Þjóðviljinn - 16.09.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þiómnuiN
Miðvlkudagur 16. september 1987 204. tölublað 52. árgangur
LEON
AÐ FV\RS€LLI
SKÓLACÖNCU
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Kvótadeilur
Skúli fær
ekki svar
Ráðuneytið athugar
kœru um eigin úr-
skurð
Ekki hefur fengist upplýst
hversu langan tíma sjávarútvegs-
ráðuneytið ætlar sér til að af-
greiða kæru Skúla Alexanders-
sonar, en eins og kunnugt er
kærði hann þann úrskurð ráðu-
neytisins að Jökli hf á Hellissandi
bæri að greiða sekt fyrir að hafa
verkað fisk sem hafi farið „fram
hjá kvótanum“.
Málið er ekki enn komið til
kasta dómstóla. Kæra Skúla er til
afgreiðslu hjá ráðuneytinu.
Verði hún tekin til greina mun
ráðuneytið endurskoða úrskurð
sinn en ella standa við fyrri
ákvörðun. Verði ekki um endur-
skoðun að ræða á Skúli þess kost
að skjóta málinu til dómstóla.
Dráttur á afgreiðslu þessa máls
hlýtur að há Skúla í umræðum um
fiskveiðistefnu en hann hefur
verið eindreginn andstæðingur
aflamarksins í umræðum á al-
þingi.
Sjávarútvegsráðuneytið mun
hafa skoðað skýrslur 40 fiskverk-
unarstöðva til Fiskifélagsins, en
þar ber að tilgreina allan afla sem
berst í hús, reiknað með meðal-
nýtingu og borið síðan niðurstöð-
umar saman við magn útflutn-
ingsafurða. í 5 tilvikum af þess-
um 40 hefur ráðuneytið talið að
meiri afli hljóti að hafa borist í
hús en tilgreint var í skýrslum og
úrskurðað að viðkomandi aðilar
skyldu greiða sekt. Aðeins Jökull
hf, fyrirtæki Skúla Alexanders-
sonar, hefur kært úrskurðinn.
Skúli hefur bent á að ráðuneyt-
ið gefi sér forsendur og að það
hafi ekki nægjanlegar upplýsing-
ar til að fella dóm, enda sé úr-
skurðurinn rangur. Hann æskir
þess að endanleg niðurstaða fáist
sem fyrst.
Þórður Eyþórsson deildar-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu
vildi í gær ekkert um það segja
hvenær kæra Skúla yrði afgreidd.
„Málið fær umfjöllun eins og
hvað annað,“ sagði hann.
óp/grh
„Síðasta tilboð atvinnurekenda áður en til verkfalls kom, var að bjóða okkur lasgra kaup en við höfum I dag,“ sagði Kristbjörn Árnason, formaður Félags
starfsfólks í húsgagnaiðnaði á fjölmennum fundi félagsmanna í gær. Mynd: Sig.
Húsgagnaiðnaður
Fáheyrð ósvífni
Formaður Félags starfsfólks í húsgagnaiðnaði: Buðu iðnaðarmanninum 215 krónur
á tímann í byrjunarlaun. Hann hefur 232 krónur í dag
Annarri eins ósvífni, eins og síð-
asta tilboð atvinnurekenda
ber með sér, hef ég aldrei kynnst
fyrr og á vonandi aldrei eftir að
kynnast. Síðasta tilboð þeirra
hefur í för með sér lækkun á tíma-
kaupi iðnaðarmanna og ófag-
lærðra miðað við núverandi
tímakaup í dagvinnu, sem um var
samið í samningunum frá því í
febrúar síðastliðnum.
Samkvæmt tilboðinu tekur það
iðnaðarmanninn þrjá mánuði að
vinna sig upp í núgildandi dag-
taxta. Þeirra boð hljóðar upp á
215 krónur á tímann í dagvinnu,
en viðkomandi hefur 232 krónur
á tímann í dag. Þegar ljóst var að
þetta var ekkert grín heldur blá-
kaldur veruleikinn, var ljóst að
verkfall var óumflýjanlegt, sagði
Kristbjörn Árnason formaður Fé-
lags starfsfólks í húsgagnaiðnaði.
í gær var haldinn almennur fé-
lagsfundur í Félagi starfsfólks í
húsgagnaiðnaði þar sem skýrt var
fyrir félagsmönnum hvernig stað-
an væri í upphafi verkfalls og
hvaða tilboð atvinnurekendur
höfðu lagt fram á síðasta samn-
ingsfundi hjá ríkissáttasemjara.
