Þjóðviljinn - 30.09.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 30.09.1987, Blaðsíða 2
FRETTIR >étur Þormar, leigubílstjóri Ég veit ekki. Mér líst ekkert á skatta- stefnu ríkisstjórnarinnar, hún hlýtur að bitna á hinum lægst launuðu. Þetta er engin frumleg lausn og hætt við því að gamla sagan endurtaki sig. —SPURNINGIN Áttu von á höröum kjaraátökum í vetur? Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjumaður Það verður allt vitlaust. Hver höndin upp á móti annarri. Enginn veit hvert stefnir. Annars er ég illa að mér í þessari stéttabaráttu. En mér finnst kominn tími til að fiskverkunarfólk, þvottakonur og aðrir láglaunahópar láti að sér kveða. Þorvaldur Valsson, símritari Já. Ég held það hljóti aö vera miklar líkur á því, miðað við hvað hefur verið að gerast síðustu daga. Svo tekið sé verkfall húsgagnasmiða til dæmis. Annars var ég ekki sammála þessum 7%, þar mátti koma meira á móts við vinnuveitendur. Lágmarkslaun mega hækka töluvert, svona um 30-40%. Gunnlaugur Vilhjálmsson, gerir ekkert Ég vona ekki. Það tapa allir á því. En auðvitað er þörfin fyrir hendi. Þetta er brjálað þjóðfélag og dýrtíðin óskap- leg. Ásdís Magnúsdóttir, ballettdansari Já, mig grunar það. Það liggur [ loft- inu. Fólk er orðið þreytt, en tilbúnara til að standa upp og láta til sín heyra. Það er meiri djörfung. Enda segir sig að ekki er hægt að lifa á þessum launum. Ég vinn sjálf hjá ríkinu og ég finn fyrir meiri þrýstingi hjá fólki en áður. Arnaldur Bjarnason bæjarstjóri: Okkur býðst rafmagn á tœpa 50 aura kílóvatt■ stundin. Ofdýrt. 36 aura kílóvattstundin með kolaorkuveri. „Ef ekki nást viðunandi samn- ingar um orkuverð til Vestmannaeyja þá er ekki um annað að ræða en að byggja hér kolaorkuver til upphitunar vatns til húshitunar. En bygging og rekstur slíks orkuvers er nú ekki okkar óskaúrlausn í orkuvand- amálum eyjarskeggja,“ segir Arnaldur Bjarnason bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Um nokkurt skeið hafa við- ræður verið milli Vestmanna- eyjabæjar og Landsvirkjunar um rafmagnsverð tii eyjarinnar, þar sem fyrirsjáanlegt er að ekki er við því að búast að meiri orka fáist úr hrauninu til fjarhitunar nema í nokkra mánuði í viðbót. Að sögn Arnaldar hefur Landsvirkjun boðið um 20% lækkun á rafmagnsverði á hverja kílóvattstund og bjóða þeir nú rúma 22 aura fyrir hverja kfló- vattstund. En hnífurinn stendur í kúnni þar sem eru Rafmagns- veitur ríkisins, sem sjá um flutn: ing raforkunnar tileyja. Þeirtelja sig ekki geta komist af með minna en 26 aura fyrir flutnings- kostnaðinn á raforkunni til Vestmannaeyja. Innifalið í þess- um kostnaði er bygging línu og þess háttar sem fylgir slíkum framkvæmdum. Þar með er kíló- vattstundin komin upp í tæpa 50 aura, en samkvæmt verðútreikn- ingum yrði kílóvattstundin með kolaorkuveri 36 aurar. „Við vonumst nú til að fá lausn úr þessum málum innan skamms og í næstu viku verða viðræður okkar ásamt iðnaðarráðuneytinu með Landsvirkjun og Rafmagns- veitum ríkisins, þar sem reynt verður að leysa vandann. En ef ekki þá neyðumst við til að byggja hér kolaorkuver, því það er dýrt að kynda katlana í vara- aflstöðinni okkar með olíu,“ sagði Arnaldur Bjarnason, bæj- arstjóri. Aðeins eitt fyrirtæki hér á landi notar kol til orkuframleiðslu í dag og það er Sementsverksmiðja ríkisins á Akranesi. Hraunhitaveitan er að syngja sitt síðasta. Bæjaryfirvöld leita nú allra ráða til að finna ódýran upphitunarmöguleika fyrir Eyjaskeggja. Vestmannaeyjar Kolin síðasta lausn SAA Neskaupstaður 10 ára afmæli Um næstu helgi munu Samtök áhugafólks um áfengisvandamál- ið - SÁA - fagna því að tíu ár eru liðin frá stofnun þeirra. Verður efnt til hátíðarsamkomu í Háskól- abíói laugardaginn 3. október kl. 