skyn að vænta megi tals- verðrar skattahækkunar í einu eða öðru formi. Niðurskurður hjá fagráðuneyt- unum er á dagskrá hjá stjórninni, en gengur treglega. Framsóknar- menn standa fast á móti lækkuð- um niðurgreiðslum á landbúnað- arvörur, og virðist helst rætt um að minnka fjárlagahallann með aukinni tekjuöflun. -m sagði Gunnar Sigurðsson, bygg- ingafulltrúi í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. „Það voru borgarstjóri og borgarverkfræðingur sem á- kváðu þetta og fengu svo sam- þykki mitt, enda erfitt að fá verkfræðinga í jafn illa launað starf og þetta." Rétt er að rifja upp kunningja- tengsl Hallgríms og Þórðar Þor- bjarnarsonar, borgarverkfræð- ings, sem réð Hallgrím til starfa sem deildarstjóra hjá byggingaf- ulltrúa. Þeir voru saman í menntaskóla á sínum tíma og luku báðir stúdentsprófi 1957. Þórður lauk prófi frá verkfræði- deild Háskólans 1960 en Hall- grímur ári seinna. Báðir fóru til framhaldsnáms við bygginga- verkfræði við Tækniháskólann í Kaupmannahöfn og lauk Þórður prófi 1963 en Hallgrímur ári seinna. Þá skildu leiðir en lágu aftur saman 1974 að Þórður réð Hallgrím eftir að hafa verið í starfi sem borgarverkfræðingur i eitt ár. Gunnar Sigurðsson sagði þeg- ar Hallgrími var vikið úr starfi að það hefði orðið trúnaðarbrestur á milli sín og ákveðinna starfs- manna. En hvað hefur breyst? „Það kom í ljós að skýrslan var ekki eins ískyggileg og fyrst leit út fyrir og þurftu skýrsluhöfundar að draga um helming gagnrýn- innar til baka.“ Hallgrími var vikið úr starfi fyrir að hafa hannað burðarvirki í eitt af húsunum og séð sjálfur um úttekt á því. Má búast við að sömu vinnubrögð verði tíðkuð áfram? „Nei, það verður reynt að koma í veg fyrir slíkt og tekið stíf- ara en áður á slíku. Annars var Hallgrímur opinberlega í sumar- fríi og hafði farið fram á flutning milli deilda.“ -Sáf Katrín Óskarsdóttir rekur brúðarkjólaleigu: Förum upp og niður með falda, þrengjum og lögum á hverja og eina. Mynd: Sig. Leigumarkaður Bisniss í bníðariqólum Katrín Óskarsdóttir: Mikið um aðfólk notfœri sér þjónustuna ,,Ég er með svona tuttugu kjóla í gangi en á fleiri, enda ganga þeir ört úr sér. Sumir detta út og öðr- um þarf að breyta. Við förum upp og niður með falda, þrengj- um og lögum á hverja og eina,“ sagði Katrín Óskarsdóttir í spjalli við blaðið í gær, en hún rekur eina af þremur brúðarkjóla- leigum sem starfræktar eru á höf- uðborgars væðinu. „Fólk hefur virkilega notað sér þessa þjónustu og finnst þægilegt að geta komið og mátað, og síðan er kjóllinn lagaður eftir þörfum. Þá þurfa stúlkur heldur ekki að sitja uppi með dýra brúðarkjóla inni í skáp sem síðan er ekkert gert við,“ sagði Katrín. Tvenns konar verð er á þjón- ustunni, 3.800 og 4.200 krónur, og eru kjólarnir í síðarnefnda verðflokknum íburðarmeiri og glæsilegri að sögn Katrínar. Han- skar, hvað sem er í hár og ýmsir aðrir fylgihlutir eru til reiðu. Karlar fara ekki varhluta af þjónustunni. Fyrir þá hefur brúð- arkjólaleigan kjólföt, smókinga og hvít jakkaföt á boðstólum, og er verðið á bilinu 2.400 til 3.200 krónur. Að sögn Katrínar er al- gengt að svaramenn notfæri sér þjónustuna ekki síður en brúð- hjónin sjálf. „Viðhorfið til hjónabandsins hefur breyst mjög mikið á undan- fömum árum sem betur fer,“ sagði Katrín. „Það hlýtur að vera ákveðnara form á hjónabandi en óvígðri sambúð, enda verðum við mikið vör við að fólk gifti sig sem er búið að búa lengi saman í óvígðri sambúð.“ HS Sveitarfélög Dalamenn vilja sameinast «1 iðurstaða skoðanakönnunar- stjóri í Búðardal. ^hvort þeir væru hlynntir samein- sveitarstjóra verða sveitarfél I innar um sameiningu TTm síðustu hell»i fór fram inou T öðm laoi varsnnrt hvernio n'Aon Inmn, iðurstaða skoðanakönnunar innar um sameiningu sveitarfélaga í Dalasýslu voru þær að 318 voru hlynntir sameiningu og 125 á móti. 179 voru fylgjandi sameiningu í eitt sveitarfélag, 35 vildu tvö sveitarfélög og 121 vildi þrjú sveitarfélög. En sveitarfé- lögin eru í dag átt talsins“, segir Marteinn Valdimarsson sveitar- stjóri í Búðardal. Um síðustu helgi fór fram skoðanakönnun í Dalasýslu með- al íbúa átta sveitarfélaga hvort þeir vildu sameina sveitarfélögin í sýslunni. Hálfum mánuði áður hafði verið dreifí kynningarbréfi til allra atkvæðisbærra manna í sýslunni, ásamt kjörseðli. Á hon- um voru menn spurðir í fyrsta lagi hvort þeir væru hlynntir samein- ingu. I öðru lagi var spurt hvernig sameiningu, og þar höfðu menn fjóra valkosti: Éitt sveitarfélag, tvö, þrjú eða annað fyrirkomu- lag. Kosningaþátttakan var um 75% og sá björgunarsveitin Ósk í Búðardal um’ að safna saman kjörseðlum. Að sögn Marteins sveitarstjóra verða sveitarfélögin síðan að kynna sameiningarmálið í tvennum umræðum á sveitar- stjórnarfundum. Eftir það verður samstarfsnefnd sveitarfélaganna að koma sér saman um eina til- lögu sem síðan verður borin undir atkvæði íbúa sveitarfélag- anna átta. grh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.