Þjóðviljinn - 30.09.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.09.1987, Blaðsíða 1
Listasafn íslands Kostnaður úr böndunum Kostnaður við að breyta Glaumbœ í listasafn kominn langtfram úr öllum áœtlunum. Þegar verið eytt210 milljónum íhúsið. Húsameistari ríkisins hannaði. Guðmundur G. Þórarinsson erformaður byggingarnefndar Kostnaður við að breyta Glaumbæ heitnum í Listasafn íslands er kominn iangt fram úr öllum áætlunum, en Listasafnið opnar þetta nýja húsnæði sitt 14. nóvember og er þó enn töluverðu ólokið við frágang. Nú er kostn- aðurinn við endurbygginguna kominn upp í 210 milljónir króna á núvirði og er búist við að nokkr- ir tugir milljóna eigi eftir að bætast ofan á þá upphæð áður en yfir lýkur. Það var árið 1972 að brunarúst- ir Glaumbæjar voru keyptar af ríkinu og um svipað leyti hófst Garðar Halldórsson, Húsa- meistari ríkisins, handa við hönnun Listasafnsins. Hvorki hann né aðrir sem Þjóðviljinn ræddi við höfðu upphaflega kostnaðráætlun hússins hand- bæra. Garðar hafði hinsvegar hand- bæra áætlun frá 1. október 1983 um svipað leyti og húsið var tilbú- ið undir tréverk. Þá var lokið framkvæmdum fyrir 43 milljónir króna, sem framreiknað til dags- ins í dag gera tæpar 95 milljónir króna og áætlað að kostnaður við að ljúka verkinu yrði 40 milljónir eða rúmar 88 milljónir fram- reiknað til dagsins í dag. Saman- lagður kostnaður átti því að verða um 183 milljónir króna. Garðar sagðist búast við því að enn ættu eftir að bætast við kostn- aðinn „einhverjir tugir milljóna." Að sögn Garðars er húsið um 3000 fermetrar að stærð og kostar því hver fermetri um 70 þúsund krónur miðað við þær 210 milljónir sem þegar hefur verið eytt í húsið og á fermetraverðið því eftir að hækka enn frekar. Til samanburðar má geta þess að fermetraverð í fjölbýlishúsum er nú reiknað vera 31.605 krónur og í skólum um 36 þúsund krón- ur. Guðmundur G. Þórarinsson, alþingismaður, er formaður bygginganefndar Listasafnsins. Hann er staddur erlendis og sömuleiðis Runólfur Þórarins- son, sem einnig á sæti bygginga- nefndinni. Bera Nordal er ný- skipuð í nefndina. Hún sagði við Þjóðviljann að enn væri eftir að ljúka ýmsu við húsið, m.a. væri eftir að ljúka frágangi á lóðinni að hluta auk þess sem ýmsum innri búnaði, einsog t.d. hús- gögnum yrði ólokið á þessu ári, en stefnt væri að því að ljúka því á næsta ári. Bygginganefndin hefur gert áætlun um fjárþörf á næsta ári en Bera vísaði á Guðmund G., for- mann nefnarinnar að svara því hversu há hún væri. Síðast þegar bygginganefndin fór fram á fjárveitingu var hún skorin niður um 14 milljónir króna. Byggingaverktakar og tækni- menn sem þekkja til þessa máls segja að ekkert hafi verið sparað í þetta hús. „Aðeins það alfínasta er nógu fínt í þetta hús og hvergi hefur verið sparað í krónum og aurum. Bruðlið er svo mikið að dollaramerkin glampa í hverjum krók og kima.“ Garðar Halldórsson sagði hinn langa byggingartíma hafa haft sitt að segja um hversu hár kostnað- urinn væri orðinn. -Sáf Listasmiðirnir Hörður Kolbeinsson og Sigurður Einarsson önnum kafnir við að byggja nógu fínt yfir listina. Mynd E.