Þjóðviljinn - 30.09.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 30.09.1987, Blaðsíða 15
Körfubolti Valur stal sigrinum Valur Ingimundarson stal sigr- inum af Kefl víkingum þegar hann skoraði sex síðustu stigin og tryggði Njarðvíkingum sigur eftir að Keflvíkingar höfðu verið 6 stig yfir mínútu fyrir leikslok. Lokat- ölur urðu 60-58 fyrir Njarðvík og spennan komst í hámark. Grindvíkingar sigruðu Breiða- blik 72-62 en á laugardaginn töpuðu Haukar 61-67 fyrir Keflvíkingum og Njarðvíkingar sigruðu Breiðablik auðveldlega 84-44. Úrslitaumferðin verður leikin á fimmtudaginn kl. 19.00. Þá keppa Grindavík og Keflavík og Haukar og Njarðvík. Þeir síð- astnefndu standa best að vígi en vinni Haukar leikinn er sigurinn Keflvíkinga. Haukar geta tryggt sér sigur á mótinu sigri þeir Njarðvíkinga með 11 stiga mun. -*g Júdó Bjami fékk silfur Bjarni Friðriksson náði silfri í sínum flokki á opna sænska meistaramótinu í júdó um hclgina í Lundi. Bjarni komst í úrslit í 95 kflóa flokki með því að vinna hollensk- an júdókappa og vesturþýskan en tapaði loks fyrir Jens Giesler frá Vestur-Þýskalandi. Halldór Haf- steinsson og Eiríkur Ingi Krist- jánsson kepptu einnig í flokkum sínum í Lundi og tapaði Halldór í annarri umferð, Kristján í fyrstu. Badminton 3.-4. sæti TBR-liðið stóð sig vel í Austurríki Badmintonlið TBR náði 3.-4. sæti á Evrópumótinu sem lauk í Viliach í Austurríki um helgina og getur verið stolt af þeim árangri. AIIs tóku þátt 18 lið. TBR vann lið Olve frá Belgíu, Smash frá Finnlandi og Cym frá írlandi en tapaði fyrir danska lið- inu Triton í undanúrslitum. Veggjatennis Hörður sigraði Hafnfirðingurinn Hörður Þor- steinsson sigraði í móti sem haldið var 1 veggjatennis um helgina, oStjörnu Matin- Blue“ mótinu. I öðru sæti var Sigurður Sveins- son og Frosti Sigurjónsson í þriðja. Stjarnan, Veggjasport og Dansstúdíó Sóleyjar stóðu að mótinu. T Góðir möguleikar Vals Mœta Wismuth Aue á Laugardalsvellinum ídag. Skagamenn gegn Kalmar og Fram gegn Spörtu Valsmenn eiga erfiðan leik fyrir höndum er þeir mæta Wismuth Aue í dag. Hér eru þeir Þorgrímur Þráinsson og Njáll Eiðsson í leik gegn Skagamönnum sem einnig leika í kvöld, gegn Kalmar FF. Evrópukeppni íslensku liðin, Valur og ÍA eiga góða möguleika á að komast í 2. umferð í Evrópukeppninni. Möguleikar Vals eru þó betri, þeir náðu jafntefli gegn Wismuth Aue á útivelli, 0-0. Aðalleikurinn í dag er leikur Vals gegn Wismuth Aue. Það er eini heimaleikurinn og þar eru líklega mestar líkurnar. Nýkrýndir íslandsmeistarar Vals hafa leikið vel í sumar og á góðum degi ættu þeir að eiga mikla möguleika. Þeir verða þó að sigra, því að jafntefli nægir ekki. Ef leiknum lýkur með markalausu jafntefli þarf að framlengja og svo vítaspyrnu- keppni ef ekki fæst úr skorið með úrslit í framlengingunni. Andstæðingar Vals eru engir aukvisar. Þrátt fyrir að í liðinu séu engar stjörnur, er það mjög sterkt og geysilega vinsælt í Austur-Þýskalandi. Þess má geta að Wismuth Aue er eina liðið í Austur-Þýsksklandi sem hefur ekki fallið í 2. deild. Leikur Vals og Wismuth Aue verður á Laugardalsvelli og hefst kl. 16.30. Skagamenn eiga einnig ágæta möguleika. Það var greinilegt í fyrri leik þeirra gegn Kalmar að þar áttust við tvö svipuð lið. Skagamönnum nægir jafntefli, en verða að skora a.m.k. eitt mark. Þeir eru þó heldur ver staddir en Valsmenn, enda á útivelli. Þó má segja að möguleikar þeirra séu nokkuð góðir. Framarar leika einnig á morg- un og möguleikar þeirra eru litlir. Þeir leika gegn einu sterkasta liði Tékkóslóvakíu, Sparta Prag. Með tap, 0-2, á bakinu, eftir fyrri leikinn er ekki ástæða til að vera bjartsýnn. Þá mun markakóngur- inn Pétur Ormslev ekki leika með Fram og ekki verður það til að bæta ástandið. Framarar leika á sama tíma og Valsmenn, kl. 16.30, en Skaga- menn tveimur tímum síðar. -Ibe Fyrlrll&ar með fslandsblkarinn: Islandsmótið í handknattleik byrjar í dag. Á myndinni má sjá sjö af tíu fyrirliðum þeirra liða sem berjast munu um Islandsmeistaratitilinn í vetur. Þeir eru frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson KA, Gísli Felix Bjamason KR, Guðmundur