Menn brugðust mjög ókvæða
við þessum upplýsingum og þeir
sem tóku til máls og tjáðu sig um
málið áttu ekki nógu stór og sterk
lýsingarorð til að tjá sig um þá
vanvirðu og móðgun í þeirra garð
sem síðasta tilboð atvinnurek-
enda bæri með sér. Það var sam-
dóma álit allra að þessi fram-
koma atvinnurekenda gerði ekki
annað en að nú stæðu menn sam-
an sem endranær sem ein órjúf-
anleg fylking sem léti sitt ekki
eftir og menn væru staðráðnir í
því að gefa ekkert eftir í þessari
vinnudeilu.
„Síðastliðin 17 ár hefur þetta
félag verið í verkfalli í heila 7
daga sem sýnir ábyrga afstöðu
okkar. En þetta tilboð atvinnu-
rekenda gerir ekkert annað en að
hella olíu á eldinn. Ég sé ekki
annað en að verkfallið geti orðið
langvinnt og mér býður þá í grun
að erfitt verði að manna vinnu-
staðina aftur með sama fólkinu.
Það leitar að sjálfsögðu í aðra
vinnu, svo sem í byggingariðnað-
inn, þar sem það getur fengið
miklu betra kaup,“ sagði Krist-
björn Árnason.
grh
i
-
VMSÍ
Opnunartími verslana
Deilt um gmndvallaratriði
Meirihlutinn
ekki einhuga
Björn Grétar Sveinssonframkvœmdastjóri VMSÍ: Ógœfa að klofna um3prósent.
Efhér er um smáræði að rœða afhverju œtla foringjarnir þá að kljúfa VMSI á því?
Davíð þrengir opn-
unarfrelsið
I' þessari ályktun Verkamanna-
sambandsins kemur fram þessi
yfirlýsta ást á fiskvinnslufólki,
sem hefur verið áberandi í fjöl-
miðlum í allt sumar. Hinsvegar
vantar inn í ályktunina hversu
langt þessi ást nær, hvort hún nær
til þess að fiskvinnslufólki verði
skipað í efsta flokk við samning-
ana, sagði Björn Grétar Sveins-
son, formaður verkalýðsfélagsins
Jökull á Hornafirði.
f ályktun VMSÍ segir að for-
mannafundur VMSÍ hafi sam-
þykkt að gera kröfur um allt að
40% kauphækkun, en það séu
hærri kröfur en gerðar hafi verið
um fjölda ára. „Framkvæmda-
stjórnin telur það mikla ógæfu ef
deilur um hvort kröfur skuli vera
3% hærri eða lægri skuli skipta
aðildarfélögunum í andstæðar
fylkingar."
Björn Grétar sagði að deilan
snérist um annað og meira en
þessi 3%, hún snúist um það
grundvallaratriði hvort það eigi
að raða fiskvinnslufólki í efsta
flokk hjá VMSÍ.
„Það er skýlaus krafa okkar að
fiskvinnslufólk verði sett í 4.
flokk og ég skil ekki að nokkur
maður innan verkalýðshreyfing-
arinnar sé andvígur því. Við hvik-
um ekki fet frá þessari kröfu okk-
ar til að ná sáttum við einhverja
menn í verkalýðshreyfingunni.
Pað kemur ekki til greina. Ef
þetta er smáræði, afhverju geta
verkalýðsforingjarnir þá ekki
gengið að þessari sjálfsögðu
kröfu? Hér á Hornafirði hrista
menn hausinn yfir því að verka-
lýðsforingjarnir ætli sér að kljúfa
VMSÍ á þessari sjálfsögðu
kröfu."
Að sögn Bjöms Grétars mun
Jökull reyna að ná samstöðu með
öðmm félögum á Austfjörðum
og annarsstaðar á landinu þar
sem svipað háttar til um að setja
fram eigin kröfur og fara fram á
viðræður ef VMSÍ kemur ekki til
móts við þá. -Sáf
Sjá ályktun frá fundi fram-
kvœmdastjórnar VMSÍ á bls.3
Á fundi borgarráðs Reykjavík-
ur í gær var ákvcðið að vísa til-
lögu sjálfstæðismanna um
breytingar á gildandi samþykkt
um opnunartíma sölubúða aftur
til borgarstjórnar.
Borgarstjóri lagði þar fram
breytingartillögu við tillögu Árna
Sigfússonar og fleiri sjálfstæðis-
manna og er megininntak hennar
að opnunartíminn skuli vera frá
7.00 til 22.00. Ámi og félagar
hafa lagt til að opnunartíminn
verði algjörlega frjáls.
óp