ÓI. Nýbyggingar Samdráttur í fyrra Mikill samdráttur varð í ný- byggingum viðast hvar á landinu í fyrra. Mestur var samdrátturinn á Vestfjörðum eða um 50% og á Vesturlandi um 40% miðað við ijölda fullgerðra íbúða árið 1985. Hér er um að ræða bráðabirgð- atölur frá Þjóðhagsstofnun sem birtust í septemberfréttabréfi Húsnæðisstofnunar. Samkvæmt þeim hefur einnig orðið sam- dráttur á Suðvesturhorni lands- ins. í Reykjanesi var samdráttur- inn 18% og í Reykjavík um 7%. Landsbyggðarkjördæmin hafa því aukið hlutdeild sína í bygging- arframkvæmdum landsmanna úr 26% í 29%. Þar munar mest um aukna hlutdeild Suðurlandskjördæmis, þar sem aukningin varð um 75% milli ára. Einnig varð lítilsháttar aukning í íbúðabyggingum á Austurlandi og Norðurlandi vestra. Á Norðurlandi eystra voru hinsvegar framkvæmdir í al- gjöru lágmarki árið 1985. -Sáf Bílakaup Ótti við gengisfellingu Það er margur viðskiptavinur- inn harður á því að það verði gcngisfelling um næstu áramót og það kemur fram í mjög góðri sölu á nýjum bflum í dag. Maður hélt að mesti sölutoppurinn í sölu nýrra bfla væri liðinn hjá að mestu eftir rosasölu í vor og sumar þcgar við seldum allt að 200 nýja fólksbfla í hverjum mán- uði, segir Brynjar Jóhannesson, sölumaður hjá Bflaborg Vf. Ekkert lát virðist vera á sölu nýrra bíla nú í haust, en hvað þeir eru margir er erfitt að fá hjá Hag- stofu lslands, en starfsmenn hennar eru nánast að drukkna í innflutningsskj ölum nýrra bfla og eru rétt nýbúnir að skila frá sér innflutningstölum fyrir fyrstu sex mánuði ársins, hvað þá að þeir séu búnir með fyrstu þrjá árs- fjórðunga í bflainnflutningi. Fyrstu sex mánuði ársins voru Ekkert lát á sölu nýrra bíla nýir bflar, fólksbflar eingöngu samtals 10.239 sem hingað voru fluttir inn og er það spá margra að þeir verði að öllu óbreyttu nálægt 20 þúsundum í árslok. Þjóðviljinn forvitnaðist um það hjá nokkrum bflaumboðum hvernig salan væri um þessar mundir og var það viðkvæðið hjá þeim umboðum sem flytja inn þessa dæmigerðu fjölskyldubfla að ekkert lát virðist vera á sölu þeirra og fólk almennt trúir því statt og stöðugt að nú sé rétti tím- inn að kaupa inn nýja bílinn áður en gengið verði fellt um næstu áramót. En það er ekki sopið kál- ið þó að í ausuna sé komið. Hjá bflaumboðum er af- greiðslufrestur á nýjum bflum nokkuð mismunandi, allt frá nokkrum dögum og allt fram í febrúar á næsta ári. „Við erum hættir að spá í þessa þróun meðal landans í bíla- kaupum. Hann virðist alltaf geta bætt við sig nýjum bílum, sem er mjög gott fyrir okkur sem vinn- um við að selja nýja bíla. En við héldum kannski að eitthvað færi að hægjast um eftir törnina í vor og sumar, en það er ekkert lát á henni,“ sagði Rúnar Sigtryggs- son, sölustjóri hjá Toyota- umboðinu. grh Morgunblaðið Titringur vegna myndar Mikill titringur varð á ritstjórn Morgunblaðsins í gær eftir að ritstjórar blaðsins höfðu séð forsíðu Þjóðyiljans. Þar gat að líta mynd af Arna Johnsen, vara- þingmanni Sjálfstæðisflokksins og blaðamanni Morgunblaðsins, þar sem hann hélt tölu úr pontu á landsfundi Borgaraflokksins um síðustu helgi. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans kölluðu ritstjórarnir Arna inn á teppið vegna þessarar fram- göngu á fundinum, sem þeir töldu með öllu óhæfa. í Þjóðviljanum í dag eru birtar nokkrar línur frá Árna þar sem hann skýrir fyrir lesendum Þjóð- viljans erindi sitt í ræðustól. Sjá bls. 9 -s"

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.