Guðmundsson Víkingi, Hermann Björnsson Fram, Gunnar M. Gunnarsson Þór, Guðmundur Þórðarson ÍR og Geir Sveinsson Val. Handbolti íslandsmótið hefst í dag Heil umferð í kvöld England Stórsigur Liverpool átti ekki í tcljandi vandræðum með nýliðana Derby á Anfíeld í gær. Liverpool sigraði, 4-0. Bradford jók forystu sína í 2. deild með góðum sigri gegn Huddersfield, 2-1 á útivelli, og hefur nú þriggja stiga forystu á Hull sem einnig sigraði Manc- hester City, 3-1. Úrslit leikja í 2. deild: Barnsley-Sheffield United.......1-2 Bournemouth-Plymouth............2-2 Huddersfield-Bradford...........1-2 Hull-ManchesterCity.............3-1 Middlesborough-Reading..........0-0 Oldham-Millwall.................0-0 Swindon-Shrewsbury..............1-1 -Ibe/Reuter Drengjalandslið Hádegis- knattspyma Drengjalandsliðið í fótbolta mætir Svíum í dag á Valbjarnar- velli og er viðureignin fyrri leikur liðanna í Evrópukeppninni. Lárus Loftsson þjálfari hefur valið sextán leikmenn í hópinn og er listinn þessi: Markmenn: Vil- berg Sverrisson Fram, Ólafur Pétursson ÍBK. Aðrir leikmenn: Arnar Grétarsson UBK, fyrir- liði, Axel Vatnsdal Þór Ak., Halldór Kjartansson UBK, Hug- inn Helgason Tý, Karl Karlsson KA, Kjartan Gunnarsson Sel- fossi, Nökkvi Sveinsson Tý, Rík- harður Daðason Fram, Sigurður Sigursteinsson ÍA, Steinar Guð- geirsson Fram, Valgeir Reynis- son Selfossi, Vilhjálmur Vil- hjálmsson Fram og Þorsteinn Þorsteinsson KR. Leikurinn hefst klukkan tólf á hádegi og er aðgangur ókeypis. 1X2... 1X2... 1X2... 1X2... 1X2... 6. vika ^ L- CU :o £ > .1 coO >,S aSQt-oiaico Charlton-Arsertal............ Chelsea-Newcastle............. Coventry-Watford.............. Liverpool-Portsmouth......... Luton-Manchester United...... Oxford-Norwich................ Southampton-Everton........... Tottenham-Sheffield Wednesday West Ham-Derby................ Wimbledon-Q.P.R............... Blackburn-Leeds............... Ipswich-Barnsléy............. 2 2 2 2 2 2 2 .x 1 1 1111 .111x111 111 1111 .1 x x 2 1 X 2 ..X 1 1 1 X X X 2 2 2 x x 1 2 111 1111 .2112111 2 112 12 2 .2 11 2 12 2 1x12 111 x 2 1 1 1 1 1 1 2 2 x x 2 2 1 1 x 1 x 2 x 2 1 x Hæsti getraunavinningurinn til þessa kom í 4. viku. Árbæingur var einn með 12 rétta og fékk rúma miljón, eða 1,222.745 krónur, á gulan 16 raða seðil. Með 11 rétta voru 37 raðir og hlaut hver um sig 5,520 krónur. íslandsmótið í handknattleik hefst í dag. Langt sumarfrí er að baki hjá flestum leikmönnum, að landsliðsmönnum undanskildum, og um helgina hittust þjálfarar og fyrirliðar og komust að þeirri niðurstöðu að Valsmenn væru líklegastir til að sigra í 1. deild. Samtök leikmanna í 1. deild stóðu fyrir könnun og þar var spáð fyrir um sætaröð. Valsmönnum var spáð sigri, en næstir koma íslandsmeistararnir Víkingur. Nýliðunum Þór og ÍR var spáð falli. 1. Valur...................67 2. Víkingur................80 3. FH.....................117 4. Fram...................127 5. UBK......................133 6. KA.......................156 7-8. Stjarnan................213 7-8. KR......................213 9. IR.......................267 10. Þór......................286 f kvöld verður leikin fyrsta um- ferðin. KA mætir Stjörnunni á Akureyri, Breiðablik íeikur gegn KR í Digranesi og FH tekur á móti nýliðunum Þór í Hafnar- firði. Þá hefja Víkingar titilvöm sína gegn ÍR í Laugardalshöll og að þeim leik loknum mætast Val- ur og Fram. Þessir leikir hefjast allir kl. 20, nema leikur Vals og Fram sem hefst kl. 21.15. Þá er einnig fyrsti leikurinn í 1. deild kvenna, Valur og Fram leika í íþróttahúsi Vals. Leikur- inn hefst kl. 18. Mótið verður með nokkuð öðru sniði en áður og munar mest um langt hlé um áramótin. Ekk- ert er leikið frá miðjum nóvem- ber fram í miðjan febrúar. Þessi tími fer að mestu í undirbúning landsliðsins, auk bikarkeppninn- ar. Það má reikna með spennandi móti í vetur. Heimkoma sterkra leikmanna á borð við Einar Þor- varðarson, Sigurð Gunnarsson og Atla Hilmarsson setur skemmtilegan svip á mótið og má búast við mikill spennu, jafnt á toppnum sem á botninum. -ibe Mióvikudagur 30. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.