14.00 með fjölbreyttri dagskrá: Flytja þar ræður og ávörp Pétur Þ. Maack formaður SÁÁ, Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra, Ólafur Ólafsson land- læknir, Flosi Ólafsson og Sigurð- ur Guðmundsson settur biskup, en skemmtikraftar verða Egill Ólafsson og félagar, Bjarni Ara- son og Ólöf Kolbrún Harðardótt- ir. Stjórnandi og kynnir er Jónas Jónasson og er öllum heimill ókeypis aðgangur. Á sunnudag- inn verður svo kaffisamsæti milli kl. 14.00 og 16.00 í húsakynnum SÁÁ að Síðumúla 3-5, 2. hæð, og eru þar velkomnir allir vinir og velunnarar SÁÁ fyrr og nú. í fréttatilkynningu um þessa afmælishátíð stendur enn fremur: „Stjórn SÁÁ telur tilefni til há- tíðarhalda ærið, því mikið hefur áunnist í meðferðarmálum áfengis- og fíkniefnaneytenda á þessum 10 árum. Er nú öll með- ferð þessara sjúklinga hér innan- lands auk þess sem hugarfars- breyting er mikil hjá þjóðinni í garð áfengissjúklinga og annarra vímuefnaneytenda. Hefur þessi vakning vakið athygli víða um heim og árlega sækja tugir út- lendinga þekkingu til SÁÁ. Er skemmst að minnast heimsóknar sænsku konungshjónanna.“ Fyrir utan meðferðarstofnan- irnar sem SÁÁ rekur að Vogi, Sogni í Ölfusi og Staðarfelli í Dölum, reka samtökin umfangs- mikla fræðslu- og leiðbeiningar- stöð í Síðumúla 3-5 í Reykjavík. Fjorhjol tekin í sátt Ör fjölgun fjórhjóla á þessu ári hefur víða skapað sveitar- stjórnarmönnum hugarangur og mörg sveitarfélög hafa nú þegar bannað notkun fjórhjóla. Bæjarstjórn Neskaupstaðar og hreppsnefnd Norðfjarðarhrepps hafa hins vegar í samvinnu við lögreglu í Neskaupstað leyst þetta mál með því að gera sam- komulag við nýstofnað Félag fjórhjólaeigenda í Neskaupstað. Með samningnum er fjórhjóla- eigendum úthlutað sérstakt æf- ingasvæði og skýrt tekið fram að fjórhjólum megi hvergi aka utan akbrauta nema á fyrrgreindu svæði. Um götur bæjarins má ekki aka nema til og frá fyrr- greindu svæði og hámarkshraði fjórhjóla er í öllum tilfellum 40 km á klst. Eftir kl. 23 má ekki aka fjórhjólum um götur bæjarins. Brot á samningi þessum mun valda því að notkun fjórhjóla verði bönnuð í Neskaupstað og Norðfjarðarhreppi og sett er það skilyrði fyrir skráningu fjórhjóla að eigandi hafi áður gengið í Fé- lag fjórhjólaeigenda. hb/Neskaupstað Riðan Tveggja ára áætlun Stórfellt átak verður gert til þess í haust og að hausti að losa bændur við riðuvágestinn þótt auðvitað verði ekkert fullyrt um það nú, að komist verði fyrir allar rætur. Gróft áætlað má gera ráð fyrir því, að tala þess sauðfjár sem ætlunin er að farga á þessum tveimur árum sé 40 þúsund. Búið er að ganga frá samning- um við 114 sauðfjáreigendur um slátrun á 24 þús. fjár nú í haust og búast má enn við einhverri viðbót þannig að talan gæti farið í 28 þús. að sögn Kjartans Blöndals, framkvæmdartjóra Sauðfjár- veikivarna. Afgangurinn af 40 þúsundunum bíður þá næsta hausts. Til þessa hefur verið talið að kjöt af riðuveiku fé væri hvorki hættulegt til neyslu mannfólki né loðdýrum. Á hinn bóginn er eng- inn markaður fyrir þetta kjöt og ekki er talið á neitt hættandi með loðdýrin. Því er mælt með því að féð verði svæft, gæran hirt og kjötið urðað. Sýnist ekki annar kostur einfaldari né ódýrari fyrir alla. Aðalriðusvæðin eru fjögur: 1. Frá Miðfjarðargirðingu að Blöndu. 2. Milli Blöndu og Hér- aðsvatna. 3. Fellshreppur í Skagafirði, norður um og til Ár- skógsstrandarhrepps í Eyjafirði, (hann meðtalinn). 4. Hlíðar- hreppur eystra og suður í Geit- hellnahrepp. Ætlunin er að næsta haust verði lokið við að farga rið- uveiku fé á þessum svæðum öllum. - mhg Veit ekki, kannski einhver órói á þingi. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 30. september 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.